19.9.2023 | 11:27
Væl um væl til væls.
Eins og Sólveig Anna trúi að þegar hún grætur, að þá sé Mogginn vettvangur til þess.
Mistök á mistök ofan, þegar Sólveig hafði allt í hendi sér, þá kiknaði hún undan þunga auðræðisins, þar sem hið skítuga illa fjármagn kostaði árásir innan verkalýðshreyfingarinnar gegn baráttu hennar, og að lokum gafst hún upp með lítt betri samning en félagsfólk Eflingar hefði fengið ef Sólveig hefði ekki ögrað Auðræðinu, og munum að megnið að fjármagni þjóðarinnar er komið í hendur erlendra hrægamma, Dindlar þess, margborgaðir eftir Hrun, bulla út í eitt, að kveldi skoða þeir ávísun þess að svíkja eina þjóð.
Sigruð, en væl í vísan í tilbúning auðræðisins, um að þarna úti séu bla bla ekki strákar sem eru ekki í lagi í spjallþráðum sínum.
Það er eiginlega hin fullkomna uppgjöf.
Væl hefur aldrei gert eitt eða neitt fyrir verkafólk.
Í stærra samhengi, þá hefur væl aldrei ógnað Auðræðinu.
Slæmir ráðgjafar settu Sólveigu Önnu í slæma stöðu, meint verkfall hennar var andvana fætt.
Skot í fótinn var offors gegn vinnandi fólki á skrifstofu Eflingar.
Offors sem var svo heimskt að það mætti halda að aur hefði skipt um veski, tilgangurinn var að grafa undan von verkafólks sem og réttlætis í samfélagi okkar.
Slæma ráðgjafa þarf að skipta út.
Væl þarf að stöðva.
Í dag á venjulegt fólk engan málsvara en Eflingu og Sólveigu Önnu.
Hvað kallast þetta aftur??
Að girða sig í brók.
Rétta úr sér.
Hætta þessu væli.
Að láta ekki að stjórn.
Heldur stjórna.
Kveðja að austan.
Var gráti nær í viðtali eftir upplýsingar um líflátshótanir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggfærslur 19. september 2023
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.1.): 0
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 129
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 113
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar