ICEsave er algjörlega klúður Evrópusambandsins.

 

Það var Evrópusambandið sem setti tilskipunina um innstæðutryggingar.  Í þeirri tilskipun var ekki gert ráð fyrir meiri háttar hamförum á fjármálamarkaði.  En þó sleginn sá varnagli að aðildarríki væru ekki í ábyrgð ef þau hefðu innleitt tilskipunina á fullnægjandi hátt.

Það var Evrópusambandið sem setti lög og reglugerðir sem leyfðu fjármálafyrirtækjum að starfa óháð landamærum, á hinum svokallaða innri markaði, og í þeim lögum og reglugerðum var girt fyrir geðþóttaákvarðanir einstakra aðildarríkja til að hindra slíkt, hvort sem það var af hálfu gistiríkis, eða heimaríkis.

Það var því hvorki hægt að hindra starfsemi íslensku bankanna erlendis og það varð að setja lög um að þeir borguðu í innlendan tryggingasjóð.

Í því liggur meinið, bankakerfi smáríkja gat orðið það stórt að þau gátu ekki bakkað þau upp ef hamfarir eins og riðu yfir fjármálakerfi hins vestræna heims á haustmánuðum 2008.

Aðeins tilviljun réði því að Íslendingar lentu í þessari stöðu, allar smærri þjóðir hins evrópska efnahagssvæðis gátu lent í sömu stöðu.

 

Í þessu er vandinn fólginn, en klúðrið liggur í viðbrögðum Evrópusambandsins.  Í panikinu sem ríkti á haustmánuðum 2008 þá kannaðist það ekki við sín eigin reglugerðarmistök, og í stað þess að kljást við ICEsave á sameiginlegum grunni, þannig að allir tryggingarsjóðir evrópska efnahagssvæðisins hefðu tekist á við tjónið út frá hlutfallslegri stærð, þá var ákveðið að túlka ríkisábyrgð út úr tilskipuninni um tryggingasjóði og klína vandanum á íslenska þjóð.

Lausn sem hefði gengið í lögleysu einræðisríkja, en gengur ekki upp hjá lýðræðisþjóðum, því hvorki er hægt að breyta lögum eftir á, og túlka það út úr þeim sem aldrei stóð í þeim, né heldur að gera þegna sjálfstæðra þjóðar að skuldaþrælum með tilvísun í yfirþjóðlega reglugerð.  Slíkt stangast á við grundvallarmannréttindi sem tryggð eru í alþjóðalögum og reglum.

 

Þetta klúður er smán saman að renna upp fyrir framkvæmdarstjórn ESB.  Hún gerir sér grein fyrir hún er með tapað mál í höndunum og smátt og smátt er reynt að vinda ofan af því.  Það er engin tilviljun að í svari til norsku fréttaveitunnar ABC er staðfest að tilskipun ESB um innlánstryggingar feli ekki í sér ríkisábyrgð.  Það er ekki reynt að ljúga því sem ekki er til staðar og stendur skýrt að ekki sé.

Aðeins er reynt að ljúga að íslensk stjórnvöld hafi ekki innleitt tilskipun ESB á réttan hátt og séu því í ábyrgð fyrir innstæður.  Þetta er lygi vegna þess að rökstuðningurinn er lygi.

Fullyrt er að íslenski tryggingasjóðurinn hafi ekki verið í samræmi við stærð og áhættu bankakerfisins.  Það er vissulega réttmæt skoðun en gallinn er sá að íslenski tryggingasjóðurinn var nákvæmlega í samræmi við tilskipunina, það var tilskipunin sem gerði ekki ráð fyrir stærð eða áhættu bankakerfis.  

Það voru engin ákvæði í tilskipuninni sem íslensk stjórnvöld slepptu að uppfylla, framkvæmdastjórn ESB getur ekki vitnað í eina einustu setningu í tilskipun sinni sem tókst á við þessa áhættu og íslensk stjórnvöld brugðust að uppfylla.

 

Og gallinn við lygi er sá, að lygarinn festist alltaf meir og meir í lygavef sínum.  Þegar íslensk stjórnvöld benda á að þau hafi talið sig vera í góðri trú því engar athugasemdir hafi borist við íslensku lögin þá fellur framkvæmdastjórnin í þá gryfju að bulla eins og hún þekki ekki samninginn um Evrópska efnahagssvæðið.

Þetta er haft eftir Chantel Huges í tíufréttum Ruv þann 3. ágúst síðastliðinn.

"Chantel Huges segir að það sé ekki á verksviði Evrópusambandsins að bera fram slíkar kvartanir.  Það eigi Eftirlitsstofnun EFTA að gera." 

Það sem blessuð manneskjan hugsar ekki í útí er að það er til lítils að gera samning um skyldur og ábyrgð ef sá sem þarf að uppfylla skyldurnar, sjái alfarið um að túlka framkvæmd sína.  Vissulega segir í 5 gr um ESA, Eftirlitsstofnunar EFTA að stofnunin "eigi að tryggja að EFTA ríkin standi við skuldbindingar sínar samkvæmt EES samningnum" en hvað ef ESA væri alltaf ánægð þó EFTA ríkin gerðu ekkert nema það sem þeim þóknaðist, hvað þá?

Hefði ESB þá ekkert um málið að segja???

Og á því tekur 109 gr EES samningsins, þar skýrt tekið fram um sameiginlega ábyrgð og samvinnu framkvæmdarstjórnar ESB og ESA á eftirliti gagnvart framkvæmd EES samningsins.

Orðalagið er svo skýrt að það er ekki einu sinni hægt að hártoga það.

"109. gr.

1. Annars vegar skal eftirlitsstofnun EFTA fylgjast með efndum á skuldbindingum samkvæmt samningi þessum og hins vegar framkvæmdastjórn EB sem starfar samkvæmt stofnsáttmála Efnahagsbandalags Evrópu og samningi þessum.

2. Til að tryggja samræmt eftirlit á öllu Evrópska efnahagssvæðinu skulu eftirlitsstofnun EFTA og framkvæmdastjórn EB hafa samstarf sín í milli, skiptast á upplýsingum og ráðgast hvor við aðra um stefnu í eftirlitsmálum og einstök mál.

3. Framkvæmdastjórn EB og eftirlitsstofnun EFTA skulu taka við umkvörtunum varðandi beitingu (framkvæmd) samnings þessa. Þær skulu skiptast á upplýsingum um kvartanir sem borist hafa.

4. Hvor þessara stofnana um sig skal rannsaka allar kvartanir sem falla undir valdsvið hennar og koma kvörtunum sem falla undir valdsvið hinnar stofnunarinnar til hennar.

5. Komi upp ósamkomulag milli þessara tveggja stofnana um það til hvaða aðgerða skuli gripið í tengslum við kvörtun eða um niðurstöðu rannsóknar getur hvor þeirra sem er vísað málinu til sameiginlegu EES-nefndarinnar sem skal fjalla um það í samræmi við 111. gr. "

 

Staðreyndirnar tala alltaf sínu máli.

Það þarf annarlega hagsmuni til að snúa þeim á hvolf.

Munum það þegar við heyrum íslenska fylgismenn Evrópusambandsins fullyrða að krafa breta og Hollendinga sé réttmæt og styðjist við lög og reglur Evrópusambandsins.  

Vissulega eru það hagsmunir fjárkúgara að ljúga til um staðreyndir, en hvaða hagsmunir reka íslensku lstuðningsmenn þeirra áfram????

Við erum jú að ræða um kröfu sem er um 2/3 af þjóðarframleiðslu Íslands og mun endanlega ganga frá efnahagslegu sjálfstæði þjóðarinnar gangi hún eftir.

Hvaða hagsmuni er þetta fólk að gæta þegar það vill með lygum sínum leggja framtíð þessarar þjóðar í rúst????

 

Eru ekki til lög sem banna slíka hegðun????

Kveðja að austan.


mbl.is Icesave er skaðabótamál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar

jájá flott - ef einhver brýst inná þitt heimili og stelur frá þér þá er það bara þitt klúður.

Óskar, 5.8.2010 kl. 09:07

2 identicon

Já Óskar það er nefnilega nákvæmilega þannig. Ekki er það okkur hinum að kenna að einhver rændi húsi náungans. Ekki eigum við að borga honum upp það sem rænt var?

william (IP-tala skráð) 5.8.2010 kl. 09:20

3 identicon

Óskar, þá sækir þú innbrotsþjófana til saka, ekki þjóðina sem þeir koma frá ;)

Gaur (IP-tala skráð) 5.8.2010 kl. 10:17

4 Smámynd: Ómar Geirsson

Æ, Óskar minn, þú lætur þig seint með þennan innbrots frasa þinn.   Ég reikna með að þú sért að vísa í siðferðislega ábyrgð, en almenningur getur aldrei borið siðferðislega ábyrgð á þeim sem fara eftir lögum og reglum þess kerfis sem þeim var boðið upp á. 

Jafnvel þó afleiðingarnar hafi verið sorglegar fyrir marga.

Sannist lögbrot á einstaklinga, þá er það réttarkerfisins að takast á við það.  Ef sjálft kerfið var meingallað, þá er það vissulega á ábyrgð stjórnvalda að leiðrétta það.  En mistök í stjórnsýslu  geta aldrei lagt óbærilega byrðar á saklausan almenning í því landi þar sem mistökin voru gerð.  

Ekki allavega frá því að Rómarveldi féll.

Þessi grunnsannindi um rétt manneskjunnar hafið þið ICEsave sinnar aldrei skilið.  Þess vegna verður að benda ykkur greyjunum á að kerfisgallinn kom að utan, það var hið evrópska regluverk sem var meingallað.

Þess vegna er Evrópusambandið að breyta því.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 5.8.2010 kl. 13:59

5 Smámynd: Jón Valur Jensson

Þú stendur þig vel í baráttunni, Ómar, og bætir hér við ýmsum góðum rökstuðningi. Viltu ekki leyfa okkur að endurbirta þetta á vefsíðu Þjóðarheiðurs – samtaka gegn Icesave, svo að það geymist þar líka í gagnasafninu? – Með góðri kveðju,

Jón Valur Jensson, 5.8.2010 kl. 20:57

6 Smámynd: Ómar Geirsson

Alveg sjálfsagt Jón Valur, en lokakaflinn er aðallega local stríðni a la ég.  Á eiginlega ekki heima á öðrum síðum.

Legg til að þið styttið.

Kjarninn er að það eru engin rök á bak við fullyrðingar ESB, engin texti í lagagrein sem þeir geta vísað í.  Og aumt var yfirklórið með að skella skuldinni á ESA.

Mætti halda að þetta fólk þekkti ekki samninginn um EES, þó það sé alltaf að fullyrða að Íslandi standi ekki við skuldbindingar sínar samkvæmt honum.

Og á það benti ég í þessum pistli.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 5.8.2010 kl. 22:08

7 Smámynd: Jón Valur Jensson

Kærar þakkir, Ómar.

Ég er ekki frá því, að gagnlegt sé að hafa þessar klausur þínar með:

"Kjarninn er að það eru engin rök á bak við fullyrðingar ESB, engin texti í lagagrein sem þeir geta vísað í. Og aumt var yfirklórið með að skella skuldinni á ESA.

Mætti halda að þetta fólk þekkti ekki samninginn um EES, þó það sé alltaf að fullyrða að Íslandi standi ekki við skuldbindingar sínar samkvæmt honum."

Jón Valur Jensson, 5.8.2010 kl. 22:47

8 Smámynd: Elle_

Stórkostlegur pistill, Ómar, eins og þín er von og vísa.  Við vorum heppin að hafa þig við skriftir.

Elle_, 11.8.2010 kl. 00:38

9 Smámynd: Ómar Geirsson

Takk Elle.

Nú ert þú mætt og ég fer að skila keflinu.  Hefurðu kannski heyrt þennan áður?? 

En ég held svei mér þá að stjórnin sé búin að klúðra svo algerlega málum sínum í sumar, að hún kjósi frekar að gera ekki neitt i ICEsave, en að leggja í enn eina tapaða orrustuna.

Ekki nema þá að sú deila eigi eftir að vera útgönguleið hennar.  Stjórnarflokkarnir sprengi og noti vígstöðu sína í þeirri deilu til að skapa sér flöt í næstu kosningum.

En Völva Vikunnar heitin gæti ekki einu sinni náð réttum spádóm um næstu útspil ríkisstjórnarinnar.  Einhver random regla virðist liggja þar að baki, og jafnvel spilararnir vita ekki næsta útspil. 

Þeir vita aldrei um næstu uppljóstrun um þeirra aumingjaskap, og vanefndir.

Svona endar alltaf ferill þjóðníðinga.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 11.8.2010 kl. 08:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 27
  • Sl. viku: 1529
  • Frá upphafi: 1321537

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 1304
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband