Það er satt, það er ljótt að ásaka menn.

 

Ég hef alla tíð bent á augljósa staðreynd, Gylfi laug og að benda á þá staðreynd, felst engin ásökun.

Ásakanirnar felast í því af hverju hann kaus að segja ósatt.

Gylfi ber því við að hann sé afglapi, hafi ekki vitað af því að fólk væri að tala um gengistryggð lán.  En hann er skynsamur og vel gefinn maður svo sú skýring stenst ekki.

Augljóst er að hann mat hagsmuni ríkisstjórnarinnar þannig að hann kaus að ljúga. 

 

Og ríkisstjórnin er í ábyrgð fyrir gjörðum sínum, ekki Skálkaskjól ofan úr Háskóla.  Það kaus enginn Gylfa, en fólk kaus Jóhönnu og Steingrím, meðal annars vegna loforða þeirra um Skjaldborgina.

Og aum er sú umræða sem lætur þau sleppa við ábyrgð.

 

Og aum er sú frétt sem lætur málið kristallast um sárindi Gylfa.

Hefur það ekki hvarflað af blaðamanni að þúsundir eiga um sárt að binda vegna þessa lyga ráðherrans.  Og vegna aðgerðarleysis stjórnvalda í skuldum heimilanna.

 

Það var hægt að gera eitthvað miklu fyrr, miklu fyrr.  Það var ekki  hlutverk dómsstóla að skera fólk niður úr skuldasnörunni.  

Það var hlutverk stjórnvalda.

Og stjórnvöld brugðust.

Hvað sem veldur.

Og það er sárt.

Kveðja að austan.

 

 

 


mbl.is Gylfi situr áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Baldur Borgþórsson

Hjartanlega sammála !

Baldur Borgþórsson, 16.8.2010 kl. 21:34

2 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Sömuleiðis Ómar þá er ég hjartanlega sammála þér.

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 16.8.2010 kl. 22:12

3 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Já samála og ég vil gera eitthvað í málunum.

Sigurður Haraldsson, 16.8.2010 kl. 22:54

4 Smámynd: Ómar Geirsson

Takk fyrir innlitið kæra fólk.

Gaman að eiga einn þráð þar sem jákvæðnin ræður ríkjum.  Sjáum hvað setur, ef nógu margir blogga á þessum nótum um ábyrgð Jóhönnu og stjórnar hennar, þá mun eitthvað sögulegt gerast.

En hvað það verður veit nú enginn, en Gylfi mun ekki einn sitja uppi með glæpinn.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 16.8.2010 kl. 23:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 1318297

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband