Fjallkonan syrgir þennan dag.

Þessir menn hafa ekkert vald til að selja þjóð sína.

Fyrst þurfa þeir að spyrja þjóð sína hvort hún vilji breyta stjórnarskrá Íslands.

Vill fólk fórna öryrkjum og öldruðum á altari hálauna lögfræðinga og viðskiptafræðinga.

Í aðdraganda hrunsins,  þá voru launakjör þessara stétta í samræmi við kjör kollega út í hinum stóra heimi.

Slíkt hafði aldrei gerst í 1100 ára sögu þjóðar vorar.

Núna hafa svikarirnir gert bandalag við stórþjóðir Evrópu um að yfirtaka þessa litlu þjóð á hjara veraldar.

Hagfræðingar og lögfræðingar, fyrrum á mála hjá útrásarvíkingum, fara í broddi fylkingar gegn íslensku þjóðinni.

Þeim er alveg sama þó fólk líði hörmungar og börn falli fyrir djöfli eiturlyfja.  Sá sem græðir á hörmungunum er sá sem biður um hollustu landráðastéttanna.

Alþingi þáði mútur og taldi sig vera undirdeild í breska þinginu.

En þeir sem munu þjást, eru þeir sem trúðu á mátt félagshyggjunnar.  En hún brást þeim.  Þrælahlekkir auðmanna var hennar svar.

Og núna hlæja útrásarvíkingarnir.  Já, og líka er glatt í hjalla hjá okkar ágætu vitgrönnu fjölmiðlamönnum.

Vonandi finna þeir húsbændur  sem kjósa fífl sem starfskraft.

Svikin í ICEsave voru ekki möguleg án stuðnings þessa vitgranna fólks.

Vonandi mun guð blessa þau, því ekki munu aðrir gera það.

Smán þeirra er mikil.

Kveðja að austan.

 


mbl.is Icesave afgreitt úr nefnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 1318297

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband