Er Vegagerðin í stríði við fjárveitingarvaldið??

 

Og í því stríði sé matvælasóun, það er notkun repjuolíu í vegagerð, vopn svo stjórnvöld setji fjármuni í malbikun vega í stað hinnar ódýrari klæðningar.

Einhvers konar svona sorrý strákar og stelpur, klæðningin virkar bara ekki lengur, hún þolir ekki lengur aukin umferðarþunga og íslenskt veðurfar.

 

Annað getur ekki skýrt fáráðin sem forstjóri Vegargerðarinnar lætur út úr sér í þessari frétt.

Nema náttúrulega að hún sé fáráður, en það er of skelfileg tilhugsun til að láta sér detta það í hug um æðsta embættismann vegamála þjóðarinnar.

 

Vissulega er það rétt hjá forstjóranum að "Það er mjög langt síðan að menn fóru og gerðu breyt­ing­ar á inni­halds­efn­um klæðing­ar", þessi vandi er ekki nýtilkominn en áður en þessar breytingar voru gerðar, var þetta ekki svona.

Það blæddi í miklum sumarhitum en ekki á öllum árstímum eins og er í dag.

Og nýlögð klæðning var vegarbót en ekki glerhál lífshættuleg drulla.

 

Ef hinn aukni umferðarþungi slítur þá eiga eldri vegirnir að vera horfnir en reyndin er að það eru nýlegar viðgerðir sem eru að hverfa, en gamla undirlagið heldur þó slitið sé. 

Þegar suðurleiðin er keyrð þá blasir þetta við, æpir framan í ökumanninn, vegbótin var ekki vegbót, og hin gamla klæðning er að hruni komin öll sprungin, en hún heldur, ólíkt nýrri viðgerðum sem virðast bara spænast upp.

 

Minna má á frægasta dæmið um sóunina og vanhæfnina þegar fyrir um áratug síðan hvarf á nokkrum vikum nýlögð klæðning sem lögð var á allan Borgarfjörðinn upp að Holtavörðuheiði, sumarið eftir mátti aðeins sjá grjót á stangli á eldri klæðningunni. Sem þarfnaðist jafn mikið viðgerðar og áður. Þá var ekki hægt að kenna um auknum umferðarþunga, hann var sá sami og sumarið áður, og sumarið þar áður þó vissulega hafi verið einhver aukning milli ára.

Nýlegt dæmi er frá Fagradal þar sem vegurinn var að verða ófær vegna blæðinga, þar þurfti vegagerðin hreinlega að leggja nýtt yfirlag á stóran kafla, á undirlag sem var tiltölulega nýlegt.

 

Hitanum er kennt um, það er aukin hlýnun jarðar á að vera örsakavaldur, jafnvel El Nino, en þegar þessi aðferð var tekin upp að blanda biki við möl, þá var horft til langrar reynslu Norðmanna af henni, hún virkaði, samt er heitara í Noregi en hér á Íslandi, alveg satt.

Jafnt í hita sem kulda, því þeir nota bik, ekki matvæli við vegagerðina.

 

Haldreipið er þá umferðaþunginn, og vissulega er hann áhrifavaldur, en hann margfaldaðist ekkert á einni nóttu.

Hann skýrir ekki að nýlagt malbik blæðir eins og enginn sé morgundagurinn.

Hann útskýrir ekki að nýir vegir eru því sem næst ónothæfir.

 

Um þetta á ekki þurfa að deila, nema fólk sé virkilega eitthvað sérsinna í kollinum eða í grimmri hagsmunabaráttu um meiri fjármuni, og vísvitandi skemmi því þá vegi sem það þó fær fjármuni til að leggja.

Vegfarandi sem átti leið um Teigsskóg afhjúpaði þetta haldreipi, nýlagður vegur um skóginn þolir ekki umferð gangandi vegfaranda, skór slíta honum svo holur eru eftir.  Sbr. þessa frétt á Mb.is. Skórnir ónýtir vegna bikblæðinga.

Vegir sem þola ekki skóslit eru ónýtir vegir, og þekktur umferðarþungi þegar vegurinn var hannaður, er ekki skýring þess.

Þó umferð hafi aukist vestur á firði þá er vegurinn um Teigsskó ekki einn af umferðarmestu þjóðvegum landsins.

Þoli hann ekki, nýlagður sinn umferðarþunga, þá ættu þeir umferðamestu að vera löngu horfnir, aðeins hestagatan ein ætti að vera eftir.

 

Þetta sér og veit allt vitiborið fólk.

Líka fáráðar.

Skýringin er því önnur og skýring óskast.

 

Þetta er ekki einkamál embættismanna Vegagerðarinnar.

Þetta er almannamál, almannahagur er undir.

Þetta er árás á eina af grunnstoðum samfélagsins.

 

Í raun hryðjuverk gagnvart landi og þjóð.

Og hryðjuverk eiga ekki að líðast.

 

Slíkt er samsekt.

Kveðja að austan.

 


mbl.is Segir ekkert til í því að bindingarefnið sé verra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar lygin er kölluð til vitnis.

 

Til að réttlæta það sem er ekki hægt að réttlæta.

Sóun á almannafé, hættur af mannavöldum, slitlag sem endist ekki, þá er fokið í mörg skjól nauðvarnarinnar.

 

Það er rétt hjá einni af ábyrgðarkonum þessa glæps, því orðið glæpur er eina orðið sem er hægt að nota yfir hættu af mannavöldum sem hefur kostað mannslíf auk alvarlegra umferðarslysa, að vegir blæddu hér á árum áður, löngu áður en einhverjum datt í hug að blanda matvælum saman við bikið sem lagt var á vegi landsins.

Það tengdist miklum hitabreytingum, en var ekkert algengt því mikill hiti er ekki árlegur plagsiður á Íslandi. Þá var áberandi að á sama vegarkaflanum, og þá með sömu umferðinni, voru blæðingar mismiklar, sem hefði þá átt að vera rannsóknarefni, var síðasta bótin hjá verktakanum ekki rétt lögð??, var sparað efni eða vitlaust hitastig, eða eitthvað.

Allavega var ekkert samansem merki á milli nýlagðar bótar og blæðingar.

 

Í dag blæðir, jafnt í hita sem kulda, og það þarf aðeins fréttast af sól í veðurspám til að nýjustu vegabæturnar blæði, og í dag er það orðin bölvun að fá vegarbót (viðhald er yfirleitt bara bót hér og þar, mjög sjaldan heillagt á viðkomandi vegarkafla), hún blæðir, og síblæðingin veldur því að vegurinn er mjög háll í bleytu.

Gamli og nýi tíminn sjást mjög vel á suðurleiðinn þegar farið er suðurfirði Austfjarða til Hornafjarðar. Þar er grunnvegurinn mjög gamall, yngstur þó um Berufjörðinn sem og ein og ein bót í Álftafirðinum og Lóninu.  Það er áberandi að elstu vegarkaflarnir eru miklu öruggari í keyrslu, þó slitnari séu, munurinn felst í að vera laus við hina glerhálu blæðandi klæðningu matvælavinnslunnar.

Umferðin er samt sú sama, bílarnir svífa ekkert yfir gömlu vegarkaflana og lenda svo og slíta hinum nýlegri.  Og þegar talað er um nýlegri að þá er verið að vísa í eitthvað sem er margra ára gamalt, bara ekki áratuga.

Ástandið ætti hins vegar að vera þveröfugt, elstu kaflarnir hættulegri en ekki þeir sem nýrri eru.

 

Fyrir nokkrum árum var lagður nýr vegur yfir Hólmahálsinn hér fyrir austan.  Hann var ónýtur strax, of mikilli matvælasóun var kennt um, hún hafði víst ruglað bikblönduna svo hún vissi ekki að hún væri vegur en til dæmis ekki drulla í drullupolli barna að leik.

Mikið var kvartað og þá var lygin ekki kölluð til vitnis, heldur beðist afsökunar á matarsóuninni, og lofað nýrri klæðningu sem átti ekki að vera eins drullukennd. Sem var rétt, en hún var bara ekki eins og gamli vegurinn, hún var hál, hún blæddi, hún gerði alla bíla svarta sem fóru um að vetrarlagi.  Blæðir jafnt í kulda sem hita.

Eftir stendur ein lykilspurning, af hverju læra menn ekkert af mistökum sínum? Og enn stærri spurning; hver ber ábyrgðina á þessum fjáraustri og viðvarandi óþægindum fyrri neytendur veganna, almenning sem borgar þessu fólki kaup??

 

Það er nefnilega málið.

Lærdómurinn er enginn, höggvið sífellt í sama knérinn, þegar gatslitinn er gripið til lyga og rangfærsla í stað þess að kannast við sök, axla ábyrgð, læra.

Og þegar í þá nauðvörn er komið, þá getur ráðafólk okkar, þingmenn og ráðherrar ekki lengur horft í hina áttina, þeirra er raunábyrgðin, þeirra er afglöpin.

Þessi sóun fjármuna, þetta ónýta vegakerfi þrátt fyrir milljarðana sem settir eru í það, þetta drullumall sem ógnar lífi og öryggi vegfaranda, fyrir utan allan sóðaskapinn og óþægindin.

 

Þegar nýir vegir eru ónýtir, svo ónýtir að skór slíta þeim, þá sjá allir heilvita að viðhald vega er stanslaus fjárhít, svikamylla þeirra sem þiggja fé fyrir ónýta vinnu.

Vegakerfið getur ekki annað en hrunið í kjölfarið, því það slitnar hraðar en tekst að endurnýja.

Almannaheill er því undir, það er tilræði við þjóðarhag að grípa ekki inní.

 

Morgunblaðið á þökk fyrir sína umfjöllun, já ennþá er glóð sem lifir hjá Mogganum.

En þá er flest upp talið.

 

Af hverju eru sveitarstjórnir ekki brjálaðar??

Af hverju eru landsbyggðarþingmenn ekki brjálaðir??

Af hverju er fjármálaráðherra ekki brjálaður yfir fjáraustrinu??

Og af hverju fer innviðarráðherra ekki grátandi að sofa á kvöldin yfir eyðileggingunni sem blasir við á innviðum þjóðarinnar??

 

Það er spurningin.

Og segir ofboðslega margt um Ísland í dag.

Um gæði þess sem stjórnar landinu.

 

Hver var aftur að tala um ónýta klæðningu??

Kveðja að austan.


mbl.is „Gamla whitespirit-blandan var alveg eins“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vegagerðin í afneitun.

 

Og enginn sætir ábyrgð þrátt fyrir ónýta vegi af mannavöldum.

 

Það "ríkir ekki neyðarástand" reif svæðisstjóri vegargerðarinnar kjaft í fjölmiðlum.  Ekki er beðist afsökunar á ábyrgðinni að allar endurbætur og viðgerðir síðustu ára eru hálfónýtar þegar hlýnar, þegar kólnar, þegar blotnar.

Ekki beðist afsökunar á að sandurinn sem borinn er á tvisvar á dag skemmir lakk og rúður, vegagerðin er stikkfrí því hún setur samviskusamlega upp skilti sem varar við grjótkasti.

Hvað eiga ökumenn þá að gera????, keyra utanvega til að komast hjá skemmdum??

 

Firringin er algjör, og aumt er að sjá silkihanska blaðamanns Mbl.is, skýringar svæðisstjórans eru teknar góðar og gildar.

Hefði maður haldið að öll hin sviplegu slys vegna ónýts vegarkerfis, sem er bein afleiðing af mannanna fáráðum, hefði fengið hann til að hugsa aðeins út fyrir 101 Reykjavík þar sem allir eiga víst að geta hjólað milli áfangastaða, og spyrja svæðisstjórann hver beri ábyrina á því að nýlagaðar endurbætur þurfi að sanda tvisvar á dag.

Síðan til dæmis að spyrja hann hvað hann kalli hann þá neyðarástand??, þurfa bílar að festast í hinu ónýta biki til að eitthvað sé gert??

Eða þarf fólk að slasast eða jafnvel deyja til þess að menn axli ábyrgð og skammist sín til að gera eitthvað í málunum.

 

Þess má geta að þar sem undirritaður þurfti að sækja afkvæmi uppí Egilstaði seinnipartinn í gær, og fékk þar tækifæri til að skoða síðustu atlögu 101 Reykjavík, pósthólf Austurvöllur, að landsbyggðinni, hið svokallað myndavélakerfi Isavia á malarbílastæðum flugvallarins, þá var Fagridalurinn keyrður og ástandið tekið beint í æð.

Fór úr rúmlega 20 stiga hita í mun minni hita á Fagradalnum, og aðeins þar blæddi svo blæðingin var staðbundin, afhjúpaði þar með fúsk í vinnubrögðum og/eða efnisnotkun.

Hins vegar varð ég vitni af viðbrögðum vegagerðarinnar, sem voru til fyrirmyndar, hætt var greinilega að rífa kjaftinn, hætt var að treysta á sandburðinn, það var verið að leggja nýja klæðingu á sunnudegi, vandinn var sem sagt tekinn alvarlega, bætt úr honum á þann eina hátt sem hægt var.

Þau vinnubrögð öll voru til fyrirmyndar, umferðarstjórnun og nefnið það bara.

 

Það er nefnilega hægt að bregðast við á annan hátt en að rífa kjaft við launagreiðendur sína, almenning.

Að gera lítið úr umkvörtunum hans, tala um misskilning, eða nýjasta tískuorðið, að samtal sé í gangi, og á meðan það spjall á sér stað, þá er ekkert gert, ekkert lært, allar umkvartanir kæfðar.

Launagreiðandinn, almenningur, á heldur ekki að láta bjóða sér slíkt, en gerir því lítt þýðir að kjósa handarbakavinnubrögðin burt, þau sem slík virðast vera orðin einhver lenska í nútímanum, einn kemur þegar annar fer en rassinn undir öllum virðist vera sá sami, það er víst eitthvað líffræðilegt.

 

Þetta á samt ekki að vera svona, við erum ennþá Homo Sapiens, hinn vitiborni mannapi.

Það er ekki búið að einrækta heilbrigða skynsemi úr okkur, við höfum ennþá dómgreind okkar og við búum að mikilli þekkingu nútímans.

Þess vegna eigum við ekki að lúta afneitun staðreynda eða allar umkvartanir okkar séu bara misskilningur.

Og við eigum að krefjast ábyrgðar.

 

Hver ber ábyrgð á hinum ónýtu vegum??

 

Hættum að taka þá skýringu gilda að ástand þeirra sé aukinni umferð að kenna, mun eldri vegir, vissulega mjög slitnir, blæða ekki.  Og svo ég vitni í eina af hetjum malbiksvélanna sem viðtal var við í Landanum fyrr á árinu, þá sagði hann að nýju vegirnir virtust endast verr en þeir eldri.  Einmitt þegar það ætti að vera þveröfugt, því tíminn milli eldri og yngri ætti að ala af sér þekkingu og reynslu til að bæta og styrkja slitlagið.

Ástandið er mannanna verk, aðrar skýringar eru útilokaðar.

 

Síðan eigum við að spyrja, þó vonlítið sé um skýr og skynsöm svör, ráðafólk okkar, ráðherra og alþingismenn, af hverju sættið þið ykkur við það fjáraustur sem sílagning ónýtra efna á vegi landsins er, ár eftir ár, án þess að segja nokkuð?

Eruð þið alveg hættir að keyra þjóðvegi landsins??, sjáið þið ekki ástandið??

Og þó þið séuð hættir að keyra þá, hlustið þið ekki á umkvartanir almennings, hafið þið ekki séð fréttir í gegnum tíðina af bílum því sem næst fæstir í tjöru og drullu, og flytja síðan hina nýlögðu klæðningu á bílum sínum á næstu bílaþvottastöð þar sem bíður mikil vinna við að þrífa og hreinsa bílana

Hafið þið ekki heyrt af öllu slysunum, þar á meðal banaslysunum??

Af hverju gerið þið ekkert??, af hverju sættið þið ykkur við þetta??

 

Við eigum að spyrja okkur þessara spurninga, og við eigum ekki að sætta okkur við Ósvör.

Ekkert bull eða undanbrögð.

Því við erum launagreiðendurnir.

 

Ekki fórnarlömb.

Launagreiðendurnir.

 

Svör óskast.

Kveðja að austan.


mbl.is Fólk ósátt en Vegagerðin segir ekkert neyðarástand
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fáráð umræðunnar um Biden.

 

Sagt er að frammistaða hans í kappræðunum við Trump hafi verið áfall fyrir demókrata, eða hann hafi fallið á eigin prófi, svo ég vitni í tvær fréttir hér á Mbl.is.

Og maður spyr sig; Hver er dómgreind fólks sem tjáir sig svona um frammistöðu Bidens??

 

Öllum má ljóst vera að Biden stóð sig afburðavel miðað við efni og aðstæður eins og oft var sagt á meðan heilbrigð dómgreind stjórnaði opinberri umræðu.

Hvernig stóð til dæmis Brezhnev síðustu árin sín á árlegum fundi hans með rússnesku þjóðinni á degi byltingarinnar sem haldið var uppá á Rauðatorginu??

Það þurfti að hjálpa honum að veifa, og líklegast í síðasta skiptið sem hann mætti þá var hann ekki lifandi.

 

Svo spurt sé hreint út; Við hverju búast menn af lifandi líki???

Í alvöru ef mynd af Biden þegar hann farðaður fyrir kosningafundi sína væri sett inní Googel leit, þá yrðu flestar samsvaranirnar myndir af múmíum eða fólki á dánarbeði, þá oftast dánu.

Af lifandi líki stóð Biden sig nefnilega afburðavel og er góður vitnisburður um mátt nútímalæknisvísinda.

Væri Frankenstein ennþá meðal vor þá yrði hann mjög stoltur af sínum manni.

 

Hins vegar má spyrja; Af hverju komast demókratar upp með að reyna að bjóða fram til embættis forseta Bandaríkjanna lifandi lík??

Af hverju segja menn ekki satt um ástand Bidens og spyrja sig hvaða myrkraröfl búa að baki framboði hans?

 

Í því liggja fáráð umræðunnar.

Í raun gjaldþrot hennar.

Kveðja að austan.


mbl.is New York Times vill að Biden hætti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar skömmin er ein eftir.

 

Sem vörn fyrir vanhæfni, því leitun er meðal þjóðarinnar einstaklingur sem upplifði séra Agnesi sem biskup þjóðkirkjunnar, þá er fokið í mörg skjól.

Að augljós hyglun innan skrifstofu biskups, þar sem embættismenn þar réðu hvorn annan á skjön við lög og reglur, sé kennd við kynjamisrétti, að karlar í sömu stöðu hefðu komist upp með lögleysuna, er augljóst gjaldþrot dólgafemínismans, sem tröllríður hefur íslenska umræðu í mörg mörg ár.

 

Séra Agnes er berstrípuð, skömm hennar aðeins eykst með yfirlýsingunni um að hún skili skömm sinni til kirkjuþings.

Eins og kirkjuþing sé Bjarnarbófaþing Disney á Íslandi.

Gjaldþrot dólgafemínismans stendur eftir.

 

Hvernig yfirtók hann umræðuna?

Af hverju létum við hann stjórna okkur svona lengi??

 

Gleymum ekki stúlkunni sem varð fræg fyrir að fella mann og annan, varð svo upplýs um að ljúga öllu sem hún gat logið um eigin hörmungar, og hvernig hún hefði rifið sig frá þeim hörmungum með gráðum hér og þar, gráðum eða starfsferli sem aðeins var til í lygaprófíl hennar.

Gleymum ekki fjárkúgaranum sem fékk sambýliskonu sína til að leggja net og gildrur fyrir graða karla í stjórnunarstöðum stórfyrirtækja, þegar blaðran sprakk og gagnkvæmar ásakanir fóru á milli, í millitíðinni fórnarlömbin svipti æru og störfum, þá var ljóst að hið hampaða fórnarlamb, að sjálfsögðu kvenkyns, var aðeins verkfæri viðkomandi fjárkúgara, sem í þessu tilfelli var karlkyns.

Lengra aftur má ekki gleyma kvenkyns fjárkúgaranum sem laug kynferðisofbeldi uppá dauðadrukkinn landsliðsmann í fótbolta, staðin að verki, en hin meðvirka umræða dólgafemínismans hélt fjárkúgaranum samt í stöðu fórnarlambs.  Fölsk umræða sem var skýring þess að lélegasti formaður landssambands í íþróttum var kjörinn, hennar eina afrek, fyrir utan að gráta reglulega gagnvart erfiðleikum, að setja reglur um að íslenskir knattspyrnumenn væru sekir þar til sakleysi þeirra væri sannað.  Ósagt skal látið hvort fyrirmyndin var sótt til Sovéts Stalíns eða Þriðja ríkis Hitlers, dólgafemínisminn hafði hvorki vit eða þekkingu til að spyrja þeirrar spurningar.

Svo má vitna í eldra dæmi þegar falskar minningar voru notaðar til að ærumeiða látinn mann, biskup, falskar minningar af sama meiði og brenglað fólk notaði til að koma þúsundum saklausra í fangelsi Bandaríkjanna, ákæran, hin falska minning var kynsvall meintra djöfladýrkenda.

 

Smán ofsóknanna, smán umræðu dólgafemínismans, smán hinna meðvirku, æpir úr sögunni, æpir í nútímanum, æpir í þessu viðtali konunnar sem klúðraði öllu, sat í skjóli lögleysu, en reynir að réttlæta það sem ekki er hægt að réttlæta, með vísan í kynferði sitt.

Að það væru karlar sem hefðu dæmt hana, það væru karlar sem sætu kirkjuþing.

Eins og fólk sé það heimskt, eða fáfrótt að vita ekki að í fjöldamörg ár hefur guðfræðideild Háskóla Íslands útskrifað mun fleiri konur en karla. 

Og að konur séu ekki minniháttar, að þær kunni meir en að prjóna og hekla, til dæmis að læra til prests, og hafi tileinkað sér þekkingu um lög og reglur sem gilda um prestskap, skipan biskups og svo framvegis.

 

Rétttrúnaðurinn er vissulega svona heimskur.

En í þessu máli er hann gjaldþrota.

 

Jafnvel femínistinn á Morgunblaðinu, þessi sem veður ekki beint í vitinu, sér það.

Kannski samt ekki, kannski tók hann þetta viðtal því hann upplifir séra Agnesi sem fórnarlamb.

 

Eftir stendur samt skömmin.

Skömm dólgafemínismans.

 

En fyrst og síðast þeirra sem gátu stöðvað hann, en gerðu ekki.

 

Í kjarkleysi sínu meðvirkir.

Í kjarkleysi sínu sekir.

 

Hvort þeir fatti það er annað mál.

Kveðja að austan.


mbl.is Skilar skömminni til kirkjuþings
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veruleikafirrtur embættismaður.

 

Forstjóri Vegagerðarinnar, afneitar alvarlegu ástandi vegakerfisins, vegakerfi þar sem það er best, er í lagi, ekki gott, aðeins í lagi.

Nema að þeir kaflar eru orðnir alltof fáir í heildarmyndinni.

 

Víðast hvar blasir við augljóst slit, ekki bara holur heldur klæðning sem er sprungin og á stuttan líftíma eftir, svo eru kaflar sem eru hreinlega ónýtir.

Að halda öðru fram nær ekki einu sinni að vera í LSD vímu Bítlanna þegar þeir sömdu sýruteiknimynd sína; Guli kafbáturinn.

 

Svo eftir stendur spurningin; Af hverju?

Af hverju rífst forstjóri Vegagerðarinnar svona við raunveruleikann??

 

Af hverju er hún svo firrt að hún haldi að reyndir menn sem eiga störf sín og tekjur undir vegakerfinu, tjái sig núna um ónýtt vegakerfi, en aldrei áður á ártugalangri starfsævi sinni??

Eða þó ekki sé minnst á það í fréttinni, enda ekki spurður, að Kveðjan að austan hefur aldrei keyrt eins slitna og á köflum ónýta vegi, eins og þjóðvegur eitt frá Neskaupstað til Reykjavíkur er, hefur hún þó keyrt viðkomandi þjóðveg árlega, oft oftar en einu sinni á ári, og það löngu áður en Kveðjan var skráð, og þó hafa þeir áður verið lélegir í byrjun sumars.

Og það sárgrætilegast er að víða þar sem vegir hafa notið viðhalds, að þar er ástandið jafnvel verra en á eldri klæðingu.

 

Samsæri, að allir séu að ljúga, þar á meðal sá sem þessi orð skráir, en forstjóri Vegagerðarinnar sé sú eina sem fer rétt með?!!?

Hvaða firring er þetta??, hvað fær viðkomandi manneskju til að rífast svona við raunveruleikann??

 

Vottar ekki einu sinni fyrir samviskubit af öllum þeim alvarlegum slysum sem Vegagerðin ber ábyrgð á með því að skipta út biki fyrir matarolíu, glerhál klæðning, verst þar sem hún er nýlögð.

Eða að aðalverkefni vegargerðarinnar, eftir að snjómokstur var boðinn út, sé að bera sand og möl í þessa matarolíudrullu, jafnt í kulda sem og hita, og dugar ekki til.

Vegirnir blæða og slysin verða, af mannavöldum, af þeirri forheimsku að nota ónýt efni við viðhald þjóðveganna.

 

Aðeins forherðing þess sem veit sökina uppá sig, getur skýrt þetta tal.

Þessa afneitun, þessa firringu.

Lærdómurinn er enginn, bullið óendanlegt.

 

Hvað eru mörg ár síðan að nýlögð klæðning í Borgarfirðinum hvarf á nokkrum dögum sem olíudrulla á bílum sem óku hina nýlögðu klæðningu, allavega veit Kveðjan að austan að sumarið eftir, þurfti glöggskyggni til að sjá leifar hinnar nýlögðu klæðningu á eldra undirlagi þegar Borgarfjörðurinn var keyrður??

Mistök eða glæpsamlegt athæfi??

Þegar lærdómurinn er enginn þá er hið seinna augljóst.

 

Það er hreinn glæpur að sóa svona skattfé almennings.

Að naumum fjármunum sé eytt í viðhald vega, og viðhaldið sé ekkert nokkrum misserum seinna.

Að nýlögð klæðning eða nýbyggðir vegir séu hættulegir vegna matarolíuhálku, í besta falli, eða því sem næst ókeyrandi nema að sandi og möl sé keyrt í blæðinguna, jafnt í hita sem kulda.

 

Sá glæpur skýrir þessa firringu forstjóra Vegagerðarinnar.

Þess vegna rífst hún við raunveruleikann.

 

Eftir stendur spurningin.

Af hverju líðst þetta??

Hvar eru þingmenn okkar og ráðherrar??

 

Þar er stóra spurningin.

Ein sú alvarlegasta sem spurð er í dag.

 

Og enginn svarar.

Hvorki stjórn eða stjórnarandstaða.

 

Þannig er Ísland í dag.

Kveðja að austan.


mbl.is Hafnar því að vegirnir séu ónýtir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hvers þarf frjálshyggjan vini??

 

Þegar hún á óvini eins og Bjarkey Olsen.

Sú fullyrðing byggist á því að VinstriGrænir segjast róttækir, andstæðingar frjálshyggjunnar, auðsöfnun hinna örfáu, heimill á Sjálfstæðisflokkinn.

 

Svo hlutgera VinstriGrænir draum Þorsteins Pálssonar, eina valdamann Sjálfstæðisflokksins sem hrökklaðist frá völdum vegna þess að þjóðin var ekki tilbúin að kaupa frjálshyggju hans, ægivald ríkra og ofurríka yfir auðlindum þjóðarinnar, kvótasetningu sem átti að færa allan sjávarafla i hendur örfárra útgerðarfyrirtækja.

Og ráðherra þeirra segir; "Áhrif grásleppufrumvarpsins komi í ljós".

Eins og hún sé geimvera, eða allavega brottnuminn Íslendingar sem hefur alið allan sinn aldur á fjarlægum plánetum, og hefur engar fréttir af hvernig braskið yfirtók kvótann.

Ónýtt strandmið, lagði byggðir í auðn.

 

Jafnvel hippar fortíðarinnar eftir áralangan strangan LSD kúr, voru svona veraleikafirrtir.

Eða réttara sagt þóttust vera svona veruleikafirrtir.

 

Samt slær Bjarkey Olsen þeim við, það er meintum geimverum og LSD firrtum hippum.

Hvað veldur??

 

Svarið er kannski að leita í gjafafrumvarpi hennar á fjörðum landsins til norskra auðfyrirtækja.

Lægstu mörk óforskömmunarinnar eru ekki virt, lægra er lagst en hægt er að leggjast.

Þar er sagan virt, fótspor Steingríms Sigfússonar fetuð.

Í þágu auðs og auðmanna.

 

Svo er bent á Sjálfstæðisflokkinn.

Ha, ha.

Kveðja að austan.

 


mbl.is Áhrif grásleppufrumvarpsins komi í ljós
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Menntun, mettun og jöfnuður.

 

Mér er minnistætt spjall sem ég átti við fyrrverandi þingmann okkar Norðfirðinga, sem eftir atlögu siðspillingarinnar innan Samfylkingarinnar hafði hrökklast af þingi, og ráðið sig sem skólastjóra á Svalbarðseyri, í hjarta austanverðar Eyjafjarðar.

Þetta var rétt eftir hrun, og þingmaðurinn sagði mér frá þverpólitískri sátt innan sveitastjórnar Svalbarðshrepps, að bregðast við hruninu með því að bjóða uppá ókeypis skólamáltíðir.

Afleggja þar með að efnahagsleg staða foreldra hefði áhrif á mettun barna í skóla sveitarfélagsins.

Lærandi af reynslu Finna sem töldu að ómagahjálp myndi sjá til þess að þarlend börn eftir efnahagshrunið mikla í kjölfar falls Sovétríkjanna myndu fá að borða, og vanmátu stoltið, þar sem svangur magur barna var á milli.

 

Seinna komst þingmaðurinn okkar í sveitastjórn Fjarðabyggðar eftir mikinn sigur Fjarðalistans, og þá í meirihluta, hans fyrsta verk var að taka upp gjaldfrjálsar skólamáltíðir, sterkasta tæki sveitarfélagsins til að tryggja jöfnuð óháð fjárhagsstöðu foreldra, viti þeirra og skynsemi (sbr. forheimskan sem taldi jógúrt fullnægjandi hádegismat barna, hjá foreldrum sem sjálf voru vel alin í hádeginu) ásamt því að tryggja vellíðan barna og námsárangur, það er þekkt staðreynd að þó svöng skáld yrki betur uppá hanalofti þá læra börn ekki vel á gaulandi maga, eða maga mettan með ruslfæði græðgimatvælaiðnaðarins.

Svona geta vegirnir verið órannsakanlegir, upphefð  Kristjáns Möller í skjóli ægisvalds Akureyringa í Norð-Austur kjördæmi til að koma í gegn þeirri gjörspillingu sem meint einkaframkvæmd Vaðlaheiðarganganna var, rataði seinna meir ofaní pyngju barnafjölskyldna og maga barna í Fjarðabyggð.

Og skrýtið, eina svar Sjálfstæðisflokksins var að vísa í ómagaframfærsluna, að efnalitlir gætu sótt um hana til að greiða skólamáltíðir barna sinna.

 

Núna er framsýni sveitastjórnar Svalbarðshrepps, og hinir órannsakanlegir vegir þess í efra, orðin að frumvarpi og síðan að lögum, skólamáltíðir í grunnskólum landsins eru loksins orðnar gjaldfrjálsar.

Hollur og góður matur er á diskum æsku þjóðarinnar, ruslið út, allir við sama borð.

 

Já, mér er minnistætt spjallið við þingmanninn okkar.

Sem og ég man þegar ég hrósaði honum fyrir góð verk.

Góðverk.

 

Því það er þetta smáa, sem enginn tekur eftir, en er samt drifkraftur þess sem fær bolta til að rúlla, litlar þúfur til að velta þungu hlassi, sem er birtingarmynd ljóssins sem umlykur okkur, þess ljós sem hamlar gegn myrkri tregðunnar og hugmyndafræði þess í neðra sem við kennum við nýfrjálshyggju eða frjálshyggju því sú illska skaut fyrst rótum í upphafi 19. aldara, sem gerir einstaklingana svo stóra.

Einstaklinga sem gera rétt, sem reyna að breyta rétt, sem dreifa manngæsku og kærleik út í samfélag sitt, sem eru skýring þess að þrátt fyrir allt lifum við í góðu samfélagi.

Sumt heppnast, annað ekki, en viljinn til góðra verka smitar út, hamlar gegn niðurbroti og hrörnun, er í hnotskurn hið góða fólk sem er allt í kringum okkur.

 

Í því liggur fegurð samfélags okkar.

Kveðja að austan.

 

Ps.  Það þarf ekki að taka fram að "hið góða fólk" er ekki sama fólkið og Góða fólkið með stóru Gje-i, þar á milli er gjá sem stærðfræði lengdarinnar sem kennd er við óendaleikann fær ekki mælt.  Sem betur fer er til gott fólk, mikið af því.


mbl.is Skólamáltíðir í grunnskólum gjaldfrjálsar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ekki tími til kominn að þessu linni??

 

Og það fyrir mjög mörgum mánuðum síðan.

 

Atvinnugóðmenni, mörg hver í vinnu hjá stofnunum Sameinuðu þjóðanna, hafa viðhaldið þessum tilgangslausum manndrápum, með því að síbenda fingur á hernað Ísraela eins og engin sé ábyrgðin hjá Hamas, sem hóf þetta stríð með voðaverkum sínum, og viðheldur stríðinu með því að verjast innan um óbreytta borgara Gasastrandarinnar.

Samt ættu atvinnugóðmennin að vita að það var einmitt tilgangur voðaverkanna, varnarinnar innan um óbreytta borgara, að nota blóð sem fóður í áróðursstríði.

 

Hamas treysti einnig á leyndarþræðina frá Persaflóa sem lágu til múslima í alþjóðlegum stofnunum, voðaverkin spruttu ekki uppúr engu, þau voru vandlega skipulögð, línur lagðar, aðeins heimskt fólk bendir putta á Íran, vissulega miðaldaríki við Persaflóa, en fjárstreymi leyndarþráðanna kemur frá miðaldaríkjum Arabaskagans.

Þessir leyndarþræðir hafa tryggt Hamas yfirburði í áróðursstríðinu.

 

Eini feillinn var að þjóð sem á að útrýma, bókstaflega, hún skeytir ekki um ímynd eða skor í hliðarveröld sýndarheimsins sem Hamas og miðaldafólk Persaflóans treysti á að myndi knésetja gyðingana í Ísrael.

Gyðingarnir höfðu vopn og getu til að svara fyrir sig og miðaldafólk hefur líka mikil ítök í stjórn landsins.

 

Þess vegna er fólk bara drepið og drepið.

Fólk sem er alveg eins og ég og þú.

Var ekki spurt, aðeins fórnað á altari Hamas og þeirrar drápsmiðaldahugmyndafræði sem Persaflóinn fjármagnar.

 

Breytir því ekki að þennan vítahring drápa og eyðileggingar þarf að rjúfa.

Og þann hring geta Bandaríkjamenn rofið.

 

Það var ekki nóg að láta Öryggisráðið samþykkja ályktun um vopnahlé, það þarf að framfylgja þeirri ályktun.

Annað er bara Kínalegt eða Rússalegt, innantómt orðagjálfur á skjön við raunveruleikann.

 

Ísrael mun aldrei sigra Hamas, líkt og ísraelski herinn gerir sér grein fyrir.

Tilraun miðaldamanna í ríkisstjórn landsins til þess, er aðeins hjakk í sama hjólfarinu, hjakk sem smán saman fær fólk til að leggja þá að jöfnu við voðamenni Hamas.

Sem er réttmætt, miðaldagyðingar og miðaldamúslímar, boðandi hatur og heift, í grunninn er ekki nokkur munur þar á.

 

Bandaríkjamenn eiga og áttu að taka af skarið.

Öll dráp í dag, og í gær, og lengra síðan, eru á ábyrgð stjórnvalda í Washington.

Sem og dráp morgundagsins.

Allt þar til drápin er stöðvuð.

 

Þessu þarf að linna.

Þessu á að linna.

 

Annað er sigur fyrir hatur, öfga og heift.

Sigur fyrir Hamas.

 

Og hver vill það??

Kveðja að austan.

 


mbl.is Á þriðja tug drepnir nálægt byggingu Rauða krossins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það eru breytingar í hafinu.

 

Hverjar sem þær eru, þá getur sjókvíaeldi í fjörðum Austfjarða ekki skýrt þær breytingar.

Það er lógískt, umhverfisbreyturnar áttu sér stað áður en Kaldavík, forverar hennar settu út kvíar, og hófu eldi á laxi í sjókvíum.

 

Ef eitthvað vit væri að baki þessari frétt, og grillun sveitunga míns; Jens Garðars, þá myndi hinn ofurgáfaði femínisti Morgunblaðsins spyrja sig, hvar er laxinn??, uppí hvaða ár gengur hann??

En Morgunblaðið býr að femínistanum, visku hans og viti, ritstjórinn fattar ekki gáfnafar hans, spyr ekki einfaldar spurningar, hvaða laxastofna ógnar Kaldavík Jens Garðars, og þegar svarið er augljós; Engum, af hverju geta frasar og forheimska stýrt fréttum og fréttamennsku blaðsins???

Eins gott að sveitungur minn er kurteis maður.

 

En hví þessi aðför að byggð og atvinnu fólks???

Hvaða öfugmæli drífa áfram þessa aðför???

Er vitið í 101 Reykjavík ekki meir en það, að hyggur að Norður Noregur sé byggð á Austfjörðum??

Og því megi svína út, skíta út, atvinnu sem og forsendu hinna smæstu byggða??

 

Jens Garðar stóð sig vel í þessu viðtali.

Mogginn hins vegar ekki, hver er sú rétthugsun sem skýrir að femínistinn skuli ekki fyrir löngu hafa fengið sér vinnu i uppklapparteymi Kristrúnar Frostadóttir??

 

Það er byggð undir.

Þó 101 þekki hana ekki.

 

Gott væri samt að þekkja hafið.

Kveðja að austan.


mbl.is Segir hnignunina ekki tengjast sjókvíaeldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 512
  • Sl. sólarhring: 679
  • Sl. viku: 3648
  • Frá upphafi: 1452075

Annað

  • Innlit í dag: 463
  • Innlit sl. viku: 3111
  • Gestir í dag: 411
  • IP-tölur í dag: 392

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband