Trumpvæðing Sjálfstæðisflokksins.

 

Árásir Sjálfstæðisflokksins á sjálfstæði dómsstóla er kominn út fyrir allan þjófabálk, fer að minna á mannvitsbrekkuna sem núna stýrir Bandaríkjunum, og árásir hans á þarlenda dómsstóla.

Hvað er svona erfitt að sætta sig við það að tími flokksdómara er liðinn??

Að það spillingartæki er fyrir bí.

 

Sigríður Andersen eyðilagði trúverðugleik Landsréttar strax í upphafi þess ágæta réttar með skipan flokksdómara sinna.  Og eins og það var ekki nóg, í kjölfarið hófst hatrömm rógsherferð þar sem flokksmenn, og aðrir trúgjarnir voru mataðir á staðleysum um hæfni lögskipaðar matsnefndar til að meta umsækjendur.

Þó skal haldið til haga að það var ekki bara tíst, heldur líka skrifaðar greinar og leiðarar, sem og voru athugasemdakerfi fjölmiðla óspart notað fyrir róginn.

Byggðist á þeirri visku að mat á fólki væri mati háð, eins og höfundar rógsherferðarinnar hefðu aldrei frétt af þeirri staðreynd áður. Og því hlyti dómsmálaráðherra alveg eins getað metið hæfni. 

Sem er örugglega alveg rétt, en lögin um matsnefndina voru sett til að taka skipan dómara úr pólitísku argþrasi og flokkshygli, hugsuð til að skapa frið og sátt um þennan þriðja hornstein stjórnskipunar okkar. 

Ekki vegna þess að matsnefndin væri talin óskeikul.

 

Það mun reyna á flokksdómarana hvort þeir axli ábyrgð á forsendubrestinum við ráðningu sína, og þeir segi af sér til að skapa frið um Landsdóm.

Vonandi skynja þeir að sú krafa beinist ekkert að persónu þeirra eða faglegri hæfni, axarskaftið og spillingin var ráðherrans.

Lítilsvirðingin gagnvart faglegri hæfni matsnefndarinnar var síðan Sjálfstæðisflokksins, en þiggi þeir þessa stöðu, þá er það aðeins opinver yfirlýsing um að þeir séu sammála henni.  Og sammála um að dómararáðningar eigi um ókomna tíð vera pólitískt bitbein stjórnmálamanna.

Næstu vikur munu manninn reyna.

 

Setji síðan Alþingi dæmd embættisafglöp Sigríðar í opinbert ferli, til dæmis með skipan rannsóknarnefndar um hinar raunverulegu forsendur skipunar hennar, í útlöndum tengist svona spilling yfirleitt mútugreiðslum, vinarhygli eða ákveðnum pólitískum markmiðum.  Þá má vænta friðar um Landsrétt, og þetta verði eins og hin seinni sókn Þjóðverja í Ardennafjöllum, síðustu fjörbrot fallins veldis.

Vinnubrögð sem munu aldrei sjást aftur.

Vinnubrögð sem í raun voru síðustu ríkisstjórnar, og ættu sem slík ekki að trufla núverandi stjórn.

 

Eða allt þar til Guðlaugur ákvað að taka Trump á málið, og þóttist vita faglega betur en þrautreyndir menn í bransanum.

Hann gerði ekki ágreining við forsendur þeirra, heldur gaf það ákaflega sterklega í skyn að hæfnisnefndin væri ekki hæf, umsögn hennar hefði verið ófullkomin, og gjörið svo vel að gera betur.

Rökin; "Ég heiti Trump, og veit allt mest og best".  Eða reyndar, ég heiti Guðlaugur.  En miðað við hvað hann er illa haldinn af Trump heilkenninu, þá er stutt í að það ágæta nafn hverfi úr vitund hans. 

Svona svipað og hjá bestu Elvis hermunum.

 

Trumpvæðing Sjálfstæðisflokksins er síðan kóun flokksmanna með vitleysunni.

Svo ég vitni í Benna frænda í Morgunblaðspistli hans, þegar hann lýsti þessari Trumpvæðingu, að lýðræði væri í húfi, ef fólk þekkti ekki lengur muninn á rökum og rökleysu.

Og það er ekki rök í málinu fyrir forystu flokksins að fullt að flokksmönnum þekki ekki þann mun, allavega þegar flokksvörn er annars vegar.

 

Bjarni þarf að grípa inní, og það strax, áður en vitleysan grefur endanlega undan trúverðugleika flokksins.

Og þar með trúverðugleika ríkisstjórnar Katrínu Jakobsdóttur.

Hans síðasta tækifæri í stjórnmálum.

 

Sigríður er og verður Svarti Pétur í ríkisstjórninni, og mikið má stjórnarandstaðan vera aum ef hún krefst ekki rannsóknar á embættisfærslum hennar.  Það trúir því varla nokkur maður að afglöp hennar séu án skýringar.  Og það þarf að brjóta þá hefð að embættisafglöp dómsmálaráðherra við skipan dómara, séu aðeins spurning um skaðabætur en ekki pólitíska ábyrgð.

Axli Bjarni ekki ábyrgð á Sigríði og reki hana, þá axlar hann ekki ábyrg á hinum nýju tímum sem þjóðin öll kallar eftir, og skýrir hið mikla fylgi ríkisstjórnarinnar meðal hennar.

Og tekur hræðslu sína fram yfir langtíma hagsmuni flokksins. 

Því Sjálfstæðisflokkurinn þarf virkilega á því að halda að slíta naflastrenginn við spillingu og flokkshygli fortíðarinnar.

 

Síðan þurfa bæði Bjarni og Katrín að meta það í sameiningu hvort þau vilji hafa Trump með sér í ríkisstjórn.

Það er önnur ella, kannski erfitt að reka tvo ráðherra sömu vikuna.

 

En vitleysunni þarf að linna.

Því þetta er ríkisstjórn þjóðarinnar, ekki Sjálfstæðisflokksins.

Og reyndar ekki heldur VinstrGrænna eða Framsóknarflokksins.

 

Þjóðin ætlast til þess að menn taki heildarhagsmuni fram yfir flokkshagsmuni.

Og starfi að heilindum.

 

Það læðist nefnilega að manni sá grunur að Trumpvæðingin sé í raun aðför að Bjarna.

Að litlir kóngar sjái tækifæri við fall hans.

 

Það er illt að svo er.

Mjög illt.

Því Alþingi og stjórnmálastéttin er á síðasta séns hjá þjóðinni.

 

Enn einar kosningarnar eru svanasöngurinn.

Enn ein spillingarumræðan er svanasöngurinn.

Enn eins fábjánaumræðan er svanasöngurinn.

Í raun er allt hið gamla og ónýta svanasöngur.

 

Og þjóðin er ekki svo vitlaus að kjósa Trump ef einhver skyldi halda það.

Kveðja að austan.

 

 


mbl.is Lýtur ekki boðvaldi ráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Idjótinn!?

 

Er það sem Jakob Möller er að segja á kurteislegan hátt??

Og eru það skilaboðin sem ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttir er að senda út í samfélagið.

Að ráðherrar Sjálfstæðisflokksins séu bjánar??

 

Er ekki mál að linni.

Þarf ekki að tukta.

Tukta menn til svo þeir hætti þessari vitleysu.

 

Þetta bætir hvorki orðspor lögbrjótsins sem þurfti að víkja í þessu máli, sem og þess sem kaus að leika bjána til að ná fram einhverri eftirá réttlætingu á gjörspillingu Sjálfstæðisflokksins í Landsréttarmálinu, sem verður alltaf Flokksréttur í huga þjóðarinnar.

Nema vera kynni að hinir flokkskipuðu ættu til sóma.

Og segðu af sér.

 

Hver veit.

Kannski þekkir einhver til siðs.

Og hagar sér sem siðuð manneskja.

 

Kemur í ljós.

Sem og hvort agi sé á ríkisstjórninni.

Kveðja að austan.


mbl.is Vill að svarbréfið verði líka birt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Æsingurinn kveðinn niður í Íran.

 

Með vopnavaldi, því engin er fjármögnunin að utan sem bjó til borgarastríðið í Sýrlandi.

 

Líklegast gæfa írönsku þjóðarinnar, því jafnvel heimskasta fífl telur ekki að hin kostaða uppreisn af vestrænum þjóðum, auk stuðningsríkja íslamskra öfga, eins og Saudi Arabíu og Tyrkland, hafi gert sýrlensku þjóðinni gott.

Líklegast afneita fleiri Helförinni, líklegast dásama fleiri hrylling Stalíns, en þeir sem sjá einhverja réttlætingu í hörmungunum í Sýrlandi, sem annars vegar áttu að auka eftirspurn eftir vopnum, og hinsvegar að greiða götu Íslamista.

 

Elíta hinna Örfáu fær sitt næði til að halda áfram að mergsjúga Íran líkt og hún hefur gert um áraraðir.

Því ef eitthvað sameinar heiminn fyrir utan fótboltann, er sú leitni hinna Örfáu að fá svigrúm og frið til að ræna og rupla, jafnt lokal sem global.

 

Hinsvegar er þarft verk að spyrja, hvernig var æsingurinn á Íslandi kveðinn niður??

Var það með fjármögnun á flokknum sem kenndur er við Ótalframboð, og á núna tímabundið 4 menn á þingi??  En tryggilega hefur tryggt dreifingu atkvæða ásamt þöggun á alvöru fólki sem hafði bæði Sýn og hugmyndafræði til að takast á við gjörspillta kerfi sjálftökunnar og sérhagsmuna??

Var það með opnun pakkasendinga frá þrælabúðum kínverska kommúnistakapítalista sem og opnun Costco??

Eða voru það svikin hjá fólkinu sem kvaðst vera til vinstri, en þegar á reyndi seldi samvisku sínar og hugsjónir fyrir skammtímavöld ráðuneytanna??  Sem reyndar voru ekki meira skammtíma en það að núna leiða þau ríkisstjórn Íslands.

 

Allavega þá hvarf æsingurinn.

Og núna eru allir sáttir.

Ríkisstjórnin með 75% fylgi, og allir þjónar hrægammanna, hvað þá ensku fjárkúgarana, þurftu ekki að sæta ábyrgð gjörða sinna.

Gjöfin eina uppá sirka 550 milljarða er hornsteinn sáttarinnar, hið alþjóðlega fjármagn tapaði engu þegar upp var staðið.

Fólk rólegt og ísý.

 

Við höfum kannski nýja útflutningsafurð.

Við gætum kennt hinum Örfáu útí hinum stóra heimi, sem þurfa að feisa ólgu og upplausn, hvernig á að róa lýðinn, án þess að kastljós alheimspressunnar lendi á ofbeldi og byssuskotum.  Skotum sem drepa og deyða.

Því hver vill ekki pís men?

 

Já, okkur er ekki alls varnað.

En hinsvegar veit ég að sigurhrós fjármagnselítunnar í Íran, er aðeins lognið á storminum.

Þar er fólk sem lætur ekki kúga sig til lengdar.

Og gæfi hund og kött í hina íslensku ráðgjöf.

 

Því Rétturinn brýst alltaf fram.

Réttlætið er aldrei kæft.

 

Ekki til lengdar.

Nema náttúrulega á Íslandi, því hér gildir ekki einu sinni þyngdarlögmál Newtons.

Hér detta bara hlutir án þess að nokkur reiknijafna komi þar við sögu.

 

Þess vegna þarf ekki að kveða niður æsing.

Hann kvað sig niður sjálfur.

Kveðja að austan.


mbl.is Segir „æsinguna“ kveðna niður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 3. janúar 2018

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 1318296

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband