Til hvers þarf lög??

 

Hvort sem þau eru um útlendingamál eða önnur, þegar að stjórnsýslustofnanir fari eftir þeim, þá boðar Góða fólkið, í boði stríðsmálaráðherra, frumvarp um að ekki eigi að fara eftir þeim lögum.

Það dregur það enginn í efa að Góða fólkið sé bæði heimskt, og núvitund þess og söguþekking nær ekki mörg ár aftur í tímann, hugsanlega 5 til 10 ár, en samt á allri heimsku, á öllum fávitahætti hljóta að vera takmörk, þó undirliggjandi séu kaffilepjandi fólks í þessum heimi, sem má draga í efa, þá eru takmörk fyrir heimsku þess.

Allavega myndi maður halda að þau takmörk eigi við þjóðþing okkar, Alþingi.

 

Barnið sem á í hlut, á ekki að rífa upp með rótum.

Það er, það er mitt sjónarmið.

En það sjónarmið er aukaatriði miðað við árásina á lög og löggjöf, á þær stjórnsýslustofnanir sem vinna eftir lögum og reglum samfélags okkar.

 

Ef við erum mjög heimsk, þá sjáum við ekki undirliggjandi hagsmuni alþjóðlegra glæpasamtaka, mannsals og flóttamannaiðnaðarins, á eftir eiturlyfjasmygli, þau glæpasamtök sem hagnast mest á Vesturlöndum í dag.

Sá glæpalýður, veltandi sér uppúr gróða sínum, býður uppá leiksýningar með saklausu fólki, líkt og hjá Oscari, hans velferð er aukaatriði málsins.

Fjárþyggendur eru virkjaðir til að brjóta niður lög og reglur þjóðarinnar, ef lög og regla væru ennþá á Íslandi, þá væri Úlfar lögreglustjóri, og Fjárþyggendur Mannsals og Flóttamannaiðnaðarins sæti rannsókn.

Það er í fullkomnum heimi þar sem glæpalýður þarf að óttast lög og reglur, en ekki fjármagna  framkvæmd slíkra laga og reglna.

 

Við sem þjóð þurfum hvorki lög eða reglur.

Ekki ef þeim er aðeins beitt okkur innfæddum, en keypt stjórnmálastétt stjórnar þjóðinni.

Eigum við samt ekki að setja mörkin við nauðganir??

 

Að þar séum mörk sem Rúv, Viðreisn og Samfylkingin þurfi að virða.

Eða eigum við að sætta okkur við það sem koma skal??

 

Ef svarið væri Já, þá myndi ég ekki skrifa þennan pistil.

Við höfum ekki gengið Götuna til góðs.

Kveðja að austan.


mbl.is Frumvarp um íslenskan ríkisborgararétt Oscars líklegt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 2. júní 2025

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.6.): 458
  • Sl. sólarhring: 1178
  • Sl. viku: 3386
  • Frá upphafi: 1443846

Annað

  • Innlit í dag: 402
  • Innlit sl. viku: 2969
  • Gestir í dag: 387
  • IP-tölur í dag: 381

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband