Í öfugsnúnum heimi snýr allt á hvolf.

 

Þetta vita allir feður sem horfðu á Dodda litla og Eyrnastór fyrir nokkrum árum síðan.  Þar var Doddi góði Doddi vondi, og enginn vissi af því, fyrr en þá gráglettni örlaganna að þeir víxluðu saman sínum heimum.  Þá var reyndar mesta undrun Dodda góða að endurnar syntu á hvolfi. 

Hann upplifði nefnilega ekki lýðskrum Trumps.

Mannsins sem sagðist berjast gegn Íslamistum, og þeirri ógn sem af þeim stafar.

 

Því ef Doddi væri á meðal vor í hinum öfuga heimi lýðskrumsins, þá væri flugið á hvolfi hjá öndunum aðeins gára miðað við þann stuðning sem Trump á fyrsta degi sýnir Íslamistum, þeim sem hann segist berjast gegn, hann sendir herskip þeim til stuðnings.

Til að aðstoða ríkisstjórnina sem fjármagnar þá sem ráðast á vestræna borgara, hvort sem þeir eru bandarískir, eða vestur evrópskir.

Þeir sem réðust á Tvíburaturnana voru Saudar, fjármagnið sem gerði þeim það kleyft var Saudískt.

Og Saudar fjármagna þær moskvur sem öfgarnir hafa skjól í.

 

Á vissum tímapunkti þá efaðist enginn um það að sovéskt fjármagn var undirrót fjandsamlegra aðgerða sem beindust gegn Vesturlöndum. 

Hvort sem það voru bein hryðjuverk, eða kostuð mótmæli gegn varnarviðbúnaði vestrænna ríkja, að ekki sé minnst á allar hinar svo kölluðu frelsishreyfingar þriðja heimsins, að þá hvarf öll þessi athafnasemi við hrun Sovétríkjanna.

Ólgan og undirróðurinn hurfu á einni nóttu.

 

Í dag upplifum við veikburða tilburði vestrænna ríkisstjórna til að hamla starfsemi öfgamanna sem allir sem einn eiga sér athvarf í trúarmiðstöðvum eða moskum sem Saudar fjármagna.

Síðan vitum við um tengsl Saudana við árásina á Tvíburaturnana, sem og við vitum um að Ríki Íslams, og öll þau voðaverk sem tengjast þeim samtökum, væri ekki ríki í Írak og Sýrlandi, ef ekki hefði komið til  vopn og fjármagn til þess að þessir miðaldamenn gætu lagt undir sig landsvæði á stærð við meðal vestrænt ríki.

Þekkt staðreynd, eina spurningin var af hverju bandarísk stjórnvöld snérust ekki til varnar, til dæmis með því að stoppa fjármagn og vopnasendingar.  Samt má Obama stjórnin eiga að hún studdi ekki Saudana í frekari útþenslu miðaldarofstækis þeirra.

En að gera ekki neitt er kannski sama og stuðningur.

 

En í dag snýr heimurinn á hvolf.

Baráttan við hryðjuverkasamtök byggist á því að níðast á saklausu fólki, og styðja þá sem fjármagna öfganna.

Aldrei hefði maður ímyndað sér, eftir allar myndirnar frá miðaldastjórn Írans, að stjórnvöld þar hefðu rétt fyrir sér í baráttunni við hina íslamísku öfga, en það er samt hin sorglega staðreynd í dag. Svo ég vitni í upplifun Dodda litla í öfugsnúna landi, þá má lesa þetta í frétt Mbl.is í dag;

að ír­önsk stjórn­völd hafi lýst því yfir í kjöl­farið að þau muni svara í sömu mynt og beita sér laga­lega gegn hags­mun­um banda­rískra borg­ara og fyr­ir­tækja sem að þeirra sögn hafa stutt hryðju­verka­hreyf­ing­ar í Miðaust­ur­lönd­um.

Þetta eru ekki orð, þetta eru staðreyndir.

Frá því á níunda áratug síðustu aldar hafa engin hryðjuverk tengst stjórnvöldum í Teheran en hryðjuverk Íslamista sem sækja bæði fjármagn og hugmyndafræði til Ryad, hafa orðið æ algengari.

 

Og fólk, sem trúði því að Trump myndi byggja múr á landamærunum við Mexíkó, og senda þarlendum stjórnvöldum reikninginn, það trúði líka Trump þegar hann sagðist ætla að taka slaginn við Íslamista.

Og í fordómum sínum og fávisku þá fann það rök með þeirri ákvörðun hans að ráðast á friðsamt fólk sem aldrei hefur nálægt Íslamistum komið.  Þó var það ógnin af framferði þeirra og allur sá viðbjóður sem Ríki Íslams í Sýrlandi og Írak stóð fyrir, sem útskýrði stuðning þeirra við hina meintu baráttu Trump við hryðjuverk þessa sama öfgahóps.

Engin röktengsl, algjör öfugmæli.

En í öfugsnúnum heimi er kannski hægt að réttlæta með þeim rökum, að hugsanlega, fræðilega gæti leynst í milljónunum einn og einn Íslamisti sem Saudar fjármögnuðu til frekari hryðjuverka.

 

En heimur á hvolf snérist við í dag.

Eftir stendur beinn stuðningur við miðaldarríkið sem ábyrgðina ber á hugmyndaheimi Íslamista, og fjármögnun hryðjuverka þeirra.

Eitthvað sem allir andstæðingar þeirra á Íslandi og annars staðar í Vestur Evrópu vissu.

Þeir þekktu rótina, og börðust gegn henni.

Andlit þessarar baráttu á Íslandi var andófið gegn fyrirhugaðri mosku í Reykjavík, því fjármagnið kom frá Saudum.

 

Svo var maðurinn sem fóðraði fordóma þess og ótta, kosinn forseti Bandaríkjanna.

Og þá er öll viska og staðreyndir gærdagsins gleymdar.

Og þeir sem forhertastir eru í forheimskunni, þeir tengja uppgang Íslamista við demókrata og önnur frjálslynd öfl hins vestræna heims.

Gleymd er tengingin við Sauda, gleymt er allt það sem menn þóttust vita fyrir.

 

Og það má spyrja, er til aumkunarverðara fólk í þessum heimi í dag.

Fólkið sem lætur öfugmælin fífla sig.

Sem gleymdi sannfæringu sinni og vissu vegna þess að lýðskrumari fóðraði fordóma þess og ótta.

 

Og í raun er svarið að það þarf mikla þekkingu til að benda á aumkunarverðara dæmi í dag.

Hugsanlega kannski stuðning góða fólksins við fjárkúgun breta kennda við ICEsave.

En sagan sem allt veit, hún glottir aðeins við tönn.

Hún sér sína endurtekningu, eins og aldrei hafi annað komið til greina.

 

Hún þekkir atburði fjórða áratugar síðustu aldar og hvernig spilað var með fordóma fólks þá.

Hvernig Homo Sapiens breyttist í Homo Stupido.

Og hún veit síðan hvað gerðist þá.

Hún veit að orsökin kom á undan afleiðingunni.

Hjá henni er ekkert nýtt undir sólinni.

 

Hjá henni er Doddi litli í Öfugalandi aðeins saga barnabókmennta, samin út frá líkindi við raunveruleikann.

Hún þekkir öll öfugmælin, þau er öll skráð í bækur hennar.

Og hún lýgur ekki, lýðskrum dagsins fær þar engu breytt.

Sagan er sönn, því hún er eitthvað sem hefur gerst, sem hefur verið skráð.

Og það sem gerðist, gerðist þó það hafi ekki verið skráð.

 

Það veit enginn hvenær vitglóran yfirgaf hinn miðaldra hvíta karlmann, hvorki þá eða í dag.

Aðeins eitt af leyndarmálum sögunnar sem hugsanlega tíminn einn getur leyst.

Hins vegar þarf aðeins að fletta sögubók til að vita um endalok lýðskrums sem hefur ofbeldi og átök í forgrunni hugmyndafræði sinnar.

Stríð og það mega hinir nýju valdhafar í Washington eiga, að þeir fara ekki í grafgötu með þann lærdóm sögunnar.  Enda vel gefnir menn sem spila með fólk, en ekki öfugt.

 

Spurningin hér á Íslandi er aðeins ein.

Viljum við þetta stríð??

Viljum við dauðann, auðnina og eyðilegginguna sem því fylgir??

 

Þar er spurningin, þar er efinn.

En í þögninni er enginn efi.

 

Hennar nafn er samþykki

Kveðja að austan.


mbl.is Bandarískt herskip sent til Jemen
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fallegt fólk, á sál og sinni.

 

Safnaði fjármunum til aðstoða nágranna okkar við að takast á við náttúruharmfarir.

 

Í heimi þar sem miðaldra karlmenn hafa kosið yfir heimsbyggðina árásargjarna ofbeldisstefnu, hvort sem það er í USA eða í öfgahreyfingum kennda við Islam, þá er svona fólk, í allri sinni fegurð, líkt og ljósgeisli sem lýsir upp hinn ömurlega raunveruleika 21. aldar.

Öldin, sem átti að gefa mannkyninu frið og gæfu, var yfirtekin af miðaldra karlmönnum sem telja stríð og ofbeldi, kúgun og ofbeldi, ofstæki og ofbeldi, vera lausnin sem tryggir að þeir verði síðasta kynslóð jarðar sem átti valkost um betri heim.

Heim sem gat þróast, heim sem gat tekist á við vandamál, heim sem gat skapað frið og velsæld í þessum heimi sem við deilum öll.

 

En það fór eitthvað úrskeiðis, líkt og gerðist á fjórða áratug síðustu aldar.

Þá sögðu þeir sem dauðann upplifðu í skotgröfum fyrra stríðs, ekki meir, ekki meir.

En drengirnir sem léku sér að tindátum, og upplifðu aldrei hel stríðsins, þeir hópuðust kringum lýðskrumarann sem bauð þeim hatur og heift, fordæmingu og ofbeldi.

Bara misheppnir að fá að kjósa þann náunga, en í öðrum lýðræðisríkjum þá vantaði þeim þetta afl til að fá útrás fyrir testósterónhormóna sína.

 

Svo fór það sem fór, með dauða og ofbeldi og ótal nauðgunum saklausra kvenna.

Og kynslóðin á eftir sagði aldrei meir, aldrei meir.

Og friður ríki í 80 ár.

 

Næsta kynslóð á eftir, lét miðaldra karlmenn með yfirfullan pung af testósterón hormónum, yfirtaka stjórnmálin.

Yfirtaka hið vestræna lýðræði.

Og sagan hefur byrjað sitt endurtekningarferli.

 

Þá eru sagðar sögur að góðu fólki.

Ein sú saga var sögð í dag.

 

Fögur saga sem var knúin áfram af fallegu fólki.

Sem vill vel, vill láta gott af sér leiða.

Vill fagran heim.

Vill það góða sem býr í okkur öllum.

 

Svona sögur eru helstu óvinur þeirra miðaldra karlmann sem helið kjósa fyrir börnin sín.

Þeir virkja óttan og fordómana, þeir vilja átök og stríð.

Svo kemur bara gott fólk sem segir, okkur þykir vænt um náungann.

Við viljum vel.

 

Það er stríð í gangi.

Milli mennskunnar og illskunnar.

 

Fallegar sögur eru helsta vopn mennskunnar í dag.

Þær segja að við erum gott fólk.

Að heimurinn er góður.

 

Þó hinn fordæmandi lýðskrumari, þó hinn ofstækisfulli miðaldamaður séu meir áberandi, þá eru þeir líkt og sprengistjarnan, aðeins leiftur á himinhvolfinu sem fjarar út.

Fallega fólkið er hins vegar eins og sólin.

Það skín, og það skín.

Löngu efir að sprengistjarnan hefur runnið sitt skeið á enda.

 

Og líkt og sólin þá nærir það lífið.

Meira er ekki hægt að gera.

 

Og er í raun það eina sem þarf að gera.

Kveðja að austan.

 


mbl.is Afhentu Færeyingum söfnunarfé
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 3. febrúar 2017

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 16
  • Sl. sólarhring: 534
  • Sl. viku: 721
  • Frá upphafi: 1320568

Annað

  • Innlit í dag: 14
  • Innlit sl. viku: 630
  • Gestir í dag: 14
  • IP-tölur í dag: 14

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband