Enn eitt Samfylkingarskrumið.

 

Ennþá  2008 stíll á Samfylkingunni.  

Þá var treyst á mátt spunakellinga til að stjórna umræðunni.  Og ná völdum og ítökum langt um fram styrk.

Núna eiga þessar sömu kellingar að vefa björgunarreipið sem á að duga til að ná flokknum upp úr kviksyndi sinnar eigin stefnu.

Ekki með því að breyta stefnunni, heldur með því að blekkja kjósendur enn einu sinni.

Umræðan um auðlindir og almannaeign á þeim, hjá flokki sem nýbúinn var að greiða götu íslenskra auðmanna til að eignast Suðurnesjaorku, var dæmi um slíkan vefnað. 

Treyst á að illt tal um sægreifa myndi fá fólk til að gleyma raunveruleikanum.

 

Núna á að aðskilja meira valdið.

En væri ekki nær í stað þess að skerpa sýndarmennsku skilin milli þings og auðmýktar þess gagnvart framkvæmdarvaldinu, að skerpa skilin milli valdhafa og dómara?

Til dæmis með því að hætta hræðsluáróðrinum gagnvart Hæstarétti.  Að hætta að reyna að stjórna dómum hans með Ragnarrakaspám???

 

Og í stað þess að vefa blekkingar, geta hugmyndasmiðir flokksins ekki komið með raunhæfar tillögur til hjálpar öllum þeim sem hamfarir Hrunsins hafa skilið eftir út á köldum klaka.

Flokkurinn hefur jú einstaka stöðu til að gera gagn, það er hann sem stjórnar.

 

En á meðan flokkurinn gerir út á lýðskrum og blekkingar, þá er það fyrir neðan virðingu fréttamanna að taka þátt í leiknum.

Orð Kristjáns Möller segja allt sem segja þarf um þessa vitleysu.

Máttur spunavefara byggist á aðgangi að fjölmiðlum.  

Ekki gera þeim það til geðs að birta vitleysuna þeirra.  

 

Bara við það eitt yrði framtíð Íslands bjartari.

Kveðja að austan.

 

 

 

 

 

 

 

 


mbl.is Ráðherrar hætti þingmennsku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 353
  • Sl. sólarhring: 462
  • Sl. viku: 518
  • Frá upphafi: 1320361

Annað

  • Innlit í dag: 322
  • Innlit sl. viku: 464
  • Gestir í dag: 311
  • IP-tölur í dag: 308

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband