Segja fréttamenn Ruv af sér á morgunn.

 

Frægt er myndskeiðið af öskrandi krakka sem hrópaði fyrir utan Bessastaði; "Ólafur, hvað hefur þú gert þjóðinni".

Þetta var ekki úr farsa eftir Dario Fo, þetta var úr fréttatíma Ruv, kvöldið eftir synjun Ólafs á ICEsave ríkisábyrgðinni.

Og stúlkubarnið var fréttakona á Ruv, sem miður sín af geðshræringu eftir inntöku spunakokkteils Samfylkingarinnar, trúði því að núna myndi efnahagur landsins hrynja, landið enda í ruslflokk og allt myndi stöðvast. 

Blessað barnið trúði því að 507 milljarðar í viðbótar ríkisskuld væru forsenda uppbyggingar Íslands.

En börn eru ekki sjálfráð gerða sinna, og fréttamanni Ruv var stýrt.

Þeir sem stýrðu henni ættu að segja af sér strax á morgun.

Lygavaðall þeirra hefur endanlega verð afhjúpaður.

Þetta kallast ábyrgð.

Kveðja að austan.


mbl.is Telja líklegt að Icesave-samningar náist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Þú segir nokkuð. Auðvitað ætti þetta að vera eðlilegt framhald, en það er nú jafn erfitt að spá um slíkt og veður á Vík.  Það er allavega huggun harmi í að við erum alltaf að nálgast það betur hvar þessi 5% hans Þráins liggja.

Jón Steinar Ragnarsson, 30.3.2010 kl. 18:10

2 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Jón Steinar.

Það fer hver að verða síðastur fyrir kvikindisskapinn, svona fyrir páskahátíðina.

Fannst allt í lagi að minna á þennan flöt, því það eru jú fréttamenn sem kalla ákafast eftir afsögnum ef einhverjum verður á.  

Nú er fréttaflutningur þeirra í um 3 mánuði búinn að vera hrein lygi, ef marka má þá Standard menn, svo hver er þá ábyrgðin???????

Það erum jú við sem borgum þessu vesæla fólki laun þess.

Nógu slæmt er að vilja skuldsetja þjóðina um 507 milljarða, annað er að nota lygi og blekkingar sem rök.

En eitt af einkennum vesæls fólks, er að það kann ekki að skammast sín.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 30.3.2010 kl. 21:35

3 Smámynd: Elle_

Fréttaflutningur RUV í Icesave hefur verið hrikalegur og gjörsamlega meðvirkur Icesave-stjórninni.  Við höfum ekkert með vita ógagnrýna fréttamenn að gera.  Og svo borgum við RUV nauðungarskatt i þokkabót fyrir að koma yfir okkur kol-ólöglegum þrælasamningi.   Ómar, haltu þínu þráðbeina striki. 

Elle_, 31.3.2010 kl. 01:41

4 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessuð Elle.

Er reyndar að undirbúa breyttan kúrs, þið heiðursfólk sjáið um ICEsave slaginn.  

Ætla að tæma hugann í dag með tveimur þremur greinum um óskabarnið okkar, ICEsave, og síðan er það byltingin Elle mín, það þarf einhver að hugsa um byltinguna.  Ekki framkvæmir hún sig sjálf.

En rautt spjald á Ruv, þó fyrr hefði verið.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 31.3.2010 kl. 08:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 1318295

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband