Maður líttu þér nær.

 

Það var á vissan hátt spúkí að sjá hvernig athyglisþörf Guðlaugs Þórs birtist í gær þegar hann hringdi í blaðamann Mbl.is og tjáði honum harmþrungnum rómi að Íslendingar liðu ekki framferði stjórnvalda í Venesúela.

Ein og og það væri bráðafrétt eða yfir höfuð það skipti einhverju máli hvað Guðlaugi fyndist um það sorgarmál allt saman þó hann talaði fyrir munn íslensku þjóðarinnar.

Þó var sú frétt aðeins minna spúkí en hliðarfréttin sem upplýsti að ESB vildi að það yrði kosið tafarlaust í sama landi.

 

Ég meina Evrópusambandið af öllu kverúlöntum þessa heims.

Væri því til dæmis ekki nær að virða Brexit vilja bresku þjóðarinnar í stað þess að haga sér eins og naut í flagi í þeim eina tilgangi að hræða Breta til að kjósa upp á nýtt.

Það eru aðeins tvær skýringar á því að það er ekki óeirðarlögregla núna að berja á Bretum í Lundúnum.  Sú fyrri er að ESB flotinn kemst ekki yfir Ermasund, þó Bretar eigi ekki nema á annan tug lítilla skipa, þá á ESB flotinn víst ekkert.  Sú seinni er að ESB á ekki óeirðarlögreglu, og Frakkar geta ekki lánað því sína, hún er upptekin.

En þegar kosið var í Katalóníu, og fólkið vildi burt, þá mætti spænska óeirðalögreglan, enda ekki yfir sjó að fara, og barði mann og annan.  Síðan voru þeir sem voguðu sér að láta kjósa, fangelsaðir.

Það þarf ekki að taka fram að þá kom engin svona fréttatilkynning frá Brussel.

 

Guðlaugur hefur líklegast séð í gærkveldi hvað hann var broslegur, hefur líklegast lesið brandarann frá Brussel, og í miðju hláturkastinu áttað sig á að kannski væru einhverjir þarna úti að hlæja að hans eigin athyglisþörf.

Og ekki gat hann dregið athyglina frá sér með því að kasta skít í Klaustursmálinu, hann er einfaldlega of vel upp alinn til þess.

Svo eina sem eftir var var að gera þarft ærlegt verk.

 

Aftur var hringt í blaðamann Morgunblaðsins, og núna flýtitilkynnt að íslenska utanríkisráðuneytið ætli að beita sér gegn hyskinu sem núna stjórnar Ankara, í krafti atkvæða fáfróðs sveitalýðs sem heldur ennþá að það séu miðaldir.  Og að öll nútímatæknin sem það notar eins og farsímar og sprengjuvörpur, séu gjöf frá Alla, en ekki afleiðing af þróun tímans frá miðöldum til nútíma.

Harmleikurinn í Venesúela er vissulega alvarlegur, en hann er afleiðing því að landið féll í hendurnar á lýðskrumurum sem sögðu það sem segja þurfti til að fátækt fólk kysi það (Trump var ekki sá fyrsti í Ameríku sem beitti þeirri tækni) og hafa síðan notað tímann vel til að rýja landið og landsmenn inn að skinni.  Og lausnin þar eins og allstaðar annars staðar þar sem glæpamenn hafa hreiðrað um sig, það þarf að senda lögregluna á vettvang.

 

Tyrkir hins vegar kusu yfir sig íslamska öfgamenn sem hafa smán saman hert svo tökin á landinu að í dag er öll andstaða þar annað hvort í fangelsi eða flúin úr landi.

Herinn fer svo með báli og brandi um héruð Kúrda, morð og nauðganir eru þar daglegt brauð.

Og ekki hvað síst og verst, þá hefur hyskið í Ankara í nánu bandalagi við ennþá verra hyski í Ryiadh flutt út hina múslímska óöld til Sýrlands svo milljónir hafa lagst á flótta, að ekki sé minnst á öll drápin, nauðganirnar og annað sem verkfæri þeirra bera ábyrgð á.

 

Og Tyrkland er í Nató.

Í sömu heimsálfu eða því sem næst.

Og ekkert er sagt, ekkert er ályktað.

 

Látið eins og það sé eðlilegasti hlutur í heimi að miðalda hyski herji á sína eigin þjóð, á nágrannaþjóðir sínar, og sé hinn undirliggjandi þráður sem tengist hryðjuverkum íslamista um allan heim.

Vissulega eru nánustu bandamenn Trump forseta og peningaklíkunnar í kringum hann, Saudar þar megin fjáruppsprettan, en samt, þetta eru allt angar af sama meiði.

 

Guðlaugur Þór á hreint út sagt heiður skilið fyrir þessa fréttatilkynningu sína.

Hún er þörf, hún er tímabær.

Og hún sýnir að það eru fleiri í íslenskum stjórnmálum en skríll sem gjammar á torgum.

 

Þetta er vonandi upphaf af sjálfstæðri utanríkisstefnu í anda Jóns Baldvins.

Þar sem eitthvað er sagt sem skiptir máli.

Þar sem er kjarkur til að segja það sem þarf að segja.

 

Hélt ég myndi aldrei segja þetta;

En áfram Guðlaugur.

Kveðja að austan.


mbl.is Óska upplýsinga um dómara í fangelsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Már Elíson

Góður, greinagóður pistill hjá þér. (5 læk)

Már Elíson, 27.1.2019 kl. 12:06

2 identicon

Eigi skulum við hrópa húrra fyrir Gulla

fyrr en hann rífur sig frá ESB hyggjunni

og sendir Katalónum

sjálfstæðis stuðningsyfirlýsingu.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 27.1.2019 kl. 13:27

3 identicon

Já, megi hann líta sér nær.

Snilldarpistill Ómar.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 27.1.2019 kl. 13:34

4 identicon

Hárrétt greining hjá þér Ómar

Minnir mig óneitanlega á Þegar Regan rómaði freedom fighters in Nicarigua sem kom svo í ljós að voru amerískt launaðir málaliðar og svo þennan siðfræðing í Silfrinu sem bannaði fólki að hafa aðra skoðun en þá sem HANN legði blessun sína yfir 

Grímur (IP-tala skráð) 27.1.2019 kl. 18:38

5 Smámynd: Ómar Geirsson

Takk fyrir innlitið félagar.

Símon, Katalónar geta bara fengið sér ommilettu og haldið áfram að rífast við Madridarvaldið, en tyrknesk stjórnvöld eru glæpur gegn mannkyninu.

Og það er gott að Gulli sé farinn að ibba gogg við þau óbermi.

Áfram Gulli.

Kveðja að austan.

 

 

 

Ómar Geirsson, 28.1.2019 kl. 11:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 159
  • Sl. sólarhring: 295
  • Sl. viku: 864
  • Frá upphafi: 1320711

Annað

  • Innlit í dag: 126
  • Innlit sl. viku: 742
  • Gestir í dag: 107
  • IP-tölur í dag: 103

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband