ER 1. apríl???

 

Á fólk að trúa því að til sé fólk í VinstriGrænum sem vill ekki fórna þjóð sinni á blóðaltari viðurstyggilegs fjármagns sem eyrir ekki samfélagi okkar  í neinu???

Á fólk að trúa því að eftir stanslausar níðárásir auðleppa innan VG  hafi þetta fólk gefist upp???

Á fólk að trúa því að til sé fólk með samvisku innan VG???

 

Svona mætti lengi halda áfram að spyrja???

Svarið kemur klukkan 11.30.

Kveðja að austan.


mbl.is Segja sig úr þingflokki VG
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Sæll já þetta var ég að vona því að blaðra endalaust og framkvæma ekki var þeim til vansa!

Sigurður Haraldsson, 21.3.2011 kl. 11:19

2 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Sigurður.

Það er langt síðan að mér var bent á að það væri ekki augljóst fyrir ærlegu deildina að yfirgefa pleisið.  Þau hefðu þó þau áhrif að hindra verstu afglöpin en það hefði legið fyrir allan tímann að íhaldið væri reiðubúið í stjórn með Samfylkingunni ef VG gæfist upp.

Enda eini raunverulegi ágreiningurinn, tafirnar í stóriðjunni, og þá er ágreiningur milli Samfó og íhalds annars vegar og VG hins vegar.  

En ICEsave, samstarfið við AGS, og ESB umsóknin, hefur Sjálfstæðisflokkurinn í raun haft sömu stefnu og ríkisstjórnin.  Skattavælið er dæmigert stjórnarandstöðu væl, gert til að slá prik.  Það hvarflaði ekki að sjálfstæðismönnum, á meðan þeir voru í stjórn, að leggja til skattlagningu séreignar, þeir töluðu reyndar gegn þeirri hugmynd.

Skýring, ekki af því að pabbi segir það, heldur AGS.

Núverandi ríkisstjórn, er ríkisstjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, og Íslendingar eru ekki reiðubúnir í uppgjör við þá stjórnmálaflokka sem vilja þá helreið.  Þess vegna hafa Lilja og Atli svo lítið geta gert.

Þess vegna verður fróðlegt að sjá hvað nýju vígstöðu þau hafa fundið.  Vonandi er hún upphafið af endir ógnarstjórnar AGS.  Og upphaf uppgjörs við alræðisvald auðmanna yfir fjölmiðlum, háskólanum, stjórnmálamönnunum.

Að þjóðin segi Nei við auðræði, en já við lýðræði.

Og hefji uppbyggingu hins Nýja Íslands.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 21.3.2011 kl. 11:47

3 identicon

Þetta er mitt fólk sem ég mun kjósa í næstu kosningum. Íslenskir vinstrimenn láta aldrei framar hafa sig að fífli með því að kjósa Lýsingar- og Baugsflokk laumukapítalista á vegum stórfyrirtækja! Hugsjónamenn í stað hræsnara! Hetjur í stað svikara! Lilju í stað Steingríms!

Kalli Jóns (IP-tala skráð) 21.3.2011 kl. 11:52

4 Smámynd: Ómar Geirsson

Þú ætlar greinilega að kjósa með þjóðinni Kalli.

Lýst vel á það.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 21.3.2011 kl. 12:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 67
  • Sl. viku: 1524
  • Frá upphafi: 1321532

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 1299
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband