Þegar hið augljósa er ekki sagt.

 

Og annað gefið í skyn, þá fær fólk að lesa svona frétt.

"Kynferðisbrotum í jafnréttislöndum fjölmörg", hvað sem það þýðir, er gefið í skyn að þau eigi að vera fámörg, eða ómörg, eða eins og má lesa úr fréttinni, að þeim hefur fjölgað.

Og þá spyr maður sig, hver eru þessi jafnréttislönd, og hvað í andskotanum hefur gerst í þeim??

 

Gáfnafarið þarf ekki að vera sérstakt til að skilja að það er verið að vísa í Norðurlönd, og þekking á samtímasögu er ekki einu sinni í flugulíki ef maður fattar ekki að vísað er í breytinguna einu, stórfjölgun innflytjenda.

Sem þýðir að áramótaboðskapur talskonu Stígamóta er að innflytjendur nauðga, stunda sifjaspell og annan ósóma sem kennt er við kyn.

 

Og ef þetta er ekki rasismi þá veit ég ekki hvað.

En auðvitað veit ég að spjótunum var beint af okkur holdugu miðaldra karlmönnum sem erum hvítir og uppnefndir feðraveldið, sem nauðgar, kúgar og .....  margt annað sem ótalmargir dálkasentímetrar ná ekki að þekja meintar ávirðingar.

Eins og nokkur á mínum aldri segi ekki "já elskan" til að eiga síðasta orðið.

 

Svona er Ísland í dag.

Eftir sem þú bullar meir því greiðari er aðgangurinn að fjölmiðlum góða fólksins.

Það er að segja ef bullið þjónar höggstað.

 

Þá er rasismi ekki vík milli vina.

Heldur tæki til að berja á.

Í trausti þess að hið ósagða sé ekki sagt.

 

En ekki benda á mig.

Ég sagði það ekki.

 

Hugsaði aðeins upphátt.

Kveðja að austan.

 

 

 

 


mbl.is Kynferðisbrot í jafnréttislöndum fjölmörg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ástralía brennur.

 

Og þetta er aðeins forsmekkur þess sem koma skal.

Á næsta ári á aðeins eftir að hlýna, þurrkar aukast og spurning hvort landið verði byggilegt í mestu hitum.

Svo kemur aðeins næsta ár, og næsta, og næsta.

Og sama hvað margir fara út á götu og segja að heimurinn sé ekki að hlýna af mannavöldum, þá er hann að hlýna, og það er ljóst að við erum að upplifa stigmögnun þess ástands.

 

Hvort sem Ástralía verður óbyggileg eða ekki þá er ljóst að land sem er að skrælna er ekki líklegt að dæla matvælum á heimsmarkað líkt og verið hefur.

Og ruglandinn í veðurfarinn almennt kemur niður á matvælaframleiðslu heimsins.

Aðeins eitt orð nær að lýsa ástandinu í náinni framtíð.

ÓÖRYGGI.

 

Og hver eru viðbrögð íslenskra stjórnvalda og íslensku stjórnmálastéttarinnar?

Jú, innleiða evrópska regluverkið um frjálsan innflutning á sýklum, búfjársjúkdómum og afurðum ómennskra stóriðjubúa.

Með einni öruggri afleiðingu.

Ekki óöruggri, engin óvissa í því dæmi, heldur öruggri.

 

Auðn íslensks landbúnaðar eins og við þekkjum hann í dag.

 

Svo ég spyr það bara hreint út, fyrir utan siðblinduna að ætla sér slík illvirki gagnvart náunga sínum.

Eru þetta fávitar sem stjórna landinu??

 

Svona að gefnu tilefni.

Kveðja að austan.


mbl.is „Of seint að flýja“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 30. desember 2019

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 1318295

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband