16.9.2010 | 14:43
Kannski, en hann fremur ekki landráð á meðan.
Það er jú brot á stjórnarskrá Íslands að afsala sjálfstæði þjóðarinnar án þess að spyrja hana álits.
Jón hélt jú að að það ætti að semja um aðild, ekki að innlima stjórnkerfið án þess að spyrja kóng eða prest.
Sem kemur aftur að áramótaskaupinu, Steingrímur gaf jú allt eftir til að fá að kalla sig ráðherra.
Jafnvel þó um Leppstjórn AGS væri að ræða, enda AGS mjög Vinstrigræn stofnun, það vita allir fátæklingar sem ekki fá vatn vegna þess að vildarvinir AGS keyptu vatnsréttindi fyrir 30 silfurpeninga.
Eða var það kannski Steingrímur sem stundaði silfurpeningaviðskipti?????
Kannski sá Jón ekki þá peninga????
Væri ekki nær fyrir Samfylkinguna að endurnýja þann silfursjóð í stað þess að vekja máls á sínum landráðum????
Það gæti jú verið að einhver sæi samhengið.
Og þá mun umræðan ekki snúast um ráðherraábyrgð heldur ákvæði almennra hegningarlaga sem banna íslenskum þegnum að vinna fyrir erlend öfl, hvort sem það eru ríkisstjórnir eða einkaaðilar, ef markmið slíkrar samvinnu er að vinna gegn sjálfstæði lands og þjóðar.
En kannski vantar í stjórnskipunina verndara stjórnarskrárinnar???
Þess vegna er maður ráðherra sem opinberlega hefur sagt ICEsave kúgun breta og ESB löglega, og mjög sanngjarna. Skiptir engu þó framkvæmdarstjórn ESB hafi lýst yfir að það sé engin ríkisábyrgð á ICEsave, ráðherra viðskipta getur samt haldið hinu gagnstæða fram.
Vegna þess að engin verndar sjálfstæði Íslands, engin verndar stjórnarskrá landsins.
Við hengjum aðeins bakara fyrir smið.
Kveðja að austan.
Spurningar um ráðherraábyrgð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.1.): 7
- Sl. sólarhring: 74
- Sl. viku: 2647
- Frá upphafi: 1412705
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 2311
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Vel mælt og í tíma töluð. Við verðum að berjast fyrir rétti okkar en endursýning á Draumalandinu í gær sínir að hlutir eru enn verrin en hvað kemur fram í myndinni.
Valdimar Samúelsson, 16.9.2010 kl. 15:15
enn djöflast sf í vg - ÞESSU FÓLKI ER EKKI SJÁLFRÁTT
Ólafur Ingi Hrólfsson, 16.9.2010 kl. 15:25
Blessaðir félagar.
Dálítið skrýtið að minnast á ráðherraábyrgð í þessu samhengi. Ég hélt að ráðherra væri bundinn af stjórnarskránni, ekki samþykktum Samfylkingarinnar.
En kannski er stjórnarskráin barn síns tíma, það var jú engin Samfylkingin til í den. Spurning um endurskoðun, en þá fyrst er fréttin rétt, það er vitnar í staðreynd, ekki bull.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 16.9.2010 kl. 18:08
Nú, hvar hefur þú verið, Ómar? Vissirðu ekki að allir landsmenn væru lögbundnir af ógeðslegri flokksskrá og ógnarstjórn fylkingar Jóhönnu??
Elle_, 16.9.2010 kl. 21:13
Ég hef verið úti að aka Elle, upp í sveit og í afdölum, frétti því lítið. En heyrði samt af því að nýr svikasamningur sé í burðaliðnum.
Og er því að stilla framhlaðninginn.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 17.9.2010 kl. 08:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.