Milljarðamæringur fjárfestir í frambjóðendum.

 

Þetta ætti þeir að hafa í huga sem biðja um beint lýðræði.

Lýðræðið myndi kannski lifa í 2 daga á eftir.

 

Það er ekki að ástæðulausu að vitrir menn, feður nútímalýðræðis, sem þekktu söguna vel, enda lesnir og fróðir, hönnuðu nútímalýðræði út frá sjónarmiðum valddreifingar, það er að ekkert eitt fengi öll völd, og út frá fulltrúalýðræði, það er að fjöldinn kjósi einhverja, sem síðan bera ábyrgðina.

Ábyrgð á á ákvörðunartöku, og ábyrgð á framkvæmd.

En geirnaglinn er sá að þeir þurfa reglulega að leita sér umboðs fjöldans.

 

Þess vegna hefur nútímalýðræðið, með sínum kostum og ókostum, haldið í yfir 200 ár.

Þess vegna sækir auðurinn að því með skrumi sínu um beinar kosningar, eða atkvæðagreiðslu fjöldans yfir öllum ákvörðunum, jafnt stórum sem smáum.

Því hannaðir frambjóðendur auðsins, sem hafa fullan aðgang að fjölmiðlum hans, yfirskyggja alltaf rödd heiðarleikans og skynseminnar.

Því sú rödd tengist einstaklingnum sem vill vel, en enginn þekkir nema hans nánasta umhverfi.

 

Af hverju halda menn að til dæmis Dögun, sem ræðst að einum af meginstoðum arðránsins, verðtryggingunni, sé þögguð, en hvert minnsta gól í Pírötum, hins hreina frjálshyggjuafls á þingi, fái greiðan aðgang að eyrum landsmanna.

Af hverju halda menn að þegar skynsemisrödd kemur fram, eins og til dæmis Lilja Mósesdóttir og Samstaða hennar, að þá spretta um leið upp ótal fyrirbrigði, sem hávaða út í eitt, án nokkurs innihalds.

Og fjöldinn upplifir andófið sem raðröð rugludalla.  Flýr því í hið örugga skjól auðflokksins sem hann þó þekkir, og veit hvað hann á von á.

 

Nei, það er ekki nóg að vilja vel, og vera á móti.

Velvilji leysir til dæmis ekki einföld dæmi í hornafræði, það þarf líka þekkingu til þess arna, og það er síðan ákaflega seinlegt að hver og einn reyni að finna út reglu, eins og það hafi aldrei verið gert áður.

Þess vegna setti Pythagoras fram reglu sína, sem í árþúsundir hefur hjálpað stærðfræðingum að leysa dæmi.  Þeir þurftu ekki að finna upp hjólið, og þeir vissu að fyrri þekking, var forsenda nýrrar.

Ekki velvilji eða að vera á móti.

 

Við eigum í dag í stríði við ógnaröfl sem leynt og ljóst leitast við að steypa mannkyninu fram af heljarbrú.

Og þó það sé ljótt að segja það, þá gerir hluti auðsins þessi ógnaröfl út.

Af hverju er spurning, ef menn trúa ekki á tilvist hinnar tæru illsku, þá er fátt um svör.

 

En þetta er svona.

Og það er okkar að bregðast við því.

 

Viljum við ráða okkur sjálf?

Eða viljum við að hið svarta fjármagn mannvonskunnar ráði okkur?

 

Útibú þess stjórnar Íslandi í dag.

Hrægammar og innlendir þjónar þeirra, sem eru á fullu að hirða upp mola, stjórna þjóðinni í dag.

Og auðurinn fjármagnar andófið svo það ógnar honum ekki á einn eða neinn hátt.

 

Gjaldþrot hins borgaralega samfélags er það algjört að ríkisstjórn Íslands er fjölskyldufyrirtæki, Engey ehf.

Grímulaust eru innviðir sveltir svo hægt sé að bjóða vildarvinum beina áskrift að skattfé almennings.

Fjármunir eru fluttir úr landi í massavís og atvinnulífið er aftur að verða leikvöllur hinna svokölluðu fjárfesta.

 

Við höfum aldrei verið svona rík, en um leið aldrei svona fátæk þegar kemur að uppbyggingu innviða og eða veita almenning nauðsynlega þjónustu.

Á sama tíma fær evrópska regluverkið í gegnum óbeina aðild okkar að Evrópusambandinu, að þrengja æ meir að sjálfstæðri starfsemi einstaklingsins.  Endalausar girðingar og hindranir, settar í þágu stórfyrirtækja, til að draga úr samkeppni, gera einstaklingnum illkleyft að bjarga sér á annan hátt en að vera þjónn hinna stóru.

Og ef evrópska regluverkið hefur ekki náð að úthugsa kæfingu á einhverju sviði þá gerir fjölskyldufyrirtækið betur, og setur reglugerð um eitthvað sem heitir jafnlaunavottun, og lofar síðan fleirum vottunum.

 

Við erum rænd, við erum rupluð.

Við höfum alla burði til að hafa hér gott samfélag þar sem fólki liður vel, en sálarleysið knýr kerfið áfram.  Það vogar sér að skerða framlög til frjálsra samtaka sem lyfta grettistaki fyrir svo marga, eins og Hugarafl gerir fyrir geðsjúklinga. 

Hollur matur er síðan kommúnismi, lýðheilsa, eða annað sem er fyrirbyggjandi.

Viðlagatrygging sem á að grípa inní þegar tryggingar ná ekki yfir hamfarir, er ekki viðlagatrygging ef embættismaður hafi ekki fyrirfram skilgreint þá hamfarir sem tryggingin nær yfir.

Samúð, samhygð, að hjálpa í neyð, helvítis kommúnismi.

 

Sálarlaust samfélag.

Stjórnað af sálarlausu fólki.

Sem telur kærleik vera villu sem þarf að leiðrétta, sem þarf að útrýma.

 

En þetta fólk náði ekki völdum með vopnavaldi.

Það laug sig reyndar til valda.

En umboð þess til að stjórna, er umboð sem var okkar að veita.

 

Og hvað gerum við til að hamla á móti?

Í alvöru, hvað gerum við??

Annað en að rífast í skotgröfum sem auðurinn gróf fyrir okkur.

Svo ekkert muni breytast, svo bátnum sem rekur að heljarós, verði ekki ruggað.

 

Það skiptir engu máli hvað við köllum þessa sálarlausu mannvonsku.

Á meðan við leyfum henni að ráða, þá endar allt illa.

 

Fólk sem getur ekki gengið fram á fallegt blóm, án þess að taka sér krók til að traðka það niður, ráðskast með heiminn í dag.

Ekkert okkar mun hafa það afl í glímu ef við ráðumst á það eitt og sér, en saman þá getum við lagt það, því þó það virki vígalegt, með sínum ótal glyrnum og lafandi tungum, þá er það þannig með allt sem sækir afl sitt í rotnun og viðbjóð, að það er fúið og feyskið að innan.

Og fellur við minnsta mótbyr.

 

Fjölskyldufyrirtækið laug sig til valda.

Það á að sæta ábyrgð lyga sinna.

Við eigum að losa okkur við það.

 

Tendra síðan ljós sem lýsir.

Það mun verða öðrum hvatning til að fara eins að.

 

Látum ekki auðinn fjárfesta í ágreiningi okkar og sundurlyndi.

Gleymum fornum væringum.

 

Sameinust um það eina sem við eigum sameiginlegt.

Um framtíð lífsins sem við ólum.

 

Í því mega allir fjárfesta.

Í því eiga allir að fjárfesta.

 

Því það er það eina sem við eigum í raun.

Kveðja að austan.

 


mbl.is Milljarðamæringur fjárfestir í frambjóðendum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 14. maí 2017

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 46
  • Sl. sólarhring: 162
  • Sl. viku: 211
  • Frá upphafi: 1320054

Annað

  • Innlit í dag: 43
  • Innlit sl. viku: 185
  • Gestir í dag: 43
  • IP-tölur í dag: 43

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband