25.10.2023 | 17:13
Hefndaraðgerðir Ísraelsmanna!!
Sem er orðrétt tilvitnun í meðfylgjandi frétt á vef Morgunblaðsins.
Hvað felst í þessum orðum?
Að það sé hefnd að svara stanslausum flugskeytaárásum á borgir og bæi í Ísrael.
Svo vísað sé í staðreynd sem hefur ekkert með langvarandi deilur Ísraela og Palestínuaraba að gera, eða hver byrjaði hvað.
Þó vissulega sé hægt að skrifa langa ritgerð um hvernig hægriöfgamenn yfirtóku stjórnkerfi Ísraels, fremstir í flokki trúaröfgamenn sem ýta stanslaust undir ófrið, en eru svo aumir að í nafni trúarinnar mega þeir ekki berjast. Með öðrum orðum, þessi miðaldarskrímsli etja venjulegu borgurum út í foraðið, sjálfir í skjóli þeirra varna sem nútíminn, nútímafólk hefur ofið um landamæri Ísraels.
Og í nafni lýðræðisins fær þessi aumingjalýður völd langt umfram þá úrkynjun sem atkvæðavægi þess gefur, því hægriöfgar semja jafnvel við þann í neðra til að halda völdum sínum.
En ræflarnir og öfgastefna þeirra er ekki issjú í dag.
Heldur önnur miðaldaóværa hinum megin við girðinguna sem ákváðu að fórna sínu eigin fólki fyrir skammtíma pólitískan ávinning.
Blóðfórnir sem gerðu beint út á heimsku og fávitahátt Góða fólksins í Vestur Evrópu.
Og jafnvel Mogginn er ekki ósnertur.
Hefndaraðgerðir Ísraelsmanna eru réttmæt viðbrögð þeirra kölluð.
Að baki býr það gjörsjúka gildismat að það sé alltí lagi að senda hermenn inná yfirráðasvæði nágranna, drepa fólk á færi, ráðast inní hús og vega heilu fjölskyldurnar, drepa börn á vöggustofum.
Það síðastnefnda telur Góða fólkið sjálfsagt réttmætt því fóstrurnar voru drepnar fyrst.
Það er kölluð hefnd að koma í veg fyrir slíkar árásir í framtíðinni.
Það er kölluð hefnd að bregðast við stanslausum eldflaugaárásum frá Gasasvæðinu.
Það er eins og ég hafi lært mannkynssöguna uppá nýtt, innrásin í Normandí, loftárásirnar á borgir og bæi Þýskalands, sundurskotin og sprengd Berlín var víst hefnd, ekki hernaðaraðgerð í stríði þar sem reynt var að yfirbuga þann sem árásina hóf.
Sem sagt allt frá því að Rússar náðu að sigra Þjóðverja við Stalíngrad, þá tók við næstum því þriggja ára hefndaraðgerðir Bandamanna gegn Þjóðverjum, og aumingja þeir voru víst fórnarlömb allan tímann.
Hve mikil getur firringin orðið þegar viðbrögð við fjöldamorðum borgara og stanslausum eldflaugaskotum er kölluð hefndaraðgerð???
Undirliggjandi er sá lúmski áróður að sá sem varð fyrir árásinni hafi hafið stríðið.Og Mogginn spilar með.
Þessi fáviska og í raun fávitaháttur skýrir í raun af hverju miðaldarskríllinn í Hamas hóf árásir sínar ásamt því að skipuleggja morð og gíslatöku á óbreyttu borgurum.
Treyst var á fáviskuna og þá taldist væntanleg lík eigin barna óhjákvæmilegur fórnarkostnaður.
Og það mat var rétt.
Börnin deyja en enginn spyr um ábyrgðina á dauða þeirra.
Ef þau eru ekki í mynd til að selja fréttir, þá er tekin viðtöl við meðvirka sækópata sem ræða það faglega hve margar vöggustofur þyrfti að brenna, ásamt fóstrum, og að sjálfsögðu börnum, áður en þeir teldu það ekki í lagi.
Það er sko sagan, það er sko fyrri kúgun, en samt??, 5 vöggustofur, 15 eða 55 eða er þetta aðeins spurning um framboð og eftirspurn??, sem og hvað hægt er ætlast til að vígamaður geti drepið mörg kornabörn á hálfum sólarhring???
Forsvarsmenn Ísland-Palestínu hljóta hafa metið þessa spurningu, annar hefði þeim orðið orðavant þegar fréttir af fyrstu morðum Hamasliða bárust frá landamærahéruðum Gasa og Ísrael.
Sama hver geðveilan er, þá hljóta þeir hafa einhver mörk á réttlætingu sinni á morðæði miðaldaskrílsins í Hamas, ekki nema að bjargföst sannfæring þeirra sé að allir gyðingar í Ísrael séu réttdræpir.
Sem aftur vekur spurningar um geðheilbrigðisþjónustu á Íslandi, af hverju gengur svona fólk laust??
En það gengur laust, og klappar og blístrar þegar fréttir bárust á slátrun á óbreyttum borgurum, á gamalmennum, á konum og börnum, fóstrum og börnum á vöggustofum.
Og hafði tilbúin svör þegar það var spurt hvort því þætti þetta allt í lagi.
Það er sko kúgunin, það er sko sagan sko.
Geðvillingur eða fáráður, það skiptir svo sem ekki máli.
Eftir stendur óhjákvæmileg viðbrögð hins öfluga hers Ísraela.
Á landskika þar sem miðaldaskríllinn felur sig innan um almenna borgara.
Og börnin deyja.
Börnin deyja.
En þau þurftu ekki að deyja ef þeir sem ábyrgðina bera gátu ekki treyst á forheimsku og fáráð þeirra sem fordæma viðbrögðin, en benda ekki fingri á þá sem hófu þessi hjaðningavíg.
Að baki bjó kalt mat á viðbrögðum Ísraela, að þeir myndu herja á Gasa og óbreyttir borgarar myndu óhjákvæmilega falla
Samt þess virði ef fíflin dönsuðu með.
Sem þau gera.
Og börnin deyja.
En eftir stendur spurningin eina.
Á ábyrgð hvers??
Morðingjanna eða þeirra sem þeir spila með??
Ég hygg að Hamlet hefði ekki séð vafann við þeirri spurningu.
Það eru takmörk á öllum efa.
Kveðja að austan.
Í hvaða heimi býrð þú? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.10.2023 | 11:13
Neyðarópið á Gasa.
Er útrýming Hamas samtakanna.
Það gengur ekki í öðru orðinu að hinn vestræni heimur veiti baráttu gegn kynníði í Íran; áfellisdómur yfir landvist kynníðinga á Íslandi; Friðarverðlaun Nóbels, og svo er látið eins og ekkert sé að þegar kynníðingar, sem vísa í gjörsjúka miðaldarsýn á Kóraninn, að fjöldamorð þeirra, hófu beint núverandi hörmungar á Gasa.
Það er ekki bæði sleppt og haldið, annað hvort fordæmir hinn vestræni heimur miðaldamenn, kynníð þeirra, fjöldamorð, sem og hinn einbeitta ásetning þeirra að telja venjulegt kristið fólk réttdræpt, eða við mætum þessum miðaldarskríl.
Hvort sem hann hefur skotið rótum í samfélögum okkar líkt og þýskir lögreglumenn geta borið beint vitni um, eða hann lofsamar Alla þegar hann skýtur óbreytta borgara á færi, og myrðir konur og börn.
Sjúkleikinn er svo algjör þegar lík nakta kvenna voru flutt á pallbílum á Gasaströndina, og múgurinn blístraði og fagnaði.
Sami múgur og fær ekki neyðaraðstoð í dag.
Og af hverju ættu Ísraelsmenn að veita þá neyðaraðstoð til blístrandi múgs sem svívirðir nakin kvenmannslík, myrðir börn á færi, kveikir í venjulegu fólki, þar á meðal börnum??
Sá sem segi Já, ætti að bjóða sig sem fram sem skipti á milli þess fólks sem miðaldamenn Hamas drápu og svívirtu, og að næst yrði það metið að drápin yrðu ekki vatn á eld átaka og hjaðningavíga, heldur myndi friðsamt fólk í Íslandi-Palestínu bjóða líf sitt og barna sinn sem fórn svo morð og viðbjóður myndi ekki vekja þessar heiftarlegu gagnárásir Ísraela á meint saklaust fólk á Gasaströndinni.
Meint segi ég því þetta sama friðelskandi fólk sem líklegast aldrei vildi skipta á lífi sínu og lífi þess fólks sem skotið var á færi í Ísrael, að ef það hefði gert það, þá myndi það spyrja sig; af hverju blístra menn og fagna þegar ég var drepinn.
Hóprefsing er þetta kallað, gagnvart samfélagi sem snýst ekki til varnar gegn ofsa og hatri miðaldamannanna sem með ofbeldi lögðu undir sig samfélag þeirra.
Konur til miðalda, hommar og lesbíur ekki drepnar á færi, heldur tekið af lífi á opinberum vettvangi líkt og stóra miðaldarríkið í Íran gerir.
Eini vafi þessa miðaldaskríls er hvort það drepur strax ungar konur sem nota ekki kynníð slæðunnar á réttan hátt, um það fara fáar sögur, enda meðvirkt ofsatrúarfólk í hinum vestræna heimi sem segi þær sögur.
Hérlendis er eins og engin hafi lært viðbjóð þjóðarskáldsins kennt við Laxness, hann þurfti að klofa yfir lík barna og kvenna við lestarstöðina í Kiev, og sagði að þetta væri gjald framþróunar sósíalismans.
Enginn lærdómur í dag, ofsatrúarbrögð mannhaturs og kynníðs, eru uppklöppuð og það er blístrað á Austurvelli yfir morðum miðaldamanna á konum og börnum, blístrið stóð ekki einu sinni í forsvarsmönnum Ísland-Palestínu þegar myndir bárust af morðum á börnum á vöggustofum.
Og geðvillan er slík að þessu fólk fannst þetta alltí lagi, kúgunin á Gasa hefði vakið þessi viðbrögð!!
Þetta eru vinir fórnarlambanna á Gasa, barnanna sem hafa verið drepin, og munu deyja næstu daga.
Siðmenningin vék fyrir einbeittum ásetningi miðaldamanna, kvenníðinga, að kalla hörmungar og dauða yfir saklaust fólk, sitt eigið fólk, í trausti þess að heimskt fólk myndi dansa með.
Fordæma heiftina sem hin tilhæfulausu morð í Ísrael í myndu vekja.
Í trausti þess að fífl og hálfvitar myndu dansa með.
Þessi kaldrifjaða morðáætlun gekk eftir.
Að baki hvers andláts saklausra barna er fífladansinn sem stiginn er í vestrænum löndum, dans sem hin upphaflegu fjöldamorð voru hugsuð til að slá taktinn, og enginn bendir á hina raunverulegu orsök hins skelfilega ástands.
Að íbúar Gasa eru í herkví miðaldaviðbjóðs sem engu eyrir, hvorki mennsku, börnum, og þetta aumingjalið fær fullnægingu í hvert skipti sem fréttamyndir af þjáningum samborgar þess fær skor í medíum hinna vestræna ríkja.
Miklu árangursríkara að drepa börn og konur í hinu meinta hataða Ísrael, heldur en að hengja homma og lesbíur meðal síns eigin fólks.
Á meðan berst neyðarópið frá Gasa.
Í boði fíflanna sem dönsuðu með.
Á forheimsku þeirra var alltaf hægt að treysta.
Hvað eru dáin börn á milli vina??
Þeirra dauði er okkar völd.
Kveðja að austan.
Gætu þurft að hætta neyðaraðstoð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 25. október 2023
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.1.): 6
- Sl. sólarhring: 9
- Sl. viku: 208
- Frá upphafi: 1412827
Annað
- Innlit í dag: 6
- Innlit sl. viku: 174
- Gestir í dag: 6
- IP-tölur í dag: 6
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar