2.11.2020 | 17:15
Án þess að skerða sem mest borgaraleg réttindi fólks.
Hefðu Bretar haft krakka til að stýra vörnum þjóðarinnar gegn heiftúðlegum loftárásum Þjóðverja, þá hefði maðurinn sem sagði, "ég má kveikja ljós", og braut þar með bannið um myrkvun borga og bæja, og varð þar með leiðarvísir loftárása Þjóðverja, kostaði líf og eignir samborgara hans, verið í góðum málum.
Krakkinn sem stýrði vörnunum hefði sagt, ég las það í Stjórnmálaskóla Ungra Sjálfstæðismanna að ríkisvaldið gæti ekki þvingað fólk til að sýna samstöðu á stríðstímum.
Og eftirleikurinn fyrir nasistana hefði verið mjög auðveldur.
En auðvitað var þetta ekki svo, fólk sem virti ekki reglur, var fjarlægt, ef brot þess voru alvarleg, þá var það hengt, reynsla kynslóðanna í stöðugu stríði um að lifa af eða vera undirokaður, leyfði ekki annað.
Og aðeins í gjörspilltustu lénsríkjum voru krakkar látin stjórna, en ekki lengi, því slíkt var bein ávísun á ósigur, sem gat kostað fólk og þjóð frelsi, eignir og framtíð.
Velmegun nútímans virðist hafa þurrkað út þessa reynslu kynslóðanna, í mörgum löndum eins og Bretlandi fær 5 herdeild óvinarins, þessi sem var strax fjarlægð í upphaf seinna stríðs, að leika lausum hala.
Veiran, þetta ómerkilegasta lífsform sem við skilgreinum, á sér ákafa talsmenn sem berjast fyrir frelsi hennar til að sýkja og drepa, vinna beint gegn vörnum þjóða, með þeim árangri að hún fær að grafa um sig svo ekkert er eftir annað en lokun samfélaga eða dauði sem ekki hefur áður þekkst í nútímasamfélögum.
Síðan eru það börnin, sem finnst frelsi veirunnar vera eðlilegasti hlutur í heimi, þau lærðu allt um frelsi auðs og auðmanna til að ræna samfélög fólks, fyrir þau er frelsi veirunnar aðeins viðbót.
Nema að á Íslandi búum við stjórn barna sem ekki einu sinni skilja alvöru drepsóttar, það sannað Áslaug Arna þegar hún mótmælti því að skimun á landamærum í vor skyldi ná líka til fólks sem kom frá Bandaríkjunum.
Þar geisaði óheft drepsótt, hún sagði að þarna hefðum viðskiptahagsmuna að gæta, og því væri eðlilegt að USA væri undanþegið skimun líkt og örugg lönd eins og Þýskaland og Danmörk.
Og bætti því við að hún vonaðist til þess að allri skimun á landamærum yrði hætt fyrir júnílok.
Svo mælti æðsti yfirmaður almannavarna þjóðarinnar.
Barn sem sannaði að hún væri líka heimsk.
Og á dauðans alvöru tímum sitjum við uppi með hana.
Í boði Sjálfstæðisflokksins.
Og enginn gerir neitt.
Kveðja að austan.
![]() |
Ætlar ekki að herða sóttvarnalög |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
2.11.2020 | 09:42
Það er enginn annar valkostur.
Segir Boris Johnson í yfirlýsingu sinni fyrir breska þinginu þar sem hann leitar eftir stuðningi þess við fyrirhugað fjögurra vikna útgöngubann.
Hann sagðist hafa áskilið sér réttinn, og þá væntanlega sem leiðtogi þjóðarinnar, að "prófa alla mögulega valkosti" áður en hann skipaði fólki að halda sig heima.
Það má segja að Boris Johnson sé að skrá í orð bautastein þeirrar stefnu sem kennd hefur verið við meðalhóf, að grípa aldrei til harðari ráðstafana en staða augnabliksins krefst, og herða þá aðgerðir þegar hún versnar.
Aðferðafræði sem er dauðdæmd vegna eðli veldisvaxtar, því hún eltir smitið í stað þess að sjá líklega stöðu X langt fram í tímanum, og bregðast við þeirri stöðu í núinu.
Aðeins þannig er hægt að hindra útbreiðslu veirunnar á upphafsstigum og koma í veg fyrir stjórnlausan faraldur.
Eitthvað sem veirufræðingar vita en stjórnvöldum í vestrænum löndum hefur gengið misvel að skilja.
Eftir stendur samt að rífast ekki við raunveruleikann, og það má Boris Johnson eiga að þrátt fyrir hatramma andstöðu hægri öfgamanna í íhaldsflokknum, að þá gerir hann það sem þarf að gera, þegar ljóst er, að enginn annar valkostur er eftir.
Hann fær stuðning annarra flokka en mun heyja blóðugt stríð innan síns eigin flokks.
En sem leiðtogi þjóðar sinnar getur hann ekki dæmt tugþúsundir samlanda sinna til dauða.
Það er eitthvað sem er ekki aftur tekið en hinn gríðarlegi vandi sem óhjákvæmilega mun skapast af svona víðtækum lokunum er hins vegar verkefni sem mannsandinn þarf að kljást við og reyna finna viðunandi lausnir á.
Boris Johnson brást við sem siðuð manneskja.
Boris á sér margar bræður í þessari erfiðu ákvörðunartöku og andstæðingar hans sér margar systur.
Viðbrögð hans og röksemdir eru leiðarljós fyrir aðra hægrisinnaða stjórnmálamenn sem þurfa að kljást við Nag gegn sóttvörnum innanflokks.
Nag sem bæði veikir stöðu þeirra bæði inná við og útá við, það er innan flokksins sem og meðal þjóðar þeirra, sem og það óhjákvæmilega seinkar nauðsynlegum aðgerðum því þetta allt annað þarf að fullreyna áður en lagt er í innanflokksstríð.
Sitja síðan uppi með rýtingana í bakinu því hægri öfgarnar blása síðan upp afleiðingarnar, hina versnandi stöðu sem og alls tímans sem fór í limbóið þar sem of lítið var gert of seint.
Birtingarmynd þess á Íslandi er að fólkið sem tafði lokun landamæranna í sumar um nokkrar vikur, notar franska smitið sem barst til landsins korteri fyrir lokun landamæranna, sem dæmi um að hertar aðgerðir á landamærum skili engu. Að ekki sé minnst á óeðlið þegar hópsmitið á Landakoti er tekið sem dæmi um að hertar sóttvarnir skili engu.
Boris hefur barist við stærri tröll og lagt þau að velli.
Núna reynir á hann í stríðinu við svartálfa síns eigin flokks, og það er mikið undir að honum takist vel til.
Ekki fyrir líf og limi þess fólks sem er í áhættuhópi, heldur líka að rök hans og viðbrögð, gætu orðið rök og viðbrögð annarra leiðtoga hægri flokka í Evrópu.
Þar á meðal á Íslandi.
Munum að sjaldan hafa eins fáir valdið eins mikið tjóni.
Þetta fólk gengur laust meðal annars innan ríkisstjórnar Íslands, og bruggar sín launráð að Svartálfa sið.
Kjarklaus Bjarni hefur liðið Nag þess.
En Boris, hann er margt, en kjarklaus er hann ekki.
Núna reynir á forystu hans.
Vonandi tekst honum vel til.
Kveðja að austan.
![]() |
Fjöldi dauðsfalla gæti orðið tvöfalt meiri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggfærslur 2. nóvember 2020
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.6.): 41
- Sl. sólarhring: 520
- Sl. viku: 856
- Frá upphafi: 1445719
Annað
- Innlit í dag: 37
- Innlit sl. viku: 762
- Gestir í dag: 36
- IP-tölur í dag: 36
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar