Prófessorinn var þá kvensjúkdómalæknir.

 

Upplýsir Kári Stefánsson í grein í Morgunblaðinu í dag þar sem hann lagði drenginn á kné sér og flengdi.

Sjaldan lesið eins beinskeyttar ögranir til að knýja fram andsvar í meintri faglegri deilu því Kári veit að hann getur teflt fram staðreyndum gegn rökleysu, Kári er að verja grunnrétt almennings að fá að lifa eðlilegu lífi án stöðugra íþyngjandi sóttvarna en engum veit hvað kvensjúkdómalækninum gengur til með skrifum sínum.

Hef svo sem sagt þetta með mínu nefi en hver vill ekki skipta því út fyrir orðkynngi Kára;

 

" Nú skul­um við skoða ann­ars veg­ar for­send­ur sem þú gef­ur þér um far­ald­ur­inn og ástandið á Íslandi og álykt­an­ir sem þú dreg­ur af þeim: Þú gef­ur í skyn að ástandið á Íslandi sé gott og þess vegna eigi að slaka á kröf­um við landa­mæri en herða aðgerðir inn­an lands. Þarna ertu að snúa dæm­inu á hvolf. Ástandið á Íslandi er gott og fer batn­andi þannig að við get­um farið að slaka á sótt­varnakröf­um inn­an­lands svo lífið fær­ist í nokkuð eðli­legt horf. Ef við hins veg­ar mynd­um slaka á kröf­um við landa­mæri er ljóst að smit­um myndi fjölga, gögn­in sýna það, og við yrðum að herða tök­in inn­an­lands þannig að skól­ar gætu ekki starfað eðli­lega, menn­ing­ar­líf legðist að mestu af og at­vinnu­veg­ir aðrir en ferðaþjón­usta myndu gjalda. Vegna þess að lítið er um smit á Íslandi vilj­um við koma í veg fyr­ir að þau ber­ist inn frá öðrum lönd­um. Ef mikið væri um smit í land­inu væri eng­in ástæða til þess að verja landa­mær­in með skimun­um og sótt­kví. Þú legg­ur meira að segja til að fimm daga sótt­kví verði skipt út fyr­ir heima­smit­gát sem væri stór­hættu­legt vegna þess að hún er skil­greind þannig að það er eng­inn mögu­leiki að ákv­arða hvort fólk fram­fylg­ir henni.

Jón Ívar, þannig er mál með vexti að þótt þú hefðir rétt fyr­ir þér og Bost­on væri nafli al­heims­ins veit­ir það þér ekki rétt­inn til þess að halda því fram að ö sé á und­an a í staf­róf­inu. Það er nefni­lega fyr­ir löngu búið að sýna fram á að þótt maður hafi heim­sótt mik­il óperu­hús veit­ir það enga vissu fyr­ir því að hann kunni að syngja.".

 

Það er engu við að bæta.

Kveðja að austan.


mbl.is Stórhættulegt að skipta í heimasmitgát
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kjarklaus Þórólfur.

 

Mætir ekki ógnaröflunum sem vega að lýð og heilsu þjóðarinnar.

Hann bendir á að vörnin við landamærin hafi náð og greina tíföld smit við landamærin síðan reglur um tvöfalda skimun með fimm daga sóttkví á milli tóku gildi 19. ágúst síðastliðinn.

En hann hefur ekki kjark til að benda á afleiðingar þess að hafa ekki gripið til þessa varna.

 

Hve ill þarf manneskjan að vera til að ljúga til um þessa staðreynd??

Og svo ég spyrji hreint út, hvað er að Guðbjörgu og Þorsteini að leyfa nýráðnum hægri öfgamanni að vinna gegn sóttvörnum þjóðarinnar með því að setja lygar, blekkingar og rangfærslur í forgrunn ritstjórnarstefnu Morgunblaðsins??

Án athugasemda er illskan þeirra.

 

Eins og kvótakerfið snúist um illsku og mannvonsku.

Mannhatur og eitthvað þaðan af verra.

 

Liðin er sú tíð að Morgunblaðið stóð með borgarlegum öflum.

Liðin er sú tíð að Morgunblaðið tók hag þjóðar fram yfir sérhagsmuni sem vega að tilveru hennar og framtíð.

Eftir stendur grímulaus illska, sem réttlætir sig með tilvísan í eitthvað sem stjórnvöld fá engu um breytt, eins og ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttir beri ábyrgð  á farsóttinni sem hefur slökkt á ferðalögum milli landa.

Með tilheyrandi afleiðingum á ferðamannaiðnað heimsbyggðarinnar.

 

Aukaatriði fyrir þá illsku er að markhópur hennar er fólkið sem sýndi Morgunblaðinu tryggð þegar pappír fór yfir í rafeindir netheima.

Það vantar bara aðeins að ritstjórinn skrifi leiðara, með yfirskriftinni; "Leyfum veirunni að drepa". líkt og það sé orðin óbærileg þjáning að halda úti blaði sem gætir borgarlegra gilda, sem heldur sig við þekktar staðreyndir, sem og ber virðingu fyrir öllum þeim sem urðu undir, en áttu sögu að segja.

Eða gerir aðeins þá einföldu kröfu að sóttvarnir þjóðarinnar verndi lesendahóp blaðsins.

 

Æpandi er samt þögnin.

Þögn þeirra sem tilheyrðu Morgunblaðinu, og sjá í dag illskuna taka yfir.

Þegja svo enn og aftur.

Eins og þögn þeirra sé stuðningur við eina alvöru leiðtoga þjóðarinnar.

Manninn sem hélt haus, og heldur haus.

 

 

Hægri öfginn, mannvonskan, illskan eða hvað sem við köllum þessa atlögu að sóttvörnum þjóðarinnar, er um leið atlaga að þessum manni.

Magnar upp drýslahjörðina sem réðst á hann fyrir, sameinar Pírata, Samfylkinguna og hægri öfganna sem við kennum við Viðreisn, en á sér ekki síður stuðning innan raða Sjálfstæðisflokksins.

"Ég veit ekki neitt, það er ekkert vitað", sagði fyrsti þingmaður Suðurlands, enginn er svona heimskur, en ef þú þarft að vega að formanninum sem veitti þér ekki brautargengi í ráðherrastól, þá ertu þvílík smásál að vega að kjarna stuðningsmanna flokksins.

Atlagan að Bjarna var víst mikilvægari en samstaðan um vörnina gegn vágestinum sem ógnar.

 

Eiginlega vorkenni ég Bjarna að vera formaður í flokki með slíkum smásálum.

Fólks sem lætur þjóðarvá víkja fyrir persónulegum metnaði og framagirni.

Fólks sem leggst svo lágt að virkja heimskuna sem vegur að kjarna fylgi þess, eldra og lífsreyndara fólki.

Þetta er eins og hið nýja gyðingaríki hefði fengið nasista á flótta, nýsloppna frá útrýmingarbúðunum, til að móta hið nýja Ísraelsríkis.

 

En Bjarna er reyndar ekki vorkunn.

Leiðtogar hafa áður risið upp af minna tilefni.

 

Fyrir hann er sú upprisa ekki val.

Kveðja að austan.

 

 

 


mbl.is Tífalt fleiri smit greind hlutfallslega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver er þessi prófessor í Bandaríkjunum??

 

Sem leggur á sig sérstaka fyrirhöfn til að vega að heilsu og frelsi almennings.

Hvað rekur hann áfram, hvað gengur honum til??

Hvaða hagsmuna er hann að erindast??

 

Manni sem er tíðrætt um frelsi, ekki frelsi okkar til að lifa eðlilegu lífi, heldur frelsi fólks að fá að ferðast á tímum farsóttar án þess að öruggt sé að það beri ekki með sér smit til landsins með þekktum afleiðingum.

Hann talar um leiða almennings á sóttvörnum, réttmæt ábending, en þá skýtur það skökku við að leggja til innflutning á smiti sem óhjákvæmilega viðheldur ströngum sóttvörnum innanlands, viku eftir viku, mánuð eftir mánuð.

Nei enda er hann ekki að tala um áhrif sóttvarna á þjóðina, heldur á þá sem taka áhættuna að ferðast milli landa á tímum farsóttar, og geta ekki hugsað sér þau óþægindi að bíða af sér hugsanlegt veirusmit.

Hefur prófessorinn ekki séð hin tómu bílastæði fyrir utan hjúkrunarheimili landsins um helgar?, sem áður voru full, núna aðeins bíll á stangli, gangar og setstofur sem iðuðu af lífi, jafnvel hlátri og gleði barnabarna og barnabarna, eru núna auðir vegna smitvarna.

Hvað hefur þetta eldra fólk gert þessum prófessor þó ekki sé annað spurt??

 

Rökvilla prófessorsins, eða réttar er að segja blekking, því hann veit betur, var orðuð vel í Staksteinum gærdagsins;

"Enginn vafi er á því að eftir að fyrstu innanlandssmitin um nokkurra vikna skeið greindust í lok júlí höfðu landsmenn aukinn vara á sér í samskiptum, ekki síst þegar viðkvæmir einstaklingar eiga í hlut. Þar kom reynslan frá í vor að góðum notum. Einstaklingsbundnar sóttvarnir virkuðu. Kúrfan var orðin flöt og jafnvel á niðurleið.

Þess vegna er illskiljanlegt hvers vegna gripið var til svo afdrifaríkra takmarkana á landamærunum."

Sóttvarnir virkuðu, það tókst að fletja út kúrfuna og það tókst að vernda viðkvæma hópa.

Lygin er að tala um einstaklingsbundnar sóttvarnir, þær voru hluti en stóra dæmið var fjöldatakmarkanir og stórhertar reglur um heimsóknir á hjúkrunarheimili og aðrar stofnanir þar sem viðkvæmir hópar búa.

Sem og að með seinni skimun tókst að hindra aðrar smitbylgjur, bæði nú þegar sem og á næstu vikum og mánuðum.

 

Þá stendur eftir, hvað gengur fólki til sem lýgur svona og blekkir.

Ferðamannaiðnaðurinn??, hertar reglur á landamærum hafa örugglega áhrif til skamms tíma, en við erum samt hluti af heimi sem glímir við farsótt, og um allan heim glímir ferðamannaiðnaðurinn við gífurlega erfiðleika.

Opnun landamæra hefur sýnt sig að vera skammgóður vermir, fórnirnar við að kveða niður fyrstu smitbylgjuna er að verða að engu í löndum eins og Frakklandi, Spáni eða Ítalíu, önnur lönd hafa skellt í lás, lokað landamærum sínum fyrir ferðalögum til svokallaðra rauðra svæða.

Um allan heim er verið að loka fyrirtækjum, segja upp fólki, um allan heim sendir ferðamannaiðnaðurinn út ákall um aðstoð svo hann lifi af þessar hremmingar sem allir vonast til að gangi yfir þegar vísindin hafa þróað tæki og tól til að glíma við vágestinn.

Samt er látið hérna eins og vandinn sér sértækur, þegar í raun er verið að þróa hér leið sem gæti einmitt bjargað ferðamannaiðnaðinum, ekki bara hér heldur í öðrum löndum.

Því ákallið er um örugg ferðalög, ekki afneitun og útbreiðslu veirunnar.

 

Ferðamannaiðnaðurinn er skálkaskjól, eitthvað annað býr að baki.

Segjum það hreint út, látum ekki lengur lygarnar og blekkingarnar stjórna umræðunni.

 

Lygar og blekking er eitt hættulegasta vopn 21. aldarinnar, þökk sé nútíma samskiptatækni sem bæði fjarlægir hindranir sem og gerir það svo auðvelt að falsa upplýsingar með trúverðugum myndum, myndböndum og svo framvegis.

Kannski það hættulegasta fyrir utan gjöreyðingarvopn, því markmiðið er að grafa undan lýðræðinu í þágu einhverra óskilgreindra hagsmuna.

En af hverju er þessum vinnubrögðum beitt til að grafa undan sóttvörnum við landamæri???

Hvað er það sem þrífst best við galopin landamæri Evrópu??, hvað er það sem fór fyrst að blómstra við hið frjálsa flæði??

Ólögleg efni ýmiskonar, mannsal, félagsleg undirboð svo eitthvað sé nefnt sem kemur uppí hugann.

 

Skiptir ekki máli, gjörðin er jafn ill og óhugnanleg fyrir því.

Hún vegur að mennsku og mannhelgi.

Sumt fólk má kafna lifandi því það er hvort sem er orðið gamalt eða með undirliggjandi sjúkdóma.

Veiran líkt og gasklefinn forðum flýtir aðeins fyrir.

 

Ennþá dag í dag minnast Bretar fórnarlamba loftárása Þjóðverja á borgir landsins, áætlað er að fjörtíu til fjörtíu og fimm þúsund óbreyttir borgarar hafi fallið fyrir utan alla þá sem særðust en lifðu af.

Lygarnar og blekkingarnar sem dynja á sóttvörnum okkar núna áttu sér bræður og systir á Bretlandseyjum í upphafi farsóttarinnar þar.  Boris Johnson var meir að segja það heimskur eða veruleikafirrtur, að í nafni frelsisins hélt hann áfram að taka í hendur á fólki á almannafæri, eða alveg þar til hann sjálfur var við dauðans dyr og áttaði sig á hversu hreinræktað fífl hann var.

Seinkun um viku á nauðsynlegum sóttvörnum er áætlað hafi kostað um 20.000 manns lífið, eða um helming þess mannfalls sem varð vegna loftárása Þjóðverja veturinn 1940-1941.

Á einni viku voru 20.000 manns drepnir í nafni þessarar frelsishugsjóna, eða hvað það var sem fékk fólk til að tala alvarleik veirunnar niður.

Mestu fjöldamorð í Evrópu frá stríðslokum.

 

Enginn dæmdur, enginn sóttur til saka, ennþá, en sama pakkið fær að fóðra og fjármagna síauknar lygar og blekkingar sem grafa undan nauðsynlegum sóttvörnum, bæði að það sé gripið til þeirra í tíma svo hægt sé að koma í veg fyrir mannfall, eða það sé slakað á því sem virkar með þeim rökum að fyrst þær virki, þá hafi þær verið óþarfar.

En hún er í raun ekki aðalóvinurinn í dag því varnir við henni eru þekktar, og sífellt eru þróaðar ný vopn og tæki í baráttunni við hana og einn daginn er öruggt að hún mun ekki ógna okkur frekar en Stóra bóla eða Svarti dauði.

 

Ógnin býr hjá þeim sem grafa undan.

Sem ljúga og blekkja.

Sem tala niður mannhelgi og mennsku.

 

Þeirri ógn þarf að mæta.

Mætum henni.

Kveðja að austan.


mbl.is Vill að stjórnvöld endurskoði sóttkví
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Sept. 2020
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 1440180

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband