26.11.2024 | 18:18
Orð í tíma töluð.
Þó þau berist of seint að Íslandsströndum, þá eru þau jafn gild fyrir það.
Eru váboði þeirrar forheimsku að flytja inn morðingja Hamas, sem vissulega eru ekki margir, en þeim mun fleiri sem styðja viðbjóðinn sem Hamas stendur fyrir, og hefur leitt gjöreyðingu yfir byggðir Gasa strandarinnar.
Svo sjúkt er samfélag okkar að innlendi viðbjóðurinn sem styður voðaverk Hamas, morð og dráp á ungu fólki á friðartónleikum, það er þau sem voru heppin, viðbjóðurinn nauðgaði og limlesti ungar konur sem voru á lífi, þegar Hamasliðar náðu að handsama þær.
Hlálegast er að þessi innlendi viðbjóður, sem telur óhugsandi voðaverk eðlileg, ef þau þjóna meintum baráttuaðferðum Hamas, að hann bauð fulltrúum íslenskra flokka á þing um þennan viðbjóð, um afleiðingar hans sem eru óendanlegar þjáningar palestínsku þjóðarinnar, og svo mikill skríll er innan um íslenska flokkakerfið, að bæði Samfylking og Viðreisn mættu til að vegsama þennan viðbjóð, til að vegsama þjáningar íbúa á Gasa, þjáninga sem voru markmið voðaverka Hamas í Ísrael.
Vita kjósendur Viðreisnar og Samfylkingar að frambjóðendur viðkomandi flokka telja það eðlilegt að ungt fólk á friðartónleikum sé skotið, og þær stúlkur sem lifðu af, þeim væri nauðgað, limlestar, sumar skornar í tætlur, þegar þær voru á lífi. Einnig dæmi um að líkum væri nauðgað.
Eða að ung börn væru skotin á færi í bílstólum eftir að foreldrar þeirra voru myrt.
Eða að ung börn voru sveðjuð í tætlur í barnarúmum sínum, eða þau sem voru aðeins eldri, voru fjötruð og síðan brennd lifandi í beinni útsendingu Hamasliða??
Eða vita þau það og eru samsek um þann viðbjóð??
Og ef þau samþykkja það, hvað samþykkja þau næst??
Búum við sem sagt við viðrini sem nágranna??
Nei segja hin meintu viðrini; Hamas og Free Palestína er þjóðfrelsisbarátta, þau drepa aðeins, nauðga aðeins, limlesta aðeins, brenna börn lifandi, aðeins gyðinga, og það eru ekki við.
Eins og það sé afsökun fyrir þann viðrinishátt.
Vil þá vitna í þessa frétt, í Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, sem nóta bene er krati en ekki í Miðflokknum, og orð hennar; "Hatrið sem Hamas ber til Ísraels, ber Hamas líka til okkar hinna".
Já Hamas hatar okkur ekki minna en gyðingana.
Augljós staðreynd og Mette er ekki heimsk.
Á Íslandi hins vegar er sumt fólk svo heimskt og það heimska fólk fær atkvæði fólks sem telur morð, nauðganir, limlestingar, dráp á börnum, að brenna börn lifandi eðlilegan hlut, og það fólk sem telur þetta sjálfsagt, virðist vera í meirihluta á Íslandi í dag.
Það er ef við bætum við atkvæðum sem eru greidd Free Palestína í Sósíalistaflokkinum.
Siðferðislega auðn, eyðimörk, gerir jafnvel nýnasista og uppklapp þeirra fyrir útrýmingarbúðir Nasista að skátadrengjum í hrifningu á mannlegum viðbjóði, þá er eins og þetta aumkunarverða fólk skilji ekki hatrið.
Að það verði næst.
Lægsta af hinu lága.
Kýs flokka sem samsinna sig í hatri og mannlegum viðbjóði.
Burtséð frá öllu hinu.
Mette er krati.
En hún er ekki heimsk.
Hvað þá siðlaust viðrini.
Orð hennar eiga erindi í íslenska kosningabaráttu.
Eftir þau eiga viðrini og viðbjóður sér enga afsökun.
Kveðja að austan.
Segir Hamas með leynilegar vopnageymslur í Evrópu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggfærslur 26. nóvember 2024
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.11.): 498
- Sl. sólarhring: 502
- Sl. viku: 4878
- Frá upphafi: 1402766
Annað
- Innlit í dag: 416
- Innlit sl. viku: 4227
- Gestir í dag: 379
- IP-tölur í dag: 374
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar