Lærdómur aldanna.

 

"Til eru þeir menn sem virðast telja, að þar sem allir menn muni hvort sem er deyja að lokum, þá skuli afnema allar sóttvarnir og líkast til alla siðmenningu mannkynsins frá örófi alda.

Mér er nokkuð brugðið að þannig menn séu enn á meðal vor; menn sem halda fram frelsi veirunnar til að drepa sem allra flesta. Einhvern veginn hélt ég að það hefði betur gagnast mannkyninu til framfara og almennrar velmegunar, að koma í veg fyrir drepsóttir, en hvetja til frelsis veiranna til að drepa.". (Símon Pétur frá Hákoti)

 

Þessi meitluðu orð eru kjarni þeirra átaka sem við upplifum á Íslandi í dag, milli mennsku og mannúðar annars vegar og myrkursins hins vegar með öllu því ljóta og vonda sem hefur hrjáð manninn í gegnum aldirnar.

 

En fleiri vísdómsorð hef ég lesið í dag, þessi pistill er tengdur við frétt sem allir ættu að lesa.

Ung kona tekur á beinið alla hina sjálfsögðu sérfræðinga sem haldið hafa umræðunni um nauðsynlegar mótvægisaðgerðir í einhverju kviksyndi tregðunnar með þeim afleiðingum að stjórnvöld bregðast illa og of seint við.

 

Hún bendir á heimskuna í málflutningnum;

"Hún bend­ir á að marg­ar af þeim rann­sókn­um sem nú er vísað til í þeim til­gangi að rök­styðja það að hærri at­vinnu­leys­is­bæt­ur hafi letj­andi áhrif á at­vinnu­leit og dragi úr sköp­un starfa séu gerðar yfir lang­an tíma, 20-30 ár, og góðar og gild­ar í því sam­hengi, ekki í tíma­bund­inni niður­sveiflu eins og heims­byggðin glím­ir nú við vegna far­ald­urs kór­ónu­veiru.

Þess­ar rann­sókn­ir skoða það hvernig fólk hag­ar sér und­ir eðli­leg­um kring­um­stæðum.

"Ég set bara mikið spurn­ing­ar­merki við að fólk sem er í ráðgjöf varðandi þessi mál núna og er mikið að vitna til for­dæma­lausra tíma taki síðan [mið af rann­sókn­um] í sinni hag­stjórn­ar­ráðgjöf sem taki ekki mið af for­dæma­laus­um aðstæðum."".

 

Hún bendir á staðreyndir;

"Í þætt­in­um ræddi Kristrún einnig um brú­ar­lán sem hún sagði að hefðu verið dauðadæmd frá upp­hafi. Fyr­ir­tæki vantaði fjár­magn í dag vegna þess að þau hefðu lent í tekjutapi og það gengi ekki upp að skuld­setja sig fyr­ir tekjutapi.

"Það hef­ur al­gjör­lega sýnt sig núna að það skipt­ir engu máli hvað pen­inga­stefn­an ger­ir ef fólk hef­ur ekki áhuga á að taka lán og sér ekki út vegna óvissu."".

 

Og hún veit hvert hlutverk stjórnvalda er;

"Kristrún sagði að það væri al­gjör­lega eðli­legt að stjórn­völd legðust í auk­in út­gjöld þrátt fyr­ir að það ylli halla á rík­is­sjóði. Hún sagði ekki eðli­legt að reka hið op­in­bera með halla í mörg ár und­ir venju­leg­um kring­um­stæðum en um tíma­bundið áfall væri að ræða og því þyrfti að bregðast við. „Þetta er bara eins og að lenda í seinni heimstyrj­öld­inni,“ sagði Kristrún.".

 

Ung kona segir allt það í viðtali á Sprengisandi sem sagt hefði átt að vera fyrir löngu á þingi.

Jafnt af ráðherrum, stjórnarþingmönnum sem og þingmönnum stjórnarandstöðunnar.

 

Ríkisstjórnin gumar sér að aðgerðum sem virka ekki.

Það er rifist um atvinnuleysisbætur, þrengt var að hlutabótaleiðinni og mikil óvissa ríkti um framhald hennar langt fram eftir sumri.

Annað sem þarf að gera, er ekki gert.

Allavega ennþá.

 

Samt þarf að halda því til  haga að fjármálaráðherra hefur sýnt óvenjulegt innsæi í aðstæður og það er honum og seðlabankastjóra að þakka að þjóðfélagið fór ekki á hliðina við þessi áföll.

En þetta dugar ekki til, það þarf meira, það þarf að feisa raunveruleikann, að þetta sé okkar styrjöld.

Í styrjöldum hækka ekki húsnæðislán almennings sjálfkrafa vegna óviðráðanlegra ytri áfalla, sem og að engin þjóð hefur sigrað aðra þjóð með því að sleppa hjörð innheimtulögfræðinga á almenning, hvort sem það er andstæðinga sinna eða eigin.

Og menn gera það sem þarf að gera svo fólk komist af.

 

Um þessa grunnhugsun er algjör þögn á Alþingi.

Á Ögurstund þjóðarinnar fóru þingmenn í frí, þegjandi og hafa þagað síðan, nema þeir sem hafa vanvirt lögmál mennskunnar sem Símon lýsti svo vel hér að ofan.

Grafið undan sóttvörnum, skapað úlfúð og deilur, flækjast fyrir nauðsynlegum mótvægisaðgerðum, þeirra eina svar er að opnun landamæra fyrir ferðafólki í tímum drepsóttar leysi allan vanda sem við er að glíma.

Þeir eru í liði með myrkraröflunum sem hönnuðu fréttaflutning helgarinnar, sem varð svo andvana þegar í ljós kom að seinni skimun hefur líklegast komið í veg fyrir enn eina bylgjuna núna þegar við erum að ná tök á sumarbylgjunni.

 

Hvað er að þjóð sem líður svona háttsemi?

Líður svona tilraun til hryðjuverka því að baka dánartölum er lifandi fólk, og ég fullyrði að enginn að taglhnýtingum myrkraaflanna myndi vilja bjóða líf sitt í staðinn.

Sem líður svona þing og svona stjórnarandstöðu.

 

Peningar geta keypt margt.

Látum þá samt ekki kaupa dauðann.

 

Mótmælum þessari tilbúnu umræðu almannatengilsins.

Mótmælum þögninni eða bullinu á þjóðþingi þjóðarinnar.

Mótmælum því að við stöndum ekki öll saman á þessum fordæmalausum tímum þar sem bæði líf og lífsafkoma náungans er undir.

Og ekki hvað síst, mótmælum þeim röddum sem segja að líf náungans eða lífsafkoma séu andstæður, það þurfi að velja, og þegar annað er valið, þá sé hinu fórnað.

 

Látum lærdóm Hrunsins verða að við endurtökum ekki sömu mistökin.

Stöndum saman og förum heil út úr þessum brimskafli.

 

Það er óþarfi að kasta sumum fyrir borð svo restin megi lifa.

Kveðja að austan.

 

 


mbl.is „Þetta er okkar styrjöld“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Smitvarnir virka.

 

Og í stað þess að fagna þá dregur myrkrið á Morgunblaðinu þá fáheyrðu ályktun að þær séu tilgangslausar.

 

Setjum þetta í samhengi.

Þegar fiskiskip voru skylduð til að hafa gúmbjörgunarbáta um borð, óháð því hvort þau voru með eldri gerð björgunarbáta, þá hefur það örugglega komið illa við margan útgerðarmanninn sem var á hausnum, en ég fullyrði að þó öll blöð landsins séu þaullesin frá þeim tíma, þá hafi enginn minnst á slíkar öryggiskröfur skertu frelsi hans til útgerðar og væru brot á meðalhófsreglu.

Hvað þá að einhver fjölmiðill tengdur bláfátækum útgerðarmönnum hefði slegið því upp í fyrirsögn að fyrst að ekki hefði reynt á gúmbjörgunarbáta fyrstu  fjórar vikurnar eftir lagasetninguna, þá sannaði það að þeir væru tilgangslausir.

Og jafnvel í dag, þegar við upplifum ár án sjóslysa, að þá komi einhver kverúlantinn á miðopnu Morgunblaðsins og skrifi lærða grein um að öryggisbúnaður um borð í fiskiskipum sé með öllu óþarfur.

 

Eitthvað svo augljóst, líka manninum sem þvingað fram þessa fyrirsögn á annars jákvæðum fréttum af sóttvörnum.

Svo spurningin er, hvaða fólk telur hann svo heimskt að það falli fyrir svona framsetningu??

 

Eða er þetta allt hluti af stærri áróðursherferð??

Og þá í þágu hverra???

 

Kannski að almannatengillinn sem skipulagði herferð gærdagsins viti svarið??

Kveðja að austan.


mbl.is Nýtt fyrirkomulag hingað til tilgangslaust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 30. ágúst 2020

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 1440182

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 43
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband