Inga, Inga, Inga mín.

 

Þú sveikst öll loforð þín, heilagast var að hindra auðvaldið í Viðreisn að selja þjóð okkar í Evrópusambandið, svo aum svik að fyrrum baráttumaður þjóðarinnar fyrir sjálfstæði hennar, afsakaði sig með einhverju dögum í krókakerfinu.

Svona eitthvað sem gerði hina 30 silfurpeninga Júdasar að heilli gullnámu sem tæki aldir að tæma, svo lítilsfjörlegt var gjaldið fyrir svik þín og Flokk fólksins.

 

Slæm voru samt svikin að gangast undir hugmyndafræði frjálshyggjunnar, að agavald hagfræðings þessarar hagtrúar hins í neðra, núverandi fjármálaráðherra, væri æðra en öll þín loforð um að bæta hag og kjör hinna óhreinu barna Evru, aldraða, öryrkja, láglaunafólks, vinnandi fólks, allra þeirra sem tilheyra samfélagi hins venjulega, og hafa sætt sig við arðrán hinna ofurríku undir möntru frjálshyggjunnar, "sjálfstæði seðlabanka og hækkun vaxta".

Kannski einfeldni Inga, samt ertu rúin öllu trausti, og það sem verra er, þú gerðir Ragnar í VERSLÓ líka ærulausan fyrir vikið.

Ekki svo sem að Ragnar hafi haft mikla æru eftir að hann lýsti yfir stuðning við eiturbyrlara sem reyndist líka vera kynníðingur á netinu.

En samt Inga, þú gast alveg íhugað afleiðingu gjörða þinna, Ragnar var jú líka ágætur sem verkalýðsforingi, og svo gafst þú fátæku fólki von.

 

En jú jú Inga, þú fékkst ráðherrastól í staðinn.

Þá sem formaður félagasamtaka sem buðu sig fram til þings, en ekki sem amma.

 

Ég skal alveg játa að ég kaus þín félagasamtök þar-síðast, aðeins út af Ásthildi Lóu, baraátta hennar fyrir rétti heimilanna vó þar þyngst.

Og ég skal líka játa að ég kaus þig ekki núna, mér fannst svikin við ESB liggja einhvern veginn í loftinu, sem og að einarður varðmaður þjóðarinnar bauð fram, og ég kaus hann, maður kýs jú alltaf Varðmenn.

 

En ég get svo svarið það Inga, að ég hefði ekki kosið þig þar-síðast, ef ég vissi að þú værir amma í framboði en ekki stjórnmálamaður.

Hvað þá að það hefði hvarflað að mér núna síðast að kjósa þig sem ömmu en ekki baráttukonu fyrir betri heimi.

Sem ég reyndar tel þig vera Inga, og hef alltaf talið og tel ennþá.

 

Gegn þeirri skoðun minni hef ég aðeins þín orð;

""Þarna verð ég hvat­vís amma. Ég tek upp tólið og hringi, eng­ar hót­an­ir eða slíkt – tveggja manna tal". Þá sagðist hún ætla að vanda sig og sagðist gera sér grein fyr­ir stöðu sinni í dag. "Þetta voru mis­tök, ég átti að telja upp á 86 áður en amm­an tók upp sím­ann."".

Eiginlega er játning án viðurkenningar sjaldnast betur orðuð.

 

En ég þekki svo sem ekki vel til þann hluta sögunnar, eða hvernig bókmenntir liðinna ára orða játningu án viðurkenningar.

Tel þig samt hafa gert vel í því.

 

Hvort það dugi til að Þorgerður, hin sterka kona ríkisstjórnar þinnar, og Kristrún telji þig ennþá nothæfa sem svikahjól núverandi ríkisstjórnar.

Á eftir að koma í ljós.

 

Ef þú spyrð mig Inga um mína skoðun, þá er hún mjög einföld.

Ég kýs frekar ömmu sem rífst við skólastjórnendur sem bera enga ábyrgð, takast ekki á við neitt, og á meðan grasserar einelti, ofbeldi og þjófnaðir í skjóli þeirra.

En þeir greyin fá víst ekki næg laun til að gegna skyldum sínum.

Svo velur Rétttrúnaðurinn gufur en ekki fólk til ábyrgðarstarfa.

 

Ömmu, sem rífst, en ekki stjórnmálamann sem svíkur.

En það er aðeins mitt mat Inga, líklegast ekki annarra.

Og ég hygg að Kristrún sé ekki sammála mér.

 

Hún muni velja stjórnmálamanninn sem svíkur.

Á kostnað ömmunnar.

 

En völin og kvölin er þín.

Kveðja að austan.

 

 


mbl.is Segist ekki hafa ýjað að neinu um lögregluna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 28. janúar 2025

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.1.): 22
  • Sl. sólarhring: 853
  • Sl. viku: 1522
  • Frá upphafi: 1414349

Annað

  • Innlit í dag: 19
  • Innlit sl. viku: 1310
  • Gestir í dag: 18
  • IP-tölur í dag: 18

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband