Rödd skynseminnar.

 

Er orðræða Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra.

"Um­hverfi bank­anna verði að vera þannig að ekki verði tekn­ar af­drifa­rík­ar ákv­arðanir á meðan það versta geng­ur yfir. „Að það sé gengið að veðum vegna þess að menn séu í van­skil­um og svo fram­veg­is. Nei, við þurf­um að skapa al­veg nýtt svig­rúm fyr­ir bank­ana til að bregðast við þess­ari stöðu og skapa réttu hvat­ana. Þannig held ég að við björg­um flest­um störf­um og höld­um starf­semi gang­andi,“ sagði Bjarni. Mik­il­vægt sé að gera meira held­ur en minna og tak­ast á við af­leiðing­arn­ar þegar far­ald­ur­inn er yf­ir­staðinn. ".

Það er eins og blessað barnalánið hafi horfið á einni nóttu.

 

Að maðurinn sem sætti sig við börn í ráðherraliði sínu, sem samþykkti markaðsvæðingu orkuauðlinda okkar undir styrkri stjórn skrifræðisins i Brussel, að hann sé það sem hann á að vera.

Leiðtogi.

Að loksins hafi maður risið upp yfir börnin.

 

Það kemur í ljós.

Allavega er þetta í fyrsta skipti sem ráðherra tjáir sig um alvarleika mála, og um það sem þarf að gera, og færir skynsemisrök fyrir máli sínu.

Og hann virkar ekki eins og fífl, eða einhver sem hefur ekki þroska til að takast á við ábyrgð embættis síns.

Það er eins og Bjarni sé kominn heim.

 

Prófsteinninn er samt eftir.

Frysting verðtryggingarinnar og lögreglurannsókn á þeim sem nýttu sér löggjöf Evrópusambandsins um innflutning á sýklum sem ógna bæði lýðheilsu fólks, og heilbrigði búfjárstofna.

Skynlausar skepnur eiga ekki að ganga lausar, og reglugerð Evrópusambandsins er engin réttlæting fyrir glæpi þeirra.

Sem gerast ekki alvarlegri, ekki nema þeir játa að hafa vísvitandi dreift kórónuveirusmiti um samfélagið.

 

Frysting verðtryggingarinnar er síðan svo augljóst að ef fjármálaráðherra dregur lappir þar um, þá er eitt ljóst.

Að tilvitnuð skynsemisorð hér að ofan, eru ekki hans.

Heldur ráðgjafa eða almannatengla sem forrita orð ráðherrans.

 

Sem ég trúi ekki.

Það er tíðinda að vænta úr stjórnarráðinu.

Það á að gera það sem þarf að gera.

 

Slíkur er máttur veirunnar.

Hún bjó til fólk úr börnum.

 

Og það er þakkarvert.

Kveðja að austan.


mbl.is Ekki verði gengið að veðum í ástandinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 7
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 1319878

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband