16.3.2015 | 16:17
Aðförin að Íslandi.
"Helgi Hjörvar, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, sakaði ríkisstjórnina um aðför að Alþingi".
Utanríkisráðherra notar orðið "valdarán", þegar hann tjáir sig í fréttaviðtali um bréf stjórnarandstöðunnar til framkvæmdarstjórnar ESB, sjálfur lenti hann svo í að verja sig gagnvart ásökunum um að bréf hans til lettneskra stjórnvalda, sem fara með forsætið næstu mánuðina hjá ESB, hafi verið meint valdarán, því það var sent án samráðs við Alþingi.
Og í dag er sérstök umræða utan dagsskrá um hvort allar þessar bréfasendingar, hafi verið valdarán, aðför, óför, Ómál, Ekkert mál, sjálfsagt mál, þú vondur, ég góður, pabbi minn er stærri en pabbi þinn, eða hvað sem þessum gríslingum dettur í hug til að skammast yfir.
Vegna bréfs sem tjáir afstöðu utanríkisráðherra, og líklegast ríkisstjórnarinnar, þó fregnir þar um séu óljósar hvort eitthvert samráð hafi átt sér stað, til aðildarviðræðna Íslands og Evrópusambandsins.
Afstöðu sem hefur legið fyrir frá upphafi að væri stefna ríkisstjórnarinnar.
Vegna viðræðna sem hafa legið niðri frá því að síðasta ríkisstjórn, sem sótti um aðildina, frestaði þeim. Og skíttapaði síðan kosningum í millitíðinni.
Hvernig getur allt verið í upplausn í samfélaginu útaf hlægilegu bréfi, sem sjálfur bréfritari getur ekki skýrt að fullu, um mál þar sem afstaða allra aðila liggur skýrt fyrir, og bréfið tjáir engar breytingar þar á??
Af hverju rís enginn vitiborinn manneskja upp, og stöðvar þennan skrípaleik sem núna er leikinn á Alþingi??
Af hverju er engin leikskólafóstra send þarna inn til að kenna börnunum að hætta þessum sandkassaleik??
Hvernig er hægt að setja þjóðfélagið á annan endann án nokkurs tilefnis??
Hver er ábyrgð þeirra sem það gera??
Og hverjum eru þeir að þjóna??
Virðist óskiljanlegt, en kannski ekki.
Ekki ef menn skoða hagsmuni sem liggja undir þessa dagana.
Mig langar að vitna í nýlega grein Lilju Mósesdóttur í Fréttablaðinu, grein sem ber heitið: Hagsmunir þjóðarinnar eða hrægammanna.
Tillögur sem heyrst hafa frá sérfræðingum ríkisstjórnarinnar um afnám hafta fela í sér útgönguskatt á bilinu 20-45% og tilboð um ríkisskuldabréf til 30 ára á afslætti. Með því að hvetja kröfuhafa gömlu bankanna til að festa eignir sínar í 30 ára ríkisskuldabréfum er í raun verið að leggja til að skuldum einkafyrirtækja verði breytt í ríkisskuldir. Stjórnvöld munu sennilega réttlæta þennan gjörning með því að verið sé að endurfjármagna ríkisskuldir á afar lágum vöxtum (lægri en verðbólga). Því miður mun 45% útgönguskattur ekki duga til að koma í veg fyrir hrun krónunnar. Gjaldeyriseign þjóðarinnar nemur ekki nema um 3% af VLF og útstreymi eftir að 45% útgönguskattur hefur verið lagður á gæti numið allt að 23% af VLF. Gengishrun krónunnar af völdum peningahengjunnar mun leiða til gífurlegrar hækkunar á verði innfluttra vara og verðtryggðra lána.
Stjórnvöld gætu notað lán í erlendum gjaldmiðlum frá AGS og norrænu þjóðunum til að fjármagna útstreymi peningahengjunnar og komið þannig í veg fyrir gengishrun. Ef þessi erlendu lán verða notuð eða genginu leyft að falla til að leysa peningahengjuvandann, þá er í raun verið að koma byrðum fjármálakreppunnar af baki hrægammasjóða og áhættufjárfesta yfir á herðar skattgreiðenda sem eru með laun í krónum og verðtryggð lán.
Ómál spretta nefnilega aldrei upp af sjálfu sér.
Það þarf ekki nema að skoða hagsmunina og hver græðir á ruglinu.
Hver græðir á óöld og upplausn??
Því miður er Lilja að benda á hagsmuni, ofsagróða, og mikilvægi þess að allt annað sé í umræðunni en fyrirhuguð landsala.
Kannski eru þingmenn okkar ekki eins mikil börn og þeir vilja vera láta.
En það afsakar ekki okkur hin sem dönsum með.
Kveðja að austan.
![]() |
Ræða stöðu Alþingis á þingfundi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.3.2015 | 08:40
Valdaránið ógurlega.
Sem átti að vera framið af stjórnarandstöðunni vegna þess að hún skrifaði framkvæmdarstjórn ESB bréf, er núna búmmerang í höndum utanríkisráðherra.
Hann er sakaður um valdarán, því það var hann sem skrifaði fyrst bréf, og ekki talið honum til málsbóta að hann skrifaði bréfið til einhvers Letta, sem er lítil þjóð við Eystrasalt, og bað hann um að skila því til framkvæmdarstjórnar ESB að hann ætlaði ekki að ræða við sambandið um aðild Íslands að sambandinu.
Eina hugsanlega skýringin á þessari staðhæfingu, þó ákaflega langsótt sé, er að utanríkisráðherra hafi hugsanlega brotið gegn bjúrókratískri lagskiptingu valdsins innan ESB með því að stíla bréfið á einhvern Letta, hafi þannig gengið framhjá stækkunarstjóra ESB, hafi hugsanlega sáð fræjum metnaði til frekari valda í brjósti Lettans, og þá jafnvel hugsanlega, hugsanlega í sálu lettnesku þjóðarinnar.
Og því vilji íslenska stjórnarandstaðan mótmæla
Eða hvað??
Af hvaða tilefni fljúga þessi stóryrði um í umræðunni??
Valdarán, atlaga að þingræðinu. Verjum lýðræðið.
Hindrum ósvinnuna.
Sem er hver???
Bréf þar sem utanríkisráðherra segist ekki munu tala við ESB um aðild Íslands að sambandinu.
Eins og hann hafi stöðvað einhvers konar viðræður, skellt hurðum, yfirgefið með látum.
Eins og einhverjar viðræður hafi verið í gangi.
Sem er kjarni málsins, það gerðist ekkert.
Það var aðeins tilkynnt að það yrði ekki sem var ekki.
Ef eitthvað má segja um málið þá má benda á hvað bréf utanríkisráðherra er spúkí.
Það er eins og hann hafi uppgötvað að enginn hafi tekið eftir því í Brussel að hann hafi ekki verið í neinum viðræðum. Eða kannski það sem verra er, að hann hafi mætt til Brussel, bankað á dyrnar, verið vísað til sætis, svo hafi enginn komið og talað við hann.
Og til að minna á sig, þá hafi hann einmitt skrifað bréfið til að taka það fram, að hann sé til, að hann sér einhver, mr. Svenson from Iceland, and not talking.
Það eru margar leiðir til að gera sig að fífli, og utanríkisráðherra fann eina.
En í ljósi hinna hörðu viðbragða, bæði innan þings og utan, viðbragða sem spruttu upp úr engu, þá er ljóst að um tilbúinn aulaskap er að ræða.
Hann er hluti af leikriti, þrautæfðu handriti þar sem allir leikendur þekkja sitt hlutverk.
Svona bjánagangur verður ekki til úr engu.
Því miður fyrir þjóðina, þá stjórna aular ekki landinu.
En þá má vissulega finna í stjórnarandstöðunni.
Kveðja að austan.
![]() |
Ekkert valdarán átti sér stað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 16. mars 2015
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (5.8.): 1
- Sl. sólarhring: 12
- Sl. viku: 115
- Frá upphafi: 1470038
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 92
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar