20.9.2021 | 15:44
Frambjóðandi jafnaðarmanna.
Sem þiggur tugamilljóna við starfslok, til að bjóða sig fram til Alþingis, er ekki trúverðugur frambjóðandi.
Í eldri tíð, svona fyrir aldamótin síðustu, var þetta kallað mútur, að eiga hönk uppá bakið.
Kristrún er vissulega í góðum félagsskap, Guðlaugur Þór gerði út á bankana á árunum fyrir Hrun, langt kominn með að kaupa sér formannsstól í Sjálfstæðisflokknum.
Þorgerður Katrín var beintengd inní þetta kaupaukakerfi, á lokametrum Hrunadansins sem tók enda haustið 2008, þá var hún betri en engin að miðla innherjaupplýsingum.
En sló Bjarna Ben, núverandi formanni Sjálfstæðisflokksins ekki við hvað það varðar.
Eftir stendur spurningin.
Hvaða djöfulsins kjaftæði er þetta??
Það er vitað að Logi veður ekki í vitunni sem stjórnmálaleiðtogi, jafnvel hans eigin menn gefa honum falleinkunn svo ég vísa í viðtal Moggans við Ásmund Stefánsson, einn af stofnfélögum Samfylkingarinnar.
Loga til tekna má samt taka fram að hann sker sig ekki úr í núverandi forystusveit Samfylkingarinnar.
Samt Logi.
Samt.
Kveðja að austan.
Viðauki. Þessi pistil er unnin úr viðtalinu við Loga, sem líklegast virðist ekki þekkja til efnisatriða málsins. Kristrún segir núna í viðtali við Mbl.is ekki hafa fengið krónu í kaupauka, en hún hafi hins vegar notað sparnað sinn, nýkominn úr námi, til að fjárfesta í Kviku banka.
Bendir réttilega á að fleiri geta nýtt sér samninga um hlutabréfakaup til að verða ríkir, það er fleiri en Sjálfstæðismenn.
Sem er rétt, og örugglega er hún og maður hennar ekkert einsdæmi um að "heldur hafi hún sjálf ásamt eiginmanni sínum nýtt eigin sparnað þegar hún kom heim úr námi og keypt hluti í bankanum." ungt fólk sem kaupir hlutabréf í bönkum, þegar það er nýkomið úr námi.
Persónulega held ég að öll þau dæmi tengist leikreglum þess fjármálamarkaðar sem setti okkur á hausinn haustið 2008, og þjóðin náði því miður ekki að gera upp við, þökk sé ríkisstjórn Jóhönnu og Steingríms, ríkisstjórn Samfylkingarinnar og Vinstrigrænna.
En Páll postuli sá ljósið eftir að hann féll að hestbaki.
Það þarf ekki að vera einsdæmi.
![]() |
Ekki erfitt að verja kaupaukagreiðslur Kristrúnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
20.9.2021 | 09:47
Væri ríkið ekki farið að borga með sér??
Í stað þess að innheimta skatta, svona í ljósi loforða Bjarna Ben um að lækka skatta fyrir hverjar kosningar, og þess að hann hefur verið fjármálaráðherra frá því að eldri menn muna??
Hvenær verður loforðaplata svo útslitin að í henni heyrist aðeins ískur??
Allavega virðast skoðanakannanir benda til þess að fólk sé búið að fá vóg af loforðum án mikilla efnda.
Af hverju hefur Bjarni ekkert að segja annað en það sem hann hefur alltaf sagt??
Af hverju talar hann ekki við fólk eins og fólk?
Segir hvað er hægt og hvað ekki.
Það væri tilbreyting.
Sem skilaði örugglega atkvæðum.
Sérstaklega í ljósi þess að ekkert framboð talar við almenning eins og hann sé vitiborinn en ekki sundurleitur hópur fífla líkt og flest framboð virka á fólk í dag.
Fólk vill ekki loforð.
Fólk vill efndir.
Kveðja að austan.
![]() |
Lækka þarf skatta frekar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 20. september 2021
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.5.): 1
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 39
- Frá upphafi: 1440165
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 36
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar