30.1.2025 | 16:44
Norskir kratar svíkja allt sem hægt er að svíkja.
Þjóð sína, almenning sem er leiksoppur orkubraskara, atvinnulífið.
Allt sem er hægt að svíkja, til að eyða þeirri samkeppnishæfni Norðmanna að búa að ríkulegum orkuauðlindum.
Þeir eru svo aumir, svo undir hæl frjálshyggju auðsins um að Markaðurinn megi braska með allt, sjúga auð og kraft úr samfélagi hinna venjulega, með stuðningi hinnar betur borguðu menntastéttar landsins.
Jú, það eru hin menntaða stétt sem í skjóli háskólagráða sinna, hefur knúið fram launayfirburði fram yfir vinnandi fólk, sem styður þessa aðför frjálshyggju hins Frjálsa markaðar að lífi hins almenna borgara, sem og að fyrirtækjum einstaklingsins, gegn atvinnulífinu, því það sjálft telur sig öruggt líkt og yfirstéttir fyrri aldar, hvort sem það var franski aðalinn, sá rússneski, aðlar sem voru líflátnir fyrir þessa trú sína um réttmæti kúgun sína og örbirgð hinna venjulega, eða þrælaeigendur Suðurríkjanna, sem töpuðu borgarastyrjöld en héldu samt lífinu, sem og tækifærinu til að hefja nýja tíma kúgunar og arðráns.
Venjulegt fólk um alla Evrópu hefur fyrir löngu sagt Nei við frjálshyggju hins frjálsa flæði Evrópusambandsins, hvernig lífskjör þess eru rústuð, fyrst í nafni hins frjálsa flæði um lægstu laun, síðan útflutning starfa til Fjarskaistan, og núna síðast með því að venjulegu fólki er næstum því gert ókleyft að lifa venjulegu lífi, að kynda húsin sín, að reka bíla sína, eða fá vinnu hjá fyrirtækjum sem hafa lokað vegna tilbúins orkuskorts.
Aðeins innflytjendur, og afkomendur þeirra, tryggja leppum auðsins völd í Evrópu í dag.
Norski Miðflokkurinn sagði líka Nei, seint verður hann sakaður um últrahægri öfga svo ég vitni í þekkt stef áróðursdeildar frjálshyggjunnar í Brussel.
Fórnarlömb hins frjálsa flæðis, og þar sem það eru til svo vitlausir hægrimenn sem kenna hugmyndafræði Fridmans og Hayeks við kratisma, frjálsa flæðis sem er frá a til ö hannað út frá kenningum frjálshyggjunnar um hinn Frjálsa Markað, hafa líka sagt Nei.
Og kosið þá flokka sem segja Nei, hvað annað þeir segja, spá fórnarlömbin lítt í.
Líkt og í Bandaríkjunum þar sem hið venjulega fólk kaus Donald Trump, þvert gegn fordæmingu hinnar nýju yfirstéttar, háskólamenntaðs fólks sem telur siga hafa allt á þurru.
Fyrirsögn þessa pistils vísar í það að jafnaðarmenn, þeir lýðræðissinnar sem klufu sig frá sósíalistum á þriðja áratug síðustu aldar, sögðu þá Nei við alræði sósíalistanna, en Já við félagslegt réttlæti, jöfnuð og bræðralag.
Já, sem er arfleið norskra krata og þeir sviku, sviku hið venjulega fólk, sviku bræðralagið, sviku réttlætið, sviku jöfnuðinn.
Aumkunarverð skrípi þess sem áður var.
Hér á Íslandi gengur Skúffan í skrifborði, þessi í miðju, önnur frá hægri, hjá Samtökum Atvinnurekanda erinda frjálshyggjunnar, erinda þess glóbals auðs sem hefur rústað efnahag og framleiðslu vestrænna ríkja síðustu 30 árin eða svo, það að Viðreisn vill í ESB er ekki frétt, málaliðar hagsmuna auðsins hafa alltaf verið til, og munu alltaf vera til.
Þeir eru jú á góðu kaupi.
Íslenskir jafnaðarmenn hafa lengi gengið þessa svikaslóð, samviskusamlega fjármagnaðir af auðrónunum sem vilja evru til að krónan sé ekki milliliður þegar þeir flytja auð sinn úr landi.
Það er smán okkar í Norð-Austur kjördæmi að Logi Einarsson var eini kjördæmakjörni þingmaður Samfylkingarinnar í kosningunum 2016, annars hefðu svikin við þjóðina, við almenning þurrkað út þessa þjóna auðsins við frjálshyggju hins frjálsa flæðis Evrópusambandsins.
Lærdómur sem Kristrún Frostadóttir hefur meðtekið, og gert Samfylkinguna aftur að stjórnmálaafli jafnaðarmanna og félagshyggjufólks.
Hennar leiðsögn er að þjóðin sé mikilvægari en regluverk hins Frjálsa flæðis í Brussel.
Þá sveik Inga með eign sinni; Flokki fólksins.
Bættist í röð þeirra Áslaugu Örnu og Þórdísar Kolbrúnu.
Viðreisn og Þorgerður Katrín virðast stjórna öllu í dag.
Ef Inga fer út, þá kemur bara Áslaug í staðinn.
Í Noregi er til ærlegt fólk sem segir Nei.
Slíkt fólk finnst ekki hinsvegar á Ísland í dag.
Ekki ef ráðherrastóll er í húfi.
Almenningur heldur samt áfram að segja Nei.
Spyrjið bara Trump.
Hann fattaði þetta.
Og Bandaríkin eru ekkert eyland.
Því í dag er Nei svarið.
Að vera þræll er ekki valkostur.
Ekki fyrir okkur venjulegu.
Og við erum fleiri.
Það get ég svo svarið.
Kveðja að austan.
Norska stjórnin sprungin: Ósátt um orkumál og valdframsal til ESB | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggfærslur 30. janúar 2025
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.1.): 372
- Sl. sólarhring: 390
- Sl. viku: 1872
- Frá upphafi: 1414699
Annað
- Innlit í dag: 341
- Innlit sl. viku: 1632
- Gestir í dag: 308
- IP-tölur í dag: 308
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar