Kaldrifjaður morðingi.

 

Veðjar á sigur í átökum sem hann hóf með voðaverkum Hamas í Ísrael þann 9. október síðastliðinn.

Gjaldið er lítilfjörlegt, aðeins líf tugþúsunda samlanda hans sem og rústir Gasastrandar.

Gjald sem hann er tilbúinn að greiða enda býr hann fjarri hörmungum Gasastrandarinnar.

 

Þennan viðbjóð styður Góða fólkið á Vesturlöndum.

Styður blóðfórnirnar.

 

Svo spurningin er; Hver er mesti viðbjóðurinn??

Kveðja að austan.


mbl.is Frekari blóðsúthellingar geti aðeins hjálpað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lýð á ekki að líða.

 

Og mælirinn var löngu fullur hjá almenningi áður en Hamas liðar á Íslandi, í samstarfi með félagi íslenskra mótmælenda, réðust á stjórnvald þjóðarinnar.

 

Dag eftir dag upplifir þjóðin fréttaflutning Rúv þar sem gestir þjóðarinnar, Palestínuarabar með liðsinni fólks sem öllu heilbrigðu fólki er ljóst, að er á jaðrinum, mörg hver gætu sleppt því að mótmæla og reynt að keppa til sigurs í ýmsum alþjóðlegum keppnum sem hlutgera frík, en samt að þau eins og þau eru, séu hluti af margbreytilegri flóru hins mannlega samfélags.

Sem vissulega er rétt, en frík engu að síður, jaðarhópur í samfélagi sem fyrir löngu er búið að fá uppí kok á rétttrúnaði Góða fólksins, mætir ekki á mótmæli, kýs gegn heilaþvotti Ríkisútvarpsins.

Leitar skjóls í borgaralegum fjölmiðlum, upplifir svo síðan sama áróður Góða fólksins á síðum Morgunblaðsins.

 

Fréttin í þessari frétt, og munum að þó femínisti Morgunblaðsins þurfi ekki háan skófatnað til að vaða í viti sínu, þá lýtur hann ritstjórn sem er í raun engu fábrugðin þjónkun Rúv með glóbalinu, arðráni þess á auðlindum þjóðarinnar í  gegnu hið frjálsa flæði, orkupakka, reglugerðir eða hvað sem tæki og tól hinir íslensku glóbal auðmenn nota til að féfletta okkur.  Já eða til að kjósa fulltrúa þeirra sem forseta þjóðarinnar.

Og fréttin er dómsmálaráðherra er í vörn gegn ofstopa leppa innlendra glóbal auðmenna, og þar með er sjálf lög og regla í samfélaginu undir.

Þegar skríll og lýður, innfluttir Hamas liðar, eiga ítök inní, ekki bara Pírata eða Góða fólksins hjá Samfylkingunni, heldur í sjálfri ríkisstjórn þjóðarinnar.

Ættartengsl augljós, en grynnra á hagsmunum VinstriGrænna, halda þeir virkilega að þjóðin sé fífl??

 

En þjóðin er ekki fífl, þó femínistinn á Morgunblaðinu haldi að hún sé á pari við hann sjálfan, að það sé sjaldgæft að hún, það er þjóðin vaði í vitinu.

Undirliggjandi eru hagsmunir sem er innvinkaðir við tilbúinn orkuskort og þar með gnægtaborð auðs og fjármagns á raforkumarkaði þjóðarinnar.

 

Fyrst var Rúv samlagað, núna er Mogginn undir, og enginn æmtir eða skræmtir.

Í takt skal þjóðin ganga inní hyldýpi græðgi og arðráns hinna örfáu, sem virðast stjórna öllu í landinu í dag.

Fallin er Sjálfstæðisflokkurinn en Sigurður Ingi á sér sögu um sölu til hæstbjóðanda, skottið á Framsókn eltir auðinn, völdin, enda Sigurður dýralæknir en ekki hugsjónamaður.

 

Hvert sem maður fer þá ofbýður fólki þessa ofgnótt af fréttum að fríkum, viðrinum, kvárum, hánum eða hvað sem orðsnillingar Góða fólksins geta kokkað upp til að fylla fréttirnar af upplausn, óöld, væl, grát eða að einhver er svo vondur við mig.

Löngu liðinn sá tími að ríkisfjölmiðill okkar fjallaði um raunveruleg vandamál, svo dæmi séu nefnd, hrun skólakerfisins á altari heimsku Góða fólksins, ofurlanga biðlista barna í vanda, ónýtt vegakerfi, uppgangur glæpalýðs, ofbeldi, fjárkúgun, sprengingar í baráttu þessa sama glæpalýðs.

Gengjamyndun ólæsra innflytjenda, skipbrot aðlögunarinnar.

 

Og eina fréttin er, fyrir utan hvað kvár og hán eiga bágt, eða að hinsegin fólk fái ekki nægan tíma til að tjá sig þó þessi örminnihluti eigi ávísun á rúmlega helmings frétta Ríkisútvarpsins, er ofstopi viðrina sem telja það sinn lýðræðislega rétt að vega að stjórnvaldi þjóðarinnar.

Og Mogginn kóar með.

Eitt sinn borgarlegt íhaldsblað, núna tæki glóbal auðmanna til að hnykkja á upplausn og óöld í samfélaginu.

 

Breytir samt ekki hinu að lýð á ekki að líða.

Ekki þegar lýðurinn ræðst á sjálft stjórnkerfi þjóðarinnar.

 

Þá er sjálf tilvera okkar sem þjóð undir.

Þá tilveru á stjórnkerfi okkar að verja.

Sem og við hin.

 

Í því felst að við feisum fjölmiðla sem ganga erinda auðs og auðmanna, þó þeir kenni sig við þjóðina.

Við feisum líka kompásbreytingu Morgunblaðsins, trúum að um sé að kenna óvæntar segulbreytingar eigandahóps blaðsins, að í kjarna sé blaðið ennþá málsvari borgaralegra gilda, en ekki bráð í kjafti auðs og auðmanna.

 

Treystum að Mogginn geri betur en þetta.

Kveðja að austan.

 


mbl.is „Lögreglan var í krefjandi aðstæðum“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loksins, loksins.

 

Það hefur tekið langan tíma fyrir alþjóðasamfélagið að koma sér saman um að stöðva átökin og manndrápin á Gasa.

Tókst þó því ennþá eru óbrjálaðir menn sem stjórna Bandaríkjunum.

 

Vopnahléstillögurnar eru skynsamlegar, þær tryggja frið, dreifingu lífsnauðsynja, frelsun gísla og fanga.

Þær eru ósigur öfganna, bæði innan Ísraels sem og Palestínu.

Staðfesta að hvorugur aðilinn hefur afl til að útrýma hinum.

 

Þær eru líka ósigur miðaldafólksins við Persaflóa, jafnt í Íran sem og á Arabíuskaganum.

Þessir miðaldaöfgar hafa fjármagnað áratuga óöld fyrir botni Miðjarðahafs sem og hryðjuverk Íslamista um allan hinn siðmenntaða heim.

Fjármagn þeirra átti að tryggja einangrun Ísraels og útskúfun úr samfélagi þjóðanna.

Stofnunum Sameinuðu þjóðanna var beitt sem og Alþjóðaglæpadómsstólnum. En án stuðnings Bandaríkjanna var sú atlaga andvana fædd en eftir standa berstrípaðar stofnanir sem misstu allan trúverðugleika sinn, svívirtu alþjóðalög, gengu erinda öfga og hryðjuverka.

 

En fyrst og síðast er þetta ósigur Góða fólksins sem fékk þá dillu í hausinn að það væri alltí lagi að miðaldamenn útrýmdu 9 milljóna manna þjóð og studdi þá með ráðum og dáðum.

Í góðsemi sinni skipti það Góða fólkinu engu máli að stuðningur þess og meðvirkni með hina myrka miðaldaheim Íslams jók aðeins þjáningar íbúa Gasa, ataði þar með hendur sínar með blóði saklausra barna, kvenna, karla.

Því það mátti öllum vera ljóst að Ísraelsmenn létu ekki útrýma sér þegjandi.

 

En ósigur eins er sigur annars.

Í þessu tilviki sigur lífs yfir dauða.

 

Það er langt í land með varanlegan frið.

En ef fólk lærir ekki af þessum átökum, þá lærir það ekki neitt.

Helið verður alltaf þess bústaður.

 

En það er von.

Vonandi nýta menn sér hana.

 

Tíminn einn veit en það er þó allavega komið vopnahlé.

Kveðja að austan.


mbl.is Samþykktu ályktunartillögu um vopnahlé á Gasa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gasa enn og aftur.

 

Enn og aftur berast fréttir af manndrápum og dauða, saklaust fólk í heljargreipum öfgamanna, gíslar meðvirkni Góða fólksins, meðvirkni sem í raun er samstaða með voðaverkum sem eru fjármögnuð af miðaldafólki Persaflóans.

Meðvirkni sem voðamennirnir treysta á að muni færa þeim lokasigur, útrýmingu 9 milljóna manna þjóðar gyðinga í Landinu helga.

Meðvirkni sem fóðrar Dauðann því á meðan Hamas er ekki stillt upp við vegg og samtökin látin sæta ábyrgð á voðaverkum sínum, þá halda átökin áfram útí hið óendanlega og þeir einu sem græða eru vopnaframleiðendur annars vegar og hins vegar atvinnugóðmenni sem hafa lifibrauð sitt af stríðsástandi og stríðsátökum.

Og reyndar líka framleiðendur líkklæða, sérstaklega í barnastærðum.

 

Hérlendis er ekkert lát á þessari meðvirkni.

Þó femínistinn á Morgunblaðinu gangi ekki í fótspor fréttamanna Rúv, þessum þarna sem finnst það í góðu lagi að miðaldafólk myrði og nauðgi í öðrum ríkjum, og ræni svo fólki og flytji til síns heima, og tali um látna í frelsun gíslanna í stað þess að hamra á að Ísraelsmenn drápu, þá er það aðeins vegna þess að viðkomandi veit innst inni hvað það er rangt að ræna fólki og krefjast svo friðhelgi með því að fela það innan um almenna borgara.

Samviska sem tómhyggja og firring rétttrúnaðarins hefur ekki ennþá náð að deyða.

 

En femínistinn hefur ekki þá döngun eða vitsmuni að segja sannleikann umbúðalaust, að 247 óbreyttir borgarar bættust í líkköst voðamannanna í Hamas, því þeirra er ábyrgðin.

Það eru þeir sem rændu fólkinu og földu það innan um mannmergð flóttamannabúðanna.

Það eru þeir sem stilla sínu fólki fyrir framan byssukjaftanna.

 

Fréttamenn eiga nefnilega að segja sannleikann.

En ekki hjálpa voðamennum í voðaverkum sínum með því að ganga erinda þeirra í því áróðursstríði sem þeir heyja með bandamönnum sínum fyrir botni Persaflóans.

Fóðra þannig ófriðarbálið, viðahalda þjáningum saklausra á Gasaströndinni.

Það er ekkert flókið að segja að 247 fórnarlömb bættust við í hátt í 40 þúsund sem þegar hafa fallið frá 7. október, allt vegna þessa stríðs sem Hamas hóf með voðaverkum sínum.

Vegna þess að Hamasliðar berjast innan um sitt eigið fólk.

 

Og fréttamenn eiga að afhjúpa leyndarþræðina frá löndunum sem fjármagna hryðjuverk Íslamista um allan heim, og liggja inní stofnanir Sameinuð þjóðanna og Alþjóðaglæpadómstólsins.

Það er ekki lögfræði að leggja að jöfnu geranda og fórnarlamb, glæpur nauðgarans er sá sami þó fórnarlamb hans snúist til varnar og sparki í punginn á honum.

Þegar það er gert, þá liggja alltaf annarlegar hvatir að baki.

 

Það er heldur ekkert eðlilegt þegar atvinnugóðmenni á góðum launum frá alþjóðasamfélaginu, láta taka myndir af sér fyrir utan sundursprengda spítala, fordæma Ísraela en minnast ekki orði á að hin raunverulega orsök var að spítalarnir voru vígi Hamas.

Það þarf ekki mikla skynsemi til að skilja að ef enginn væri þar vígamaðurinn þá hefðu ísraelsku hermönnunum verið boðið að ganga í bæinn af starfsfólki spítalanna, og leyft að leita af sér allan grun.

Á þetta bendir alvöru fréttamaður, afhjúpar þannig atvinnugóðmennin og hagsmuni þeirra af viðvarandi stríðsátökum og hörmungum.

 

Vegna þessarar forheimsku, þessarar meðvirkni, er Gasa í fréttum dag eftir dag, manndráp, skortur á lífsnauðsynjum, byggðir í rúst.

Það afsakar samt ekki stjórnvöld í Bandaríkjunum að grípa ekki inní og neyða öfgamennina í ríkisstjórn Ísraels til að sættast á frið gegn frelsun gísla.

 

Ísraelsmenn geta vissulega unnið á síðasta vígamanni Hamas á Gasa, hafi þeir til þess nógu langa stiga til að klífa yfir líkhrúgur almennra borgara, en þeir vinna aldrei friðinn.

Jafnvel þó þeir standist þrýsting alþjóðasamfélagsins, þá mun það augnablik koma að þeirra eigin hermenn geta ekki lengur skotið óvopnaða borgara, það eru takmörk hve háar líkhrúgur voðaverkin 7. október réttlæta.

Í því samhengi má ekki gleyma að öfgaliðið, hinir svokölluðu strangtrúaðir gyðingar eru aumingjar sem hafa notað oddastöðu sína í ísraelskum stjórnmálum til að koma sér undan herþjónustu, þeirra framlag sé að biðja.

 

Ég hef áður bent á að mesta refsing Hamas sé að feisa sína eigin íbúa í rústum Gasa, aðeins áframhaldandi ófriður forðar þeim frá henni.

Burtséð frá því þá þjóna þessi tilgangslausu manndráp engum tilgangi.

Og þau vanvirða fórnarlömb voðaverkanna.

 

Áframhaldandi átök eru hneisa fyrir alþjóðasamfélagið.

Þeim þarf að linna.

Áttu reyndar aldrei að hefjast.

 

Alþjóðasamfélagið er reyndar undir hæl rétttrúnaðar og fjárstreymi miðaldaskríls.

En það er ennþá vit í Washington þó elliært gamalmenni leiði.

 

Þar liggur lausnin.

Kveðja að austan.


mbl.is 247 sagðir látnir í björgunaraðgerð Ísraels
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Júní 2024
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30            

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.1.): 9
  • Sl. sólarhring: 16
  • Sl. viku: 455
  • Frá upphafi: 1412817

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 394
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband