16.11.2020 | 18:38
"Mín leið er líkari margtugginni sænskri leið".
Sagði þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Sigríður Andersen í forkastanlegu viðtali við Mbl.is þar sem hún útskýrði árásir sínar á stefnu íslensku sóttvarnaryfirvalda.
Tilefnið var yfirlýsing sem hægriöfgaveita, svona veita sem berst fyrir skattleysi auðmanna, réttlætir fjármagnsflutninga í skattaskjól, vil afnema samneyslu eins og ókeypis menntun eða heilsugæslu, afnema verkalýðsfélög auk annarra samtaka launþega, réttlætir útvistun starfa í þrælabúðir Kína og svo framvegis, fékk nokkra vísindamenn til að skrifa undir yfirlýsingu þar sem hvatt var til að veiran fengi svipað frelsi og alþjóðavæðingin hefur gefið auðmönnum til að ræna og rupla vestræn samfélög.
Frelsi sem óhjákvæmilega mun kosta milljónir Evrópubúa lífið, en hvað geri hægri öfginn ekki fyrir sínar minnstu lífverur eins og drápsveirur??
Enginn borgarlegur vestrænn fjölmiðill hefði birt þetta viðtal við Sigríði Andersen án þess að leiðrétta rangfærslur hennar með nýjum spurningum.
Nema Morgunblaðið því þar stjórnar fólk sem hefur barist gegn sóttvörnum þjóðarinnar, og allar slíkar árásir átt þar öruggt pláss, og yfirleitt hampað líkt og þetta símaviðtal Sigríðar Andersen við þessa vísindamenn hægri öfgaveitunnar sem berst fyrir þeirri leið að veiran fái frelsi til að drepa þar til hið svokallaða hjarðónæmi sé náð.
Líkt og lifandi fólk sé einhverjir gripir sem megi slátra.
Ég hef fjallað um helstu rangfærslu Sigríðar í síðustu 2 pistlum, vitandi vel að það les enginn svona skrif, útbreiðsla rangfærslnanna er ekki stöðvuð nema Mogginn sé dreginn til ábyrgðar, eða að Sjálfstæðisflokkurinn sé látinn svara til saka fyrir allt það tjón sem andóf hans gegn sóttvörnum þjóðarinnar hefur valdið.
Í því samhengi má ekki gleyma ábyrgð hans á því að landamærunum var lokað of seint í sumar, vegna tregðu flokksins að samþykkja tvær skimanir með sóttkví á milli, glæpsamlegt athæfi sem ber beina ábyrgð á andláti 14 samlanda okkar, auk allra þeirra hafta sem við höfum upplifað frá því að þriðja bylgju frönsku veirunnar hófst.
Franska veiran komst inní landið 14. ágúst, sóttvarnaryfirvöld náðu loksins að brjóta andstöðu Sjálfstæðisflokksins á bak aftur með lokun landamæranna 19. ágúst.
Ef Þjóðaröryggisráð hefði staðið undir hlutverki sínu og skipað ríkislögreglustjóra að handtaka þá þingmenn og ráðherra Sjálfstæðisflokksins sem börðust gegn sóttvörnum á landamærunum, þá hefði landamærunum verið lokað mun fyrr, og við værum ekki að berjast við núverandi bylgju.
Um þetta þarf ekki að rífast, núna síðast í dag staðfesti Þórólfur Guðnason að þriðja bylgjan væri öll vegna frönsku veirunnar, undantekningin væri 2 hópsmit sem hefðu verið staðbundin, og hefðist strax náð að einangrast.
Við sem þjóð erum lítilmenni ef við látum hægri öfga fólkið komast upp með þetta.
Við snérumst til varnar í Icesave, en látum þetta yfir okkur ganga.
Eins og ekkert okkar eigi feður, mæður, afa eða ömmur líkt og fólkið var sem féll fyrir kórónuveirunni
Þetta var ekkert shit happens, þetta var viljaverk, frá fyrsta degi hefur verið grafið undan sóttvörnum þjóðarinnar, þær sagðar ganga of langt, úr takti við alvarleik veirunnar eða það sem aðrar þjóðir gera.
Allt hefur sannast rangt, það eru allar þjóðir að loka.
Og núna í dag Svíar.
Síðasta haldreipið um það að það virki að gera lítið sem ekki neitt, sem er reyndar ekki rétt, sænsk stjórnvöld gerðu margt, en bara of seint, með þeim afleiðingum að þúsundir Svía féllu að óþörfu.
Féllu að óþörfu.
Samt er því mannfalli hampað af ákveðnum þingmönnum Sjálfstæðisflokksins, og sjálfur formaður flokksins sagðist vera stoltur af þeim röddum.
Og þetta er fólkið sem stjórnar okkur.
Það hampaði fjöldamorðum því þegar sænsk stjórnvöld gripu ekki til aðgerða þá var vitað hvað veiran var banvæn, þau brugðust þeirri grunnskyldu að vernda alla þegna landsins.
Í dag var sænska leiðin kvödd, síðasti naglinn í líkkistu hægri öfganna í Sjálfstæðisflokksins.
Í gær barst frétt frá Bretlandi um alvarleik veirunnar fyrir þá sem sýktust en lifðu;
"Talið er að um 60 þúsund Bretar glími enn við einkenni Covid-19 mörgum mánuðum eftir að hafa greinst með kórónuveiruna. Ungir og heilbrigðir einstaklingar hafa sýnt einkenni líffærabilunar og skertrar líkamsstarfsemi allt að fjórum mánuðum eftir sýkingu. Einstaklingar með langa Covid hafa lýst viðvarandi einkennum á borð við þreytu, andleysi, verki og heilaþoku".
Annar naglinn í stuðningi hægri öfganna í Sjálfstæðisflokknum við þær raddir sem gera lítið úr alvarleik kóvid farsóttarinnar.
"Hvað með þá sem fá veiruna og virðast lengi glíma við eftirköst hennar? (spurning blaðamanns) Það eru einhver dæmi um slíkt. Sérfræðingar segja mér að það komi engum á óvart en það er einkenni á svona veirum. Inflúensur hafi líka þessar afleiðingar en sérfræðingur benti á að þetta væri ekki í meira mæli vegna Covid en annarra veirusýkinga".
Einhver dæmi já, en þó blaðamaðurinn hefði ekki þessa frétt frá Bretlandi við höndina, þá átti hann að vita um þessar hliðaverkanir kóvid sýkingarinnar, svo mikið hefur hún verið í fréttu og umræðunni, bæði hér á landi sem og erlendis.
En kannski var hann eins og blaðakonan sem tók viðtalið við Khomein æðstaklerk, hún leyfði honum bara að tala, og það viðtal jarðaði ímynd hans hjá öllu vitibornu fólki, aðeins trúaröfgarnar kinkuðu kolli.
Samt var óþarfi hjá blaðamanninum að láta þessa setningu fara óátalda í gegn, allavega hefði Twitter ekki gert slíkt.
"Þess vegna er svo skrítið að menn hafi gefið í í þessum sóttvarnaaðgerðum þegar líður á faraldurinn og þegar það er alveg ljóst að menn eru að veikjast minna og höndla faraldurinn betur. Þá er gripið til harðari aðgerða. Það þarf að útskýra það".
Svona í ljósi þess að bara þennan mánuðinn hefur Mbl.is sagt á annan tug frétta um hertar sóttvarnir í löndum Evrópu, þar sem tilkynnt er um samfélagslegar lokanir af einhverju tagi.
Skoðanakannanir sýna að það eru einhverjir einfeldningar þarna úti sem trúa svona vitleysu, hundsa fréttaflutning en móta sér skoðanir út frá rugli og rangfærslum.
En það má víst ekki gleyma hinum nýráðna yfirmanni sem vill að svona rugl fari ómengað í gegn, tilgangurinn, að stuðla að ótímabæru andláti samlanda okkar, helgar víst meðalið.
Eftir stendur Alþingi sem líður svona lygaþvætting án þess að viðkomandi þingmaður sé knúinn til afsagnar.
Ásamt því að tafarlaust sé rannsakað hve margir þingmenn eru að baki þessu bulli og rangfærslum.
Tilgangurinn er augljós, það er verið að þrýsta á ótímabæru opnun landamæranna sem og að slakað verði of snemma á sóttvörnum.
Síðast kostaði svona atlaga 14 mannslíf, og ekki útséð um hvort þau verði fleiri sem tengja má við frönsku veiruna. Enn og aftur, hún slapp inní landið 14. ágúst, tregðan við að loka á lekann við landamærin seinkaði augljósum aðgerðum til 19. ágúst.
Staðreyndir sem er ekki hægt að rífast við, eða rífast um.
Það er ekki að ástæðulausu að þeir sem afneita Helförinni eru sóttir til saka í Þýskalandi og Austurríki.
Þar brenna vítin sem þarf að varast beint á fólki.
En í alvöru, það er enginn minni glæpur að afneita alvarleik kóvid veirunnar.
Hún drepur ef það er ekki skorið á smitleiðir hennar, við eru aðeins í upphafi faraldursins, og enginn veit endinn fyrr en lækning finnst.
Að líða afneitunina er eins og að líða réttlætingu fjöldamorða.
Og ef afneitunin vinnur beint gegn sóttvörnum þjóða, þá er hún tilraun til slíkra morða.
Í upphafi vissu menn ekki, en síðan í vor hefur hafa menn vitað.
Aðeins annarlegur tilgangur grefur undan þeirri vitneskju.
Í dag var sænska leiðin kvödd.
En það er tími til kominn að fleiri séu kvaddir.
Til dæmis þeir sem ógna lífi og limum samborgara sinna.
Það hefur verið sagt bless af minna tilefni.
Kveðja að austan.
![]() |
Átta manna samkomubann í Svíþjóð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggfærslur 16. nóvember 2020
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.5.): 1
- Sl. sólarhring: 9
- Sl. viku: 47
- Frá upphafi: 1440180
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 41
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar