12.11.2015 | 10:02
Hroki Seðlabankans.
Gengur aftur eins og Glámur forðum en núna er enginn Grettir til staðar að kveða hann niður.
Raunveruleikinn kvað niður hrokann sem átti að fá þjóðina til að samþykkja Svavarssamningana. Það var ekki einu sinni hægt að borga upp Steingrímsbréfið, hvað þá að það hefði verið til gjaldeyri í allt hitt.
Raunveruleikinn mun líka kveða niður nýjasta óráðshjal bankans, en munurinn er sá að þá situr þjóðin í súpunni, en mun ekki verða eins heppin og flugan, það mun enginn þjónn koma og bjarga henni.
En allar sjónhverfingar byggjast á vissum staðreyndum, og það er vert að vekja athygli á þeim.
Í það fyrsta er staðfest að stöðugleikaframlagið er metið á 365 milljarða, og það þarf ekki að taka það fram að það er loftbóla í því mati, þetta kemur jú frá Seðlabankanum.
En þegar ríkisstjórnin tilkynnti sjónhverfingarnar þá var samkvæmt Morgunblaðinu talað um; "Í kynningunni kom fram að gert sé ráð fyrir því að stöðugleikaskatturinn verði um 850 milljarðar, en ef kröfuhafar velja að fara leið stöðugleikaframlags nemi áhrifin um 900 milljörðum. Stór hluti þessarar upphæðar mun fara til að greiða niður skuldir við Seðlabankann og ríkið, en fram kom að skuldir ríkisins gætu lækkað um tugi prósenta.".
Í hverju liggur sjónhverfingin??
Voru stóru tölurnar bara notaðar til að blekkja þjóðina og fá einróma samþykki á Alþingi??
Í öðru lagi er minnst á einhverja 500 milljarða sem umfang þess vanda sem vill leita út. Í góðri frétt Morgunblaðsins, sem ég hef áður vitnað í, og heitir Ráðist að rót vandans kemur þetta fram:
"Af þessum 900 milljarða innlendu eignum eiga slitabúin um 500 milljarða króna í krónueignum og um 400 milljarða í öðrum innlendum eignum. Hvað varðar aflandskrónurnar, þá nema þær um 300 milljörðum króna. Um er að ræða verðmæti í íslenskum krónum eða ávísun á slík verðmæti, svo sem verðbréf, í eigu útlendinga. Gert er ráð fyrir að aflandskrónueigendurnir svokölluðu vilji skipta þessum krónum, sem verða að teljast nokkuð auðseljanlegar, í erlendan gjaldeyri. Snjóhengjan vill burt Heildarumfang vandans, sem við er að glíma, er því samtals 1.200 milljarðar króna. Í fyrsta lagi krónueignir slitabúa föllnu bankanna að fjárhæð 500 milljarða, í öðru lagi kröfur slitabúanna í erlendri mynt gagnvart innlendum aðilum að fjárhæð 400 milljarða og loks aflandskrónur í eigu útlendinga að fjárhæð 300 milljarða. Áætlun stjórnvalda, sem kynnt var í dag, miðar að því, eins og áður sagði, að koma í veg fyrir að þessar eignir, 1.200 milljarðar, flæði inn á gjaldeyrismarkaðinn og skapi þannig þrýsting á krónuna þegar höftunum verður lyft.".
Allt annað dæmi, allt aðrar tölur.
Á þessu geta verið skýringar, en þær eru ekki að lesa í greinargerð Seðlabankans.
Svipað og í ICEsave, það sem tilheyrði raunveruleikanum, og var óþægilegt, því var bara sleppt.
Í þriðja lagi er skýrt tekið fram að uppgjör eigi ekki að skila umframtekjum, sem er svo aftur skýring þess að fjármálaráðherra (nei það var ekki Steingrímur núna) lagði fram skattahyglunarfrumvarp fyrir hrægammana, arðinn skyldu þeir fá skammlaust úr landi, en skilja það eftir sem ekki fannst gjaldeyri til að leysa út, sbr þessi klausa úr frétt Morgunblaðsins um rótina; "En af hverju er þetta vandamál? Í örstuttu máli er svarið á þá leið að Ísland á ekki gjaldeyri til að skipta þessum krónum, sem vilja fara úr landi,".
Allt tal hægrimanna um skaðabætur er löngu liðin tíð.
Af því leiðir að þessir 300 milljarðar sem eftir eru af aflandskrónunum verður skipt í evrur, vissulega með afföllum, en samt sem áður, er verðlausum krónum skipt í beinharðan gjaldeyri.
Sem er glæpur gegn þjóðinni og menn hafa verið hengdir fyrir af minna tilefni hjá siðuðum þjóðum.
Því þó þetta lagi eitthvað dæmið til skamms tíma, þá er þetta skuld okkar í ellinni, og skuld barna okkar og barnabarna. Fjármunir sem hefðu farið í að byggja upp innviði samfélagsins, fara í vasa áhættubraskara, sem höfðu tapað á braskinu sínu, en keyptir menn sáu til þess að þeim var bjargað.
Í fjórða lagi er síðan áætlun SÍ um afganga af vöru og þjón.viðskiptum uppá 2,5%. Sem á að fara í að borga upp öll þessi evrubréf.
Áætlun sem gengur ekki eftir nema fjárfestingu og neyslu sé haldið í skefjum ofurvöxtum, lágum launum, og lélegri almanna þjónustu.
Sem er vítahringur landflótta og upplausnar.
Þetta er stöðugleikinn í boði sjálfstæðismanna.
Engeyjarættin endurheimtur vissulega fjármálaveldi sitt, glataðir fjármunir skila sér til baka þegar hrægammarnir hirða út verðmæti þjóðarinnar.
En þetta er stöðugleiki andskotans.
Og ég spái því að það fari fyrir Sjálfstæðisflokknum eins og það fór fyrir Kristilegum Demókrötum á Ítalíu.
Flokkurinn var bannaður, lagður niður, því hann var ekki flokkur heldur skipulögð glæpasamtök.
Þannig er komið fyrir flokki þeirra Bjarna og Óla.
Ekki nema að ennþá séu menn í flokknum.
Þá lifir flokkurinn.
Og þjóðin losnar við súpuna.
Kveðja að austan.
![]() |
Virðast misskilja vandamálið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.11.2015 | 15:44
"Við höfum ekkert val"
Segir seðlabankastjóri, og segir þar með loksins sannleikann.
Stjórnvöld kynntu stöðugleikaskatt uppá 900 milljarða, en sömdu við kröfuhafa bankanna um stöðugleikaframlag, sem glöggir menn segja að verði um 300 milljarðar, þegar allar sjóhverfingar og blekkingar eru dregnar frá.
Og það er ríkisstjórnin sem ræður, ekki seðlabankinn.
Síðast þegar sömu aðilar, þeir Már, Bjarni, Buchheit og jú Steingrímur og Jóhanna, reyndu með moðreyk og sjóhverfingum að koma rangindum á þjóðina, þá var Morgunblaðið skeleggt að upplýsa lesendur sínar, og í raun almenning allan því Morgunblaðið skar sig úr fyrir vandaða og greinargóða fréttamennsku.
Í dag upplýsir almenning í raun enginn um hvað býr að baki leyndarhjúpsins.
Líkt og í ICEsave þá upplifir almenningur almennan kjaftavaðal forsætis og fjármálaráðherra um hina bestu niðurstöðu miðað við aðstæður, þörfina á að semja því annars verði þjóðin lögsótt, áhættan sé svona og svona, en engin ástæða sé að hafa áhyggjur því framtíðar hagvöxtur muni redda þessu öllu saman.
Og svo framvegis, og svo framvegis.
Og Seðlabankinn á að sjá um trúverðugleikann.
Már tilkynnir frábæran hagvöxt, greiðsluafgangur nægur, þjóðin ráði við fjárstreymið út úr hagkerfinu.
Fyrst þegar Már Guðmundsson sagði þetta, þá taldi hann að þjóðarbúið réði vel við árlegar greiðslur vegna Svavarssamningsins uppá 30-60 milljarða í beinhörðum gjaldeyri.
Ásamt því að standa skil á lánum sínum, og ásamt því að greiða upp Steingrímsbréfið vegna uppgjörs Nýja Landsbankans við þrotabú þess gamla.
Þar að auki átti að losa um aflandskrónur með láninu frá AGS.
Þjóðin stóð skil á lánum sínum en ICEsave var ekki samþykkt og AGS lánið var aldrei notað.
Samt var ekki hægt að greiða Steingrímsbréfið á umsömdum tíma, og það var allt ministærð miðað við ICEsave og AGS lánið.
Með öðrum orðum, allar Exelforsendur Seðlabankans reyndust vera algjört bull.
Og í dag eigum við að trúa sama seðlabankastjóra, sama orðavaðlinum.
Lýðræðið er ekki virkt nema til staðar sé frjáls fjölmiðill sem hefur kraft og burði til að upplýsa almenning um raunverulegar staðreyndir mála sem snerta allan almenning, og hafa lykiláhrif á velferð hans og framtíð á komandi árum.
Morgunblaðið hefur verið slíkur fjölmiðill, og reyndist þjóðinni ómetanlegur í ICEsave stríðinu við breta og innlenda leppa þeirra.
Fram að þessu hefur Morgunblaðið aðeins endurrómað orð ráðamanna, og litið á Má Guðmundsson sem heilagan mann, jafnvel ígildi Maós formanns, og þar með étið allt upp sem útúr honum hefur komið.
Kannski er Mogginn ekki lengur til.
Kannski er hann ein deildin í hrægammasjóðnum.
En ég trúi því ekki.
Ég trúi því ekki uppá ritstjóra blaðsins að hann sé ekki lengur meðal vor.
Morgunblaðið útskýrði í ítarlegri frétt, fyrst þegar ríkisstjórnin kynnti hugmyndir sínar um stöðugleikaskatt versus stöðugleikaframlag.
Þar var vandi vogunarsjóðanna útskýrðir í meitluðum orðum;
En af hverju er þetta vandamál?
Í örstuttu máli er svarið á þá leið að Ísland á ekki gjaldeyri til að skipta þessum krónum, sem vilja fara úr landi, í. Þrátt fyrir að hreinn gjaldeyrisforði Seðlabanka Íslands hafi vissulega aukist að undanförnu, þá er hann dropi í hafið miðað við vænt útflæði við afnám hafta. Óskulsettur gjaldeyrisforði bankans er um sjötíu milljarðar, sem er aðeins um 6% af snjóhengjunni svonefndri. Snjóhengjan vill sem sagt komast út úr hagkerfinu sem að öllu óbreyttu myndi valda gríðarlegu gengisfalli krónunnar og verri lífskjörum þjóðarinnar.
Gjaldeyrisforðinn er 6% af sjóhengjunni.
Stöðugleikaframlagið er metið innan við 300 milljarða.
Og seðlabankastjóri segir að nauðasamningarnir munu samt styrkja gjaldeyrisforða þjóðarinnar.
Og hann segir líka að hagvaxtarbullið hans skiptir engu máli. "Seðlabankinn sagðist vissulega miða við hærri hagvöxt en bætti við að það skipti í raun engu máli hvað uppgjör slitabúanna varðar.".
Hvað er rétt í málinu? Hvert er stöðugleikaframlagið í raun?
Hvað streyma miklir peningar úr landi??
Hvaðan kemur gjaldeyrinn sem á að dekka þann pening, og jafnvel mynda umframsjóð?
Hvaða trúverðugleiki er að spá hagvexti sem á enga samsvörun í hagvaxtarspám helstu viðskiptaþjóða okkar, og á sér ekki heldur sögulega samsvörun.
Af hverju segja menn satt núna sem sögðu alltaf ósatt áður??
AF hverju er hægt að greiða niður skuldir ríkisins með verðmætum sem eiga sér ekki tilvísun í raunveruleg verðmæti, svo vitnað sé í Morgunblaðið hér að ofan.
Er ríkið í bakábyrgð fyrir verðlausar krónur sem breytt er í evruskuldabréf??
Og ekki hvað síst, af hverju er þrotabúin ekki látin borga skaðabætur fyrir það tjón sem óábyrg starfsemi gömlu bankanna olli efnahagslífinu og þann skaða sem af því hlaust.
Skaða heimila, fyrirtækja, ríkissjóðs.
Jafnvel Wall Street, háborg kapítalismans sættist á skaðabótagreiðslur til bandaríska ríkisins vegna þess tjóns sem fjármálabrask þess olli samfélaginu.
Á Íslandi kallar Seðlabankastjóri þessar skaðabætur "varasjóð", og segir í hroka sínum að hann hafi enga heimild fyrir slíkum sjóð.
Eiga þrotabúin að sleppa??
Eigum við bara að sitja uppi með tjónið og skaðann.
Eiga hrægammar að sjúga öll verðmæti út úr hagkerfinu en skilja eftir þau sýndarverðmæti sem felst í froðukrónunum??
Það þarf að spyrja þessara spurninga.
Og það er gert í öllum lýðræðisríkjum.
En í auðríkjum, þar sem auðurinn fer með öll völd, er þagað.
Eða logið og blekkt.
Neyðarlögin voru þrekvirki á sínum tíma, en til einskis ef endirinn er á þann hátt að hrægammar hirði til sín hverja lausu krónu sem hægt er að skipta í gjaldeyri.
Því endirinn er sá sami, þrot þjóðarinnar.
Og það er endirinn sem verður skoðaður þegar menn verða dæmdir.
Annað er saga, hitt er raunveruleiki.
Það hefur enginn val.
Það þarf að gera hið rétta.
Kveðja að austan.
![]() |
Enga heimild fyrir varasjóði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
11.11.2015 | 10:38
Hvaða tilgangi þjónar svona fréttamennska??
Er verið að Sun-væða Morgunblaðið?
Eða er verið að réttlæta ófyrirgefanleg mistök vakthafandi fréttastjóra gærdagsins sem gekk út frá beinni sekt ásakaðra manna án þess að kynna sér máli frekar, eða gera ráð fyrir að það gætu verið fleiri hliðar á málinu.
Þegar Mogginn var hluti af hinu stýrða skrílræði.
Í þeirri ágætu bók, Barn 44, sem fjallar um leitina að sovéskum raðmorðingja á Stalínstímanum, er lýst ofsóknaræðinu sem gegnsýrði allt sovéska samfélagið, þar sem grunur um glæp var talin sönnun hans.
Algjörlega geðveikt, enda var Stalín geðveikur, og það valdamikill að geðveiki hans var ofsóknaræði samfélagsins.
Ég hélt að Stalín væri dauður, en það er greinilegt að Mogginn og Fréttablaðið halda að svo sé ekki.
Sem er náttúrulega algjörlega geðveikt, en útskýrir að fleiri en eigandi Fréttablaðsins hafa beinan hag af því að ríkisstjórnin leyfi vogunarsjóðunum að flytja sinn illa fenginn gróða úr landi.
Sem aftur útskýrir þögn Davíðs, um allt nema fortíðina, sem og að Morgunblaðið hafi ekki upplýst þjóðina um hvaða staðreyndir búa að baki fagurgalanum um stöðugleikaframlag þrotabúanna.
Styrmir hefði aldrei látið bjóða sér slíka múlbindingu, hann hefði látið hæfa blaðamenn sína kafa í málin af minna tilefni.
Því það er enginn svona klikkaður i raunveruleikanum, nema náttúrlega Stalín.
En hann er dauður.
Enginn alvöru fjölmiðill fjallar um mál á þessum nótum.
Tekur afstöðu með einum, ákærir annan.
Fyrir þá sem skilja ekki fáráðin í þessu, en hafa lesið Millenium þríleikinn, bið ég að rifja upp aðra bókina þar sem Lisbeth Salender er talinn fær um allskyns voðaverk, því hún er talinn bæði lesbísk og tekur þátt í SM kynlífi.
Tilheyrir tveimur jaðarhópum, og þar með sek um allt það sem hún var ásökuð samkvæmt æsifréttamennsku blaðanna.
Gat verið satt, það er að hún hefði framið þá glæpi sem hún var ásökuð um, en sönnunin gat ekki verið kynhneigð hennar eða bólfarir.
Ádeila Sig Larson var hörð, en hún var skálduð, sjálfsagt vegna þess að hann taldi sænska fjölmiða alveg trúandi til að múgæsast svona.
En ég skil ekki afhverju íslenskir fjölmiðlar þurfi að sanna tilgátu Stigs, svona löngu seinna.
Afhverju fær ákæruvaldið ekki að vinna sitt mál í frið, af hverju er réttarhaldanna ekki beðið.
Hvaða tilgangi þjónar þetta??
Spyr sá sem ekki veit.
En þetta er ekki Ísland í dag.
Kveðja að austan.
![]() |
Bundin og slegin með svipu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.11.2015 | 19:42
Reglur Evrópusambandsins eru hannaðar utanum svindl.
Frjálst flæði þjónustu er fínt orð yfir launasvindl og undirboð.
Samnefnari hins lægsta knýr niður kaup og kjör í betur stæðum Evrópulöndum.
Frjálst flæði fjármagns er fínt orð yfir fjármálabrask, skattaundanskot, og ekki hvað síst, að auðvelda glæpasamtökum að þvo illa fengna fjármuni.
Afnám innri landamæra hafði ýmis háleit markmið um samræmi og eina heild, en gagnast fyrst og fremst glæpalýð ýmiskonar að stunda iðju sína óáreittur, óháð landamæraeftirliti.
Smygl á fólki, mannsal, eiturlyfjasala, sérhæfð glæpastarfsemi eins og búðaþjófnaður, innbrot, falsanir ýmiskonar, allt blómstrað í krafti Schengensamstarfsins.
Að ekki sé minnst á landbúnaðarstefnuna sem snýst um styrkjasvindl, gæðasvindl, afurðasvindl.
Þangað vill ASÍ inn en grætur afleiðingarnar.
Skilur ekki neitt í neinu.
Kennir svo einhverjum innlendum aðilum um.
Ótrúleg sjálfsblekking.
Ótrúleg blinda.
Kveðja að austan.
![]() |
Berskjaldað fyrir svindli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.11.2015 | 13:51
Stýrt skrílræði.
Það stýra engir bjánar Fréttablaðinu.
Þeir vita nákvæmlega hvað þeir voru að gera.
Þeir vissu að þegar þeir stilltu málinu svona upp, að þá yrðu hörð viðbrögð útí þjóðfélaginu.
Og að gefnu tilefni, við skulum ekki draga úr því.
Æsifréttablöð grípa oft til svona uppsetningar.
Það eykur söluna, og tryggir hana ef þeim tekst að viðhalda múgæsingunni.
En Fréttablaðið er ekki æsifréttablað, heldur auglýsingablað þar sem rekstrargrundvöllurinn byggist á útbreiðslu, það er frírri dreifingu, og einhvers konar virðuleika. Margir virðulegir auglýsendur auglýsa ekki í umdeildu blaði, eða blaði sem hefur á sér einskonar sora ímynd.
Nauðgunarfréttin er því stílbrot miðað við rekstrarmódel blaðsins.
Jafnvel skaðleg.
Hver var þá tilgangurinn að efna til uppþota og æsinga í samfélaginu??
Og af hverju þessi tímasetning??
Af hverju var allt gert brjálað í gær??
Með hæpnum fullyrðingum, jafnvel röngum sakargiftum??
Það hlýtur jú jafnvel hver einasti auli að átta sig á því að það er ekki góður bissness að fjárfesta í sérstöku nauðgunarherbergi heima hjá sér, í réttarríki þar sem nauðganir varða við lög.
Fólk átti að staldra við og átta sig að eitthvað var málum blendið þegar hlutirnir eru settir upp á þennan hátt.
Svarið við þessum spurningum er ákaflega einfalt, ætti að blasa við.
Og allir myndu sjá það ættu þeir heima í útlöndum.
En á Íslandi gilda víst önnur lögmál, aðrar skýringar á einföldu orsakasamhengi.
Hver er eigandi Fréttablaðsins??
Hver er tengsl hans við vogunarsjóðina sem mun fá leyfi frá ríkisstjórninni að tæma landið af verðmætum eftir áramót??
Það er sagt illa dulið leyndarmál að hann, ásamt nokkrum öðrum gerendum Hrunsins, hafi fjárfest grimmt í hrakkröfum bankanna á fyrstu vikum eftir Hrun. Og munu endurheimta fyrrum auðlegð sína þegar nauðasamningarnir ganga í gegn.
Sagt tek ég fram, þessir gjörningar eru ekki auglýstir í Lögbirtingarblaðinu.
En það er ekkert leyndarmál, hvað þá illa dulið leyndarmál, að frá fyrsta degi tók Fréttablaðið beina afstöðu með fjárkúgun breta kennda við ICEsave, og hefur alla tíð haldið fram skoðunum sem gagnast hrægömmum vogunarsjóðanna.
Það skiptir því ekki máli hvort eigandinn hefur beina fjárhagslega hagsmuni af Ráninu mikla, kennda við samkomulag þrotabúa bankanna um nauðasamninga, málstaður Fréttablaðsins hefur alltaf legið fyrir.
Og það þurfti að gera eitthvað núna eftir ljóst var að Indefence náði loksins athygli Alþingis.
Már þorði ekki á fund efnahags og viðskiptanefndar á mánudaginn var, vissi eins og er að rangfærslur hans yrðu afhjúpaðar á þeim fundi.
Már fékk frestun, og skýring á þeirri frestun kom í ljós í gær.
Hávaði skrílsins átti að yfirgnæfa allar fréttir af afhjúpun Más.
Hverju er logið til um upphæð stöðugleikaframlagsins?
Hvað stór hluti af henni á sér vísan í raunveruleg verðmæti?
Hvað þarf vaxtastigið að vera hátt til að tryggja umframgjaldeyri í hið fyrirhugaða fjármagnsflæði úr landi.
Hversu miklu er logið í forsendum Seðlabankans, hagvaxtarspá og svo framvegis.
Og ekki hvað síst, verður sá glæpur framinn að verðlausum krónum verði breytt i evruskuldabréf, þar sem þjóðin er skuldarinn??
Nei, starfsmenn Fréttablaðsins eru engir bjánar.
Þeir þjóna.
Og þjóna vel.
Kveðja að austan.
![]() |
Stendur við umfjöllunina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
10.11.2015 | 08:36
"Skundum á Þingvöll og treystum vort heit"
Þessi þekkta ljóðlína meitlar hornstein lýðræðisins.
Fólk kemur saman og setur reglur sem það ætlast til að sé farið eftir.
Breytilegar eftir tíma, hugsunarhætti, valdahlutföllum og svo framvegis.
Eiga oftast það sameiginlegt að um þær ríkir sátt en ef svo er ekki, þá skunda menn á Þingvöll og fá þeim breytt.
Eða reyna fá þeim breytt, hafi þeir ekki til þess meirihluta.
Mótmæli eru eðlileg, krafa um breytingar er eðlileg.
Þannig eru lifandi samfélög.
En það er ekkert eðlilegt við þá gjörð að grýta lögreglustöðina fyrir það eitt að lögreglan fer að lögum landsins.
Og fari sú gjörð saman við þá kröfu að ákveðnir einstaklingar séu skyndirefsaðir, eða umframrefsaðir, það er hengdir án dóms og laga, þá kallast sú gjörð skrílræði.
Þjóðin var vitni af skrílræði í gær.
Í sinni verstu mynd ef mið er tekið að við teljum samfélag okkar siðað samfélag.
Í þessu samhengi skiptir tilefnið ekki máli, heldur gjörðin, hvernig reiðin fékk útrás.
Tilgangurinn helgar ekki alltaf meðalið, og góður málstaður réttlætir ekki hvað sem er.
Það brast eitthvað í gær.
Ekki bara þolinmæði fólks.
Heldur líka viðbrögð okkar gagnvart því sem á ekki að líðast.
Við eigum að þekkja skrílræði.
Og við eigum alltaf að fordæma það.
Undantekningalaust, sama hvert tilefnið er.
Ég get ekki lesið þá fordæmingu í fréttaskrifum Mbl.is í dag.
Ég fann ekki örla á henni í umfjöllun Ruv í gær.
Það er eitthvað mikið að.
Það er eins og við séum hætt að þekkja muninn á réttu og röngu.
Það er kannski þess vegna sem það er svo auðvelt fyrir hrægammana að ræna okkur með stuðningi ríkisstjórnarinnar, sem og reyndar annarra flokka á Alþingi.
Það liggur við að siðkennd okkar sé orðin þannig að við teljum að við hefðum gert það sama, hefðum við haft aðstöðu til.
Siður er deyjandi.
Og það er miður.
Hann er jú forsenda tilveru okkar.
Kveðja að austan.
![]() |
Mun reyna á ábyrgð Fréttablaðsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
9.11.2015 | 19:22
Dómstóll götunnar hefur alltaf rétt fyrir sér.
Þess vegna er mikilvægt að hjálpa honum með því að gróðursetja há eikartré eða álm í nágrenni lögreglustöðvarinnar, sem og að hafa alltaf tiltæk góð reipi í gulum kassa, sérmerktum götudómstólnum.
Eins hafa gamlir hjólbarðar, fylltir bensíni virkað vel í fátækrahverfum Suður Afríku. Spurning samt hvort slökkviliðið leyfi slíkan útbúnað, þekki það ekki.
Hins vegar verð ég að játa að ég misreiknaði hræðslukast Más Guðmundssonar í pistli mínum um Þagnarmúrinn, ég taldi að Már væri að vinna tíma fyrir þagnarbindingu mútfés.
En auðvitað eru hrægammarnir þróaðri í vinnubrögðum sínum.
Líkt og John Perkins benti á í bók sinni um Játningu efnahagaböðuls.
Ólga og upplausn uppúr engu er að sjálfsögðu miklu sterkari leið til að tryggja þöggun, hin hjáróma rödd hrópandans í Indefence mun ekki ná athygli fólks.
Fréttaflutningur næstu daga er tryggður.
Og nýtt upphlaup mun sjá um dagana þar á eftir.
Já, ég verð að játa að þetta eru fagmenn.
Þeir kunna að spila með fólk.
Skynsamleg fjárfesting hjá hrægömmunum.
Kveðja að austan.
![]() |
Púað á lögreglustjórann |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.11.2015 | 12:56
Heimur á heljarþröm.
Hundsar allar aðvaranir.
Lætur hið skítuga fjármagn Wall Street hefta allar neyðaraðgerðir.
Heldur að flokkun á rusli sé bót allra meina.
Börnin okkar munu erfa hrun siðmenningarinnar.
Kveðja að austan.
![]() |
Loftslag að nálgast nýjan veruleika |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.11.2015 | 10:37
Þagnarmúrinn er að bresta.
Þökk sé heiðurspiltunum í Indefence.
Þeir voru þungt lóð í varnarvog þjóðarinnar þegar þegar ráðmenn okkar lyppuðust niður gegn hótun og ofríki breta í ICEsave þjóðinni, og þeir tala núna þegar aðrir þegja.
Sem sýnir að jafnvel þótt fjármagnið sé mikið þá er ekki hægt að kaupa alla.
Þeir þegja núna skriflepparnir á Baugsmiðlunum sem áður voru sígjammandi um allar gjörðir ríkisstjórnarinnar, jafnt misgjörðir sem góðgjörðir.
Þeir þegja núna hinu áður sjálfstæðu pennar Sjálfstæðisflokksins sem gátu ekki unað þeim Steingrími og Jóhönnu að selja þjóð sína fyrir aur.
En þeir þegja ekki í Indefence.
Þeir tala og núna er seðlabankastjóri hræddur.
Það hefur einhver bent honum á að óvart hafi seðlabankinn notað sama rökstuðninginn og ekki hélt vatni í ICEsave.
Sömu orðalepparnir, sama orðagjálfrið, sama bjána hagvaxtarspáin.
Og nú þarf tíma, ekki til að þétta hinn hripleka rökstuðning því hann mun aldrei fá falið þá einföldu staðreynd að til að vogunarsjóðirnir fái komið herfangi sínu úr landi þá þarf seðlabankinn að halda þjóðinni í ískrumlum vaxtaokursins, heldur til að gefa hinu skítuga fjármagni ráðrúm til að toga í þagnarspotta með evrum sínum og dollurum.
Að Indefence verði þagað í hel á Alþingi.
Sem skiptir ekki máli.
Brestur í þagnarmúr er þess eðlis að hann verður ekki límdur saman.
Hann gliðnar og að lokum brestur allt.
Spurningar eru spurðar.
Svara er krafist.
Og það sem verra er, það er fyrir ránsmennina, að kliður að niðurbældu kvaki kjúklingsins er farinn að heyrast úr skúmaskotum stjórnmálanna.
Aur í vasann í dag er brennimark þjóðníðingsins á morgun.
Einföld staðreynd, slík eru alltaf endalok landsölumanna.
Kvak, kvak, kvakkvakkakkvakk, kvakvak kvak.
Flóttin er að bresta.
Aumingja seðlabankastjóri, hann lifði af ICEsave því einn af félögum hans í plottinu varð fjármálaráðherra, en hann lifir ekki Ránið eina.
O,nei.
Og vafningar munu rekjast.
Upp.
Kveðja að austan.
![]() |
Fresta fundi fyrir seðlabankastjóra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.11.2015 | 09:36
Í hvaða heimi lifir hin ofsótta?
Sú hugsun hvarflaði að mér þegar ég renndi yfir harmakvein niðurskurðarböðulsins í þessari frétt.
Við hverju býst manneskja, sem fékk völd sín meðal annars vegna gagnrýni formanns hennar á hinu dauðu hönd niðurskurðarins, þegar hún heldur áfram að höggva í þágu hins skítuga fjármagns þegar hennar hlutverk var að hlúa að, bæta, byggja upp.
Bjóst hún við þakklæti fórnarlamba hennar??
Það er eins og að niðurskurðarböðullinn gleymi að pólitískir andstæðingar hennar sá aðeins út, en frjósemi þess sem sáð er í, ræðst af hennar verkum og hennar framgöngu.
Og hvað er að því að vera umdeildur, að vera skotspónn.
Ekki virðist það ergja systurflokkssystur hennar í Frakklandi, frú Le Pen. Sú ágæta kona þrífst í brimrótinu, gerir í því að ergja og æsa, og uppsker hugsanlega forsetaembætti í næstu kosningum.
Hún grætur það ekki á torgum.
Enda ekki ofsótt, heldur sigursæl.
Og líklegast er það vandi Vigdísar Hauksdóttur í hnotskurn.
Hún er ekki í þessum heimi.
Hún er í heimi þar sem hennar góða sjálf blómstrar, lætur gott af sér leiða, þar sem hún vill vel, og berst í þágu hins góða (samanber orð hennar um heilbrigðiskerfið).
Verkin tala, og fuglarnir syngja.
Svo vaknar hún á morgnana, í andheiminn þar sem hún er umflotin neikvæðri umræðu.
Ofsótt jafnt innan flokks sem utan, sætir atlögum, fellur jafnvel í valinn áður en kveldar.
Það er ekki von þó eitthvað bresti í svona tvískiptri veröld.
Hún á alla mína samúð.
En hóflega þó.
Kveðja að austan.
![]() |
Ósýnilegur her neikvæðrar umræðu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.7.): 5
- Sl. sólarhring: 15
- Sl. viku: 1125
- Frá upphafi: 1469928
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 955
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar