Hví er þessi hryðjuverkamaður sífellt í íslenskum fréttum?????

Osama Bin Laden er vissulega með andlit sitt glottandi á mörgum veggspjöldum í New York.  En fyrirsögn þeirra er "Wanted, dead or alive". 

Íslenskir fjölmiðlamenn halda hins vegar ekki vatni þegar þetta háttvirta ó... opnar munninn og tjáir sig.  Og ef hann hnýtir í íslenska þjóð, þá liggur mörgum við yfirliði, ekki af ógleði, heldur er líðan þeirra eins og táningsstúlku sem sá Ringo í fyrsta skipti 64.  

Margar sögur eru þekktar af hundum sem sleiktu skó eiganda sinna eftir barsmíðar með svipu.  En enginn hundur með sjálfsvirðingu myndi birta þessa frétt.

Það mætti hinn nýi ritstjóri Morgunblaðsins hafa í huga.

Það er til lítils að láta munstra sig í brúna, en halda sig niðri í borðsal, bíðandi eftir því að fá að létta léttadrengnum lífið.

Þá er betra heima setið en á stað farið.

Kveðja að austan.


mbl.is Þakkaði Brown fyrir að bjarga Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Ég sé að Gordon Bulldog Brown er búinn að ráða sama ræðuskrifara og Jóhanna Sigurðardóttir hefur notast við að undanförnu.

Loftur Altice Þorsteinsson, 30.9.2009 kl. 00:52

2 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Loftur.

Vonandi hefur Davíð ekki sama hundseðlið og virðist einkenna restina af fjölmiðlamönnum Íslands.  Og vonandi hefur Brown sama ræðuskrifarann og Jóhanna, vanhæfan.  Þeir eru allavega báðir í breska verkamannaflokknum.  Flokkur sem verður vonandi history í næstu kosningum.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 30.9.2009 kl. 08:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 73
  • Sl. viku: 1524
  • Frá upphafi: 1321532

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 1299
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband