19.1.2010 | 08:42
Steingrímur grætur örlög húsbónda síns.
Húsbóndi Steingríms fær ekki sjálftöku í skattgreiðslum íslenska ríkisins.
Lögfróðir menn í útlöndum koma fram í þarlendum fjölmiðlum og fullyrða að húsbóndi Steingríms beiti ólöglegri kúgun til að knýja fram þjófnað á eigum smáþjóðar út í ballarhafi.
Og vegna þess að hinir lögfróðu eru í útlöndum, og segja frá skoðunum sínum í útlenskum fjölmiðlum, sem eru ekki í eigu íslensku auðmannanna eins og DV og Fréttablaðið, eða vinna fyrir hennar hátign bretadrottningu eins og sú stofnun sem einu sinni hét íslenska ríkisútvarpið, þá getur Steingrímur ekki látið þagga niður skoðanir þeirra eins og tókst með skoðanir löglærða Íslendinga.
Þess vegna verður Steingrímur að tjá sig og hann segist vera ósáttur, ósáttur við að fá ekki að vera í friði með að gera þjóð sína að ölmusuþjóð í eigu erlendra fjárúlfa, breta og annarra velunnara Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
"Ég er afar ósáttur" segir Steingrímur Joð Sigfússon í viðtali við NPR
Sem aftur sparar NPR sporin, þeir þurfa ekki að tala við bresk stjórnvöld um þeirra sjónarmið, viðtalið við hinn íslenska þjón þeirra nægir svo skoðanir og sjónarmið breta í ICEsave deilunni komi skýrt fram.
Þetta kallar maður hagkvæmi.
Kveðja að austan.
NPR fjallar um Icesave-deiluna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 28.3.2011 kl. 11:05 | Facebook
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.1.): 7
- Sl. sólarhring: 74
- Sl. viku: 2647
- Frá upphafi: 1412705
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 2311
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.