Viðreisn gegn þjóð.

 

Viðreisn telur sig vera hægrisinnaðan flokk þar sem frjálshyggja Friedmans er meginstefið, Samfélagið á að aðlaga að stórfyrirtækjum, frjáls viðskipti, að meginum til frá þrælabúðum Glóbalsins í Austur Asíu, eiga að ákvarða íslenskt atvinnulíf, sem og kjör vinnandi fólks.

Guðfaðir Viðreisnar er Þorsteinn Pálsson, lúser sem mistókst að leggja íslenskar sjávarbyggðir í auðn þegar hann var sjávarútvegsráðherra.

 

Viðreisn fékk fylgi í síðustu kosningum, fyrir hægri sinnað fólk var augljós munur á börnunum í Sjálfstæðisflokknum, misvel gefnar þó, og þroskuðum konum sem leiddu lista Viðreisnar.

Börnin, barbídúkkurnar urðu undir og Viðreisn vann kosningarnar á hægri væng íslenskra stjórnmála.

 

Síðan þá hefur Viðreisn afhjúpað sig sem grímulaus hægriflokkur, vinnandi eftir frjálshyggju Þorsteins Pálssonar, hans mentorar Friedman og Hayek.

Jafnvægi hinnar fölsku krónu útrásarvíkinganna á að halda með beinum stuðningi við snata þeirra í Seðlabankanum, fjárlög fjármálaráðherra eru bein svik við meðflokka Viðreisnar í ríkisstjórninni.

Í gegnum fjármálaráðherra Viðreisnar og ofstopa Þorgerðar Katrínar stríðsmálaráðherra stjórnar Viðreisn öllu í núverandi ríkisstjórn.

Kristrún mætir aðeins í fjölmiðla þegar það þarf sæta mynd, Inga er lost, í spillingu og sérhagsmunagæslu.

 

Og þegar úlfur í sauðagæru sýnir ásýnd sína, þá eru ráðherrar Viðreisnar ekki beint fagrir, það er þegar kemur að þjóðarhag, að hagsmunum almennings.

 

Dómsmálaráðherra rak manninn sem hélt uppi vörnum á landamærunum, hans sök var að benda á ítök meintra rándýrra málaliða glæpasamtaka, lögfræðinga sem mættu áður en meðlimir glæpagengja á Suðurnesjum voru teknir í yfirheyrslu.

Einfeldningar halda að þetta snúist um útlendingamál, en eftir að Úlfar lögreglustjóri benti á að þegar meintir bótaþegar/atvinnuleysingjar af albönskum glæpauppruna voru kallaðir í yfirheyrslu, þá voru hinir rándýru lögfræðingar mættir á undan þeim.

Og aðeins þá var hann rekinn, entist ekki viku í embætti sínu eftir það.

 

Hinir rándýru er jú ásýnd hinna alþjóðlegu glæpasamtaka sem hafa yfirtekið íslenska undirheima og fært þá á nýtt og æðra stig, eitthvað sem við þekkjum í fréttum frá Danmörku og Svíþjóð.

Í Viðreisn fer enginn gegn hinum rándýru.

 

Vissulega löng aðfaraorð þessa pistils, um fávitatal Hönnu Katrínar Friðrikssonar, þegar hún í nauðvörn gegn augljósum staðreyndum, segir að það sé "skiljanlegt að fólk mótmæli frumvarpinu", mótmæli aðför hennar og guðföður Viðreisnar, Þorsteins Pálssonar að því mannlífi sem þó lifði af fyrri aðför Þorsteins Pálssonar að sjávarbyggðum landsins.

Hún skilur að við mótmælum dauðafrumvarpinu, ofurskattlagningu sjávarbyggða landsins.

Svona líkt og hún skilur að fólk sé ekki sátt við að ræningjar herji á byggðir og ræni fólki lífsbjörginni.

Hún skilur það, en sem ræningi þá rænir hún samt, hennar skilningur er líklegast sá að hún vill ekki að aðrir ræningjar ræni hana.

 

Nema að Hanna Katrín er ekki ræningi, orð hennar lýsa aðeins djúpstæðri fyrirlitningu á landsbyggðinni, og fólkinu sem ennþá hefur þraukað með búsetu sína þar.

Fyrirlitningu sem má þýða yfir á mannamál, "þið eruð svo heimsk að þið vitið ekki hvað ykkur er fyrir bestu".

 

Kannski er Hönnu Katrínu vorkunn, rök hennar eru engin, frumvarp hennar er illa unnið, forsendurnar eru afhjúpaðar sem bull og vitleysa, og á þessum fundi sem þessi frétt Mbl.is er tengd við, þá stóð fullyrðingin aðeins ein eftir.

Innst inni veit hún að hún er að skipa sér á bekk með mestu þjóðníðingum í 1100 ára sögu Íslandsbyggðar.

Gegn því nagandi samviskubiti fær hún uppklapp og upphróp veruleikafirrtra ræfla búsetta í 101 Reykjavík, ræfla sem gera DúDú fuglinn gáfaðan.

 

Eftir stendur nakinn valdaflokkur í þjónustu Örfárra, þess fármagns sem sér aðeins stórfyrirtæki, þrælaverksmiðjur glóbalsins, hatur frjálshyggjunnar gagnvart einstaklingum, fyrirtækjum hans og samfélögum.

Þorsteini Pálssyni tókst ekki algjörlega að rústa sjávarbyggðum Íslands þegar hann var sjávarútvegsráðherra undir lok síðustu aldar, hann grét opinberlega þegar hann talaði um árangur Friedmanistanna í Nýja Sjálandi, hina meintu hagræðingu sem endaði með 3 stórfyrirtækjum, annað var dautt, en þáverandi Alþingi eyðilagði hina meintu hagræðingu hans með reglum um hámarkseign stórfyrirtækja á kvóta, síðan þá hefur Þorsteinn Pálsson grátið.

Sá grátur hans skýrir aðför lærisveina hans í Viðreisn að mannlífi og búsetu sjávarbyggða, sem og fyrirlitningu Hönnu Katrínar á réttmætum aðvörunarorðum sveitastjórnenda hinna sömu byggða.

Það skiptir hana meiru að þverra tár Þorsteins en að hlusta á okkur sem byggja landið, til sjávar og sveita.

 

Svo er það dómsmálaráðherra sem gengur beint erinda hinna alþjóðlegu glæpahópa sem vilja fá frið með sína atvinnustarfsemi, nóg borga þeir jú inní flokkinn.

Og stríðsmálaráðherrann, sem vill vopnvæða þjóð okkar, herja í austurveg, og jafnvel í vesturveg, það er jú þessi Trump þarna.

 

Ég spyr aðeins, hvar er Kristrún, hvar er Inga??

Hvorugar vissulega hafnar yfir gagnrýni, en þær eru samt hluti af þjóð okkar.

Hvort sem við erum sammála, eða ósammála, þá eru þær einar af okkur.

En aðeins leppar þess flokks sem þjónar fjármagni, en ekki þjóð.

 

Flokks sem ræður.

Flokks sem fyrirlítur þjóð sína, fólkið sem kallar sig Íslendinga.

 

Flokks sem fáir kusu, en ræður öllu.

Kveðja að austan.


mbl.is Skiljanlegt að fólk mótmæli frumvarpinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 28. maí 2025

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 413
  • Sl. viku: 693
  • Frá upphafi: 1440893

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 640
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband