Borgarstjóri fagnar umræðu um loftmengun.

 

Sérstaklega þegar hann gat tekið undir með kverúlöntum umræðunnar sem hafa ekkert þarfara að gera en að agnúast út í áramótasiði landsmanna.

Gat sem sagt bent á eitthvað annað en sjálfan sig.

 

Núna reynir á manninn.

Var honum alvara??

Eða tekur hann hring á umræðuna, bendir til dæmis næst á veðurfræðinga fyrir froststillur spár þeirra.

 

Það er náttúrulega margt hægt að gera og fólk greiðir skatta og skyldur til að fá þjónustu.

Ekki til að sjá útþenslu hraðari en alheimsins á innviðum stjórnkerfisins.

Hvað þá til að fá tilkynningu um enn eina nefndina.

 

Þrif draga úr skít.

Einföld sannindi.

 

Og þegar sérfræðingur bendir á þau einföldu sannindi þá ætti sá vísdómur að síast inní hið ákvörðunarfælna stjórnkerfi Reykjavíkurborgar.

Að riddarar umræðunnar taki til að þrífa, í stað þess að benda.

 

Á aðra.

Kveðja að austan.


mbl.is Götuþrif draga úr svifryki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Erla Magna Alexandersdóttir

væri ekki gott að ráða næst  borgarstjóra sem er ekki með þverhaus ? embarassed

Erla Magna Alexandersdóttir, 6.1.2018 kl. 19:20

2 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessuð Erla.

Við þverhausarnir getum alveg verið ágætir, og eiginlega veit ég ekki hvort Dagur sé þverhaus, en mikið væri það gott ef hann tjáði sig einhvern tímann út frá eigin brjósti, en ekki óttanum við að segja eitthvað sem ekki er nógu rétttrúnaðaískt.

Og væri ekki svona ákvarðanafælinn, að enga ákvörðun sé hægt að taka fyrr en eftir ótal ferli og umræður og athuganir, nefndir eða annað sem á að tryggja offramboði háskólamenntaðra skýrslugerðamanna atvinnu.

Að hann einu sinni áttaði sig bara á, að heilbrigð skynsemi dugar ágætlega við ákvörðunartöku.

En það er líkast til borin von.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 6.1.2018 kl. 22:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 122
  • Sl. sólarhring: 337
  • Sl. viku: 827
  • Frá upphafi: 1320674

Annað

  • Innlit í dag: 97
  • Innlit sl. viku: 713
  • Gestir í dag: 92
  • IP-tölur í dag: 89

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband