Tilfinningaklám Morgunblaðsins.

 

Það deyr fólk á átakasvæðum, sérstaklega ef það lendir í skotlínu stríðandi fylkinga.

Staðreynd sem virðist blaðamanni Morgunblaðsins ókunn.

 

Eins virðist viðkomandi blaðamaður vera það heimskur að hann heldur að þetta hörmulega lát stúlkunnar og fjölskyldu hennar sé Ísraelsher að kenna.

Að Ísraelsher stundi það að útbúa víglínu, eða eins og segir í fréttinni; "á skil­greindu átaka­svæði" og síðan skjóti ísraelskar hersveitir á hvora aðra.

Því slík heimska er forsenda þess að hægt sé að skrifa svona tilfinningaklám þar sem markmiðið er að koma inn hjá lesendum hvurslags voðafólk þetta er sem skýtur svona á óbreytta borgara og sprengir í loft upp byggðir þess.

Að Ísraelsher sé að berjast við sjálfan sig en ekki vopnaða vígamenn Hamas.

 

París var ekki rústir einar eftir Seinna stríð vegna þess að Frakkar vörðu ekki borgina í töpuðu stríði, Berlín var lögð í rúst vegna þess að nasistar neituðu að gefast upp, og það var ekki fyrr en Hitler tók líf sitt að þýski herinn þorði að leggja niður vopn.

Allar borgir sem verjast til síðasta manns, eru lagðar í rúst, og það er rasismi andskotans að gera þær kröfur til gyðinga í stríði sínu við Íslamista, sem hafa það eina markmið að útrýma þeim og ríki þeirra, að þeir ráðist inní borgir án þess að beita sprengjukrafti sínum til að minnka mannfall hermanna sinna.

Eða hætti að berjast vegna þess að Íslimistarnir sem ætla að útrýma þeim, verjast innan um sitt eigið fólk.

 

Í dag gengur ekki slefan á milli ritstjórnar Morgunblaðsins og Samtakanna Ísland-Palestína.

Sami áróðurinn, sömu rangfærslurnar, sama upphafningin á þeim viðbjóði sem Glæpir gegn mannkyni eru.

Það eina sem vantar uppá er að ritstjórnin mæti niður á Austurvöll öskrandi svívirðingar á íslensk stjórnvöld, vanvirði  landið og sjálfstæði þess með því að fylkja sér undir fána Palestínu, og krefjist þess að útsendarar Hamas á Íslandi fái fjölskyldur sínar sendar til sín, svo lífið verði þægilegra í landi þar sem þeir telja íbúanna réttdræpa því þeir eru kristnir.

 

Af sem áður var.

Lágt er risið á Morgunblaðinu í dag.

Keðja að austan.


mbl.is Sex ára stúlka fannst látin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hatrið sem nærir ofbeldið

 

Ég las nýlega í því gagnmerka tímariti Lifandi saga fróðlega úttekt á útbreiðslu nasismans í Bandaríkjunum á millistríðs árunum og í umfjöllun um "nasista-prest" einn las ég þessa réttlætingu hans á Kristalnóttinni frægu í okt 1938, þegar þúsundir fylgjenda nasistaflokksins í Þýskalandi réðust á verslanir í eigu gyðinga, brutu og brömluðu verslanir í eigu gyðinga, hátt í hundrað gyðingar voru drepnir þessar örlaganætur.

"Kristalnóttin var sjálfsprottin og réttmæt aðgerð gegn áralangri misnotkun og yfirgangi gyðinga".

Þau voru réttmæt, sjálfsprottin vegna áralangra misnotkunar og yfirgangs gyðinga, nokkurn veginn orðrétt ummæli formanns félagsins Ísland-Palestína eftir voðaverkin 7. október, eða það sem framkvæmdarstjóri Sameinuðu þjóðanna gaf í skyn, en þorði ekki að segja berum orðum.

Og margir landar okkar annaðhvort afneita þessum voðaverkum eða telja þau réttlætanleg, einmitt vegna þessara meintu áralangrar misnotkunar og yfirgangs.

 

Það er þetta undirliggjandi hatur sem nærir ofbeldið, hér á Vesturlöndum beinist það mikið að gyðingum, í Bandaríkjunum, sérstaklega í Suðurríkjunum beinist það að svörtu fólki, í múslímaheiminum hata Súnnítar Shíta og öfugt, báðir trúarhóparnir hata svo homma og lesbíur svo eitthvað sé nefnt.

Ef ekkert verður að gert, mun þetta hatur draga mannkynið til dauða, vopnin eru það öflug.

Og við eigum líf sem við sórum að vernda, okkur ber skylda til að verða ekki samdauna því, halda okkur við staðreyndir, og reyna aldrei að réttlæta það sem ekki er hægt að réttlæta.

 

"Þú hefur held ég lítið skrifað um Netanyahu" sagði góður maður hér á Moggablogginu við mig í athugasemdarkerfinu sínu þegar ég leiðrétti þann misskilning hans að ég styddi ríkisstjórn hans og herför hans á Gasa.

Sem er rétt, ég hef ekkert skrifað um hana, persónulegar skoðanir mínar á því öfgafólki sem skipar hana kemur málinu ekkert við, og þó ég telji innrásina á Gasa óréttlætanlega, svona líkt og eldárásirnar á borgir Þýskalands í seinna stríði. Ég tel það grundvallaratriði að forsenda fordæmingar ódæðisverka sé að fremja þau ekki sjálfur, sé það gert með vísan í að "hinn" byrjaði, þá ert þú í raun að réttlæta ódæði hans.

 

Málið er að mínar persónulegu skoðanir skipta engu máli í því samhengi sem ég hef verið að fjalla um voðaatburðina 7. október, ég hef í kjarna gagnrýnt þá sem reyna að réttlæta það sem ekki er hægt að réttlæta, og ábyrgð alþjóðasamfélagsins á núverandi hörmungum á Gasa með því að heykjast við að fordæma voðaverkin og grípa inní fyrirhugaða hemdar atburðarrás með því að krefja stjórn Hamas á Gasa að framselja sjálfa sig og sæta ábyrgð á gjörðum sínum.

Hvort sem fólk sættir sig við það eða ekki þá er það þannig að skipulögð stríð hafa fylgt mannkyninu í þúsundir ára, fólk fellur í styrjaldarátökum og sá sem gerir árás á annað ríki, verður að sætta sig við að henni sé svarað.  Skiptir þar engu að hann sé verr vopnum búinn og geti því drepið færri en sá sem svarar fyrir sig.

Síðan er rétturinn til sjálfsvarnar geirnegldur í alþjóðalög, en eins og Alþjóðadómstóllinn í Haag benti réttilega á, þá er ekki alveg sama hvernig staðið er að innrásum í annað ríki.  Um það má deila en ekki sjálfa innrás Ísraela á Gasa ströndina.

 

Víkjum þá að því hvernig menn réttlæta hatrið, stuðning sinn við óverjanlega Glæpi gegn mannkyni með því að vísa í þann margtuggna frasa gyðingahatara allra tíma og faðir Coughlin orðaði svo vel; ".. sjálfsprottin og réttmæt aðgerð gegn áralangri misnotkun og yfirgangi gyðinga".

Margir trúa þessu og vísa þá áratuga deilur Ísraela og Palestínuaraba, og í frægri yfirlýsingu starfsmanna Háskóla Íslands var fullyrt að Glæpirnir gegn mannkyni þann 7. október væru afleiðingin af kúgun og rasisma gyðinga gegn aröbum.

Með slíkum yfirlýsingum setja meintir fræðimenn sig í dómarasæti yfir deilu milli tveggja aðila sem á sér langa sögu átaka, stríðum, hryðjuverkum, og fullyrða að það sé bara öðrum aðilanum að kenna, hann kúgi, beiti yfirgangi á meðan hinn er bara að verja sig og fá til baka það land sem hann átti.

Og í dómarasætinu fara þessir meintu fræðimenn rangt með næstum allt því slík vinnubrögð eru forsenda þess að geta dregið upp einhliða áróðursmynd að hætti hatara allra tíma, hvort sem hatrið beinist gegn gyðingum, öðrum kynþáttum, trúarhópum eða samfélagshópum eins og hommum og lesbíum.

 

Langt má nú þegar og ég ætla að lengja það ennþá meir með því að draga saman nokkrar staðreyndir um Ísraelsríki, og sögulegar staðreyndir um hvernig heimurinn er í raun:

 

1. Ef hægt er að segja að ríki geti verið stofnuð á löglegan hátt, þá gerist það ekki löglegra en með stofnun ríki gyðinga í Palestínu því það var sjálft Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna sem lagði til að Palestínu skyldi skipt í tvennt milli gyðinga og araba og á grundvelli þess lýstu gyðingar í Palestínu yfir stofnun ríki síns, Ísrael.

Í þessu nýja ríki voru gyðingar álíka fjölmennir og arabar eða um milljón hvor.

Daginn eftir stofnun þess réðust 5 arabaríki á landið, og í þeim átökum hrökluðust margir Palestínuarabar á flótta, sumir innan Ísraels en meginhlutinn flúði til nágrannaríkja eða á þau landsvæði sem áttu að vera kjarninn í ríki Palestínuaraba, Gasa ströndina og Vesturbakka Jórdan.

Eftir að stríðinu lauk, þá voru um 300 þúsund arabar eftir í Ísrael, og fyrstu árin nutu þeir lítilla borgarréttinda, eitthvað sem ríkisstjórn Ísraels afsakaði með vísan í viðvarandi stríðsástand við nágrannaríkin og meintan stuðning araba við árásarríkin.  En árið 1962 úrskurðaði Hæstiréttur Ísraels að allur mismunur væri ólöglegur, þá fengu arabar smán saman full borgararéttindi á sjöunda og í byrjun áttunda áratugarins. 

Arabar í Ísrael í dag eru rúmar 2 milljónir, um 20% íbúa, njóta fullra borgarréttinda, réttinda sem íbúar arabaríkja njóta ekki nema í takmörkuðu mæli. Þess vegna eru fullyrðingar meintra fræðimanna HÍ um rasisma algjör öfugmæli.

 

2. Eftir stríðið 1948 varð ekkert úr stofnun sjálfstæðs ríkis Palestínuaraba, að hluta vegna þess að gyðingaríkið hertók nokkur landsvæði þess í norðurhluta Palestínu, en megin skýringin er að Jórdanía hertók Vesturbakkann og Egyptar Gasaströndina.

Og þar var enginn vilji fyrir sjálfstæðu ríki Palestínu.

Ísraelsmenn hertóku síðan Vesturbakkann og Gasa i Sex daga stríðinu 1967, og stjórnuðu þeim svæðum sem hernámslið eða allt þar til Óslóarsamkomulagið færði Palestínuaröbum vissa sjálfstjórn á Gasa og Vesturbakkanum.

Eftir að Hamas náði völdum á Gasa 2006 hefur ríkt þar ógnarstjórn, það eru ekki bara hommar og lesbíur sem eru drepin, fólk sem er grunað um samstarf við Ísraela er drepið án dóms og laga, og síðan má ekki gleyma drápunum á Fata-liðum; "In the Gaza Strip, Hamas officials have tortured and killed thousands of Fatah members and other Palestinians who oppose their rule.".

 

3. Free Palestina eða frelsum Palestínu er því rangnefni, annars vegar er það löglega stofnað ríki gyðinga, hins vegar ríki Palestínuaraba sem aldrei varð.  Réttara væri að tala um að frelsa Gasa eða frelsa Vesturbakkann.

Mótrökin eru þá að Sameinuðu þjóðirnar hefðu ekki rétt á að skipta Palestínu í tvennt, gyðingarnir væru aðkomufólk þar.  Um það má deila en það er þá í dag um 75 ára gömul deila, og varla þá forsenda fyrir því að útrýma rúmlega 9 milljóna manna ríki gyðinga, og Sameinuð þjóðirnar opnar á það þjóðarmorð, hvað með þá öll hin ríkin sem voru stofnuð eftir Seinni heimsstyrjöldina, eða þá fyrri ef menn vilja fara lengra aftur??

Írak er til dæmis ríki 3 þjóðarbrota, Kúrda, Súnníta og Shíta þar sem súnnítar fengu öll völd þó þeir væru í minnihluta í Írak.  Írak fékk sjálfstæði eftir Seinna stríð eins og öll önnur ríkin fyrir botni Miðjarðarhafs, og þar hafa súnnítar drepið hundruð þúsunda Kúrda og Shia þegar þessir hópar hafa risið upp gegn ríkisvaldinu.  Eins hafa gyðingar og kristnir Assýringar verið hraktir úr landi, eitthvað á aðra milljón.

Á að endurskrifa söguna fyrir Írak???, en hvað þá með Íran sem er land tuga þjóðarbrota, á leysa það land uppí frumeindir sínar??

Eða öll löndin í Afríku, þar er ekki eitt land sem er ekki byggt mismunandi þjóðarbrotum??, öll fengu sjálfstæði eftir seinna stríð.

Og hvað með Indland, Búrma, Indónesíu, Filippseyjar, Sri Lanka, svo einhver lönd í Suð Austur Asíu séu nefnd.  Allt lönd hinna mörgu þjóðarbrota, á að leysa þau upp líka???

Rökvillan í þessu er algjör, og ekki sæmandi fræðimönnum, jafnvel þó þeir séu meintir og viti flestir ekki lengur hvernig börnin verða til.

Margfalt stærri þjóðir en Palestínuarabar eru án ríkja, ein virkilega kúguð og kvalin þjóð, Kúrdar, dreifist á þrjú ríki, og meintir fræðimenn tala ekki máli hennar.

Það eru aðeins gyðingarnir sem eru glæpahundarnir í þessu dæmi, á þá er bent með svipuðum rökum og presturinn sem ég vitnaði í hér að ofan.

 

4. Afkomendur Palestínuaraba eiga rétt á að snúa heim til lands forfeðra sinna þó að annað fólk hafi tekið sér þar búsetu og búið þar í rúm 75 ár.

Þetta er líklegast það heimskulegasta og það hættulegasta sem fólk gegnsýrt af gyðingahatri slær fram. Flótti fólks frá heimkynnum sínum er alltaf sorglegur, en fái menn ekki að snúa til baka fljótlega, þá tekur nýtt fólk yfir heimkynni þess og festir þar rætur.

Eftir Seinna stríð voru milljónir hraktar úr heimkynnum sínum, bæði vegna þeirrar viðleitni að ná fram meiri einsleitni meðal ríkja, sem og vegna tilfærslu landamæra.  Pólverjar voru hraktir frá landsvæðum sem eru núna undir stjórn Hvítrússa, Þjóðverjar frá Austur Prússlandi sem Rússar hernámu og eignuðu sér, og frá austur héruðum Þýskalands sem voru lögð undir Pólland.

Síðan má nefna þjóðernishreinsanir í Mið og Austur Evrópu þar sem fólk af þýskum uppruna, jafnvel árhundruð aftur í aldir, var hrakið úr heimkynnum sínum samkvæmt niðurstöðum Postdam ráðstefnunnar. Sudeta Þjóðverjar sem höfðu búið í héruðum sem tilheyrðu Tékkóslóvakíu frá stofnun þess ríkis 1918, voru neyddir til að flytja alslausir til Þýskalands, rúmlega 3 milljónir samtals.

Bara svo dæmi séu tekin eftir Seinna stríð, eftir lok þess fyrra voru miklar þjóðernishreinsanir í Tyrklandi þar sem bæði Grikkir sem höfðu búið árþúsund lengur en Tyrkir í Anatólíu voru hraktir burt til Grikklands, sem og Armenar sem höfðu allavega búið á þessum slóðum 2.000 árum lengur en Tyrkir voru hraktir burt í miklum þjóðernishreinsunum ásamt því að hundruð þúsunda voru hreinlega drepin.

Eftir Seinna stríð má nefna útþurrkun gyðingasamfélaga í múslímskum löndum Miðjarðarhafsins, kristnu Assýringana, fólk af kínverskum uppruna í Suð-Austur Asíu eða Indverjana sem voru hraktir frá Austur Afríku.

Palestínuarabar eru aðeins dropi í hafi flóttafólks síðustu aldar og það er mjög sérstök nálgun að aðeins núverandi íbúar Ísraels eigi að víkja svo hægt sé að leiðrétta 75 ára gamalt óréttlæti.

Slíkt er ekki fræðimennska heldur hatur og ákall um þjóðarmorð.  Síðan má bæta því við að aðrir þjóðernishópar sem voru hraktir á flótta ástunda ekki píslarvætti, áratug eftir áratug, með því eina markmiði að útrýma þeim sem settust að í gömlu heimkynnum þeirra.

 

5. Ofbeldi Ísraela á hernumdum svæðunum, landnemabyggðir, víggirtir veggir sem girða af byggðir Palestínumanna, réttlæta útrýmingu Ísraels.

Við þessu er einfalt svar, landnemabyggðir á hernumdum svæðum eru ólöglegar og brot á alþjóðalögum. Að láta harðlínuöfl í Ísrael komast upp með þær er stór ástæða þess að aldrei hefur verið hægt að semja um tveggja ríkja lausn.

En stærsta ástæðan er samt að Hamas samtökin á Gasa vilja ekki tveggja ríkja lausn, heldur er langtímamarkmið samtakanna að útrýma gyðingum í Ísrael, það er meitlað í stofnskrá samtakanna og allt þeirra atferli eftir að samtökin náðu völdum með ofbeldi á Gasa.

Þegar menn gagnrýna viðbrögð Ísraela, loftárásirnar, harkaleg viðbrögð við grjótkasti, múrinn og annað sem fylgir hernámi þeirra, þá má ekki gleyma öllum hryðjuverkunum þar sem óbreyttir borgarar í Ísrael hafa aldrei verið óhultir fyrir árásum úr launsátri, eða að næsti maður veitist að þeim, stingi þá á hol, skjóti, sprengi, keyri bílum inní mannþröng.

Hvernig verndar löglegt ríkisvald borgara sína í slíku viðvarandi hryðjuverkaástandi??  Þetta er bara venjulegt fólk eins og við sem vill fá að ganga um göturnar án þess að líf þess sé stöðugt í hættu.

Bandarísk stjórnvöld svöruðu árásinni á Tvíburaturnana með innrás í 2 lönd, Afganistan og Írak, í Evrópu er gífurlegum fjármunum varið í að koma í veg fyrir hryðjuverk Íslamista, sem þó eru aðeins á miniskala þess sem borgarar Ísraelsríkis hafa þurft að þola. 

Af hverju eru það aðeins gyðingar sem mega ekki svara fyrir sig??

Síðan má ekki gleyma að frá stofnun Ísraelsríkis hefur landið, sjálfstætt land, búið við stöðuga ógn frá nágrannaríkjum sínum.  Vestur Evrópa sem upplifði stöðuga ógn af Sovétríkjunum stofnaði varnarbandalag, Nató, til að verjast þeirri ógn.  Ísraelar hafa hervæðst í sama tilgangi, og reyna verja ríki sitt og landamæri.

Þeir fremja ekki hryðjuverk í öðrum löndum en þeir svara fyrir sig og á því er grundvallarmunur.  Munur sem meintir fræðimenn við Háskóla Íslands virðast ekki skilja.

 

Í athugasemd hér að neðan birti ég link á upptalningu hryðjuverka sem framin hafa verið í deilum Palestínumanna við Ísraela, vítahringur sem gerði út af Óslóarsamkomulagið. 

Það gengur ekki að hundsa tilgang þessa hryðjuverka og skella allri skuldinni á annan deiluaðilann.

Það gengur heldur ekki að neita sjálfstæðu ríki um að verja sig og sína, og eða svara árásum sem að því er beint.

 

Þannig nærum við ofbeldið.

Þannig sigrar hatrið.

 

Það þýðir heldur ekki að þá eigi að hundsa þjáningar Palestínsku þjóðarinnar, en á meðan hún fylkir sér um þann málstað, að útrýma ríki Gyðinga, núna 75 árum eftir að það var stofnað, þá er vandséð hvernig hægt er að styðja hana.

Þú stingur ekki uppá tveggja ríkja lausn við fólk sem lítur á slíka uppástungu sem guðlast.

Hjá henni nærir hatrið ofbeldið.

 

Kannski er þetta vítahringur sem verður ekki rofinn.

En eitt er öruggt að við sem utan stöndum, rjúfum hann aldrei á meðan við sjálf þekkjum ekki muninn á réttu og röngu.

Eða reynum að verja viðbjóð sem aldrei er hægt að verja.

 

Framtíð barna okkar veltur á að við skiljum það.

Svo hatrið er ekki val.

Fáfræði er ekki val.

 

Ekki ef við veljum framtíð barna okkar.

Kveðja að austan.

 

 


mbl.is Dorrit: Aðeins öfgamenn styðja Netanjahú
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grætur páfi krókódílatárum??

 

Frans páfi fordæmdi voðaverk Hamas þann 7. október, en hann heyktist á að fordæma morðingjana, og krefjast þess að þeir sættu ábyrgð.

Þar með var fordæming voðaverkanna innantóm, sýndarmennska, svona But-röksemd.

"Já, já, þetta voru hroðaleg morð, en við megum ekki vera vond við morðingjana, þeir áttu örugglega eitthvað bágt í æsku".

 

Í kjarna er þessi sýndarmennska páfa, sýndarmennska Góða fólksins á Vesturlöndum, það fordæmir voðaverkin, nema náttúrulega viðbjóðurinn sem reyndir að afneita þeim eða gera lítið úr þeim með því að draga úr trúverðugleika þeirra, en gerir ekkert í að láta morðingjana sæta ábyrgð.

Og bítur svo höfuð af skömminni að þegar alþjóðasamfélagið bregst ekki við, að fordæma nauðvörn Ísraela að sækja inná Gasa til að uppræta Hamas, samtökin sem gerðu út vígamenn til að nauðga, limlesta og drepa sem flesta óbreytta borgara.

Upphefur þar með voðaverkin með því að fórnarlambsvæða morðingjana.

 

Harmleikurinn á Gasa er í boði þessa fólks, Hamas þrífst á fórnarlambavæðingu sinni.

Og núna fáum við fréttir að stuðningsfólk voðaverkanna lætur verkin tala á Vesturlöndum.

Löndum sem eru búin að yfirfylla sig af miðaldafólki sem telur svona voðaverk hinn sjálfsagðasta hlut í heimi.

 

Þetta veit páfinn.

Og hann veit ábyrgð sína.

 

En það er gott fyrir ímyndina að leika góða kallinn.

Kveðja að austan.

 


mbl.is Páfinn fordæmir aukið gyðingahatur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það eiga allar þjóðir sitt Ísland-Palestína.

 

Það er þannig að þeir sem styðja öfga og viðbjóð þrífast hjá öllum þjóðum.

 

Það sem þeim blaðamanni Morgunblaðsins sem núna sagði með sjálfum sér; Yes, þarna náði ég þeim, yfirsést að nefndin á vegum Sameinuðu þjóðanna sem gaf út þá yfirlýsingu að margt benti til að vígamenn Hamas hefðu gerst sig seka um glæpi gegn mannkyni;

"Að miðað við fjölda fórn­ar­lamba og vand­leg­an und­ir­bún­ing árás­ar­inn­ar ásamt sí­vax­andi fjölda sönn­un­ar­gagna um nauðgan­ir og lim­lest­ingu kyn­færa mætti leiða lík­ur að því að árás Ham­as-liða 7. októ­ber í fyrra teld­ist glæp­ur gegn mann­kyni".

Að hún vitnaði ekki hvorki í Ísland-Palestínu eða samtökin ZAKA.

Heldur staðreyndir sem byggðar voru af myndum á vettvangi, líkamsleyfum fórnarlamba, viðtöl við eftirlifendur og svo framvegis.

 

Hvað ritstjórn Morgunblaðsins gengu hins vegar til með svona fréttaflutningi er illt að skilja.

Alla vega hefur blaðið ekki sýnt fórnarlömbum voðaverka Hamas að fjalla ítarlega um örlög þeirra líkt og til dæmis BBC eða Sunday Times svo einhverjir breskir miðlar séu nefndir.

Eða tekið viðtal við þann hluta íbúa Gasa sem fordæmir voðaverk Hamas og þær hörmungar sem samtökin hafa kallað yfir íbúa þar.

 

Nei Mogginn dansar með.

Sem er stuðningur við viðbjóðinn út af fyrir sig.

 

Lítil er arfleið genginna ritstjóra.

Kveðja að austan.

 

Viðbót 17.55.

Ég hafði rúmar 10 mínútur í morgun til að henda inn þessum pistli áður en lagt var á stað í kaupstað til að ná í annað afkvæmið sem var að koma austur á Kommablót.

Það er svo margt hægt að segja um svona frétt sem í kjarna er beinn stuðningur við þann viðbjóð sem átti sér stað 7. október, og sem átti sér þann eina tilgang að kalla hörmungar yfir íbúa Gasa strandarinnar, markmiðið líklegast að sigra áróðursstríðið við Ísraela, og rjúfa kyrrstöðuna eða jafnvel friðarferlið sem var hafið í Mið-Austurlöndum, með því að kveikja ófriðarbál sem myndi breiðast út til annarra landa og jafnvel enda í stórstyrjöld fyrir botni Miðjarðarhafs.

Ég ætla láta mig duga að segja að það er langt síðan að ég áttaði mig á að í kjarna eru þeir sem afneita Helförinni rotnari að innan en þeir sem sömdu áætlun um útrýmingu meint óæðra fólks.

Ísraelsmenn mega eiga að þeir eru eitthvað byrjaðir að gera upp við öfgaskrílinn sem þrífst líkt og Hamas á óöldunni. Ísrael er lýðræðisríki þar sem ólík sjónarmið takast á, með frjálsum fjölmiðlum, og eftir því sem ég best veit er fólk þar hvorki grýtt eða hýtt fyrir framhjáhald eða hommum og lesbíum kastað fram á háhýsum, líkt og íslenskir hommar og lesbíur kunna svo vel að meta hjá Hamas og systursamtökum þeirra; Ríki Íslams.  Það hefur líklegast eitthvað með fórnarlambsvæðingu að gera, sjálfsmynd áratuga ofsókna upplifir tómarúm þegar menn eru alltí einu orðnir viðurkenndir góðborgarar í samfélaginu, þá er gott að vita af þjáningarbræðrum og systrum.

Öfgahópar ásamt netverksmiðjum í eigu hagsmuna framleiða og matreiða efni fyrir hina svokallað "frjálsa" fjölmiðlun netsamfélagsins, en hefðbundnir fjölmiðlar reyna svona að halda sig við atburði og staðreyndir.  Og vel unnin Wikipedia grein er gullnáma því hún vísar í heimildir sem mjög auðvelt er að kanna.

Eins og þessi; Sexual and gender-based violence in the 7 October attack on Israel.

Linkur:

https://www.google.com/url?sa=t&rct=j&q=&esrc=s&source=web&cd=&cad=rja&uact=8&ved=2ahUKEwiCn4PdhpCEAxVn-gIHHWLcDSoQFnoECA8QAw&url=https%3A%2F%2Fen.wikipedia.org%2Fwiki%2FSexual_and_gender-based_violence_in_the_7_October_attack_on_Israel&usg=AOvVaw1fbKU640G5Sz4W_pkE2HiD&opi=89978449s

Hægri smella og hún opnast.  Og skrýtið, aðalheimildin er ekki ZAKA, en ef greinin er þrautlesin þá má sjá 6 tilvitnanir í samtökin, og vissulega var vitnað í bæði talsmenn þeirra sem og liðsmenn samtakanna í tilvitnuðum fréttum því þetta var jú liðið sem var á vettvangi ásamt öðrum.

Fjölmiðlar eins og BBC eða New York Times vinna sína heimildarvinnu sjálf, og sannreyna svona alvarlegar ásakanir, svo ég vitni í BBC; "The BBC has seen and heard evidence of rape, sexual violence and mutilation of women during the 7 October Hamas attacks.".

Og út frá þeirri vinnu setti stofnunin saman ítarlega frétt um árásina á unga fólkið á friðartónleikunum Supernova, þar sem stuðst var við myndbönd bæði tónleikagesta sem og vígamanna Hamas.  Linkur á þessa frétt er hér að neðan.

https://www.bbc.com/news/world-middle-east-67056741.

 

Það er himinn og haf milli vinnubragða BBC og Morgunblaðsins, þó vinna örugglega margir femínistar á BBC.

Sá fyrrnefndi tekur ekki afstöðu með voðaverkum, heldur greinir frá þeim, sá síðarnefndi, síðasti meinti borgaralegi fjölmiðill Íslands, þegir yfir þeim eins og hægt er, en er fljótur að birta fréttir þar sem dregið er úr trúverðugleika fórnarlambanna. 

Mikið nær ræsinu er ekki hægt að komast.

 

PS. Mér var bent á að linkurinn á grein Wikipedíu um kynferðislegt ofbeldi Hamas þann 7. október hefði ekki virkað, svo ég setti inn lengri link, og birti hann svo í athugasemd númer 4, þar þarf aðeins að klikka á hann.

 

 

 


mbl.is Skáldaði upp fjölda hryllingssagna af innrás Hamas
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það starfa líka blaðmenn á Morgunblaðinu.

 

Góðir blaðamenn.

Ég held að sjaldan hafi heimska múgæsingarinnar verið afhjúpuð á eins rækilegan hátt eins og Stefán Einar gerir í viðtali sínu við Dagbjörtu Hákonardóttir, þingmann Samfylkingarinnar.

Gefum viðtalinu orðið, það þarf ekki meir að segja.

"Það er full­kom­lega mál­efna­legt að setja út á að við séum að taka þátt í keppni þar sem Ísra­el­um hef­ur ekki verið meinuð þátt­taka með hliðsjón af því for­dæmi sem sett var með banni við þátt­töku Rúss­lands."

Þetta seg­ir Dag­björt Há­kon­ar­dótt­ir í umræðu í Spurs­mál­um þar sem þátt­taka Íslands í Eurovisi­on barst í tal. Spurði þátta­stjórn­andi þá út í hvort þarna væri ekki um ósam­bæri­leg mál að ræða.

"Af hverju ætti það að vera það," seg­ir Dag­björt og bregst við.

- Rúss­ar urðu ekki fyr­ir árás Úkraínu­manna áður en þeir hófu aðgerðir í Úkraínu.

"Við get­um al­veg verið með það á hreinu að Eurovisi­on er rammpóli­tísk keppni. Hún hef­ur verið það síðan hún var fyrst hald­in í Sviss árið 1956. Það er bara al­veg ljóst að það að halda friðinn er póli­tísk ákvörðun og að vilja það og stuðla að því. Þegar ein þjóð sem kepp­ir í Eurovisi­on á þeim grund­velli að ætla sér að vinna þar til verðlauna fyr­ir besta fram­lagið þá erum við samt að velja það að horfa fram hjá því að hún á í stríði við und­irokaða þjóð, sem ég vil kalla þjóð, og sem mér finnst bara ekk­ert skrítið að sett sé út á þátt­töku Íslands í keppn­inni af þeim sök­um. Og þetta er langt í frá bara til umræðu á Íslandi."

- En mynd­ir þú styðja þátt­töku Palestínu í keppn­inni ef það kæmi til greina?

"Að sjálf­sögðu. Eða ég meina....".

- Þrátt fyr­ir hryðju­verk­in sem voru fram­in 7. októ­ber?

"Heyrðu. Við höf­um bara viður­kennt Palestínu. Ég ætla ekki að. Þetta er bara óraunverleg­ur raun­veru­leiki. Get eig­in­lega ekki svarað því með nein­um vit­ræn­um hætti hér og nú."

- Þannig að ríkið sem frem­ur hryðju­verkið það má taka þátt í keppn­inni en ekki ríkið sem bregst við. (feitletrun mín)

"Stefán. Við skul­um hafa það á hreinu að það hef­ur aldrei komið til tals fyr­ir Palestínu að taka þátt í Eurovisi­on en ef til þess kæmi.."

- En þú sagðir að þú mynd­ir styðja þátt­töku.

"Heyrðu, hvenær voru síðast kosn­ing­ar í Palestínu. Það var árið 2006. Ham­as er ekki Palestína. Við skul­um hafa það al­veg á hreinu.".

 

Nei Hamas er ekki Palestína, en það breytir ekki Litlu þjóðhátíðinni sem haldin var á Gasa í tilefni Glæpa Hamas gegn mannkyni, og fögnuðinum sem braust út meðal Palestínumanna í útlegð, þó máttu þeir vita að Ísraelsmenn myndu hefna sín grimmilega.

En það var eins og það mannfall væri aukaatriði miðað við fögnuðinn yfir hinum viðbjóðslegum fjöldamorðum vígamanna Hamas.

 

Síðan þá hefur enginn Palestínumaður, hvorki á Gasa eða hér á Íslandi, fordæmt Glæpina gegn mannkyni, afstaða sem segir allt sem segja þarf.

En viðtalið staðfestir samt það sem margan hefur grunað, að fyrir utan Kristrúnu er ekki miklu viti fyrir að fara í Samfylkingunni.

 

En það er ekki nóg að þetta fólk er heimskt, það þekkir ekki heldur til siðar.

Þess siðar að geta ekki fordæmt Glæpi gegn mannkyni og reyna ekki að réttlæta þá nokkurn hátt.

 

Það er illa komið fyrir einni þjóð þegar þessar mannvitsbrekkur njóta stuðnings.

Kveðja að austan.


mbl.is Myndi leyfa Palestínu að keppa í Eurovision
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Staf­ar heim­in­um hætta af þess­ari stúlku?"

 

Spyr örvæntingarfullur ættingi sex ára gamallar stúlku sem óttast er um afdrif af eftir að bíll fjölskyldu hennar var sprengdur í loft upp og hefur ekki fundist þrátt fyrir ítarlega leit, enda sá hluti Gasasvæðisins sem bíll fjölskyldunnar var á, mjög víðfeðmur, með fjöllum og giljum sem gerir leitarmönnum mjög erfitt að finna bílflakið.

Fjöllin og gilin, og hið víðfeðma landsvæði Norður Gasa reyndar hvergi til nema í hugarheimi þess blaðamanns sem skrifar þessa frétt, annars gæti hvarflað að honum að hann væri leiksoppur grimmdarmanna sem fórna börnum sínum á altari stríðsáróðursins.

Hvernig var það svo annars??, var ekki stanslaust sagðar fréttir af því í 6-8 vikur að sjúkrahúsin yrðu rafmagnslaus eftir 1-3 daga vegna skorts á eldsneyti við að knýja díselrafstöðvar, og líf fyrirbura alltaf undir, samt mallaði stríðsvél Hamas í rólegheitum, og samt er fólk ennþá skotið í tætlur í bílum sínum??

Og hver ekur um á bílum með fjölskyldu sinni þegar vitað er að öll farartæki eru skotmark innrásarliðsins???, á landsvæði sem er lítið stærra en Stór-Hafnarfjörður??

 

En tilgangur þessarar færslu var ekki að hæðast að hinum meðvirku sem styðja stríðsvél Hamas með því að éta upp áróðurinn hráan og hafa hann eftir.

Heldur að svara spurningu fyrirsagnarinnar og stutta svarið er Nei. 

Og langa svarið er líka Nei.

 

Þessi unga stúlka er fórnarlamb, engu síður en börnin sem vígamenn Hamas drápu þann 7. október, eða þau tugþúsunda barna sem voru brennd lifandi í eldárásum Breta og Bandaríkjamanna á borgir Þýskalands, eða féllu í umsátri Sovétmanna um Berlín.

En þau ríki sem drápu börn í Þýskalandi, líka eldri systkini þeirra, mæður og feðurna á vígstöðunum, voru ekki að þessu til að svala morðfýsn sinni líkt og blaðamaður Morgunblaðsins er að gefa í skyn í þessari frétt.

Þau réðust á Þýskaland til að uppræta stríðsvél nasista sem hafði farið um Evrópu með báli og brandi og það dóu óbreyttir borgarar í þeirri innrás, eða alveg þar til nasistar gáfust upp.

En á meðan nasistar börðust þá dó fólk, svo einfalt var það, þannig eru stríð.

 

Það deyja börn á Gasa vegna þess að stjórnvöld þar ákváðu eins og nasistarnir forðum að ráðast með báli og brandi inní nágrannaríki sitt, vitandi að það sem eitt af mestu herveldum heims, myndi svara fyrir sig með innrás, og þá myndu börn deyja.

Og börn deyja, í gær, í fyrradag og daginn þar á undan, og í dag, á morgun, og næstu daga, eða alveg þar til að þeir sem hófu þetta stríð með voðaverkum sínum gefast upp.

Fyrir Ísraelsmenn er ekkert val, það líður ekkert ríki heims að nágrannaríki sendi morðsveitir yfir landamærin til að myrða, nauðga, limlesta, og þegar nágrannaríkið hefur það yfirlýsta markmið að útrýma þjóðinni, og sýnir það í verki, þá er það annaðhvort Þeir eða Við.

Þú semur ekkert við þann sem ætlar að drepa þig, um hvað á að semja??, að hann sleppi því að drepa þig í dag, en drepi þig eftir viku í staðinn??

 

Það er síðan æpandi í öllum þessum harmsögum frá Gasa, þegar óbreyttir borgarar harma lát ættingja sinna og vina, eru á vergangi, byggð þeirra í auðn, að fólk spyr; Hvað höfum við gert??

Svona fyrir utan að hafa haldið litla þjóðhátíð með skrúðgöngu þar sem heiðursgestirnir voru lík svívirtra ungra kvenna sem voru drepin á friðartónleikum hinum megin við landamærin.

 

Hvað höfum við gert???, við erum ekki Hamas.

En enginn segir; Hamas, hættið að berjast innan um fólkið ykkar!!

 

Harmurinn er því ekki raunverulegur heldur áróður, fólks sem hélt þjóðhátíð þegar nágranninn var drepinn, en er ekki eins ánægt þegar það sjálft er drepið.

Það væru engin átök á Gasa ef fólk þar fordæmdi Hamas og ábyrgð samtakanna á þeim hörmungum sem það upplifir á hverjum degi stríðsátakanna.

 

Það væru heldur engin átök á Gasa ef alþjóðasamfélagið hefði ekki brugðist skyldum sínum eftir voðaverkin 7. október, og fordæmt það sem átti að fordæma, síðan fullvissað stjórnvöld í Ísrael að þeir sem ábyrgðina bæru yrðu látnir sæta ábyrgð.

Það er jú alþjóðasamfélagið sem fæðir og klæðir íbúana, á meðan Hamas notar sjálfsaflafé sitt og alla milljarðana frá Íran til að fjármagna stríðsvél sína sem hefur það eina markmið að útrýma 9 milljón manna nágrannaríki sínu.

Hamas situr í skjóli alþjóðasamfélagsins og Hamas berst í dag í skjóli alþjóðasamfélagsins.

 

Og hvað eiga þá Ísraelsmenn að gera??

Gefast upp og bíða eftir næstu morðárás??

Eða hjálpa til og fremja fjöldasjálfsmorð?? og deilan þar með leyst.

 

"Við drepum þá" sagði ungur drengur í sjónvarpsfréttum í gær, þannig er hatrið sem hann er alinn uppí þegar hann stríðalinn étur úr hjálparpökkum frá þeim þjóðum sem hann ætlar að drepa.

Þetta er raunveruleikinn sem Ísraelsmenn búa við í dag og þeir neyðast til að feisa.

Þetta er líka raunveruleikinn sem kristnir Vesturlandabúar búa við í dag, nema þeir feisa hann ekki.

 

Alveg eins og Glæpir gegn mannkyni eru vopn Hamas þá er meðvirkni þeirra það líka.

Fólkið sem heldur að þeir sem vilja drepa það, séu vinir þess.

Fólkið sem í meðvirkni sinni styður voðamenn og voðaverk þeirra.

 

Slík meðvirkni gegnsýrir fréttir ríkisfjölmiðils okkar og hún mengar fréttamat Morgunblaðsins.

Svo mjög að það er hægt að týnast á Gasa, þessari ör-landspildu.

 

Á meðan deyja börnin á Gasa.

En blóð þeirra er ekki á ábyrgð ísraelsku hermannanna.

 

Ekki í þetta sinn.

Kveðja að austan.


mbl.is Óttast um afdrif sex ára stúlku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Búa aðallega konur og börn á Gasa??

 

Maður spyr sig þegar maður les enn og aftur hina aumkunarverðu nálgun femínistanna á Morgunblaðinu, sem í meðvirkni sinni og fréttamennsku eru samdauna áróðri Hamas, og upphefja þar með Glæpi gegn mannkyni, sem aldrei er hægt að réttlæta.

 

En er til dæmis gert með þessum orðum; "Í árás­inni 7. októ­ber drápu liðsmenn Ham­as 1.140 manns, mest­megn­is al­menna borg­ara".

Fólk er drepið í styrjaldarátökum, frá seinna stríði er tala stríðsátaka komin á annað hundrað, með skelfilegum drápum og mannfalli.

 

Glæpir gegn mannkyni eru hins vegar taldir á fingrum annarrar handa, flestir fingranna tengjast skelfilegum viðbjóði Íslamista, Hamas og systrasamtökum þess í löndunum sunnan Sahara og á landsvæðum Ríkis Íslams.

 

Blaðamaður sem leggur Glæpi gegn mannkyni að jöfnu við mannfall í styrjaldarátökum, hefur kannski fjölmiðlapróf frá HÍ, en það próf hlýtur hann að hafa fengið út af færni að kópa og peista, glósur og gömul próf, en ekki út frá þekkingu á faginu, eða almenna vitsmuni.

Efist einhver um þá staðhæfingu um vitsmunina, þá sannar hann skortinn á þeim með þessari tilvísun í áróður Íslamistanna í Hamas; "hafa orðið að minnsta kosti 26.900 manns að bana, aðallega kon­um og börn­um, að sögn heil­brigðisráðuneyt­is Ham­as.".

 

Fréttamyndir frá Gasa sýna bardaga milli þungvopnaðra vígamanna Hamas gegn innrásarliði Ísraela, og þrátt fyrir yfirburði í lofti og notkun brynvarða skriðdreka, þá falla hermenn Ísraels í hrönnum, mannfall sem vekur spurningar í Ísrael um aðferðafræði innrásarinnar á Gasa.

Til hvers er verið að fórna börnum okkar spurði jafnvel fyrrverandi hershöfðingi í her Ísraels, eftir að hann hafði jarðað son sinn.

 

Núna er femínistarnir á Morgunblaðinu, þessir þarna sem finnst það í góðu lagi að unglingar heimsins séu skotnir á færi á friðartónleikum, fyrir utan þær unglingsstúlkur sem var nauðgað, sundurskornar með beittum sveðjum, að nýta þennan borgaralega fjölmiðil sem Morgunblaðið er, til að telja trúgjörnum lesendum blaðsins í trú um, að það innrásarlið Ísraela sé aðallega að berjast við konur og börn.

Karlarnir séu í felum en konur og börn skjóti eldflaugum að skriðdrekum og úr vélbyssum að hermönnum Ísraels.

 

Það sorglega er að það er til góðgjarnt fólk sem trúir þessum áróðri viðbjóðsins í Hamas.

Því ekki lýgur Mogginn eða hvað??

 

Aumastur er ritstjórinn, Davíð greyið, fangi peningagræðginnar, þó eftirlaun ráðherra og Seðlabankastjóra eru góð, þá eru launin á stól fílabeinsturnsins ennþá betri.

Það hefur líka frést að það sé til einhver leið til að flytja auð yfir landamæri dauðans, þess vegna skynsemi að safna honum á meðan hægt er.

 

Skítt með Glæpi gegn mannkyni.

Skítt með áður óþekktan viðbjóð Íslamista, hvort sem þeir eru í Hamas, Ríki Íslams eða lærlingasamtökunum sunnan Sahara.

 

Launin mín.

Launin mín.

 

Hvað er æran á þeirri vogarskál?

Það er alltaf hægt að pistla um Churchill þegar annað bregst.

 

Sem reyndar hafði æru og barðist gegn illskunni.

En það man það enginn.

Hann og ég erum eitt.

 

Kveðja engu að síður með óbragð í munni.

Að austan.


mbl.is Norðmenn vara við frystingu greiðslna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fall píslarvottanna

 

Að horfa á myndskeið í sjónvarpsfréttum Rúv þar sem dulbúnir ísraelskir sérsveitarmenn sáust ryðjast inná sjúkrastofu og skjóta mann og annan, var eins og að horfa á hasarmynd, í þá gömlu góða daga þegar hasarmyndir voru hasarmyndir en ekki tæknibrellur, eftir til dæmis sögum Alistair Maclean.

Til dæmis í myndinni Arnarborgin dulbjuggu sérsveitarmenn sig eins og þýska hermenn, komust inní kastalavirki og drápu nokkra SS-menn.  Þeir voru svona óþokkar, þekktir fyrir að drepa mann og annan, en voru ekki mikið fyrir að limlesta konur og nauðga, enda talaði enginn um þá sem píslarvotta.

Það var hins vegar samviskusamlega gert í þessari frétt Rúv, yfirmaður heilbrigðismál í hinni hernumdu borg Jenín á Vesturbakka Jórdan sagði fórnarlömb sérsveitarmannanna píslarvotta, enda hafði hann Mohammed Jalam­neh tekið þátt í að skipuleggja morðárásirnar á Ísrael þar sem fólk var ekki bara skotið á færi, heldur hvert tækifæri notað til að svívirða, limlesta, nauðga.

Menn hafa áunnið sér píslarvætti af minna tilefni.

 

Eins og til dæmis annar Hamas foringi sem var felldur í árás á flóttamannabúðir í útjaðri hinnar hernumdu borgar Jenín á Vesturbakkanum svo ég hafi alla rétthugsun blaðamanns Mbl.is á hreinu, hann var líka píslarvottur að sögn starfsmanna Rauða hálfmánans, enda hafði hann skipulagt árás á sub-human tegundina gyðinga þar sem kona í bíl sínum var stungin til bana og bíl hennar rænt og keyrður inní mannfjölda.

Því miður féll enginn í þeirri árás en viljinn var til staðar og því telst þessi Hamas foringi vera píslarvottur enda getuleysi undirmanna hans til manndrápa ekki honum að kenna.

 

Píslarvottar falla hver um annan þessa dagana og því fullt tilefni fyrir íslensk friðarsamtök að fleyta kertum á Reykjavíkurtjörn til minningar um þá.

Í leiðinni mætti minnast allra hinna píslarvottana sem hafa fallið við að myrða og drepa óæðra fólk, til dæmis ISIS liðann sem var stunginn í magann þegar hann nauðgaði óæðri konu af trúarhópi Yazinída þegar ISIS vígamenn réðust á þorpið Hardan í Norður Írak, drápu karlpeninginn og nauðguðu og rændu konunum og seldu í kynlífsþrældóm.

Þessi stríðsmaður guðs sem hlaut svona ótímabæra dauða, fékk ekki lengur að nauðga og drepa, að afhausa fanga eða brenna þá lifandi, að ekki sé minnst á þá guðlegu dýrð að henda hommum fram af háhýsum, en píslarvætti hans lifir, alveg eins og hjá píslarvottum Hamas.

Íslenskir hommar eiga kannski eftir að minnast hans einn daginn með því að ganga niður Laugarveginn með nýtt og endurbætt baráttuskilti, "íslenskir hommar styðja Hamas og Isis.

Hvað veit maður á tímum þar sem Glæpir gegn mannkyni eru upphafnir, taldir réttlætanlegir, og þeim hampað sem fremja þá.

 

SS mennirnir sem ég minntist hérna á að ofan, drápu reyndar líka homma, þó þeir hafi ekki kastað þeim fram af háhýsum líkt og Hamas á Gasa eða ISIS í Mósul, heldur sendu þá í útrýmingarbúðir, kannski munu íslenskir hommar einn daginn líka ganga með skilti niður Laugarveginn þar sem þeir taka skýrt fram að þeir styðji SS.

Hvort aðrar kjötvinnslur myndu þá mótmæla veit ég ekki, á þeim furðutímum sem við lifum í dag, getur allt gerst.

 

Á tímum þar sem píslarvottarnir deyja.

Aumingja þeir.

Kveðja að austan.

 

 

 


mbl.is Dulbúnir sérsveitarmenn drápu þrjá á spítala
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslamsk­ir hermd­ar­verka­menn myrtu 22 manns

 

Nei djóklaust, þetta var ekki Hamas, Ísland Palestína mun ekki ganga niður Laugarveginn til að styðja þessi systursamtök Hamas, enda drápu bara Íslamistarnir einhverja svertingja, hundheiðið fólk, ekki gyðingatrúar.

 

Drápin engu að síður eins og þegar óbreyttir borgarar í Ísrael þann 7. október síðasta voru drepin, en þá aðeins þau sem voru skotin á færi, Íslömsku vígamönnunum vannst ekki tími til að handtaka börn (orðrétt vísað í frétt Rúv sem réttlætti Glæpi gegn mannkyni), þess vegna voru þau aðeins drepin, ekki brennd lifandi.

Enda ekki gyðingabörn, aðeins svertingjabörn.

 

Og enginn skal efast um kynþáttaafstöðu félaga Ísland-Palestínu, þó margt fólk þar sé ekkert sérstaklega gáfað, þá fær enginn inngöngu í félagsskapinn nema hann þekki muninn á negra og gyðing.

Félagið hefur jú standard.

 

Þess vegna getur íslenska þjóðin andað öndinni léttar.

Það verður ekki bætt við fleirum keppendum í Júróvisjón Góða fólksins hjá Rúv.

 

Skiptir engu hve margir eru skotnir á færi, hve mörgum konum og stelpum er nauðgað, að ekki sé minnst á tilbrigði barbekjú steikingar sem meðlimir Ísland-Palestína eru mjög húkt á, brennd lifandi svertingjabörn handan Sahara eru ekki brennd lifandi gyðingabörn.

Þess vegna mun engin íslensk stelpa verða vísað úr forkeppninni fyrir söngelskt fórnarlamb vestrænnar kúgunar hjá systursamtökum Hamas, enda voru víg systursamtakanna framin eftir að innsóknarfrestur Góða fólksins runnin út.

 

Hvað gerist á næsta ári er hins vegar spurning?

 

Ísland er jú griðastaður þeirra sem styðja Glæpi gegn mannkyni, spurning hvort þessir Íslamistar handan Sahara eyðimarkarinnar þurfi ekki aðeins að gefa í.

Þeir hafa ekki alveg náð baráttu Hamas og Ríki Íslams, gefa sér ekki tíma til að nauðga, limlesta, eða brenna börn lifandi, eru í raun ekki kandídatar sem höfða til Góða fólksins hjá Rúv, í raun óttalegir viðvaningar.

 

En ef það gengur vel með fulltrúa sem styður Glæpi gegn mannkyni, þá má alveg íhuga að fá fulltrúa fleiri ofsóttra sem njóta ekki sanngirnis, réttmætar gjörðir þeirra í hinu heilaga stríði gegn trúleysingjum, séu rangtúlkaðar, og jafnvel kallað á ofsóknir, jafnvel árásir líkt og stríðsglæpir Ísraela gagnvart friðelskandi Hamas á Gasa.

Grimmilegar loftárásir og sprengjuárásir lögðu Ríki Íslams að velli, morð, nauðganir og limlestingar voru tilliástæða þessa stríðsglæpamanna sem sprengdu upp borgir og byggðir Ríkis Íslam.

Svívirðileg árás á fólk sem krafðist þess eins að fá að drepa, nauðga og limlesta kristna, gyðinga og villutrúarfólk.

 

Fólk hefur verið ofsótt af minna tilefni.

Það er réttinn til að drepa, nauðga og limlesta.

 

Hamas í dag.

Ríki Íslands á morgun.

Shit með helvítis svertingjana sem kunn aðeins að drepa, en ekki að nauðga og limlesta áður en þeir drepa, og þeir kunna ekki almennilega að grilla.

 

Gálgahúmor??

Kannski.

 

En svona í raun er Ísland í dag.

Mannlegur viðbjóður stýrir umræðunni.

Upphefur Glæpi gegn mannkyni sem sögulega nauðsyn, svo segja menn að þeir kumpánar, Stalín og Göbbles hafi lifað til einskis.

Það er að hafa áhrif á nútímann.

 

Og sem þjóð rísum við ekki upp.

Hinn þögli meirihluti er vanur kúgun umræðustjórnunar Góða fólksins.

Svo eru börn drepin á Gasa.

 

Þess vegna er takturin gengin með mannlegum viðbjóði, fólki sem upphefur Glæpi gegn mannkyni.

Innlegg mitt hér að ofan snýr að einfaldri spurningu, hve langt getur Góða fólkið gengið í stuðningi sínu við það sem aldrei er hægt að verja, áður en hinn venjulegi rís upp??

 

Ég á reyndar svarið, en þarf ekki að hafa rétt fyrir mér.

 

Það mun ekki gerast.

Kveðja að austan.

 

 


mbl.is Myrtu 22 í þorpi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Undrið

Það virðist hafa komið einhverjum á óvart að heimafólk á Gasa sem vinnur fyrir stofnanir Sameinuðu þjóðanna skuli styðja Hamas og markmið samtakanna um að útrýma nágrannaríkinu Ísrael, og miðað við morðárásirnar 7. október, öllu kviku líka. Kannski spurning hvort heimilishundarnir fái að lifa.

Hafi einhver efast um afstöðu íbúa Gasa, þá ættu allar þær efasemdir hafa horfið þegar Gasabúar sjálfir birtu myndir á samfélagsmiðlum um "stuttu" þjóðhátíðina þegar lík misþyrmdra kvenna voru borin í skrúðgöngu um götur Gasaborgar.

Og starfsmenn Sameinuðu þjóðanna á Gasa eru ekki geimverur sem voru fegnar frá öðrum hnöttum til að gæta hlutleysis, þeir eru íbúar strandarinnar, hluti af samfélagi sem er gegnsýrt af hatri útí gyðinga og kristna, og trúleysingja líka svo við höldum því til haga ef Góða fólkið telur sig öruggt fyrir hatri Íslamista.

 

Allt fjármagn sem rennur til Gasastrandarinnar er fjármagn til Hamas því Hamas er Gasa og Gasa er Hamas.

Eldflaugarnar, þúsundir á þúsundir ofan, sem skotnar voru á Ísraelríki 7. október og vikurnar þar á eftir, borga sig ekki sjálfar, neðanjarðarkerfi Hamas sem er mun veglegra en allir skólar á Gasaströndinni, kostar peninga.

Og Hamas er ekki með áskrift á vinningum í Eurolottó.

 

Hamas er hins vegar með áskrift á fjármunum almennings vestrænna landa, og nýta þá fjármuni samviskusamlega, bruðla sko ekkert.

Morðárásirnar voru ekki gerðar með kampavínsflöskum ef einhver skyldi halda það, og það er ekki varist með kavíar gegn ísraelsku innrásarliðinu.

Þetta er allt vitað, og skrýtið að góðviljaðir menn eins og Biden skuli allt í einu núna vakna upp við vondan draum og undrast að íbúar Gasa vilja útrýma nágrönnum sínum í Ísrael.

 

Biden er samt hætt við að undrast, hann er í þeirri stöðu að þurfa læra margt nýtt á hverjum degi, oft það sama reyndar, en elli kerling er nú eins og hún er.

Núverandi utanríkisráðherra, Bjarni Ben, hefur ekki afsökun Bidens, og því er undrun hans á raunveruleikanum brosleg.

Í hvaða heimi hefur hann lifað, eða hvar hefur hann haldið sig fram að þessu??

 

Þykjast vera eitthvað hneykslaður á að stofnanir Sameinuðu þjóðanna á Gasa skyldu vera skálkaskjól Hamas samtakanna.

Taka þar með þátt í einhverjum skrípaleik sem leikinn er af hlutdrægu forystufólki Sameinuðu þjóðanna, um að raunveruleikinn komi því alveg svakalega á óvart.

Það er ekki sú forysta sem íhaldsfólk ætlast af honum, Bjarni þarf að fara átta sig á að hann er ekki að keppa við Kristrúnu um formannsstólinn í Samfylkingunni.

 

Við vitum að það er neyð á Gasa.

Neyð sem íbúar þar vissulega kölluðu sjálfir yfir sig, en þeir fengu þó sína "stuttu" þjóðhátíð fyrir vikið.

En neyð engu að síður.

 

Þá neyð þarf að tækla.

Þú hjálpar fólki í neyð.

 

Þú fordæmir hins vegar gjörðir þess.

Reynir aldrei að réttlæta það sem ekki er hægt að réttlæta.

 

Það er bara önnur saga.

Kveðja að austan.


mbl.is Kennarar á vegum UNRWA fögnuðu hryðjuverkum Hamas
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 727
  • Sl. sólarhring: 727
  • Sl. viku: 4495
  • Frá upphafi: 1452947

Annað

  • Innlit í dag: 632
  • Innlit sl. viku: 3848
  • Gestir í dag: 543
  • IP-tölur í dag: 518

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband