Stjórnar Skari Skrípó Alþingi?

 

Ef ekki þá verða þau Vigdís og Guðlaugur ekki lengur formaður og varaformaður fjárlaganefndar, þegar dagur er að kveldi kominn.

Forsætisnefnd Alþingis getur ekki liðið svona vinnubrögð því hvað sem sagt er um Alþingi Íslendinga, þá stendur hvergi í samþykktum þess að það sé skrípasamkoma.

Því er ábyrgð stjórnenda þingsins mikil í þessu máli.

Og æra þeirra undir.

 

Einnig er ábyrgð stjórnarflokanna mikil, viðkomandi þingmenn sitja í þeirra nafni.

Ef þeir lúta forystu, þá grípa þeir til viðeigandi aðgerða.

Jarða málið strax, láta flokka sína ekki gjalda frumhlaups og hins algjöra dómgreindarleysi trúnaðarfólks flokka sinna.

 

En vissulega ef þeir eru aðeins tilbúin ímynd almannatengla, og geta ekkert gert af eigin frumkvæði, þá náttúrlega fjárfesta þeir í trúðsbúning, svo klæðnaður þeirra endurspegli stöðu þeirra.

Því Skari skrípó er alltaf auðþekktur, villir aldrei á sér heimildir.

Hann er trúður, ekki forseti Alþingis, eða formaður stjórnmálaflokks.

Skemmtir í afmælum, en stjórnar ekki þjóðinni, eða stýrir Alþingi.

 

Sumt er ekki umflúið.

Sumt þarf að gera.

 

Ef menn axla sína ábyrgð.

Kveðja að austan.


mbl.is „Þetta er ekki skrípasamkoma“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Pólitískar árásir og dylgjur".

 

Eftirmæli stjórnmálaferils Vigdísar Hauksdóttur, að setja ný viðmið í lágkúru stjórnmálaskítkastsins.

Erfitt að toppa, nema þá að þau skötuhjú, Vigdís og Guðlaugur setji fram stefnuskrá flokka sinna, sem álit meirihluta fjárlaganefndar, boði til blaðamannafundar, og láti síðan Alþingi kosta prentun og dreifingu hins sama álits.

 

Allt skynsamt fólk sér, að það sem Oddný  Harðardóttir segir hér að ofan, er rétt, burtséð frá því að það er Oddný Harðardóttir sem segir hinn napra sannleik.

Og fólks sem fóðrar pólitískar bombur sínar með því að vitna í þessa skýrslu meirihluta fjárlaganefndar, það setur ofan, því þá er það hluti af lágkúru sem á sér fá fordæmi.

 

Alþingi hefur ákveðnu hlutverki að gegna í stjórnskipan landsins, nefndir þess hafa ákveðnu hlutverki að gegna, og það er ekkert annað apparat í stjórnkerfinu sem gegnir þessu hlutverki.

Að veikja þegar veikt Alþingi með svona vinnubrögðum, er bæði viðkomandi þingmönnum til vansa, sem og þeim flokkum og ráðherrum sem bera ábyrgð á þessu fólki.

 

Svona gerir maður ekki, sagði góður maður einu sinni þegar hann nennti ekki að taka rökræðuna við skriffinnanna sem vildu ná samræmi í skattlagningu, og ákváðu því að skattleggja blaðburðarfólk, og það þurfti ekki að ræða málið frekar.

Svona gerir maður ekki heldur, og þeir sem það ekki skilja, þeir eru komnir fram á hengibrún lýðræðisins og eiga á hættu að falla ofaní hyldýpi skrílræðisins, þar sem það eina er sagt sem talið er að skili völdum og áhrifum, óháð staðreyndu, eðlilegum vinnubrögðum, og eðlilegum samskiptaháttum.

Svona líkt og forsetaframboð Repúblikana er í dag.

 

Og er það sem við viljum?

Kveðja að austan.


mbl.is Nefndin notuð í pólitískum tilgangi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það húmar að kveldi.

 

Stjórnmálaferils Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar.

 

Þegar menn eins og Guðni Ágústsson, segja hreint út að hann eigi að víkja, flokksins vegna, þá er ljóst að þunnur er orðinn stuðningsmannahópur hans.

Jafnvel þó hann taki slaginn, og hafi sigur, þá er ljóst að aðeins flokksbrot verður eftir til að leiða. 

Svona eins og Samfylkingarbrotið er eftir atlögu Jóhönnuliðsins að Árna Pál.

Líkt og Sjálfstæðisflokkurinn er að verða eftir að gömlu kallarnir mættu á kjörstað og skáru konur flokksins niður við trog.

 

Sigmundur Davíð er sinn eigin sökudólgur.

Ég er ekki að vísa í Wintris,og þann klaufagang allan, ekki heldur þegar hann spilaði sig spinnegal með því að upplýsa um njósnir og annan yfirgang fjármálamafíunnar, án þess að geta fært fyrir því nokkrar áþreifanlegar sannanir.

Ég er að vísa þegar hann skreið ofaní vasa Bjarna Ben í aðdraganda uppgjörsins við kröfuhafa gömlu bankanna, sem mest megins eru hrægammar, bæði innlendir og erlendir.

 

Bjarni notaði Sigmund, leyfði honum að baða sig í sviðljósinu, og setti hann síðan út í horn, þegar nauðsynlegt samþykki Alþingis lá fyrir um að fjármálaráðherra mátti ganga frá samningum við kröfuhafana.

Bjarni leyfði Sigmundi eiga sviðið á blaðamannafundinum þar sem boðaður stöðugleikaskattur var kynntur, uppá langtum hærri upphæðir en síðar var samið um.  Sigmundur Davíð lék síðan lykilhlutverkið þegar Alþingi samþykkti hinn boðaða stöðugleikaskatt, sem yrði lagður á nema kröfuhafarnir semdu fríviljugir um stöðugleikaframlag, sem ætlað var í kynningunni, svipuð upphæð og hinn boðaði stöðugleikaskattur, eða rétt tæpir 900 milljarðar.

Og Sigmundur lék sig svo inní hlutverk sitt að hann talar ennþá eins og að hinu háu upphæðir hafi komið í ríkissjóð.  Og flokksmenn hans kyrja þá sömu möndru.  Eins og fólk sé fífl og trúi öllu því sem logið er að því.

 

En eftir að Alþingi samþykkti að aflétta gjaldeyrishöftunum að undangengnu samkomulagi við kröfuhafana, samkomulagi sem Alþingi hefði síða ekkert um að segja, að þá var það fjármálaráðherra, ásamt seðlabankastjóra, sem fóru með forræði samningaviðræðnanna, og það virðist ekki hafa hvarflað að þeim eina einustu mínútu að semja um þær upphæðir sem um var rætt í frumvarpinu um stöðugleikaskattinn, og greinargerð þess.

Það kvisaðist strax út fréttir að til stæði að semja um miklu lægri upphæðir, og það var ljóst af tali Sigmundar, sem ennþá talaði um stóru upphæðirnar, að hann var ekki með í ráðum, eftir á er augljóst að honum var haldið utan við sjálfa ákvörðunartökuna, og honum var stillt upp við vegg og látinn samþykkja orðinn hlut.

Sigmundur Davíð var leiksoppur, og hann hafði ekki þá styrk, eða eigum við að kalla það manndóm, til að setja hnefann í borðið, og fara gegn þessar mafíu sem hann hefur svo fjálglega lýst að hann hafi snúið niður.

Eftir að Wintris málið komst upp, þá er ljóst að hann hafi haft beinan ávinning uppá 40-60 milljónir (þeir sem vilja vita forsendur þessara talna er bent á að lesa bloggpistil Friðriks Hansen þar um). 

Það lítur þannig út að Sigmundur Davíð hafi selt þjóð sína fyrir smánarfé, eða um 12 silfurskildinga.

 

Lítur út fyrir segi ég því ég dreg það ekki í eina mínútu í efa að þannig sé málin ekki vaxin.

Ég trúi einfaldlega Sigmundi þegar hann segist vilja vel, og hann hafi alltaf tekið hag þjóðar fram yfir sinn eigin hag.  Í það minnsta trúi ég konu hans þar um.

En ef menn eru ekki Júdas, og harðsvíruð mafía féflettir þjóðina á þeirra vakt, og einu viðbrögðin eru að láta eins og féflettingin hafi ekki átt sér stað; hvað eru þeir þá??

 

Það er spurning sem Sigmundur Davíð hefur ekki svarað, og þess vegna húmar að kveldi hans stjórnmálaferils.

Honum til vorkunnar má hann eiga að hann er ekki einn um að hafa ekki kjarkinn til að svara þeirri spurningu, til dæmis hímir uppí Móum geðvondur karl sem dreymir um endurkomu að hætti Churchils, en áttar sig ekki á forsendu hans endurkomu.

Sem var að Churchil hafði kjark til að ganga gegn fjármálamafíu þess tíma.  Sagði satt þegar aðrir vildu stinga hausnum í sandinn.

 

Þar liggur efinn, það þarf kjark til að mæta ræningjum sem virðast öll tögl og haldir hafa í höndum sínum.  Allavega vita það allir sem hafa séð Magnificent Seven.

Og kjarklaus maður mun ekki ná að spóla sig uppúr þeirri forarkeldu sem Sigmundur Davíð er í.

Eins og ég benti á í gær, þá er búið að grafa hans pólitísku gröf, og núna er Guðni að vefja hana silkiklæðum svo hvíldin í henni verði mýkri fyrir vikið.  Silkiklæði ofin úr þeim rökum að flokkurinn sé stærri en einstaklingurinn, en segir í raun, forðumst þann subbuskap að þér verði hent emjandi úr formannsstól.

En það er annað með kjarkinn, hann losar sig við Ormstungurnar sem slefa í hann óráðum úr ráðgjafastól, tekur sér í hönd sverð baráttunnar, réttir úr sér, og ríður til orrustu.  Jafnvel þó sigur sé ekki vís, eiginlega óvís, en fallið því sem næst óumflýjanlegt.

 

Það er aldrei of seint að rétta úr sér, og fara gegn fjármálamafíunni, og ég get svo svarið að það munu margir ríða með þeim sem það gerir.

Og margur fallinn maður, á von um pólitískt framhaldslíf, ef hann aðeins hefur það sem svo margir bíða í ofvæni eftir.

Kjarkinn til að segja hingað og ekki lengra, tökum slaginn.

 

Því fortíð skiptir engu þegar framtíð er í húfi.

Kveðja að austan.


mbl.is Sigmundur Davíð víki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 13. september 2016

Um bloggið

Ómar Geirsson

Höfundur

Ómar Geirsson
Ómar Geirsson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Screenshot (49)
  • Screenshot (49)
  • ...img_0104a

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 103
  • Sl. sólarhring: 103
  • Sl. viku: 156
  • Frá upphafi: 1319995

Annað

  • Innlit í dag: 85
  • Innlit sl. viku: 133
  • Gestir í dag: 81
  • IP-tölur í dag: 78

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband