Fjölgun brota krefst víggirðinga.

 

Og viðurkenning þess er viðurkenning samfélagsins að þú fjárfestir ekki í frjálshyggjunni, og þeim flokkum sem hafa trúarbrögð Mammons sem sína trúarjátningu, án þess að uppskera afleiðinga gjörða þinna.

 

Í raun er þetta óttalegt væl hjá hinum opinbera starfsmanni, það er eins og hann hafi aldrei komið til Mið og Suður Ameríku, og upplifað öll þau tækifæri sem óréttur og misskipting elur af sér.

Menn eins og hann eru þar í fullu vinnu dag og nótt að tryggja öryggi hinna Örfáu sem fjármagna Sjálfstæðisflokkinn, að ekki sé minnst á bissnessinn við að reisa girðingar, og útbúa þær með öllum nýtísku öryggisráðstöfunum.

Það er eins og manninum skorti alla framtíðarsýn,.

 

Eins og blessaður yfirlögregluþjónninn sé ekki í vinnu hjá Samatökum Atvinnulífsins, sem réttilega benda á að hinir ríku, hvað þá hinir Ofurríku , borgi of mikið í skatt.

En glaðir greiði margfalda þá upphæð í varnir og vígi.

 

Algjör skortur á framtíðarsýn sem hrjáir lögregluna.

En verður bætt úr öllum kröfum Evrópusambandsins, OECD, Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, eða hvað þær heita allar hinu hagfræðilegu skynsemisstofnanir hins alþjóðalegs fjármagns.

Sem í gjafmildi sinni hafa endalaust upphafið hagvöxt skúffanna í alþjóðlegum skattaskjólum.

Og til að vernda þann hagvöxt, þarf að fjárfesta í vörnum, víggirðingum, sem og reyndar öllu bullukollaliðinu sem dásamar þesa sjálftöku hinna Öfurríku.

 

Valhöll þarf að bregðast við.

Óupplýst fólk í kenningum Friedmans og Hayeks veður uppi, og Hannes hefur ekki undan að fræða og tukta þá sem í háskólann fara.

Sem reyndar er vandamál við lögregluna, hún útskrifar fólk án þess að það hafi hlustað á Hannes.

 

Sem bendir til þess að við vælnum og skælnum er aðeins eitt svar, og það er ekki metoo, heldur skortur á háskólamenntun lögreglumanna.

Vel menntaður lögreglumaður hefði aldrei látið svona vitleysu út úr sér.

Hann hefði bent á að fleiri skýrslur þurfi að semja, og þeir sem efni hafi á öryggi, þeir eigi að fjárfesta í því öryggi.

Fengið síðan stöðuhækkun, og seinna meir góða vinnu í einkabransanum.

 

Vel lesinn.

Víðsýnn.

 

Og tryði á hagvöxt öryggisleysisins.

Kveðja að austan.

 

 

 

 

 

 

 

 


mbl.is Fjölgun brota krefst aukins mannskaps
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 74
  • Sl. sólarhring: 162
  • Sl. viku: 1633
  • Frá upphafi: 1321525

Annað

  • Innlit í dag: 63
  • Innlit sl. viku: 1391
  • Gestir í dag: 56
  • IP-tölur í dag: 56

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband