Mogginn og stórviðrin

 

Það er oft talað um storm í vatnsglasi þegar mikið veður er gert úr litlu, en ef svona einelti heldur áfram verða komin ný viðmið í lok kjörtímabilsins, eða kannski í vikulokin, og talað verður um Moggastórviðri, stytt í Moggaviðri.

 

Hvert er málið með félagasamtökin sem buðu sig fram til Alþingis undir nafni Flokk fólksins??

Þau buðu sig fram, framboð þeirra var samþykkt, þau fengu ákveðið fylgi í undangengnum kosningum, og út frá því fylgi fengu þau styrki frá hinu opinbera.

Það sama gildir um aðra stjórnmálaflokka, félagasamtök, eða skúffuna á skrifborði Samtaka Atvinnulífsins og kennir sig við Viðreisn, það var boðið fram, framboð samþykkt, ákveðið fylgi, út frá því fylgi var borgað.

 

Menn geta rifist um hvort það sé eðlilegt að hið opinbera fjármagni stjórnmál á Íslandi, og þá sérstaklega Gunnar Smára, en að rífast um það á forsendum lagapésa er út í hött.

Við ættum frekar að nota þetta skráningarmál, sem og nýlegan dóm héraðsdóms gegn virkjunum þjóðarinnar, sem lærdóm um þær ógöngur sem lagapésar hafa komið samfélaginu í.

Það er ekkert hægt að gera fyrir þeim, og öllum reglunum og reglugerðunum sem þeir bera ábyrgð.

Það er ekkert eðlilegt við það að smáletrið í skilmálum tryggingafélaga sé orðið eins og opin auðskilin bók miðað við lög og reglugerðir.

 

Baráttan við þann torskilda frumskóg, sem ekki einu sinni fuglinn gæti flogið yfir ef hann væri eiginlegur frumskógur, er eitt mesta framfaramál þjóðarinnar.

Ef ekki það mesta.

Það er samtvinnað baráttunni um að þjóðin segi sig frá EES samningum, og í kjölfarið hreinsi út allar reglugerðirnar sem þaðan hafa komið og setji lög og reglur upp á nýtt á mannamáli.

Lögin eru fyrir okkur, hinn venjulega, sem á góðviðris dögum kennir sig við þjóð, en ekki lögfræðinga, til að þeir hafi lifibrauð að því að flækja hlutina út í hið óendanlega svo enginn skilur neitt í neinu.

 

Stjórnmálamenn eiga heldur ekki að falla í þá gryfju að nota þetta Moggastórviðri til að ná höggi á Flokki fólksins.

Ekki frekar en storminn í vatnsglasinu þegar Bjarni Ben fór í kvöldgöngu á Þorláksmessu í miðju kóvid, eða þegar pabbi hans keypti bréf í Íslandsbanka, eða skrifaði uppá meðmæli um náðun dæmds kynferðisbrotamanns.

Því fyrst og síðast eru þeir að gera lítið úr eigin hæfni til að takast á um málefni, landsstjórnina eða annað sem þeirra hlutverk er.

Að stytta sér þar leið til að ná höggi er aldrei styrkur.

Spyrjið bara Pírata, VinstriGræna og kjaftavaðal arm Samfylkingarinnar sem Kristrún pakkaði snyrtilega inní gjafaumbúðir og bauð atvinnuleikhúsum okkar sem ókeypis aukaleikara, þingfarakaupið ætti að nægja þeim til framfærslu.

 

Inga og félagasamtök hennar, því hún á þessi félagasamtök, sveik sín helgustu vé þegar hún gerði Skúffunni þarna í skrifborðinu kleyft að fara til Brussel og falbjóða sjálfstæði þjóðarinnar.

Slíkt gerir fólk ekki, aðeins leiguþý.

Og þar eiga spjótin að standa, og hvergi annars staðar.

 

Hún sveik líka fæði, klæði, húsnæði þegar hún leyfði Skúffunni þarna að skipa frjálshyggjumann í embætti fjármálaráðherra.

Frjálshyggjumann sem telur Markaðinn hafa tekið við af Seif að ríkja á Ólympsfjalli og musteri hans hér á jörðu sé í hvelfingum Svörtulofts.

Þar sem vextirnir eru ákveðnir, vextirnir sem ríkja yfir mannheimi svo öll stjórnvöld eru þar með óþörf.

Í ríki Mammons fá fátækir ekki fæði, klæði eða húsnæði, það er ekki flóknara en það.

Og þú þjónar ekki tveimur herrum í einu.

 

Á þessum forsendum á fólk að herja á Ingu.

Ekki á forsendum Morgunblaðsins.

Eða annarra sem hafa komist upp með eftir Hrunið að gera aukaatriði að aðalatriðum, og aðalatriðin eru ekki í umræðunni.

 

Sjálfstæði þjóðarinnar.

Þjóðarskiptin.

Aðförin að landsbyggðinni undir lýðskrumi auðlindagjalda

Svikin kosningaloforð.

Óstarfhæft stjórnkerfi ríkis og sveitarfélaga sem kemur fáu í verk nema klúðri.

Eignarhald útlendinga á því sem næst öllu sem við áður áttum og svo framvegis, og svo framvegis, og svo framvegis.

 

Gyrðum okkur í brók.

Látum ekki stjórnast svona.

 

Við erum sterkari en það.

Kveðja að austan.

 


mbl.is Óljóst um niðurstöðu styrkjamálsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 29. janúar 2025

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.1.): 147
  • Sl. sólarhring: 462
  • Sl. viku: 1647
  • Frá upphafi: 1414474

Annað

  • Innlit í dag: 138
  • Innlit sl. viku: 1429
  • Gestir í dag: 132
  • IP-tölur í dag: 132

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband