Fúll á móti.

 

Fékk fréttamann á Ruv í lið sér til að ráðast á og gera lítið úr ungri konu sem hafði það eitt sér til sakar unnið að vilja náunganum vel.

Ótrúlegt að horfa uppá þetta sjónarspil grimmdar og sjálfsupphafningu, eitthvað sem virðist vera orðið meginstef í umfjöllun þessarar ágætu stofnunar um menn og málefni.

Ennþá ótrúlegra að hvorki fúll á móti eða fréttamaðurinn skyldu ekki skynja þetta kraftaverk lífsins, sem er kjarkurinn að þora stíga fram og segja frá reynslu sinni, og hugmyndum, sem sannarlega hafa hjálpað, sem og að fólk í þessum þungu sporum skuli finna hjá sér kraftinn að mæta.

Og það margir að heil höll er fyllt, af von, trú og fólki.

 

Fúll á móti ætti kannski að leita sér sálfræðiaðstoðar, fá hjálp við að finna gleðina og víðsýni á ný. 

Hæg eru jú heimatökin.

 

Vegna þess að þá hefði fúll á móti kannski ekki verið svona fúll, heldur jákvæður og séð þarna tækifæri til að ná til fjölda fólks með til dæmis kynningu á því sem fagfólk getur sannarlega gert.

Þetta er jú alvarlegasta heilbrigðisvandamál þjóðarinnar í dag. 

Hann hefði jafnvel getað smitast svo af kraftinum að hann hefði margefldur haldið á fund ráðamanna og bent þeim á að þjónusta sérfræðinga er mörgum fjárhagslega ofviða.

Samt er verið að glíma við dauðann og hann fer ekki manngreiningarálit.

 

Það er bara við sem samfélag sem gerum það.

Teljum að lífslíkur ungmenna eigi að fara eftir fjárhagsstöðu foreldra.

Og jú, jú, ég veit það, fjármagnið þarf líka sitt og þá er kannski ekki mikið til skiptanna í annað.

 

En allavega, það er þó ung stúlka sem vill gera eitthvað.

Og mikil er skömm þeirra sem leggja steina í götu hennar.

Kveðja að austan.


mbl.is Vantaði innsýn þeirra sem hafa reynslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Rétt Ómar.  Og það er alveg undarlegt hvað

fréttastofu RÚV og ekki hvað síst Kastljósi 

er uppsigað við einyrkja og sjálfstætt fólk.

Það mætti halda að forysta án flokks,

kennd við Sjálfstæðisflokkinn

væri komin með klærnar í nefskatta RÚV,

líkt og kolafabrikku þjónkunina við Vg.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 18.1.2019 kl. 15:37

2 Smámynd: Ómar Geirsson

Allt mikið rétt Símon, en ég kannski gaf mér of góðan tíma til að koma með kjarna málsins sem er þessi orð mín;

"Hann hefði jafnvel getað smitast svo af kraftinum að hann hefði margefldur haldið á fund ráðamanna og bent þeim á að þjónusta sérfræðinga er mörgum fjárhagslega ofviða.

Samt er verið að glíma við dauðann og hann fer ekki manngreiningarálit.

 

Það er bara við sem samfélag sem gerum það.

Teljum að lífslíkur ungmenna eigi að fara eftir fjárhagsstöðu foreldra."

Sem og að fúll á móti a la hneykslað fagfólk sem óttast um spóninn á að vita að ef þessi fundur nái að koma ljósi í líf þó væri ekki nema eins ungmennis, þá er betra á stað farið, en heima setið.

Þetta er jú dauðans alvara.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 18.1.2019 kl. 22:23

3 identicon

Vel og sannlega sagt Ómar.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 18.1.2019 kl. 22:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 1318296

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband