Rísum upp!!

 

Upphaf allra byltinga er að fólk hefur fengið nóg.

Fengið nóg af harðstjórn, spillingu, ofríki.

Íslandi er stjórnað af harðsvíruðu auðvald sem einskis  svífst.

Auðvaldi sem kemur sínum skuldum yfir á almenning.

Að losna við ríkisstjórn spillingaraflanna er brýnasta verk dagsins í dag.

Svona þegar við erum búin að segja Nei við ICEsave.

Það eina sem fólk fer fram á er að fá að lifa mannsæmandi lífi í frið fyrir burgeisum eða ofstjórnendum.

Og það er fólksins að tryggja að það geti lifað slíku lífi.

Styðjum Heimavarnarliðið.  Styðjum okkur sjálf.

Látum ekki svínin komast upp með hvað sem er.

Svín eiga ekki að ráða lífi okkar og limum.   Svín eiga heima í svínastíum, ekki í ráðastólum.

Segjum Nei við ICEsave, segjum Nei við skuldum auðmanna.

Byltum kerfinu ef þess gerist þörf.

Kveðja að austan.


mbl.is Bankakreppu velt á almenning
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

2 identicon

Gallinn er bara sá að það er ekki hægt að segja NEI við Icesave. Þjóðaratkvæðagreiðslan á morgun snýtst ekki um það, heldur hvort við veitum ríkisábyrgð á lán frá Bretum og Hollendingum vegna útborgunar á innlánsfé af Icesave reikningunum. Ef við segjum nei við því, þá taka aftur gildi eldri lög sem jafnframt veittu ríkisábyrgð en hún er takmarkaðri og er háð skilyrðum.

Til viðbótar. Það er ekki nóg að bylta bara kerfinu. Þú verður að vita hvað þú vilt að taki við þegar þú ert búinn að bylta. Bylting byltingarinnar vegna étur börn sín og við höfum of mörg dæmi um að slíkar byltingar hafa í för með sér enn verra stjórnarfar og enn verri aðstæður fyrir þá sem voru í byltingunni en stóðu ekki í fylkingarbrjósti þar sem menn hafa getað komið sér á spenan.

Sigurður Geirsson (IP-tala skráð) 4.3.2010 kl. 13:55

3 identicon

Sigurður Geirsson.  Það er ekki alveg rétt.  Bæði lög falla úr gildi hvað eitthverja raunverulega þýðingu fyrir Breta og Hollendinga varðar.  Þeir höfnuðu þeim fyrri, og þeir taka þau ekki upp einhliða.  Forsetinn undirritaði þau fyrri með skilyrðum um að fyrirvararnir yrðu samþykktir óbreyttir.  Það gerðu þeir ekki.

"Bloomberg hefur eftir Einari Karli Haraldssyni, blaðafulltrúa forsætisráðuneytisins, að þar sem Bretar og Hollendingar neituðu að fallast á fyrirvara Alþingis þá verði ekkert samkomulag í gildi ef Íslendingar fella Icesave-lögin.

Mbl. 14.01.2010

 Afturámóti segir forsætisráðuneytið þetta á sérstökum vef settum upp til upplýsinga um Þjóðaratkvaðagreiðsluna:

 "Verði lögum nr. 1/2010 hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslu gilda eldri lögin óbreytt. Icesave-samningarnir, hvort heldur er frá júní eða október 2009, taka að öllu óbreyttu ekki gildi á grundvelli þeirra. Ástæðan er sú að ríkisábyrgðin samkvæmt lögum nr. 96/2009 er ekki í fullu samræmi við ákvæði samninganna."

http://www.thjodaratkvaedi.is/rikisabyrgd.html

Bretar og Hollendingar gáfu lokafrest til 1. desember um samning, sem var ein fjölmargra heimsendadagsetning stjórnvalda.  Þá var hótunin að annars færi málið fyrir dómstóla.  Héraðsdóm Reykjavíkur sem er dómþing Icesave.  Undirrituðum leist afar vel á þá tilhögun.  Fleiri eru víst ástæður þess að sá glæsilegi er  ekki inni í myndinni.  Svo það er vandséð hvernig á að ver hægt að láta hann verða einhverja hindrun fyrir því að setja stórt X við NEI.

Kveðja.

Guðmundur 2. Gunnarsson (IP-tala skráð) 4.3.2010 kl. 14:26

4 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Sigurður.

Nei við ICEsave þýðir Nei við ICEsave, kannski skilja lögfræðingar það ekki, en þjóðin skilur það.  Við munum aldrei, aldrei greiða bretum krónu í skatt nema að undangengnum dómi þar tilbæra dómstóla.  Það kallast að lifa í réttarsamfélagi, ekki götusamfélagi unglingagengja San Salvador.

Og hvað byltinguna varðar, þá veit ég mæta vel hvað ég vil í staðinn, og fastir lesendur þessa bloggs geta vitnað um það.  Lestu fólk áður en þú gerir því upp skoðanir.  En tregða þín við byltingu er dálitið athyglisverð, í ljósi þess að þú værir ennþá við plóginn ef fólk með manndóm hefði ekki risið upp gegn kúgun og ofríki.

Ekki hrakyrða þann arf sem gaf þér mannsæmandi líf.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 4.3.2010 kl. 20:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 28
  • Sl. viku: 1529
  • Frá upphafi: 1321537

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 1304
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband