Styrmir er ekki hver sem er.

 

Hann er skarpasti pólitíski penni sinnar kynslóðar, dyggur sjálfstæðismaður, flokksmaður, og Íslendingur. 

Hann einn getur svarað hvað að þessu kemur fyrst og sjálfsagt talið upp mikið fleira, en þó hann teldi upp þúsund atriði um sjálfan sig, þá yrði hvergi minnst á Miðflokkinn, Steve Bannon, þjóðernisöfgar eða annað sem klínt er á það fólk sem vill halda í fullveldi þjóðarinnar.

Að hún setji regluverk um nýtingu auðlinda sinna, og hún hafi full yfirráð yfir þeim.

 

Og þegar maður eins og Styrmir Gunnarsson segir að þingmenn séu að bregðast þjóð sinni, þá hundsa menn ekki þau orð.

Hvað þá að láta fréttaflutning af andstöðu þjóðarinnar snúast um lengd þingfunda eða veltast um spurninguna hvenær málþófi Miðflokksins fari að ljúka.  Í stað þess að spyrja þingmenn af hverju fleiri aðstoði ekki Miðflokkinn í landvörn sinni.

Að ekki sé minnst á skoffínsumræðuna þegar fólkið sem setti okkur á hausinn, hljóp frá skuldum sínum en ekki eignum, seldi okkur bretum í ICEsave, skuli komast upp með tengja sjálfstæðisbaráttu við hægri öfga og Steve Bannon sem tók víst við að Grýlu að vera alltaf á rólinu.

 

"Þingmenn eru að bregðast" segir Styrmir.

Og það er líka hægt að fullyrða að fjölmiðlar hafa brugðist í þessu máli.

Af hverju er Bændablaðið, eins ágætt og það er, eini fjölmiðillinn sem sagt efnislega frá innihaldi 4. og 5. orkupakkans;

" Í skýrslunni segir að orkupakki 4 sé „staðfesting á yfirþjóðlegum þætti orkustofnunar ACER.“ Mun framkvæmdastjórnin fylgja eftir áætlunum aðildarlanda þess samnings um frekari virkjanir, orkunýtni og umskipti til nýtingar á endurnýjanlegum orkulindum. Markmið ACER er að tryggja heildarnettengingu milli landanna sem aðild eiga að sameiginlega orkuneti ESB í gegnum þessa samninga.

Þessi óhefta tenging yfir landamæri kemur líka fram í skýrslum ENTSO-E [European Network of Transmission System Oper ators for Electricity] og í skýrslum EnR, [European Energy Network]. ACER tryggi óheft flæði ódýrrar raforku til landa með dýra orku ACER er ætlað að tryggja frjálst flæði orku frá svæðum með lágt raforkuverð yfir á svæði með hátt raforkuverð. Niðurstaðan verður samhæfður evrópskur raforkumarkaður, með enn hærra verði en verið hefur í Noregi".

 

Skyldi þeir þingmenn sem eru að bregðast þjóðinni með því að færa yfirráðin á orkuauðlindum þjóðarinnar til Brussel vita hvaða regluverk þeir eru að kalla yfir þjóðina??

 

Og af hverju fjalla fjölmiðlar ekki um þá staðreynd að lagning sæstrengs þarf ekki að vera á forræði einstakra ríkja, það dugar til dæmis að leyfi sé veitt í Noregi um að leggja sæstreng til Íslands, og þá virkjast sjálfkrafa regluverk þriðja orkupakkans um yfirþjóðlegt vald ACER og samkvæmt regluverkinu má ekki leggja steina í götu hinnar óheftu tengingu yfir landamæri.

Og hvaða hald er þá í lögum sem banna lagningu sæstrengs nema að Alþingi samþykki, þegar Alþingi hefur samþykkt regluverk sem bannar slíkt bann.

Og regluverkið er þannig að íslenskir dómsstólar munu ekki skera úr um ágreininginn, heldur dómstólar Evrópusambandsins.

 

Fyrst að þingmennirnir sem brugðust hafa ekki samband við helstu sérfræðinga álfunnar í Evrópurétti, og spyrja þá um hver lagastaða Íslands yrði ef til þessa kæmi, af hverju gera íslenskir fjölmiðlar það ekki.

Hefur ríkisútvarpið ekki sent menn út af minna tilefni??

Eða Bogi fengið menn í góð viðtöl til að fræða og upplýsa?

 

Það þarf nefnilega marga til að svíkja heila þjóð og ná undan henni auðlindum sínum.

Því það er svo umfangsmikið verk.

Þingmenn gætu ekki spilað sig aula nema með í gildi væri óskráð samkomulag um að fjölmiðlar létu þá komast upp með slíkt.  Reyndar hugsanlegur möguleiki að það sé skráð, en annars augljóst að fáviska þeirra nýtur friðhelgi.

 

Síðan má spyrja af hverju Einar Þorsteinsson fær ekki að tala aftur við Stefán Má Stefánsson í Kastljósi, og spyrja hann hvort það sé ekki fáheyrt að þó sá fyrirvari sem settur er í löggjöfina, til að koma í veg fyrir að regluverkið sem er verið að samþykkja, gildi, sé settur með þeim orðum að það sé gert til að koma til móts við gagnrýni á fyrstu málsmeðferð stjórnvalda. 

Það átti sem sagt að samþykkja orkupakka 3, án þess þó að reyna að slá þann varnagla að banna lagningu sæstrengs. 

Það er ekki nóg að ég og þú lesandi góður, segi að slíkt sé sönnun þess að ekki sé hægt að ljúga heimsku upp á ráðherra okkar og þingmenn, svo víðáttuvitlaust er þetta, heldur leggur þjóðin við hlustir þegar virtur prófessor segir að slíkt sé án fordæma, að vera á móti innihaldi tilskipunar, og innleiða hana samt án fyrirvara.

Og síðan myndi þessi sami prófessor útskýra orð sín sem höfð voru eftir honum á Mbl.is og fleiri fjölmiðlum að til þess að fyrirvari haldi, þá þurfi að ná samningum um þá fyrirfram og það þyrfti að liggja yfir efni orðalags þeirra, því það væri mjög flókið að semja lagatexta sem héldi.

 

Getur skýring þess að Einar fær ekki að taka annað viðtal við Stefán Má, sé sú að það fyrsta átti aldrei að fara í loftið, því eftir það viðtal voru stjórnvöld skilin eftir berrössuð út í garranum í málflutningi sínum.

Og slíkt megi ekki gerast aftur.

Einar því múlbundinn og málefnaleg umræða kæfð.

 

Það eru nefnilega margir að bregðast.

Það er heil kynslóð barna að bregðast og best að láta Styrmi hafa lokaorð þar um;

"„Nú ætla full­trú­ar nýrra kyn­slóða Íslend­inga að opna þess­um sömu ný­lendu­veld­um leið inn í aðra auðlind okk­ar, orku fall­vatn­anna. Þeir eru að opna dyrn­ar fyr­ir þau til þess að gera Ísland að forðabúri Evr­ópu í orku­mál­um á kostnað Íslend­inga sjálfra,“ sagði hann. „Það er eng­inn mun­ur á því að af­henda Brus­sel yf­ir­ráð yfir fiski­miðunum við Ísland sem mundi ger­ast með aðild að Evr­ópu­sam­band­inu og því að fella orku fall­vatn­anna á Íslandi inn í reglu­verk Evr­ópu­sam­bands­ins um orku­mál,“ sagði Styrm­ir.".

 

Það var til lítils barist ef kalkúnn í búri telst vitsmunalegt viðmið barnanna sem hafa erft landið.

 

Og því miður Styrmir Gunnarsson, það er ekki nóg að landsfundur Sjálfstæðisflokksins samþykki ályktun gegn lagningu sæstrengs.

Ekki vegna þess að sporin hræða, það má vel vera einn daginn virði unga fólkið ályktanir síns eigin flokks, en regluverkinu er bara alveg sama hvað Sjálfstæðisflokkurinn ályktar. 

Því ályktanir Sjálfstæðisflokksins eru ekki felldar inní regluverkið, ekki frekar en einhliða fyrirvarir Alþingis Íslendinga.

Regluverk sem bannar höft á flæði orku yfir landamæri, bannar bann.

 

Þess vegna bannar þú regluverkið, ekki sæstrenginn.

Það er eina sem dugar.

Kveðja að austan.

 


mbl.is Þingmenn að „bregðast þjóð sinni“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Styrmir er sjálfstæðismaður.

Þingmenn flokksins eru það hins vegar ekki.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 25.5.2019 kl. 22:39

2 identicon

Og þar er reginmunur á.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 25.5.2019 kl. 22:57

3 Smámynd: Ómar Geirsson

Ja Símon Pétur, var ekki fullt út á dyr í 90 ára afmælisfagnaðinum og allir legeglad?

Er Styrmir ekki frekar rebel í dag?

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 26.5.2019 kl. 10:03

4 Smámynd: Óskar Kristinsson

Blessaður Ómar!!!

Þettað er allt eins og í fáránleikaleikhúsi, að segja þjóðinni að það þurfi ekki að koma neinn sæstrengur þó að samþikktur sé pakkinn.

Auðvitað falla allar GRíMUR þegar búið er að samþykkja pakkann.

Þá fellur af LANDSÖLUFóLKINU lekandaslepjan.

Kv af Suðurlandi

Óskar Kristinsson, 26.5.2019 kl. 11:22

5 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Óskar.

Ég fékk athugasemd frá Eggerti Guðmundssyni sem mér fannst fanga vel  andrúmsloft gærdagsins, set það inn hér því það á jafnmikið erindi við þennan pistil eins og þann um táknrænu myndina.

"Það er spilað og dansað í Valhöll á 90 ára afmæli sjálfstæðisflokksins á meðan Miðflokksmenn berjast fyrir sjálfstæði íslendinga í raforkumálum.

Þetta minnir á söguna þegar Neró spilaði á fiðlu sína á meðan Róm var að brenna.".

Allir vita örlög hans, fólk fékk nóg.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 26.5.2019 kl. 12:44

6 Smámynd: Júlíus Valsson

Styrmir er einn af fáum fullveldissinnum landsins. Það er undarlegur haugur hve margir eru reiðubúnir til að afhenda útlendingum yfirráð yfir raforkunni okkar, sem enn er að mesu í þjóðareigu. Til hvers?

Júlíus Valsson, 26.5.2019 kl. 13:02

7 Smámynd: Ómar Geirsson

Takk fyrir innlitið Júlíus, tekur undir þetta með Styrmi, nema að ég tel hann einn af mörgum, þó margir í hans flokki gangi hljóðlega með veggjum.

En einn gerir það ekki og þegar ég las þennan texta í Reykjavíkurbréfi Davíðs, þá datt mér í hug að tilefnið væri annað en það efni sem hann var að fjalla um;

"Og á dag­inn kom að það eina sem gerst hafði var að ofið hafði verið inn í og utan um það sem fyr­ir var hald­lausri froðu og flúri í formi setn­inga sem bundu eng­an en virt­ust horfa til óskalista hinna ýmsu þing­manna­hópa.

Var látið að því liggja að þetta flúr gæti hugs­an­lega breyst í eitt­hvert til­brigði við raun­veru­leik­ann ef meiri­hluti þings­ins feng­ist nú til að samþykkja gömlu, góðu til­lög­una frá frú May, sem væri jú eina til­lag­an, sú besta...".

Betri lýsing á hinum meinta fyrirvara sem formaður utanríkismálanefndar sagði að hefði verið settur inní þingsályktunartillöguna til að koma til móts við gagnrýnisraddir hef ég sjaldan lesið.

Froða og flúr, það meir að segja stuðlar.

Kveðja að austan.

 

 

 

Ómar Geirsson, 26.5.2019 kl. 13:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 17
  • Sl. sólarhring: 532
  • Sl. viku: 722
  • Frá upphafi: 1320569

Annað

  • Innlit í dag: 15
  • Innlit sl. viku: 631
  • Gestir í dag: 15
  • IP-tölur í dag: 15

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband