Evrópa er réttarríki.

 

Það er niðurstaða EFTA dómsins. 

 

Evrópusambandið hafði aldrei réttarheimild til að ákveða ríkisábyrgðir fyrir einstakar þjóðir enda var slíka ábyrgð aldrei í viðkomandi reglugerð.  Not þýðir ekki.

EES samningurinn skerðir ekki fullveldisrétt þjóða til að bregðast við neyðarástandi, hann er kristaltær, einn af hornsteinum þess samnings.

 

EFTA dómurinn staðfestir þessi augljósu sannindi.  

Hann stóðst þrýsting Brussel valdsins að láta pólitísk markmið ganga fram fyrir ákvæðum laga og réttar.

Þessi dómur er sigur siðmenningarinnar, sigur Evrópu.

 

Núna er aðeins eitt eftir.

Ekki stórt, ekki mikið, en skiptir öllu máli fyrir okkur sem sjálfstæða þjóð.

Þjóðin verður að skera úr um hvort Ísland sé réttarríki.

Að það gildi lög og reglur í landinu.

 

Hún á að krefjast að innanríkisráðherra skipi sérstakan saksóknar með það eina hlutverk að ákæra þá ráðherra og alþingismenn sem börðust með bretum í ICEsave.

Beinn stuðningur við fjárkúgun breta er landráð samkvæmt skýrum ákvæðum almennara hegningarlaga þar um.

Það á að lögsækja þetta fólk, og dæma.

 

Aðeins þá ríkir friður í landinu út af ICEsave.

Kveðja að austan.

 


mbl.is Ísland vann Icesave-málið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Algjörlega sammála þér og ég vil sjá rannsókn fara í gang núna strax...

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 28.1.2013 kl. 11:02

2 identicon

mikið er ég sammála þessum orðum hjá þér. þeir ráðherrar og þingmenn sem börðust með kjafti og klóm fyrir þá eiga að sæta ábyrgð

Ingvi Már Guðnason (IP-tala skráð) 28.1.2013 kl. 11:05

3 Smámynd: Jón Sveinsson

Sæll Ómar

Ætli nokkur af þeim borgunarsinnum láti heira í sér á þinni síðu, Það er altaf gaman að lesa skrif þín og sannar að íslendingar eiga gloggan mann sem stendur vaktina og veit hvað hann syngur, Já hvenær skyldi sá dómstóll koma sem tæki á slíkum ráðamönnum það væri gaman að lifa þann tíma.

Jón Sveinsson, 28.1.2013 kl. 11:10

4 Smámynd: Charles Geir Marinó Stout

Nú er tíminn fyrir sókn og á að draga alla þá þingmenn og ráðherra landsins fyrir dóm sem studdu þessa fáránlegu kröfu breta og hollendinga, næsta skref eftir það er að höfða mál gegn bretum fyrir beitingu hryðjuverkalaga og krefja þá um stórkostlegar skaðabætur! Húrra fyrir Íslandi! Til hamingju allir :)

Charles Geir Marinó Stout, 28.1.2013 kl. 11:19

5 identicon

Nákvæmlega!

Beint fyrir dómstóla með þetta landráðapakk.

Geir (IP-tala skráð) 28.1.2013 kl. 11:23

6 identicon

Ég vona að ríkisstjórn Jóhönnu segi af sér í dag. Þetta lið hlýtur að skammast sín þótt Steingrímur og Jóhanna reyni enn einu sinni að ljúga þjóð sína fulla.

Örn Johnson ´43 (IP-tala skráð) 28.1.2013 kl. 11:27

7 identicon

Vantrú mín á EFTA dómsstólnum var innistæðulaus.  Það viðurkennist hér með og biðst ég forláts á því. Þú Ómar, átt hins vegar þakkir skildar fyrir þinn þátt í þessari baráttu. Þú bilaðir aldrei.

Þegar þarf að peppa fólk (stórt og smátt) upp á mínu heimili til þess að berjast af örlítið meiri þrótti í daglegu amstri þá rifjum við hjónin stundum upp síðustu vikuna fyrir seinni Icesave kosninguna.  Þá var aðeins einn nei-sinni eftir sem skrifaði pistla fram á síðustu mínútu til varnar landi og þjóð þegar allir aðrir voru búnir að gefast upp.  Ég las þá fyrir frúnna fram á föstudagskvöld daginn fyrir kosninguna og orgaði af gleði í hvert sinn. Jú, jú; hann hljómaði eins og brjálaður maður rífandi kjaft þrátt fyrir að vera umkringdur af óvinnandi óvinaher. Þetta var maður með algjörlega takmarkalaust baráttuþrek. Og hann sigraði herinn.

Á mínu heimili er þetta kallað "sigur mannsandans" sem fær mann til þess að taka aðeins meira á þegar á móti blæs.      

Seiken (IP-tala skráð) 28.1.2013 kl. 11:27

8 identicon

Sæll Ómar og til hamingju sjálfstæðir Íslendingar sem stóðu gegn þessari

kúgunartilraun. Nú verður þetta landráðapakk sótt til saka öll sem einn  og það

verðu ekki látið líðast að sleppa þessu hyski við margra ára dóm, ásamt að

strippa þeim öllum hlunnindum og lífeyrisréttindum sem þau telja sjálfsagt að

þiggja áfram þrátt fyrir  þessa landráðstilraun sem hún heitir réttu nafni.

Nú reynir á réttarríkið Ísland, er það tilbúið að taka alla þessa þingmenn og

ráðherra og senda í  grjótið. Hér gilda lög og ég ætla rétt að vona að þetta

fólk sé ekki yfir þau hafin.

Með allra bestu ánægjukveðju.

Sigurður Kristján Hjaltested (IP-tala skráð) 28.1.2013 kl. 11:34

9 Smámynd: Ómar Geirsson

Takk fyrir innlitið félagar í baráttunni.

Þetta hafðist, en núna er það að moka flórinn.

Það var ekki að ástæðulausu sem ég skrifaði pistil minn um Örlagadóminn, bæði tilbúinn að fara í stríð ef við töpuðum, og í tiltekt ef við ynnum.  

Og þetta sagði ég um tiltektina.

Fallist EFTA dómurinn á málflutning EFTA ríkjanna, sem sér vitandi hafa aldrei heimilað stofnunum Evrópusambandsins einhliða rétt til að ákveða ríkisábyrgðir EFTA ríkjanna, hvorki takmarkaðar eða ótakmarkaðar eins og ábyrgð á innlánstryggingum er, þá  er ljóst að lögleysa breskra stjórnvalda var algjör, þau eru skaðabótaskyld og þeir ráðamenn breskir sem ábyrgðina bera, sekir um tilraun til ráns og gripdeilda. 

Ótýndir þjófar eins og sagt er.

Eins er ljóst að það innlenda stjórnvald, sem samþykkti óséðan samning við breta um greiðslu á lögleysunni, að það hefur bæði brotið ákvæði hegningarlaga um fjárkúgun sem og ákvæði hegningarlaga um landráð.  

Eins er ljóst að þeir innlendu fræðimenn, til dæmis hjá Lagastofnun Háskóla Íslands, sem tóku undir það sjónarmið breta að krafa þeirri byggðist á EES samningnum, að þeir eru allavega sekir um yfirhilmingu, og að öllum líkindum hafa þeir brotið þetta ákvæði landráðakafla hegningarlaganna;     "Sé þetta í því skyni gert að koma erlendu ríki til þess að skerða sjálfsákvörðunarrétt íslenska ríkisins á annan hát.".  Í ICEsave samningnum voru skýr ákvæði um slíka skerðingu, bæði var dómsvald framselt til breskra og hollenskra dómsstóla sem og að stjórnvöld viðkomandi ríkja fengu íhlutarrétt yfir fjármálastjórn íslenska ríkisins.  Eins voru eigur ríkisins lagðar að veði vegna ICEsave skuldbindinganna.

Og að lokum er það ljóst að þeir innlendu aðilar sem vegna annarlegs stuðnings við breta fullyrtu að kröfur þeirra byggðust án vafa á lagalegum grunni, að þeir haf brotið 86. gr, 87 gr. og 88. gr hegningarlaganna sem fjalla um meint landráð.  Sérstaklega má nefna 88. gr, þar sem stendur; "Hver, sem opinberlega í ræðu eða riti mælir með því eða stuðlar að því, að erlent ríki byrji á fjandsamlegum tiltækjum við íslenska ríkið eða hlutist til um málefni þess".

Um túlkun á þessari grein þarf ekki að deila, brotið er augljóst, það er aðeins spurning hvar á að hýsa allt brotafólkið eftir að dómur hefur fallið.

 

Í þessu samhengi er rétt að minna á þá fréttamenn sem lásu upp fréttatexta sem innhélt þessa fullyrðingu, "... samkvæmt ICEsave skuldbindingum  vegna EES samningsins ....".  

Falli dómur með íslenska ríkinu, þá þurfa þeir að sæta ábyrgð, annars gilda ekki lög í landinu.

 

Dómur sem sýknar íslensk stjórnvöld af kröfu ESA er því örlagadómur fyrir marga landa okkar, þó íslenska þjóðin fagni slíkum dómi.

Það er ljóst að eitthvað af hinum nýju framboðum mun kæra hina seku þingmenn, hina seku ráðherra, hina seku elítu, og öll þau handbendi sem bretar notuðu við að fá fjárkúgun sína samþykkta.

Samtökin Já Ísland munu leysast upp, hætt verður við aðildarumsóknina að ESB, ekki nema menn ætli að halda áfram aðlögunarferlinu úr fangaklefum Litla Hrauns, skipta þarf um forystu hjá Samtökum Atvinnulífsins, Samtökum verslunar og þjónustu, hjá Alþýðusambandinu auk þess sem Samfylkingin og VinstriGrænir hljóta að verða lögð niður.

Og það er engin málamiðlun í þessu dæmi.

Menn verða að axla ábyrgð.

Aðeins þannig er hægt að leggja steina í götu þeirra sem hyggja náunga sínum illt í framtíðinni, og beita fyrir vagni sínum keypta menn.

Það er ástæða fyrir því að landráð eru bönnuð.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 28.1.2013 kl. 11:44

10 identicon

Heill og sæll Ómar minn æfinlega; sem og aðrir gestir, þínir !

Fullur og ótvíræður sigur; Norður- Ameríkuríkisins Íslands.

Evrópsku ribbaldarnir; lögðu niður rófuna, loksins.

Þrátt fyrir; margvíslegan hugmyndafræðilegan ágreining okkar Ómar minn, átt þú - og þinn drenglyndi baráttukraftur, alla tíð, stóran þátt í þessum málalokum.

Til hamingju; Austfirzki garpur /

Með beztu kveðjum; sem jafnan / 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 28.1.2013 kl. 11:49

11 Smámynd: Ómar Geirsson

Takk Seiken fyrir gefandi orð. 

Þetta hafðist vegna þess að fólki var ekki sama, og þjóðin sýndi styrk sinn.  Þessi barátta tók á og krafðist margra fórna.  En menn eins og ég, og við vorum margir, töldu hana þess virði.

Það versta er að þetta er aðeins byrjun á löngu stríði.  

Þjóðin hefur verið seld öðru sinni, og verður seld þriðja sinni, ef fólk einblínir alltaf á þann anga sem ógnarvaldið beitir fyrir sig í það og það skipti.

Sala á framtíð barna okkar verður ekki stöðvuð fyrr en fólk ræðst að kjarna þess valds sem að baki liggur, ógnarvaldinu eða óvininum eina eins og ég kalla hann.

Fyrir mig er þessi dagur fyrst og síðast staðfesting þess að ég hafði rétt fyrir mér frá upphafi, og ég hafði manndóm til að standa við sannfæringu mína, líka þegar málamiðlanir virtust freistandi valkostur.   

En það er bara þannig, menn semja ekki við illskuna, hún heldur aldrei samninga.

Og vonandi verður þessi dagur til þess að einhverjir félagar mínir í baráttunni fari að tak mark á dómgreind minni.

Að maður hætti endalaust að vera sannfæra fólk um hið augljósa sem brjóstvit þess veit að er rétt, þó það gangi gegn hefðbundinni hugsun dagsins í dag, en hefur verið rétt á öllum þeim tímum þegar hinn venjulegi maður hefur þurft að verja sig og sína, og fólk fari að ræða það sem þarf að gera.

Því það þarf að verja samfélag okkar og skotgrafirnar manna sig hvorki með sundrungunni eða aðgerðarleysinu.

Nú er lag, en það vantar fólk á árarnar.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 28.1.2013 kl. 11:58

12 identicon

Takk kærlega Ómar Geirsson fyrir alla þína ódrepandi og hvetjandi baráttu í þessu máli,

en stríðið er ekki búið, þó stóra orustan hafi unnist. 

Við höfum enn verk að vinna í hreyfingu okkar lands og þjóðar til lífsins ... og fyrir lífið.

Pétur Örn Björnsson (IP-tala skráð) 28.1.2013 kl. 13:03

13 identicon

Nei þetta er ekki búið Pétur Örn.  Næsta mál á dagskrá hlýtur að vera að hrekja vogunnarsjóðshyskið af höndum okkar.

Og það verður víst örugglega ekki gert með aðstoð frá núverandi stjórnvöldum eða seðlabanka, sem hleyptu þessu liði inn fyrir varnir íslenskra heimila og fyrirtækja.

Seiken (IP-tala skráð) 28.1.2013 kl. 13:15

14 Smámynd: Guðni Karl Harðarson

Heill og sæll Ómar. Ég er algjörlega sammála þér!

Guðni Karl Harðarson, 28.1.2013 kl. 14:24

15 Smámynd: Ómar Geirsson

Takk baráttujaxlar fyrir að hjálpa til að lemja á hyskinu sem reyndi að selja þjóðina, og munum að baráttan er ekki búin.

Óskar, núna getum við lagt ágreining okkar í salt, þegar böndum hefur verið komið á alla þjófanna, þá má ræða refsingu.

Ég legg til að það fái að hlusta á sín eigin orð þar til það biðst vægðar.

En þú vilt víst eldri og viðurkenndari aðferðir.

Sjáum til, núna þarf að gera, svo má deila, þegar verki er lokið.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 28.1.2013 kl. 15:08

16 identicon

Niðurstaðan er mikið fagnaðarefni fyrir alla íslendinga. Fólk verður nú samt aðeins að róa sig niður í árásum, og gera sér aðeins grein fyrir undir hvers konar skrúfustykki landið varð sett undir af "vinaþjóðum" og alþjóðargjaldeyrissjóðnum á ögurstundu. Getið þið sagt með vissu að önnur ríkistjórn hefði gert eitthvað öðruvísi?? Ég efast um það.

Svona eftirá að hyggja  fengum við bestu mögulegu lausn á málinu, samningsvilji stjórnvalda tryggði okkur áframhaldandi lánagreiðslur, á meðan forsetinn gat leyft sér það sem stjórnvöld höfðu ekki kost á, og synjað frumvarpinu.

 Þetta er það sem þeir kalla "having a cake and eating it too"

Til hamingju!

Atli (IP-tala skráð) 28.1.2013 kl. 21:14

17 identicon

Niðurstaðan er mikið fagnaðarefni fyrir alla íslendinga. Fólk verður nú samt aðeins að róa sig niður í árásum, og gera sér aðeins grein fyrir undir hvers konar skrúfustykki landið varð sett undir af "vinaþjóðum" og alþjóðargjaldeyrissjóðnum á ögurstundu. Getið þið sagt með vissu að önnur ríkistjórn hefði gert eitthvað öðruvísi?? Ég efast um það. Svona eftirá að hyggja  fengum við bestu mögulegu lausn á málinu, samningsvilji stjórnvalda tryggði okkur áframhaldandi lánagreiðslur, á meðan forsetinn gat leyft sér það sem stjórnvöld höfðu ekki kost á, og synjað frumvarpinu.  Þetta er það sem þeir kalla "having a cake and eating it too" Til hamingju!

Atli (IP-tala skráð) 28.1.2013 kl. 21:36

18 Smámynd: Ómar Geirsson

Atli, ef önnur ríkisstjórn hefði svikið þjóðina á ögurstundu, þá væri hún í dag dæmdur fjárkúgari.

Og rökfærsla þín er skrýtin, síðast þegar ég vissi þá hét handtaka lögreglu á brotafólki ekki árás.

Hættu svo þessu bulli með lánafyrirgreiðslu, Ísland hefur greitt upp lán sín frá Hruni, ekki fengið eða þurft á lánum að halda.

Ef þú átt við AGS lánin þá voru þau fengin til að borga út erlenda krónueigendur á yfirgengi, sem út af fyrir sig eru annar glæpur gegn þjóðinni.

En ríkisstjórnin heyktist á því eftir ICEsave, þorði ekki í annan slag við þjóðina.  Lánið safnaði þvi ryki á bankareikning hjá Jp Morgan, ekkert notað, en hefur kostað þjóðina tugi milljarða.

Milljarða sem betur hefðu farið í innviði samfélagsins.

Siðleysi fjármagnsins er algjört og þeim er vorkunn sem reyna að verja það.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 28.1.2013 kl. 21:55

19 identicon

Sæll.

Tek undir með nr. 5 hér að ofan, óskandi að hægt væri að setja þessar þingmannsdruslur sem greiddu atkvæði með Icesave (sama hvaða útgáfu) í grjótið.

Sennilega er það ekki hægt en þegar kosið verður í vor eiga menn miskunnarlaust að beita yfirstrikunum!! Þetta fólk á ekki að fá að sitja áfram á Alþingi enda deginum ljósara að því er ekki treystandi!!

Helgi (IP-tala skráð) 28.1.2013 kl. 22:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 142
  • Sl. sólarhring: 419
  • Sl. viku: 1345
  • Frá upphafi: 1321228

Annað

  • Innlit í dag: 130
  • Innlit sl. viku: 1156
  • Gestir í dag: 126
  • IP-tölur í dag: 126

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband