Sóknarátak ríkisstjórnarinnar á landsbyggðinni.

 

Er fallegt orð yfir skaðastefnu þessa höfuðborgarvalds gagnvart dreifðum byggðum landsins.

 

Það var varað við aukinni skattlagningu á skemmtiferðaskip, það kæmi illa niður á smærri stöðum sem væru að reyna ná til sín skipum, þau aðvörunarorð voru hunsuð, afleiðingarnar eru þegar komnar í ljós.

Og það verður bara verra þó stóru staðirnir munu líklega halda sínu.

 

Grindvíkingar fengu kaldar kveðjur frá orðagjálfrinu núna á vordögum þegar ríkisstjórnin tilkynnti að hún ætlaði ekki lengur að framlengja stuðning við fyrirtæki, korteri áður en aftur verður byggilegt í Grindavík.

Þeim var bent á eitthvað sóknarátak, sem engu skilar nema skýrslum og nefndarálitum.

Og jú, einnig var tilkynnt að embætti Umboðsmanns skuldara var tilkynnt að það ætti að vera greiðvikið við gjaldþrota smáatvinnurekendur úr Grindavík, reyna að bjarga hýbýlum þeirra, hvernig svo sem það ætti að vera hægt án þess að því fylgdi fjármagn.

 

Auðlindagjöld er nýjasta orðið yfir sérskattheimtu á atvinnuvegi landsbyggðarinnar, fyrstu átökin eru á þingi í dag um þessa ofurskattheimtu á sjávarútveginn.

Það má sko ekki vera gróði í grunnatvinnuvegum þjóðarinnar, hann á allur að vera í verslun og þjónustu, og því er boðuð eignaupptaka í formi ofurskatta.

Svo má nefna boðaða hækkun á kolefnis og umhverfissköttum, allt eitthvað sem leggst á samgöngur landsbyggðarinnar, gerir það dýrar að leita í hina miðstýrðu þjónustu á höfuðborgarsvæðinu ásamt því að hækka allan flutningskostnað.

 

Allt gert til að gera sjálfstæðar byggðir og sjálfstætt fólk að ölmusuþegum, svo inngangan í Evrópusambandið verðir girnilegri, því þar er víst hægt að fá einhverja byggðastyrki, til að koma lífi í það sem regluveldið hefur eyðilagt.

Hið raunverulega sóknarátak er því að sókn inní Evrópusambandið.

Og það með stuðningi þingmanna landsbyggðarinnar.

 

Þar liggur mesta smánin hjá fólkinu sem sveik okkur hin.

Því það er svo gaman að fá að þjóna og taka ofan fyrir Reykjavíkurvaldinu.

Gömul saga og ný um minnimáttarkennd þeirra sem vilja vera eitthvað og kunna ekki aðra leið til þess en að sækjast í að þjóna fjarlægu valdi, verða þannig maður með mönnum.

 

Svei attan.

Svei attan.

Kveðja að austan.

 

 

 


mbl.is Skaðinn er skeður á Patreksfirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 28. júní 2025

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.6.): 407
  • Sl. sólarhring: 552
  • Sl. viku: 4792
  • Frá upphafi: 1453355

Annað

  • Innlit í dag: 342
  • Innlit sl. viku: 4086
  • Gestir í dag: 307
  • IP-tölur í dag: 300

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband