Það er athyglisvert að á meðan Nýfrjálshyggjan í ríkisstjórn Íslands hefur komið aðild að Evrópusambandinu á dagsskrá, að þá berast fréttir frá Evrópu, að loksins sé tekist á við hið frjálsa flæði vændis, mannsals, eiturlyfjasölu og glæpa sem er beinn fylgifiskur hins frjálsa flæðis fjórfrelsisins.
Í viðtengdri frétt þurfti reyndar frelsi frá hinu frjálsa flæði glæpa og mannsals, þökk sé Brexit, en ef fólk sleppur að lesa málgagn Íslamista á Íslandi í samkrulli við flótta og mannsalsiðnaðinn, þá fylla svona fréttir síður frjálsra fjölmiðla í norðanverði Evrópu.
Glæpafólk hins frjálsa framsals er handsamað, rannsakað og dæmt fyrir svívirðu sína, áratugum eftir að það hóf alþjóðlega eða réttara sagt samevrópska glæpastarfsemi sína.
Í þessari frétt Mbl.is, frétt sem hefur örugglega sloppið framhjá meðvirkum fréttastjóra blaðsins með voðaverkum Hamas og Íslamista, meðvirkninni með samevrópskum glæpum mannsals og flóttamannaiðnaðarins hins frjálsa flæðis, kom fram að skoska lögreglan hefði loksins gripið inní glæpasamtök 5 einstaklinga, sem hefðu verið sek um mansal, kynferðis- og fíkniefnabrot, og þó það þurfi ekki mikla vitsmuni til að fatta að raunmynd slíkra samevrópska glæpa megi fargfalda með tölu á milli 1000 og 10.000, þá má samt þakka fyrir hið fyrsta skref.
Hér á Íslandi gefa algjörlega vanhæf löggæsluyfirvöld, tek það samt að ljóshærðar konur stjórna viðkomandi löggæsluyfirvöldum, svo rétthugsunin er í lagi hjá Sjálfstæðisflokknum, út skýrslu um 15-20 glæpasamtök, sem flest eiga sér erlendar rætur.
Selja dóp, brjótast inn, níðast á fólki af erlendum uppruna og fyrirtækjum þess; meiða, misþyrma, farin að skjóta og sprengja, og drepa.
Og skýrslan þótti vel unnin.
Aðgerðir gegn glæpahyskinu, glæpasamtökunum, þær voru ekki til umræðu, enda slíkt árás á hið evrópska flæði glæpa og mannsals sem er ávöxtur hins frjálsa flæðis.
Samstarf Góða fólksins og atvinnugóðmenna í raða þess, við mannsals og flóttamannaiðnaðinn, voru ekki heldur til umræðu, enda miklir peningar í húfi, fyrir Góða fólkið
Svo er gróði í mansalinu.
Á milli vina fóru hátt í 30 milljarðar á síðasta ári þegar allt er talið til.
Þar sem þeir peningar eru ekki til skiptanna, þá laut innlent heilbrigði í gras, aldrei hafa fleiri líf fallið vegna geð og fíkni sjúkdóma.
Til haga skal samt haldið að Góða fólkið, og fulltrúar þess sem þjóna mannsals og flóttamannaiðnaðinum, að það lapti ekki dauðann úr skel, öryggir reikningar uppá milljarða á milljarða ofan, komu sér vel fyrir fjárhag þess.
Evrópa er samt farin að snúast gegn Góða fólkinu, sem og atvinnugóðmennum þess.
Samstarfsaðilarnir jafnvel teknir og dæmdir.
Sex í dag, hugsanlega 600 á morgun, kannski 6.000 daginn þar á eftir.
Það er ef kjarkur ræðst á hið frjálsa flæði glæpa og mannsals innan Evrópska efnahagssvæðisins.
Á Íslandi mun það ekki gerast.
Hagsmunir gróðans af glæpum og mannsali eru innvinklaðir í ríkisstjórn Íslands í dag.
En í Evrópu blása aðrir vindar.
Jafnvel svo sterkir að þeir munu fella mannaumingjann sem í dag er forsætisráðherra Bretlands, en brást í embætti sínu sem ríkissaksóknari að vernda sakleysi þarlendra, ungra stúlkna gegn kynofbeldi og nauðgunum Íslamista í Bretlandi.
Reyndar var svívirða hans svo mikil að hann hylmdi yfir þessa glæpi, og sigaði löggæsluna á aðstandendur fórnalamba þessara kynglæpa og nauðgana.
Þess vegna hygg ég að þó Góða fólkið telji sig öruggt í dag, að gróði þess að samstarfinu við mannsals og flóttamannaiðnaðinn, sé ekki eins öruggt og það heldur.
Að ekki bara landamærunum verði lokað fyrir glæpasamtökum heldur verði þáttur þess í hagnaðinum af "opnum" landamærum rannsakaður, það dregið til ábyrgðar og dæmt.
Kannski ekki en það er full ástæða fyrir það að óttast.
"The Times, They Are a-Changing", söng Bob Dylan, hans orð eiga sjaldnast betur við en í dag þegar eitt tíst um sekt mannaumingjans sem er forsætisráðherra Bretlands í dag, fær flug og athygli þannig að öllu hugsandi fólki er ljóst sekt hans.
Mannsins sem gerði Íslamistum í Bretlandi kleyft að svívirða og nauðga þúsundir ungra stúlkna á Bretlandi.
Svívirðingarnir, helteknir af sínum miðaldartrú, gerðu það sem þeim var innrætt af prestum sínum og trúararfleið, sekir, en ekki eins sekir og mannauminginn sem nýtti sér embætti sitt sem ríkissaksóknari til að hylma yfir glæpi þeirra og viðbjóð því hann óttaðist um fylgi Íslamista við Verkamannaflokkinn.
Fylgi sem tryggði honum seinna meir sigur í þingkosningunum, breski verkamannaflokkurinn á sem sagt völd sín að þakka stuðningi svívirðinga og barnanauðgara.
Eitthvað sem Musk hefur afhjúpað og verður ekki þaggað.
Ekki frekar en samsekt Góða fólksins við hið frjálsa flæði glæpa og mannsals, sem og þóknunina sem það stakk í sína feitu vasa.
Því Evrópa líður þetta ekki lengur.
Sama hve Góða fólkið sækir oft um aðild að Evrópusambandinu.
Þar á það ekki lengur skjól.
Tímarnir eru að breytast sagði Dylan.
Það eru orð að sönnu.
Kveðja að austan.
![]() |
Dæmd fyrir svívirðilegt brot |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
11.1.2025 | 08:54
Vonarpeningurinn.
Margir hafa lengi talið tímabært að Bjarni Benediktsson segði af sér formennsku Sjálfstæðisflokksins.
Það breytir því samt ekki að Bjarni hefur verið klettur í íslenskum stjórnmálum; skynsamur, málefnalegur, rökfastur.
Eiginleikar sem voru að verða ákaflega sjaldgæfir í íslenskum stjórnmálum, fremst meðal jafninga vitleysunnar var forystufólk Samfylkingarinnar, milli Kristrúnar og Ingibjargar Sólrúnar var vitsmunaleg eyðimörk, stundum skaðleg.
Þegar þessi tími verður seinna gerður upp í sögunni, mun Bjarni Ben fá góða dóma, fólk mun átta sig á því að það var hann sem bjargaði þjóðinni frá algjörri óreiðu og upplausn.
Samstarf hans við Katrínu Jakobsdóttur var límið í ríkisstjórn hinna þriggja flokka frá hægri til vinstri, þar sem valkosturinn var óreiða og hávaði Samfylkingarinnar, Pírata og nýfrjálshyggju Viðreisnar.
Gjaldþrot þeirra óreiðu sjáum við í dag í græna ferlíkinu í Álfabakkanum, gjaldþrot sem hefur blasað við í fjölda ára í Reykjavík; gegn skynsemi, málefnum og rökhyggju, er teflt vanhæfni, óskilvirkni, vitleysu.
Við getum spurt okkur sem þjóð, óháð öllum pólitískum skoðunum okkar og stuðningi við einstaka flokka eða stefnur; Hvernig værum við í dag eftir einn heimsfaraldur og 8 eldgos ef vitleysingahjörðin hefði stjórnað þjóðinni???
Það var vissulega kominn tími á þriggja flokka stjórnina, sá tími kom þegar Katrín gat ekki stöðvað tilraun Svandísar til að sprengja ríkisstjórnina þegar hún réðst á byggðalag og verkafólk með því að stöðva hvalveiðar á síðustu mínútu.
Eftir það var stjórnin dauð og eftirleikinn þekkja allir, en það breytir því ekki, þó menn geti verið ósammála um einstök atriði, að stjórnin stóð sig í heimsfaraldrinum og í að skipuleggja vörn þjóðarinnar eftir að eldgosin hófust við Grindavík.
Það er í eðli þjóðarinnar að setja út á, en sagan er sanngjarnari, Bjarni var betri en enginn á ögurstundum.
Allt tekur samt enda og hans tími er kominn.
Og vonarpeningur valda og áhrifa sprettur fram.
Við einn er rætt í þessari frétt, og hann óttast um stöðu sína ef flokkurinn sem hann taldi sig eiga erfa, fengi tíma til að hugsa ráð sitt og stöðu, leita skýringar á vanda, finna hæfa forystu til að breyta ásýnd flokksins og gera hann samkeppnishæfan á ný meðal íhaldsfólks.
Sem þessi vonarpeningur og hinn vonarpeningurinn, eða tækifærisinninn eða fyrrverandi ráðherrann sem örugglega réði við að stýra bæjarfélagi austan heiðar, eru ekki hæfir til.
Svo það sé sagt hreint út að það sem er í boði í dag innsiglar feigð Sjálfstæðisflokksins.
Þórdís Kolbrún svo dæmi sé tekið myndi sóma sér vel sem varaformaður Viðreisnar því þar er Þorgerður henni fremri að styrk og þroska og hún gæti tekið slaginn við Kristrúnu því ekki er mannvalið mikið í Samfylkingunni.
En sem hægri krati mun hún aldrei ná til íhaldsmanna, kjarnafylgis Sjálfstæðisflokksins.
Að Áslaug Arna sé nefnd sem vonarpeningur segir aðeins til um hnignun dómgreindar og almennar skynsemi þjóðarinnar, hnignun sem hefur hugsanlega með áhrif flúors í tannkremi að gera.
Fullorðið fólk kýs ekki krakka þegar aðrir flokkar bjóða uppá fullorðið fólk, einn skýringarþátta á fylgi Viðreisnar, og unga fólkið er búið að fá nóg af ruglandanum sem það upplifir í Reykjavík og láir því enginn.
Það mun ekki hlusta á afskræmingu stjórnmálaskóla Sjálfstæðisflokksins á pólitískri rétthugsun því það hefur fengið nóg af þessari sömu rétthugsun.
Guðlaugur Þór er síðan ekkert í pólitík, nema kannski það að gera Guðlaug Þór og fjölskyldu ríka í gegnum stjórnmálaþátttöku sína.
Engin skoðun, engin stefna, engin leiðsögn; Ekkert.
Pólitísk útgeislun hans er síðan á plani við Kristján í Hval.
Guðrún Hafsteinsdóttir er síðan góður fagráðherra, góður embættismaður, og gæti örugglega orðið góður bæjarstjóri í heimabæ sínum.
En kosning hennar yrði meira slys fyrir Sjálfstæðisflokksins en kosning Theresu May var á sínum tíma fyrir breska Íhaldsflokkinn.
Það er liðin karlremba að halda að það dugi að kjósa konu og þá munu hlutirnir reddast af sjálfu sér.
Breski Íhaldsflokkurinn gerði hins vegar loks það sem þurfti að gera.
Hann kaus svarta stelpu frá Nígeríu formann flokksins, ekki vegna þess að hún var svört stelpa frá Nígeríu, heldur vegna þess að hún er hæf.
Hún er hæf, og hefur eitthvað að segja.
Siðmenningin á undir högg að sækja.
Margar ógnir steðja að henni, jafnt utan sem innan.
Eitt helsta innanmeinið er forheimska og tómhyggja hins pólitíska Rétttrúnaðar, þessi sem kennd er við Góða fólkið.
Og meðan ekki er hægt að banna flúor í tannkremi, þá þarf fólk sem talar gegn þessari foráttuheimsku og víðáttuvitleysu sem hinn pólitíski Rétttrúnaður Góða fólksins er.
Líkt og breski Íhaldsflokkurinn gerði, að kjósa hæfa manneskju sem talar mannamál, ekki eitthvert furðumál eins og Dagísku, þarf Sjálfstæðisflokkurinn að gera það líka.
Fyrst að Samfylkingin gat það, þá ætti hann að geta það.
Aðeins þannig nær hann vopnum sínum á ný.
Eða deyr ella.
Kveðja að austan.
![]() |
Vill ekki fresta landsfundi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Bloggfærslur 11. janúar 2025
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (4.7.): 384
- Sl. sólarhring: 770
- Sl. viku: 4847
- Frá upphafi: 1457795
Annað
- Innlit í dag: 329
- Innlit sl. viku: 4188
- Gestir í dag: 306
- IP-tölur í dag: 303
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar