Bjarni the tyrant

 

Eða svo voru þeir kallaðir einræðisherrarnir sem tóku við að hinum föllnu lýðveldum Grikklands hins forna.

Án þess að það komi málinu við að þá féll lýðveldið þegar fólk hætti að þekkja muninn á lýðskrumi og rökræðu. Svona eins og lýðræðið féll í Bandaríkjunum í síðustu kosningum.

Reyndar hétu harðstjórar hins forna hellenska heims ekki Bjarni, heldur hétu þeir hinu og þessu og voru kallaðir harðstjórar eða tyrant.

 

Það er sögð sú saga um harðstjóra einn sem var eitthvað óviss um vald sitt, að hann sendi ráðgjafa sinn til Sikileysku borgarinnar  Syracus, þar sem mjög skilvirkur harðstjóri réði ríkjum.  Og spurningin var ein, hvernig ferðu að þessu?

Harðstjórinn í Syracus fékk sér þá göngutúr út fyrir borgarmúrana, og stefnan var tekin á næsta akur.  Þar labbaði hann um með sendiboðanum, án þess að segja orð, og það eina sem hann gerði var að höggva annað slagið niður akorn sem risu uppúr umhverfi sínu.

Sendiboðinn skyldi pointið, snéri til baka, og húsbóndi hans varð síðan mjög farsæll harðstjóri, hann fattaði nefnilega að afhausa þá sem ógnuðu veldi hans.

 

Sjálfstæðismenn hafa hins vegar illa tekið pointið, halda að ennþá ríki lýðræði innan flokksins, og þar séu fleiri en einn sem fari þar með völd.

Samt sýndi Bjarni hve vel hann er lesinn, þegar hann skipaði ráðherra innanríkis eftir að rógtungur, sem örugglega hafa ekki átt neinar rætur í Engey, felldu helsta keppninaut hans innan flokksins.  Svona eitthvað svipaðar tungur sem felldu hans helsta keppinaut í íslenskum stjórnmálum nokkrum árum seinna.  Og þær tungur voru heldur örugglega ekki með póstnúmer í Engey, enda eyjan ekki með póstnúmer.

 

Bjarni niðurlægði þungavigtarmenn þingflokksins með því að ná í xxxx uppgjafarþingmann til Sviss.  Sem þarf ekki að taka fram að er alfarið háður velvild Bjarna með valdboð sitt.

Algjörri gat niðurlægingin ekki orðið.  Enda bognaði þingflokkurinn það mikið í baki að utan séð sást enginn hæðarmunur, enda erfitt að gnæfa yfir aðra, þegar allir skríða í auðmýkt fyrir formanni sínum.

 

Augljóst fyrir alla, nema þá sem sáu allt í gegnum flokksgleraugun, og héldu að stuðningur þeirra í prófkjörum, við þeirra mann, þýddi að þeirra maður hefði eitthvað vægi innan flokksins.

Svo núna á að endurtaka kennsluna, aftur á að leita út fyrir þingflokkinn.

Ekki það að það séu ekki allir hlýðnir innan þingflokksins, sískríðandi, en ennþá finnast svo gamaldags flokksmenn að þeir halda að þeir séu sjálfstæðir, og styðji Sjálfstæðisflokkinn.

En ekki hinn samhenta Engeyjarflokk sem ætlar að tilkynna um ríkisstjórn sína eftir helgi.

 

"Kann að leita út fyrir þingflokkinn!!", er hægt að orða það smekklegra?

Hinum algjörum yfirráðum formannsins yfir flokki sínum.

 

Og sýna, svo enginn ætti að veltast í vafa, að Engeyjarflokkurinn er ekki í stjórnmálum til að vinna að hag þjóðar og flokks, hann er það sem hann er, stjórnmáladeild ættarveldis, sem var næstum því búin að tapa stöðu sinni í íslensku efnahagslífi fyrir hinum nýríku ættleysingjum, kennda við útrás.

Og veit eins og er að það er monníið sem ræður öllu á bak við leiktjöld stjórnmálanna.

 

Á næsta kjörtímabili á að einkavæða.

Og einkavæða.

Og einkavæða ennþá meira.

 

Borgunardæmið var æfing á síðasta kjörtímabili.

Núna er það the real one.

Eigum ríkisins skal stýrt til þeirra sem málið varða, það er þeirra sem eiga Engeyjarflokkinn, eða eru bestu vinir eiganda hans.

 

Svona er Ísland í dag.

Svona er Sjálfstæðisflokkurinn í dag.

Svona er þjófræðið í dag.

 

En gleymum því aldrei.

Skriðdrekar bjuggu ekki til þennan raunveruleika.

 

Það er allt fyrir opnum tjöldum.

Kveðja að austan.

 

 


mbl.is Kann að leita út fyrir þingflokkinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vér morðingjar, -annar hluti.

 

Gleymum því ekki að þegar teflt er um mannslíf, þá er aðeins tímaspursmál hvenær ein skák tapast.

Og þá eru þeir sem ábyrgðina bera með blóð á höndum sínum.

Allir.

Kveðja að austan.


mbl.is Komust ekki með sjúkling
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 7. janúar 2017

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 1318296

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband