"Mikill sigur fyrir Trump".

 

Segir Mogginn þegar hægri öfgarnar, sem repúblikanar hafa skipað í hæstarétt Bandaríkjanna undanfarna áratugi, staðfesta ferðabann hans.

Svona svipuð frétt ef Morgunblaðið hefði slegið því upp á forsíðu, að ríkisstjórn þjóðernissósíalista hefði unnið mikinn sigur þegar meðlimir Hvítu Rósarinnar voru dæmdir til dauða á sínum tíma fyrir undirróðurstarfsemi.

Sem Mogginn gerði reyndar ekki, enda stjórnað þá af borgarlegum íhaldsmönnum, sem virtu kristileg gildi og borgaraleg lýðréttindi.

En Þjóðviljinn sló því hins vegar upp vígreifur á sínum tíma þegar Hæstiréttur Sovétríkjanna dæmdi Bukharin og félaga fyrir andbyltingarstarfsemi í Moskvuréttarhöldunum 1936-1938.

 

Eins og einhver hafi átt von á öðru í þessum þremur tilvikum.

Því galdurinn við rétta niðurstöðu, er að byrja á að skipa "sína" menn í dómarasæti, og eftir það þarf valdklíkan ekki að efast á nokkurn hátt um niðurstöðuna.

 

Sem aftur minnir á Sjálfstæðisréttinn, sem átti að heita Landsréttur fyrir nokkru.

Eða þar til að hægriöfginn nýtti sér geðþóttann til að breyta honum í flokksdómstól.

 

Aðeins þeir sem eru samdauna alræðinu, hvort sem það er fjármagns, öreiganna eða ofstopans, telja þetta frétt.

Slá þessu upp sem frétt.

 

Aðrir, þar á meðal kristilegir íhaldsmenn, borgarlegir íhaldsmenn, harma, og vara við enn einu alræðinu sem er í uppsiglingu.

Langar að vitna í einn mætan, fyrrum ritstjóra Morgunblaðsins, í föstum pistli hans síðasta laugardag;

 

"Í samfélögum sem byggjast á lýðræðislegum stjórnarháttum eru frjálsar umræður eitt af því mikilvægasta til að halda við og þróa þá stjórnarhætti. Og allar aðferðir, sem eru notaðar til að afvegaleiða slíkar umræður eru hættulegar lýðræðinu.

....  Um leið og hinn almenni borgari finnur að það er ekki allt með felldu skapast jarðvegur fyrir menn eins og Donald Trump. Ný samskiptatækni veldur því að stjórnmálamenn geta nú átt bein boðskipti við borgarana og þurfa ekki á aðstoð hefðbundinna fjölmiðla að halda til þess. Um það er að sjálfsögðu ekkert nema gott að segja en það þýðir auknar kröfur á hendur fjölmiðla um að þeir fylgi hinum kjörnu fulltrúum eftir og gangi úr skugga um að þeir fari með rétt mál.

Hin lýðræðislegu samfélög okkar tíma standa á einhvers konar krossgötum um þessar mundir. Við þurfum að finna leiðir til þess að hin nýja samskiptatækni verð til þess að efla lýðræðið og frjálsar umræður fólks en verði ekki notaðar af óprúttnum pólitískum ævintýramönnum til þess að afskræma lýðræðið.

Adolf Hitler hafði hæfileika til að ná til fólks eins og glöggt kom í ljós í Þýzkalandi á árunum fyrir heimsstyrjöldina síðari. Að hluta til gerði hann það með því að setja miklar sýningar á svið, þar sem hann lék aðalhlutverkið.

Donald Trump er búinn að vera í miklu aðalhlutverki í Washington frá því að hann flutti í Hvíta Húsið. Hann hefur náð athyglinni frá degi til dags með ótrúlegri ósvífni, sem hefur leitt til þess að hann hefur verið aðalfréttin nánast dag hvern. Til hvers getur það leitt?".

 

Þegar við bætum við alræði hugmyndafræðinnar yfir dómsstólum lýðræðisríkja, hvar enda þau?

Til hvers getur það leitt??

 

Þegar varfærnir menn, sem fullyrða frekar van, en of, og enginn getur sakað um vinstri mennsku eða lýðskrum af neinu tagi, leita að líkindum sögunnar, og benda á þær í opinberum skrifum, þá er full ástæða til að staldra við.

Líkindin milli núverandi stjórnarhátta hægri öfganna í Bandaríkjunum, og þess sem sagan þekkir, og var svo hræðilegur að hann má ekki nefna, er öllum ljós sem einhverja þekkingu hafa á sögunni, og búa yfir lágmarksdómgreind, og ályktunarhæfni.

Ég tók þessi líkindi fyrir í 2-3 pistlum, fyrst eftir valdatöku Trumps, og var ekki einn um það, en það er frétt þegar að rótgrónir íhaldsmenn byrja að impra á hinum sömu staðreyndum.

Þegar þeir geta ekki lengur þagað, alveg eins og það var ekki hægt að þegja á fjórða áratug síðustu aldar, þó sá sem gagnrýndur var, var hægri sinnaður í meira lagi, var í heilögu stríði við vinstri menn, sérstaklega bolsévika Sovétsins, og ríkti yfir einu af hinu fornu stórveldum Evrópu, miklu menningarríki og gömlum bandamanni.

 

Því það er ekki hægt að þegja þegar hægriöfgar ógna tilveru mannsins.

Hvorki þá, eða núna.

Og við eigum ekki heldur að þegja yfir vaxandi ítökum þeirra á Íslandi.

 

Þetta er óværa sem á að uppræta.

Sem á hvergi að líðast.

 

Það er annað hvort hún eða siðmenningin.

Ekkert þar á milli.

Kveðja að austan.

 


mbl.is Ferðabann Trump leyft að hluta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverjir eru morðingjarnir??

 

Sá sem framleiddi drápsgildruna, því eftir henni var eftirspurn.

Eða aurasálin sem keypti viðkomandi einangrun því hún var aðeins ódýrari en sú eldþolna svo ég vitni í frétt Morgunblaðsins??

Sá síðari, virt og góð gróðasál, sem hefur alla tíð borgað í sjóð Flokksins, braut engin lög eðli málsins vegna, en væri ekki sjálfum sér samkvæmur, ef manndrápsgróði hans hefur komið fram í ódýrari leigu, eða lægri rukkun fyrir endurbæturnar.

 

Íslenskt réttarfar, myndi örugglega sýkna báða aðila, en myndi leita með ofursterkum kösturum að verkstjóranum sem bar ábyrgð á þeim verkamönnum sem settu upp klæðninguna.

Ef fulltrúi sýslumanns væri hugsjónamaður, það er væri Mammónstrúar, þá myndi hann ekki láta það duga, hann myndi finna hinn réttindalausa Pólverja sem lamdi naglann í uppsetningunni, en ekki minnast orði á verkstjórann.

Og hringja til Íslands til að athuga hvort ekki væri hægt að ná fram sameiginlegri hagræðingu og gefa út eina ákæru á krakkanum við Jökulárslón og Pólverjanum sem lamdi naglanum.

Og hægri öfgarnar myndu fagna öllu saman sem dæmi um hagkvæma notkun almanna fjármuna.

 

Eftir standa fórnarlömbin, bæði þau sem dóu, sem og samfélögin sem sitja uppi með blásýru hins svarta fjármagns.

 

Þau njóta einskis réttar.

Þeir seku sleppa alltaf.

 

Því þeir borga.

Þeir fjármagna.

 

Þeir eiga.

Kveðja að austan.

 


mbl.is Hætta framleiðslu hluta klæðningarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Smánin er okkar allra.

 

Ef við látum vildarvinina, bakhjarlana, alla þá sem borga í Flokkinn, sleppa við ákæru.

En ákærum krakkann á staðnum.

Sem gerði ekkert annað en að vinna vinnu sína.

Vissulega með skelfilegum afleiðingum, en afleiðingin, hið sorglega dauðsfall, var aðeins spurning um hvenær, en ekki hvort.

 

Og um allt land eru svona tifandi tímasprengjur, og þær verða ekki aftengdar, ef sá sem skipuleggur, sá sem hirðir gróðann, og það almannaeftirlit sem lætur hann komast upp vanrækslu sína, er alltaf stikkfrí.

Hvað þurftu margir að deyja við Silfru áður en skynsamar reglur voru settar??

Hvað með alla ferðamannastaðina þar sem varla krónu er eitt í öryggi, í að afmarka stíga svo þeir haldi, eða annað þar sem einhver hirðir gróðann, en enginn telur sér skylt að borga þann kostnað sem þarf til að mannslíf séu ekki háð rússneskri rúllettu??

 

 

Ekki benda á mig segja allir.

Og því siðleysi er síðan veitt syndakvittun með ákæru sem einhver lágt settur fulltrúi, nýskriðinn úr laganámi, með þá ósk heitasta að þjóna kerfinu svo heitt, að hann fái stöðuhækkun, og aur í vasann, gefur út til að breiða yfir ósómann.

Til að beina athyglinni frá þeim sem ábyrgðina bera.

Til að gera hina seku stikkfrí.

Eins og land okkar og þjóð sé hið aumasta bananalýðveli.

 

Síðan þegja öldungarnir, allir þeir sem penna sínum gætu breytt órétti í rétt.

Látið þá sæta ábyrgð sem ábyrgðina bera.

Vegna sóma okkar og vegna þess að það er hin eina leið til þess að græðgin valdi ekki fleiri dauðsföllum.

 

En ICEsave sýndi að þessi þjóð á mjög fáa öldunga.

Hún er svo aum, þeir sem gætu, rugga ekki eftirlaunum sínum eða klappinu sem þeir fá ef þeir kóa með siðspillingunni og auðráninu.

Það er eins og enginn siður, engin réttsýni lifi lengur meðal vor.

 

Aðeins þögnin.

Aðeins hið þegjandi samþykki hennar sem óhæfan sækir sér skjól í .

 

Og restin að þjóðinni þegir.

Steinþegir.

Kveðja að austan.

 

 


mbl.is Sagt að réttindin væru fullnægjandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríkisstjórn Gosanna.

 

Það má alltaf velta fyrir sér hvort Gosi sé óforbetranlegur raðlygari, eða bara svo óheppinn að vera með nef sem kom alltaf upp um lygar hans.

Að lygin sé hluti af mannlegu eðli sem við kippum okkur ekkert upp við nema hjá Gosa greyinu, hann er svo fyndinn þegar lýgur.

 

Nú er það sannarleg staðreynd að þessi ríkisstjórn sem núna situr er skipuð stjórnmálaflokkum, sem allir sem einn lugu sig til valda með loforðum sem ekki stóð til að efna.

Deilur um Evrópusambandið klauf Sjálfstæðisflokkinn, og núna í dag láta flokksbrotin eins og ekkert sé, þetta er ekki merkilegra mál en það en það er sett á ís, og tekið úr út ísgeymslunni nokkrum dögum fyrir kosningar, svo hægt sé að hafa uppi heitstrengingar til að blekkja kjósendur, enn eina ferðina.

Svo var Björt Framtíð til vegna kröfunnar um breytt vinnubrögð, gegnsæja stjórnsýslu án spillingar og vildarvina. 

Og er síðan hluti af einkahlutafélagi Engeyinga.

 

Alvarlegastur er hlutur Sjálfstæðisflokksins, hann var í fyrri ríkisstjórn, samdi þar plagg sem heitir fjármálaáætlun, kannaðist ekki við það plagg í kosningabaráttunni, lofaði þar öllu því fögru sem menn höfðu hugmyndarflug til að lofa, sveik svo allt eftir kosningar með þeim orðum, að samkvæmt fjármálaáætlun væri annað hvort ekki ætlaðir fjármunir í hin lofuðu útgjöld, eða þau féllu til einhvern tímann þegar obbinn af núverandi gamalmennum sem kjósa flokkinn, væru dauð.

Að fífla elliært fólk er út af fyrir sig ljót hegðun.

En að nota til þess beina lygi, að ljúga sig þannig til valda, er ekkert annað en valdarán hinna síljúgandi raðlygara.

Það var ljóst þegar samgönguráðherra opnaði munninn í fyrsta skiptið og tilkynnti fyrirhugaðar framkvæmdir sínar, þar sem ekkert stefndi við loforð flokksins í kosningabaráttunni, en vísaði í fjármálaáætlun sem væri hans yfirvald og húsbóndi.

 

Þann dag var siðrof milli ríkisstjórnar og þjóðar.

Eða það skyldi maður halda.

En var samt svona ekki nema eins og lítil gára á lygnu stöðuvatni eftir fyrsta grjótið sem lítið barn nær að drífa alla leið.

Því til að siðrof verði þá þarf að vera til hópur sem finnst raðlygin á einhvern hátt vera það ámælisverð að fólk sem laug sig beint til valda, að því sé ekki vært í valdastól.

 

Hann er vissulega til og hann hefur mótmælt kröftuglega.

En þau mótmæli eru um margt rammfölsk, sama fólk varði með kjafti og klóm raðlygi ríkisstjórnar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, því hún kallaði sig vinstri stjórn.

Hreinn tónn heyrist vissulega, en hann nær ekki að fylla uppí tómið sem hinir síljúgandi stjórnmálamenn hafa náð að skapa í kringum spillingu sína og misnotkun valds í sína þágu og vildarvina sinna.

Flokkshesturinn ver sinn flokk eins og siðblindur væri, fjölmiðlarnir lúta peningavaldi eiganda sinna.

 

Svo kemur Gosi,og við hlæjum af honum.

Nefið maður, nefið.

 

En áttum okkur ekki á að við erum forsenda Gosanna.

Þeir væru ekki skemmtikraftar okkar ef við gerðum þá lágmarkskröfu að stjórnmálamenn okkar segðu eitthvað loðið og óskiljanlegt eins og okkar ágæti borgarstjóri, þegar þeir ætluðu ekki að efna orð sín.

Að þeir fengju sér vinnu við að skemmta, til dæmis í afmælisboðum eða á þorrablótum, en ekki vinnu við að stjórna landinu.

 

Að við áttuðum okkur á að það erum við sjálf sem erum forsenda heiðarleikans.

Að heiðarleiki stjórnmálamanna okkar er samnefnari þess heiðarleika sem við gerum til okkar, og annarra.

 

Það er enginn fullkominn, og jafnvel í himnaríki finnst ekki sá sem hefur aldrei logið, hvort sem það er sér til skemmtunar, eða ávinnings.

Diffið snýst um hvort er reglan, lygin eða sannleikurinn.

 

Sú regla er ljós í dag.

Kveðja að austan.

 

 

 


mbl.is Kannast ekki við málið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 26. júní 2017

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 71
  • Sl. viku: 1524
  • Frá upphafi: 1321532

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 1299
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband