Rök Bjarna eru rétt og sönn.

 

Samt er hann talsmaður þeirra raka að ICEsave deilan sé pólitísk.

Að það sé pólitík að neyða sjálfstæð þjóðríki að greiða öðru ríki skatta, af því bara.

Í raun nákvæmlega sömu rökin og dæmd voru ógild í Nurnberg réttarhöldunum.  Ekkert ríki getur lengur tilkynnt kröfur sínar og þvingað þær fram einhliða.  

Þeir félagar Hitler, og Miliosevic höfðu því rangt fyrir sér.

Líka Gordon Brown og Steingrímur Joð Sigfússon.

 

En ESA hefur umsagnarrétt, og ekki nema gott um það að segja.  En hvar hefur Bjarni Ben verið í eitt ár og 230 daga???

Af hverju er flokkur hans ekki fyrir löngu búinn að vísa málinu til ESA, sem síðan verður að vísa því til EFTA dómstólsins.

Trúir Bjarni ekki sínum eigin rökum???

Þó eru þau bæði sönn og rétt.  

Hvað dvelur því Orminn langa??'

Vilji Alþjóðagjaldeyrissjóðsins????

 

Er Sjálfstæðisflokkurinn ekki lengur sjálfstæður flokkur.

 

Munum að ólög gilda því aðeins ef menn leita ekki eftir rétti sínum.

ICEsave deilan væri löngu leyst ef íslenskir stjórnmálamenn væru með bein í nefinu og hefðu vísað deilunni fyrir langa löngu til ESA.  

Ábyrgðin er því þeirra.  

 

En betur er seint en aldrei.  

Bjarni Ben getur bjargað æru síns flokks, á síðustu stundu, ef hann heldur sig fast við rök réttlætis og laga, ekki pólitísk rök uppgjafar.  

Þá má fyrirgera honum margt.

Kveðja að austan.


mbl.is Álitið gegn lagahefð á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Elle_

Nei, hann getur ekki bjargað flokknum núna.  Hann kemur með rökin alltof seint.  Hann og stjórnmálamennirnir eru sekir eins og rukkararnir. 

Elle_, 26.5.2010 kl. 23:42

2 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Mér finnst að Bjarni Ben þurfi fyrst að bjarga sinni eigin æru, áður en hann er að tjá sig um svona alvarleg mál.  Hann er einn af þeim sem eiga að segja af sér, það er mín skoðun á honum...  Hann er í rauninni ómarktækur. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 27.5.2010 kl. 01:18

3 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaðar stöllur.

Það er lengi hægt að bæta fyrri misgjörðir sínar.  Og á meðan þeir sem við töldum marktæka, berjast í liði breta, og ef þeir ómarktæku mega ekki tjá sig um tilveru rétt þjóðar okkar, þá  er ljóst að varnarlið Íslands er þunnskipað.

Ef réttlætiskennd þess i neðra er misboðið, þá má hann vera í okkar liði mín vegna.  

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 27.5.2010 kl. 08:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 55
  • Frá upphafi: 1319877

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband