Heimsbyggð á leið í þrot.

 

Það þarf sérstaka hæfileika, oft kennda við strúta, að afneita hlýnun jarðar af mannavöldum.

Ýmislegt er týnt til, meðal annars reglulega hér á Moggablogginu, en flest af því á það sannmerkt að vísa í afbökun staðreynda, eða hreinan tilbúning.

Þegar lygi eða staðleysa er forsenda skoðana, þá geta þær ekki verið merkilegar, spyrjið bara kommúnista heimsins í gegnum tíðina.

Eða Góða fólkið um allt bullið sem vellur frá því.

 

Vissulega hjálpar margt til að kynda undir okkur og ekki allt af mannavöldum, ég hef til dæmis sterkan grun um að sá í neðra hafi nýtt sér aukinn liðstyrk til slíkra verka, en viðurkenni að sú kenning á sér ekki margar vísindalega stoðir.

En það breytir samt ekki þeim staðreyndum að athafnasemi mannsins í yfirfullum heimi hefur raskað viðkvæmu jafnvægi náttúrunnar þannig að enginn sér endi þar á.

Sérstaklega ekki tryggingarfélög, þau eru ekki í góðum málum.

 

Við hin venjulegu, sem alltaf eru látin borga alla brúsa, sama hvers eðlis þeir eru, eða af hvaða völdum, getum kosið að láta annarlega hagsmuni afneitunarsinna spila með okkur, eða beðið þá sem ráða að hætta þessu bulli, og fara að gera eitthvað.

Og þá eitthvað að viti en ekki gera eitthvað til að gera eitthvað.

Það fyrsta er að horfa í eigin barm og spyrja um árangur þess sem gert hefur verið hingað til í rúm 30 ár eða frá því að fyrsta hamfaraloftslagsráðstefnan var haldin Rio de Janeiro 1992.

 

Lengi hafa ráðandi öfl treyst á markaðslausnir, að ef markaðurinn fái hvata, þá sjái hann sjálfur um að redda málunum.

Hvað allt ruglið heitir getur ekki nokkur maður lagt á minnið, losunarheimildir, kvótar, grænir skattar, kolefnisspor, kolefnisgjald svo ég reyni með harmkvælum að rifja upp nokkur orð þessa markaðstrúboðs.

Gígantískir fjármunir hafa farið í allskonar vitleysu sem engu hafa skilað eða af hverju er heimurinn að brenna þessa dagana rúmum 30 árum eftir að menn sögðust ætla að gera eitthvað??

Losun heimsbyggðarinnar hefur verið í veldisaukningu allan tímann þó vissulega hafi hlutur vestrænna iðnríkja af heildarlosun gróðurhúslofttegunda hlutfallslega minnkað, en það breytir engu í heildarmyndinni.

 

Og hver skyldi skýringin vera á þessu árangursleysi??

Jú forheimskan að baki meintum aðgerðum, kerfisbundið hefur verið unnið að því með alls konar sköttum og gjöldum, sem bæði hækka orkukostnað sem og framleiðslukostnað almennt, að færa framleiðslu heimsins frá minni mengun í meiri.

Sem skýrir veldisaukningu losunarinnar.

 

Við Íslendingar höfum um nokkurn tíma upplifað þessa forheimsku á eigin skinni.

Tilbúinn orkuskortur og tilbúinn orkumarkaður hækkar verð á innlendri framleiðslu, grænir skattar og kolefnisgjald hækkar verð á innlendri framleiðslu.

Og vörur, sem þegar eru dýrar fyrir, framleiddar með grænustu orku í heimi, hækka og hækka, og valkostur neytandans er þá innfluttar vörur, með öllum sínum kolefnissporum, en fyrst og síðast er leitnin að fá þær sem ódýrast frá orkusóðum heimsins, Kína og öðrum löndum í Fjarskaistan.

 

Þetta er það sem er að gerast um alla Evrópu, hin meinta barátta við hlýnun jarðar, eykur losun gróðurhúsloftegunda en dregur ekki úr henni.

Að baki liggur sú hugsun að ef eitthvað er vitlausara þá framkvæmum við það.

Toppurinn á ísjaka heimskunnar er líklegasta sú skylda að blanda matvælum í eldsneyti og síðan hafa keðjusagirnar í regnskógum heimsins ekki þagnað.

 

Hvaða hagsmunir liggja að baki vitleysunni ætla ég ekki að reifa í þessum pistli, hvað þá að ég nenni að taka eitthvað debat við afneitara hins augljósa, að jörðin sé að brenna.

Vil aðeins benda á að það var og er hægt að gera eitthvað, sem hefur ekki verið gert.

 

Ég er svo lánsamur að vera orðinn það grár að ég man sem ungur drengur eftir fréttum af fyrsta laxinum sem gekk upp ána Thames, það þótti mjög merkilegt því áin hafði verið steindauð í nokkrar kynslóðir, ekki vegna breytinga á umhverfisaðstæðum eða af því bara sem afneitarar nútímans myndu örugglega halda fram, heldur vegna landlægs sóðaskapar iðnaðar og byggða við ána sem hleyptu öllum sínum óþverra út í ána í þeirri trú að tært vatnið myndi láta óþverrann hverfa einhvern veginn.

Einhverjum áratugum áður, uppúr 1950, sagði einn maður, það gengur ekki að þessi einu sinni fallega á, stolt okkar Londonbúa, sé orðin eins og hvert annað holræsi, við þurfum að gera eitthvað í málunum, og að lokum var það gert.  Vissulega eftir smá umræðu um að hann væri skrýtinn, áin hefði alltaf verið svona í mannaminnum, og svo væri ekkert hægt að gera.

Það væri ekkert hægt að gera.

 

Sem er náttúrulega argast þvæla og vitleysa, vandamál eru til að leysa, þess vegna erum við jú Homo sapien, hinn vitiborni maður.

Þetta var fyrir daga Góða fólksins og Rétthugsunarinnar, fyrir dag Grétu og alla hinna krakkanna, þess vegna var vandinn ekki leystur með því að eyða byggð og loka fyrirtækjum, eða fara aftur á hestöld eins og núna er lagt til.

Skólp þurfti að losa og iðnaðarúrgangur var staðreynd, en það var hægt að hreinsa skólpið, og það var hægt að setja hömlur á losun skaðlegs úrgangs út í fljótið.

Mengun er nefnilega ekkert náttúrulögmál, hún er mannanna verk, og það er hægt að takast á við hana eins og allt annað í þessum heimi.

 

Ef mannkynið hefði sett þó ekki nema væri brot af þeim fjármunum sem hafa farið í græna skatta, jafna út kolefnisspor, losunarkvóta eða hvað sem öll þessi vitleysa heitir, í að þróa tækni til að hreinsa út mengunina, fanga hana í skorsteinum, útblæstri og öðru, þá væri þessi mál á réttri leið í dag.

Græn orka er nauðsynleg, hana þarf að þróa, en hún þarf að vera sjálfbær, ekki þvinguð.

Og þangað til hreinir orkugjafar eru í boði, þá átti að þróa áfram lausnir tengdar kjarnorku, en ekki láta skrípi kostuð af jarðeldsneytisiðnaðinum loka vel reknum kjarnorkuverum.

Skattar geta verið skynsamlegir ef þeim er beitt rétt, en markmið þeirra getur ekki verið að auka vandann eins og í dag með því að koma allri framleiðslu til orkusóða glóbal hagkerfisins.

Orkusóðagjald myndi til dæmis skila miklum árangri, bæði með því að beina neyslu frá orkusóðum sem og til að knýja þá að gera eitthvað í sínum málum, menn færu þá kannski að sjá til sólar í borgum Indlands eða Kína.

 

Meinið er að annarlegir hagsmunir hafa stýrt umræðunni frá skynsemi til forheimskunnar.

Bullráðstefnur kenndar við loftslag eru haldnar reglulega, virðast þjóna fáum öðrum tilgangi en að næra athyglissýki athyglissjúkra.

Ásamt því að skaffa ríflega dagpeninga og ókeypis ferðalög á framandi slóðir.

 

Rúm 30 ár hafa farið í súginn, tíminn sem við höfðum til að gera eitthvað, er senn á þrotum.

Og þrýtur brátt því ekkert lát er á vitleysunni.

Mengun heimsins minnkar ekkert þó Evrópa hætti að framleiða og þó fátækari íbúar álfunnar hafi ekki lengur efni á að kynda húsin sín.

Hækkun raforkuverðs á Íslandi, hækkun grænna skatta á Íslandi, mun þar engu breyta.

 

Við gætum samt undirbúið okkur fyrir það sem koma skal.

Heim í upplausn.

 

Og eitt er víst að sá undirbúningur felst ekki í því að afleggja innlenda matvælaframleiðslu eða aðra framleiðslu.

Það get ég svarið.

 

Innflutningur frá Kína er ekki lausnin.

Kveðja að austan.


mbl.is Líklega dýrustu gróðureldar í sögu Bandaríkjanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju eiga Danir að ráða yfir Grænlandi??

 

Vissulega var danskur trúboði sem mætti þar í byrjun 18. aldar, líklegast hinn almennilegasti maður, en fullur af fordómum og yfirlæti hins hvíta kynstofns gagnvart íbúum framandi landa.

Og svo erfði Danmörk í gegnum Kalmarsambandið hugsanlegar byggðir Íslendinga vestur frá Íslandi, byggðir norrænna manna frá Íslandi, voru það þekktar og viðurkenndar að páfinn í Róm sendi þangað biskup.

Svo liðu bara mörg ár sem og aldir.

 

Grænlendingar sátu upp með danskan hroka og nýlendukúgun, sem gekk svo langt að Danir, sá meinti yfirburðarkynstofn, sem ekki einu sinni kann að tala mannamál svo aðrir skilji, hvað þá þeir sjálfir hvorn annan að þeir ákváðu að gera grænlenskar konur ófrjóar í nafni meintra kynyfirburða sinna.

Ha, ha.

Svo sjúk er þessi danska minnimáttarkennd að í nafni meintra kynyfirburða þeirra, þeirra sem enginn annar skilur, hvað þá þeir sjálfir, taka þeir nýfædd börn af grænlenskum mæðrum sem fæða börn sín í Danmörku.

Svo má ímynda sér áþjánina að þurfa að læra dönsku og nota hana sem samskiptamál við stjórnsýsluna.

 

Trump á allan heiður að vekja athygli á þessari tímaskekkju fortíðarinnar, arfleið nýlendustefnu örríkja á Norðurslóðum, smánar sem Danir munu aldrei ná að þvo af arfleið sinni, ekki að þeir gætu það ekki, en dönsk þjóð sem slík á aðeins innan við 2 áratugi eftir til að ný blendingsþjóð óskiljanlegra innfæddra í samkrulli við múslímska innflytjendur verður til.

Og höfuð munu beygja sig í átt að Mekka.

Vonandi hverfur danskan um leið, hver vill púkka upp á mál sem fólk talar, og nennir ekki að orða orð sín svo nokkur annar skilur??

 

Svarið við spurningu þessa pistils er augljóst, Danir hafa engan rétt til að stjórna Grænlendingum, fólk sem getur ekki einu sinni tjáð sig á skiljanlegu máli, hefur engan rétt til að gelda mæður, eða taka nýbura frá þeim.

Öreyja hefur engan rétt til að stjórna stærstu eyju jarðar, þó hún telji sig  hafa erft þann rétt frá íslenska þjóðríkinu sem gekk í ríkjasamband við Noreg fyrir svo sem 800 árum síðan eða svo.

Að það þurfi bullukollinn Trump til að benda á þessi augljósu sannindi, er hins vegar sorg nútímans, sem rígheldur í arfleið hroka og yfirgangssemi evrópskra nýlenduþjóða.

 

Trump hefur fullan rétt á að benda á að ef Grænlendingar treysta sér ekki til að stjórna öllum sínum málum sjálfir, þá sé skjól í faðmi Bandalagsríkja Ameríku, mun haldbetra skjól en skjólið í faðmi hinna gömlu nýlendukúgara, sem eru svo siðblindir í sínum eigin hroka, að þeir fjarlæga hvítvoðunga úr móðurfaðmi, því viðkomandi móðir hafi ekki staðist mæðrapróf skriffinnsku kerfisins, hins sálarlausa kerfis sem enga mannúð og mennsku þekkir, er þar að auki forheimskt vegna menntaðra kvenna sem hafa menntað sig frá mennsku í heimsku.

Og hann bendur á að þar sé Grænlendinga sjálfra að ákveða, kannski þessari síðustu birtingarmynd frelsisstríðs amerísku nýlendanna.

 

Hvað sem danskir nýlendukúgarar fullyrða, og vinir þeirra og frændur í gömlu nýlenduveldum Evrópu fullyrða, þá tilheyrir Grænland Ameríku, ekki Evrópu.

Það vita allir Íslendingar nema hugsanlega fréttaviðrini Rúv, þessi sem styðja voðaverk Hamas og þjóðarmorð þeirra gagnvart íbúum Gasa, tala því um gísla Hamas sem handtekið fólk, við hin vitum að gjáin við Þingvöll markar skilin milli Evrópu og Ameríku, ekki dansk nýlendukúgun með vísan í arfleið forníslendinga.

 

Danskir ráðamenn mega funda út í eitt.

Yfirráð þeirra yfir Grænlendinga er tímaskekkja.

 

Sem tíminn mun leiðrétta í fyllingu hans.

Kveðja að austan.


mbl.is Danskir ráðamenn funda vegna ummæla Trumps
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stríð eru hræðileg, ömurleg, grimm.

 

Það liggur í eðli þeirra að drepa, að eyða, slíkt getur aldrei verið fallegt, skemmtileg, mannúðarlegt.

Og það eru aðeins tvær leiðir til að forðast stríð, sú fyrri að hefja þau ekki, sú seinni er að vera nógu sterkur til að aðrir ráðist ekki á þig.

Úkraínumenn hófu ekki þetta stríð, þeir verjast, en eru ekki nógu sterkir til þess án utanaðkomandi hjálpar.

 

Þorgerður Katrín segir að "ný rík­is­stjórn á Íslandi sé að senda út mjög skýra tóna í þá veru að Ísland standi með Úkraínu", vonandi verður sú aðstoð í þágu mannúðar en ekki hernaðarbrölts, nægir aðrir sinna því brölti.

Hún réttlætir þá skýru tóna með vísan í að Rússar hófu stríðið með innrás sinni í Úkraínu, Úkraínumenn heyi því réttlátt varnarstríð, sem og að andstæðingur þeirra er grimmúðugur.

Vissulega réttmæt rök sem útiloka þá pólitísku hentisemi að það skipti máli hver á í hlut.

 

En þau rök að ríki megi verjast árásaraðila, berjast við hann þar til hann gefst upp á árásum sínum, og í því felst rétturinn að ráðast inn yfir landamæri hans, sbr innrás Úkraínu inní Rússland eða innrás Bandamanna inní Þýskaland á sínum tíma, hljóta þá að gilda um alla.

Og þá verða menn að sætta sig við að slík stríð eru jafn grimm, hræðileg og eyðandi eins og önnur stríð, það er ekki til neitt réttlátt stríð, ekkert fallegt stríð

Dauði og auðn er ekkert réttlátur, fallegur.

Það var ekkert fallegt við eldárásir Bandamanna á Hamborg eða Dresden enda tilgangur þeirra að drepa sem flesta óbreytta borgara óvinarins.

 

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hefur heykst á þessari samkvæmni.

Hjá henni skiptir það máli hver á í hlut og hún fer ekki gegn almannarómi.

Á annan hátt er ekki hægt að skilja orð hennar um stríðið á Gasa, þar er sá sem ver sig gagnvart ógnaröflum sem vilja útrýma honum; Sekur, því í varnarstríði sínu drepur hann, eyðir.

Sökin er ekki hjá þeim sem hóf stríðið með voðaverkum sínum og árásum, hjá þeim sem tók gísla og færði inn yfir landamæri sín, og verst síðan innan um eigin íbúa, heldur hjá því sjálfstæða ríki sem varð fyrir þessum árásum.

 

Þar með gengur íslenska ríkisstjórnin í takt með voðamennum sem fórna sinni eigin þjóð í þágu einhverra pólitískra markmiða sem heita; Sigrum áróðursstríðið.

Vitandi að slíkt áróðurstríð myndi kosta tugþúsunda samlanda þeirra lífið, valda algjörri auðn í landi þeirra.

Og hið hlálega er í öllum þessum hörmungaratburðum að meintur sigur í áróðursstríði skiptir sjálfstæða þjóð, sem á að útrýma, engu máli, heldur blákaldur veruleiki vígvallarins.

Það voru þýskir skriðdrekar sem vörðu Þýskaland, ekki áróðurssneplar Göbbels, jafnvel þótt Göbbel hefði haft aðgang að nútíma samfélagsmiðlum og getað básúnað út hin meintu hópmorð og þjóðarmorð Bandamanna á íbúum Þýskalands.

 

Þessi tvöfeldni afhjúpar hinar meintu siðferðilegu röksemdir fyrir stuðningi hinnar nýju ríkisstjórnar Íslands við ríkisstjórn Úkraínu, þetta snýst aðeins enn og aftur um hverjir eiga í hlut.

Við og hinir, og hinir eru ljótu karlarnir.

Það er bara svo og óþarfi að halda öðru fram.

 

Heimurinn er að vígbúast í stað þess að takast á við vandamál sín.

Kallast á mannamáli að vera á sjálfstýringu á beinni leið til helvítis.

Mannapinn, þó hann þykist vera vitiborinn og geti lært af reynslunni, drepur til að stækka yfirráðasvæði sitt, jafnvel þó hann viti innst inni að næsta dráp geti orðið hans síðasta.

Þetta virðist vera forritað í hann, frumstæð hvöt úr árdaga þróunarinnar, gekk bærilega á meðan vopnin voru spjót og kylfa, verr þegar þau breyttust í vélbyssur, sprengjur og skriðdreka.

Og gengur alls ekki þegar orðinu "gjöreyðing" var skeytt fyrir framan vopn.

 

Það er samt alltaf gott að vita að stríð séu hræðileg, ömurleg, grimmileg.

Það dugar bara skammt, eiginlega ekki neitt.

Sérstaklega þegar menn ganga í takt með olíuauði Persaflóans og stríði hans við siðmenninguna.

Nútímann.

 

Munum svo að það eru Íslamistar sem fremja hryðjuverk um allan heim.

Ekki gyðingar.

Ekki við.

 

Þá skiljum við hvurslags bjánaprik okkar ágæti utanríkisráðherra er.

Kveðja að austan.


mbl.is Sýnir hvað stríð er hræðilegt, ömurlegt og grimmt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mun heilbrigðisráðherra skipa Landlækni sem felur hennar spor.

 

Eða fær þjóðin loksins einstakling sem tekst á við mein og böl, líka þau mein og böl sem viðkomandi mun erfa frá stjórnmálakonunni sem vissi það eitt, út frá ættarfylgju sinni, að sá eða sú, sem ruggar bátnum, verður aldrei heilbrigðisráðherra þjóðarinnar.

Fær þjóðin Landlækni, sem vinnur út frá skýrum lögum og reglum sem um embættið gildir, eða fær enn eina yfirhylminguna, þar sem vísan og réttlætingin er kyn viðkomandi einstaklings, einstaklings sem nýtti embættið í þeim pólitískum tilgangi, að þykjast að vera eitthvað sem hún í raunveruleikanum aldrei var.

Úr ranni stjórnmála eða úr ranni læknavísinda??

 

Burtséð frá því, þá er það sjaldgæft, og þarf ekki mjög margar aldir til að skilja, að sú sem var sýnd, og þar með algjörlega óhæf, til verka og ábyrgða, sem snérust að raunveruleikanum, en ekki hugsanlegum meintum pólitískum metorðum innan raða Samfylkingarinnar, að viðkomandi óhæfa ráði eftirmann sinn, til að leggja blessun yfir allt sem miður fór.

Allt sem kerfi karlrembunnar vó að heilbrigði og lífi kvenna, kerfi sem ungar vísindakonur hafa afhjúpað.

 

Á vakt Ölmu að konur séu um 50% líklegri til að hljóta ranga greiningu þegar kemur að alvarlegum hjartasjúkdómum, og þar með að þetta kynbundna ofbeldi sé bein skýring á ótímabærum dauða hundruða ef ekki þúsunda mæðra okkar í heilbrigðiskerfinu í dag, í gær, smán sem þjóðin þarf að takast á við.

Smán sen þarf að ræða og viðurkenna.

 

Tölfræði erlendra rannsókna segja þetta, íslensk vanhæfni upphefur þann embættismann sem beina ábyrgð ber á þessum ótímabæru andláti mæðra okkar og amma, og Samfylkingin kaus að gera viðkomandi embættismann að heilbrigðisráðherra þjóðarinnar.

Þar á milli skilja ótímabær andlát, andlát sem má beint tengja við alvarleik sem UN-Women um kynbundið ofbeldi, hjá okkur ofbeldi sem skýrir að konur eru helmingslíklegri til að fá ranga greiningu á hjartasjúkdómum sínum.

Þar ber fyrrverandi Landlæknir alla ábyrgð á.

 

Alla sína embættistíð gat hún gert eitthvað.

En gerði ekki.

 

En um afglöp hennar og vanhæfni gefur Samfylkingin henni tækifæri til að hylma yfir, til að þagga niður.

Gegn keyptri ímynd um meintri væntumþykju núverandi heilbrigðisráðherra, sjónvarpsþátta kóvíds tímans,  sem Landlæknisembættið kostaði á ríkismiðli þjóðarinnar, og áttu að sýna að eldri konur fengju læknismeðferð, sem og að fyrrverandi Landlæknir felldi tár þar um.

Þá er viðkomandi kona, og konur bera enga ábyrgð.

Sérstaklega kona sem beinu ábyrgðina ber, og er núverandi heilbrigðisráðherra.

 

Þar með er aukaatriði að viðkomandi þarf að þagga niður,

Að skipa lepp og skrepp.

 

Lepp og Skrepp sem viðheldur kynbundnu ofbeldi gegn íslenskum konum.

Mæðrum okkar, ömmum og langömmum.

 

Þeirri tölfræði að 50% kvenna hljóta þau örlög af fá ranga greiningu á hjartasjúkdómum sínum, eða að viðkomandi hjartasjúkdómur hafi verð greindur of seint, með banvænum afleiðingum.

Women are 50% more likely than men to be given incorrect diagnosis following a heart attack

Réttlæting kynofbeldisins er að viðkomandi konur voru ekki með, eða sögðu frá banvænum einkennum kransæðissjúkdóma, sem voru ekki  einkenni karla, þar með voru þeirra einkenni ekki hluti af læknavísindum karlkyns gangestar í hvítum sloppum.

Eitthvað sem Alma Möller veit og hefur þaggað niður.

Í þeirri kjörstöðu að geta tryggt áframhaldandi aðför að lífi og limum mæðra okkar, ömmum okkar og langömmum.

Viðhaldi tölfræðinni um 50% rangar greiningar á hjartasjúkdómum 50% þjóðarinnar, kvenna.

 

Kynbundið ofbeldi í sinni tærustu mynd.

Í boði Samfylkingarinnar.

 

En það hlýtur að vera einhver helvítis karlpungur sem ábyrgðina ber.

Þess vegna mun Samfylkingin skipa konu sem Landlækni.

 

Kynbundið ofbeldi gegn konum mun ekki eiga sín endamörk.

Ekki hjá núverandi ríkisstjórn.

 

Kveðja hjá austan.


mbl.is Fimm vilja verða landlæknir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.7.): 329
  • Sl. sólarhring: 816
  • Sl. viku: 4792
  • Frá upphafi: 1457740

Annað

  • Innlit í dag: 287
  • Innlit sl. viku: 4146
  • Gestir í dag: 275
  • IP-tölur í dag: 274

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband