Vá, er Hamasdeild Morgunblaðsins endanlega gengin af glórunni??

 

Lærði hún ekkert af falsfréttinni um 14.000 börnin sem áttu að verða hungurmorða næstu 48 klukkustundirnar??

Sem ekki varð en vissulega dóu börn vegna vanæringar þó tala þeirra væri ekki talin í tugum, hvað þá hundruðum eða þúsundum, hvað þá á annað tug þúsunda.

Af hverju heldur Hamas deild Morgunblaðsins að lygar og falsfréttir séu meðöl til að linna þjáningar íbúa Gasa strandarinnar??

 

Eitt barn sem dó vegna vannæringar og hungurs, er samt einu barni of mikið, en þá má spyrja þegar myndir birtust af pattaralegum Hamsliðum að niðurlægja grindhoraða gísla sína á torgum Gasa borgar, gátu þeir ekki sleppt úr einni máltíð til að bjarga lífi þessara barna??

Það hvarflar að manni að börnin hafi verið látin svelta í hel vegna áróðursgilda ljósmynda af síðustu stundum þeirra.

Því svo birtast aðrar myndir af pattaralegum börnum í hundraða tali, eiga vissulega erfitt en ekkert bendir til yfirvofandi hungurdauða þeirra.

Og Hamast liðar hafa nóg að éta líkt og vel haldnar skepnur.

 

Einhver stofnun hjá Sameinuðu þjóðunum er borin fyrir þessu lygum um að "Hungursneyð vofir yfir hverjum einasta íbúa Gasa" svo ég vitni í fyrirsagnar þessarar falsfréttar sem áróðursdeild Hamas hefur plantað inná síður Mbl.is.

Einhver önnur stofnun Sameinuðu þjóðanna var borin fyrir fréttinni af 14.000 börnunum sem er sprelllifandi í dag.

Önnur frétt hér á Mbl.is greinir frá að Hamas hafni vopnahléstillögu Bandaríkjamanna, 60 daga vopnahlé gegn gísla og fangaskiptum, ásamt óheftum flutningi hjálpargagna til Gasa.

 

Hamas er vissulega stjórnað af feitum pattaralegum skepnum, en trúir einhver því í alvörunni að þær séu svo helsjúkar að þær hafni vopnahléi ef svona mikið er undir líkt og fyrirsögn viðtengdar fréttar Morgunblaðsins heldur fram??

Að þær neiti vopnahléi og kalli þar með allsherjar hungursneyð yfir þjóð sína??

Í alvöru!!

 

Já segir áróðursdeild Hamas hjá Morgunblaðinu.

Lágt er risið á Mogganum í dag.

Kveðja að austan.


mbl.is Hungursneyð vofir yfir hverjum einasta íbúa Gasa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 30. maí 2025

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.5.): 520
  • Sl. sólarhring: 600
  • Sl. viku: 1701
  • Frá upphafi: 1441904

Annað

  • Innlit í dag: 472
  • Innlit sl. viku: 1537
  • Gestir í dag: 437
  • IP-tölur í dag: 423

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband